Morgunblaðið - 27.08.1959, Side 19
Fimmtudagur 27. ágúst 1959
MORCUNBLÁÐÍÐ
19
— Blástursaðferðin
Framh. af !>ls. 8
ann þenjast. Ef rétt er að öllu
farið á þetta þó ekki að ske.
Blástmrsaðferðin með
öndunarpípu
Hinir áðurnefndu samstarfs-
menn, P. Safar og M. Mc Mahon,
hafa útbúið öndunarpípu úr plasti
til notkunar við blástursaðferð-
ina. Við notkun hennar verður
lífgunartilraunin áhrifameiri, að-
gengilegri og auðveldari. Bryggja
er á pípunni og á hún að nema
við varir sjúklingsins, þegar bú-
ið er að koma henni fyrir. Lengri
endinn er til notkunar við full-
orðna, en sá skemmri við ungl-
inga. Ennfremur eru til blásturs-
pípur ætlaðar ungum börnum.
Margþættar rannsóknir voru gerð
ar vestra viðv. notkun öndunar-
pípu við blástursaðferðina og birt
ist grein um þær í tímariti amer.
læknafélagsins, J.A.M.A. 22/3 ’58.
A. Þegar notuð er öndunar-
pípa, ber hjálparm. að krjúpa fyr-
ir aftan höfuð sjúklingsins, opna
munn hans og sveigja höfuðuð
vel aftur. Hinum rétta stærðar-
enda pípunnar er nú rennt nið-
ur í kokið, yfir og aftur með
tungunni unz bryggjan nemur við
varir sjúklingsins. Gætið þess
vandlega að ýta ekki tungunni
aftur í kokið, heldur ná henni
fram og undir öndunarpípuna.
B. Takið undir kjálkabörðin,
eins og myndin sýnir og lyftið
neðri kjálkanum vel fram á við.
Blásið nú kröftuglega gegnum
pípuendann, sem að yður snýr,
12—20 sinnum á mínútu. Við
fyrstu 10—20 blástrana ætti þó
að beita meiri hraða og krafti til
þess að hafa sem fyrst áhrif á
öndunarmiðstöðina.
C. Þrýstið nösum sjúkl. saman á
milli þumalfingra yðar, eins og
myndin sýnir og haldið öllu þéttu
um munn og nef. Fylgizt vel með
innöndun sjúklingsins, er brjóstið
rís og takið þá munninn frá pípu
endanum á meðan lungvm sjá
sjálf fyrir útönduninni. Dragið
djúpt að yður andann og hefjið
blástur á ný.
Áherzla skal á það lögð, að önd-
unarvegi hins rænulausa manns
sé haldið opnum allan þann tíma,
sem á tilraununum stendur, með
því að hækka undir háls og herð-
ar, sveigja höfuðuð aftur á við"
og halda neðri kjálka fram á við.
Þá ber og að fylgjast vel með
andliti og andardrætti, með því
að hlusta eftir honum, veita hreyf
ingum brjóstkassans athygli og
svo framv. Ef yður virðist að
sjúkl. fái ekki nægilega innönd-
un, þá athugið á nýjan leik hvort
slím, uppgangur frá maga, eða
annað, hindri öndunina. Beitið
ennfremur hökunni betur upp á
við, ýtið neðri kjálka framar.
haldið öllu loftþéttu og blásið
kröftulegar.
Oft bætir það aðstöðuna við lífg
unina að láta sjúkl. liggja á borði
eða bekk.
Jón Oddgeir Jónsson.
Margrét Jónatansdóttir
Minning
HINN 23. júlí s.l. lézt í Osló ís-
lenzk kona, frú Margrét Halvor-
sen, en hún hafði búið í Noregi
rúmlega fjóra áratugi. Með fáum
orðum vildi ég minnast þessarar
ágætu konu; eins og til að láta
í ljós fátæklegt þakklæti fyrir
góð kynni.
