Morgunblaðið - 16.08.1960, Qupperneq 20
Kristnir menn
sjá bls. 8.
ifptiiMijMíb
IÞROTTIR
eru á bls. 18.
184. tbl. — Þriðjudagur 16. ágúst 1960
Fimm piltar
stela 30 þus kr.
Keflnvík, 15. ágúst.
UNDANFARNAR þrjár vik-
Ur hefur hver innbrotsþjófn-
aðurinn rekið annan hér í
bænum. Eru þeir orðnir 14
samtals, á um það bil þrem
vikum. Lögreglunni hefur nú
tekizt að hafa uppi á þjófun-
um. —
★ 30—40 ÞUS. KR.
Þjófarnir voru aðallega í
peningaleit, en stálu auk þess
nokkuð af sígarettum og fatnaði.
Telur lögregian að peningar og
verðmæti þýfis sé milli 30—40
þús. kr.
* VEt. YFIRVEGAÐ
t Fyrir skömmu handtók
lögreglan fimm pilta á aldr-
inum 15—18 ára. Ilafa þeir
viðurkennt, að hafa verið hér
að verki í öll skiptin. Hvert
innbrot hafði verið framið að
vel yfirlögðu ráði. Sumar
nætur brutust piltarnir inn á
2—4 stöðum í bænum. Nokk-
uð af þýfinu fannst, en pen-
ingunum voru þeir búnir að
eyða, svo og tóbaksbirgðum.
Stærstu þjófnaðirnir voru í
kaupfélaginu og í verzlun
Nonna og Bubba.
Piltamir eru nú undir sér-
stöku eftirliti lögreglunnar unz
dómur gengur í máli þeirra.
— HSJ.
PÉTUR HANNESSON fyrrver-
andi póst- og símstöðvarstjóri
á Sauðárkróki, lézt að heimili
sínu í Kopavogi siðastliðinn
laugardag. — Pétur var fæddur
1893 á Skíðastöðum í Lýtings-
staðahreppi, en dvaldist lengst
af á Sauðárkróki. Þar gengdi
hann fjölmörgum trúnaðarstörf-
um, var m. a. formaður Spari-
sjóðs Sauðárkróks, sýslunefndar-
maður og hreppstjóri um skeið.
Pétur Hannesson fluttist fyrir
skömmu til Kópavogs og gengdi
þar starfi póstafgreiðslumanns.
AIvarlegt slys
á Þrengslavegi
Jafntefli?
ÞRltíJA einvigisskák þeirra Frið
riks Ólafssonar og Freysteins
Þorbergssonar var tefld í gær-
kvöldi. Friðrik hafðí hvítt. Kom
upp Nimzo-indversk vörn. írey-
steinn brá fyrir sig nýjung sem
Smyslov notaði á kandidatamót-
inu 1959. Friðrik náði yfirburða-
stöðu og vann skiþtamun, en
slakaði á og lenti í timahraki.
Freysteinn náði sóknaraðstöðu
sem dró mjög úr vinningslíkum
Friðriks, sem varð að gefa skipta
muninn aftur áður en skákin fór
í bið.
Biðstaðan: Hvítt- Kc2, Hc6, Be3
peð: f3, g2, h2. — Svart: Kh7,
He7, Bb4, peð' f7 og g7
ALVARLEGT umferðarslys
varð austur á Þrengslavegi,
sennilega hið fyrsta þar, um
nónbil á sunnudaginn. Bíll
flaug þar út af veginum með
þeim afleiðingum, að honum
hvolfdi, og slösuðust tvær
konur alvarlega. Eru þær nú
í Landakotsspítala.
Á Missti stjórn á bilnum
Tildrög slyssins virðast vera
þau, að sá sem bílnum ók, hafi
hreinlega misst stjórn á honum,
er hann kom þangað, sem vegur-
inn sveigir upp að Skiðaskáian-
um í Hveradölum. Bíllinn fór
þar í gegnum vegatálmanir, yfir
gula kantsteina, og út í hraunið,
og virðist hafa farið 2—3 veltur.