Margrét Jónatansdóttir, en það
var nafn hennar, áður en hún
giftist, fæddist að Efstabóli við
Önundarfjörð 17. sept. 1889. Hún
ólst upp hjá foreldrum sínum
að Efstabóli og siðar í Engidal
við Skutulsfjörð eftir að foreldr-
ar hennar fluttu þangað. Rúm-
lega tvítug fór Margrét til náms
við lýðháskóla í Danmörku. Að
námi loknu fór hún til Noregs,
lærði þar að sauma kvenfatnað
og varð meistari í þeirri iðn, Hún
stofnsetti saumaverkstæði og síð-
ar litla verzlun, Urd í Pilestredet
37 í Oslo, þar sem hún verzlaði
með kvenfatnað. Hún giftist í
Osló manni sínum, Hans Halvors-
sen, sem enn er á lífi, en hann
hefur um margra ára skeið átt
við vanheilsu að stríða, og ann-
aðist því frú Margrét sjálf all-
an rekstur verzlunar þeirra. Eigi
varð þeim hjónum barna auðið,
en þau ólu upp sysurdóttur
Margrétar, Olgu, en móðir henn-
ar Rannveig sem einnig bjó í
Noregi, lézt, er Olga var barn
að aldri.
Nokkrir þeirra íslendinga, sem
í Osló hafa dvalið við nám eða
störf, hafa átt þess kost að kynn-
ast frú Margréti og njóta hinn-
ar óviðjafnanlegu gestrisni á
heimili hennar. Var sá, sem þetta
ritar, svo heppinn að vera einn
þeirra. Námsmanni, sem dvelur
fjarri ættjörð sinni, vinum og
skyldfólki, er það mikils virði að
eiga þess kost að komast á heim-
ili landa sinna í hinu framandi
umhverfi, tala móðurmál sitt og
ræða íslenzk málefni. Hemili frú
Margrétar var þannig, að það var
líkast því að koma heim til ís-
lands að koma þar. Hún átti
safn íslenzkra úrvalsbóka, eink-
um ljóðabóka, sem hún unni og
(las mikið í tómstundum sínum.
Engan hef ég hitt, sem kunni
aðar vörur á boðstólum. Hún
vildi ekki, að neinn yrði fyrir
vongrigðum af því, sem keypt
var í verzlun hennar.
Rúmri viku áður en hún lézt
vildi svo til, að ég var á ferð í
Osló og heimsótti þá frú Margréti
í sumarbústað hennar skammt ut-
an við borgina. Hún var þá glöð
og hress og ráðgerði að skreppa
til „íslands næsta sumar, enda
þótt hún liði af hjartasjúkdómi,
sem dró nokkuð úr starfsþreki
hennar.
En líf manna er fallvalt. Vin
um og ættingjum auðnast ekki
oftar að taka á móti frú Margréti
heima á íslandi. Við getum aðeins
minnzt mannkosta hennar og
góðrar viðkynningar, um leið og
við látum £ ljós samúð með
manni hennar og fósturdóttur,
sem svo mikils hafa misst.
Kristinn Björnsson.
islík ógrynni ljóða, sem frú Mar-
1 grét. Hún leit alltaf á ísland,
sem föðurland sitt og fylgdist
með því, sem þar gerðist þótt
það yrði hlutskipti hennar að
dvelja í framandi landi mestan
hluta ævinnar. Hún minntist oft
á samferðafólk sitt frá æsku-
árum og virtist fylgjast furðu
vel með gengi þess. Hina mörgu
ættingja sína heima, systkina-
börn og börn þeirra virtist hún
þekkja með nöfnum og vita deili
á, þótt hún hefði aldrei séð margt
af þessu fólki.
Frú Margrét var óvenjulega
greind kona, en jafnframt hlé-
dræg og yfirlætislaus. Oft hug-
leiddi hún og ræddi vandasöm-
ustu rök tilverunnar, en henni
var ljóst, að mannleg hugsun nær
skammt og flestum spurningum,
er snerta líf okkar og hlutverk
hér á jörð, verðum við að láta
ósvarað. Störf sín rækti hún af
alúð og samvizkusemi og verzl-
un hennar naut góðs álits, vegna
þess að viðskiptavinir gátu treyst
því, að hún hefði eingöngu vand-
GRN CLAUSEN
heraðsdómslögmað ur.
Málf’utningsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sítni 13499.
ALLI t RAFKERFIÐ
Bílaraftækjaverzluu
Halldórs Ólatssonar
Rauðarárstíg 20. — Sími 14775.
Loftpressur
með krana, til ieigo.
GUSTUR h.f.
Sími 23956 og 12424.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er gtum ódýr-.ra að auglýsa
í Morgunblaðinu, en í öðrum
blöðum. —
Jttergimblaftid
LtJÐVlK GIZURARSON
héraðsdómslögmaður.
Málflutningsskrifstofa,
Klapparstíg 29 sími 17677.
SVEINBJÖRN DAGFINNSSON
EINAR VIÐAR
Málflutningsskrifstofa
Hafnarstræti 11. — Sírai 19406.
RAGNAR JONSSON
hæstaréttarlögmaður
Vonarstr. 4 VR-húsið. Símil7752.
Lögfræðistörf og eignaumsýsla.
Gísli Einarsson
liéraðsdómslögma^ur.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
MáUltitniiigsskrifstofa.
Gólfslípunin
Barmaiilið 33. — Simi 15657
Krúsjeff ]
gagnrýnirj
! Aden- i
; ]
auer
MOSKVU laust eftir miö-
noetti sl. — NTB-Reuter. —
NIKITA KRÚSJEFF, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, komst
svo að orði í boðskap til Konrad
Adenauers, kanslara Vestur-
Þýzkalands, sem kunngerður var
í nótt, að ástandið milli Sovét-
ríkjanna og Vestur-Þýzkalands
sé komið á afgerandi stig.
Ævarandi ágreiningur
Spurningin er sú, segir hann,
hvort við eigum að taka höndum
saman um að endurvekja gagn-
kvæmt traust, burtséð frá hug-
sjónalegum ágreiningi. Sá ágrein
ihgur hefur ætíð verið og
mun verða milli okkar, en
enginn skynsamur maður er
þeirrar skoðunar, að hann
eigi að fjarlægja með styrjöld,
segir í boðskapnum.
Spilla sameiningu
Krúsjeff gagnrýnir hörðum
orðum utanríkisstefnu Vestur-
Þýzkalands og segir að sú af-
staða, sem ríkisstjórn landsins
hefur tekið til sameiningar
Þýzkalands, breikki aðeins bilið
milli hinna tveggja þýzku ríkja.
Leggur hann áherzlu á, að und-
irritun þýzks friðarsamnings
mundi verða heppileg lausn á
vandamálinu um sameiningu
landsins.
Próf. Dann-
meyer, staddur
hér í bænum
f DAG og á morgun^ dvelst hér !
Reykjavík kunnur íslandsvinur,
prófessor F. Dannmeyer frá Ham-
borg. Prófessor Dannmeyer er for
seti þýzk-íslenzka félagsins í Ham
borg og hefur ætíð látið sér mjög
annt um málefni íslands og greitt
götu fjölmargra íslenzkra náms-
manna, er til Þýzkalands hafa
leitað á undanförnum áratugum.
Prófessor Dannmeyer verður
hjá Gísla Sigurbjrnössyni, for-
:<-jóra Elliiheimilisins þá daga
sem hann dvelst hér í Reykja-
vík að þessu sinni. Hann kom til
landsins fyrir nokkru og hefur
dvalizt í Hveragerði.
Prófessor Dannmeyer varð 79
ára í gær.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu í tilefni af
60 ára afmæli mínu.
Ágúst Pálmason, Langholtsvegi 182
Þakka Hjartanlega gjafir og hlýjar kveðjur á 60 ára
afmæli mínu 8. ágúst s.L
Nils G. Nilsen
Þakka hjartanlega heimsóknir, góðar gjafir og heilla-
skeyti á áttræðisafmæli mínu 22. ágúst s.1.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurlaug Jónsdóttir,BlómvaIIagötu 13
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist í Heilsuverndarstöðinni 26. ágúst.
Guðmundur Árnason, Árni Árnason
Halla Aðalsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
SVEINSlNU SVEINSDÓTTUR
Nesveg 58
fer fram föstudaginn 28. þ.m. frá Fossvogskirkju kl. 13,30
Tryggvi Benónýsson,
Ásgerður Tryggvadóttir,
Sveinn Tryggvason.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför
ARINBJÖRNS ÞORVARÐARSONAR
Kirkjuvegi 15, Keflavík
Ingibjörg Pálsdóttir, synir tengdabörn
og barnabörn.
Þökkum hjartanlega öllum fjær og nær, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin-
manns míns og föður okkar.
ÞÓRARINS JÓNSSONAR
' verkstjóra, Skólavegi 18, Vestmannaeyjum
Sigrún Ágústsdóttir og börn