Læknir kom á slysstjðinn
skömmu á eftir.
ir Konurnar meiddust
1 bíinum voru frú Sigrún
Sigurðardóttir, Tjarnarbraut 3 í
Hafnarfirði, og tnaður hennar,
Nikulás Oddgeirsson, sonur
þeirra, Grétar, og kona hans,
Sjöfn Kristinsdóttir, með lítinn
dreng sinn, en þau búa í Hátúni
4 hér í bænum. Hafði Nikulás
ekið bilnum, Mercedes Benz, G-
2016.
Konurnar meiddust báðar
alvarlega. Sjöfn mjaðmagrindar-
brotnaði, en Sigrún hafði fengið
mikið högg á háls og herðar.
Varð sjúkrabíllinn að aka mjög
hægt á hinum harða og þurra
vegi vegna þrauta Sigrúnar í
höfði og hálsi, er hann flutti
hinar slösuðu konur í Slysavarð-
stofuna. Þaðan voru þær fluttar
í Landakotsspítala. Mennirnir
höfðu sloppið ómeiddir að heita
má, einnig iitii drengurinn.
i Mercedesbíllinn frá Hafnar- S
• firði, eftir veltuna við •
j Þrengslaveg. — Hann er j
S talinn ónýtur. — Ljósm. Sig- s
| urður Harðarson).
Peningum stolið
í Isótel-boi ðstofu
Á LAUGA RD AGSK V ÓLDIÐ
var stolið 400 krónum í borð-
stofunni á Hótel Garði. Ein af
þjónustustúlkunum nafði lagt frá
sér peningaveski á eitt borðanna,
en þar var þá enginn. Að lítilli
stundu liðinni kom stúlkan inn
í borðstofuna og sá þá að veskið
var horfið og með öllu sem í
því var.
Ráðizt á
konu f svefni
Kynningarkvik-
mynd um ísland
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur haft forgöngu um að iáta
gera kynningarkvikmynd um
ísland. Er hún í litum og með
ensku tali. Fréttamönnum var í
gær boðið að sjá kvikmyndina,
en sýningartimi hennar er um
25 mínútur.
Það er kvikmyndafélagið Amö
Studio í Kaupmannahöfn, sem
framleiðir þessa mynd og ann-
ast dreifingu hennar, en tttan-
ríkisráðuneytið hyggst kaupa
nokkur eintök og hafa tii ráð-
stöfunar í sendiráðum íslands
erlendis.
Kvikmyndin heitir á ensku
„This is Iceland“ og er unnin
úr kvikmyndasafni Kjartans O.
Bjarnasonar. Hefur Gísli Guð-
mundsson annast khppingu
myndarinnar og samið textann á
ensku, en yfirumsjón með verk-
inu hafði Bjarni Guðmur.dsson,
blaðafuiltrúi ríkisstjórnarinnar.
MAÐUR nokkur situr nú í
Stcininum í sambandi við
árásarmál. Varð ung kona
fyrir árás á heimili sínu að-
faranótt sunnudagsins.
Maður hennar var ekki
heima og hafði hún ekki læst
íbúð sinni en vaknaði við það,
um klukkan 4, að gripið var
fyrir kverkar hcnnar. Árásar-
maðurinn hafði þegar lagt á
flótta. Konan var gripinn ofsa
hræðslu og hraðaði sér út úr
húsinu og heim til foreldra
sinna, sem eiga heima ki
korn frá.
Snemma á sunnudagsmorg-
uninn hafði maöur verið hand
tekinn í sambandi við málið
og situr hann í gæzluvarð-
haldi. Konan ber þess greini-
leg merki að hún haföi verið
gripin kverkataki.
Terzo tók
mann oi Goða
ÍSLENINGUNUM, sem
sigldu ítölsku skemmti-
snekkjunni Franz Terzo til
Grænlands, líður öllum vel.
Skip.st jorinn, Þröstur Sig-
tryggsson, sagði við kom-
una til Sukkertoppen á
vesturströndinni, að þeir
hefðu fengið gott veður
mestan hluta leiðarinnar.
Við Hvarf hefðu þó verið 9
vindstig og mikill sjór, en
allt gengið að óskum. „Við
höfð im haft fregnir af því,
að Julianehábsbugtin væri
íslaus og ætluðum þangað
inn“. sagði Þröstur, „en
komumst hvergi vegna
borgarísjakanna. „Á þeim
slóðum tókum við um borð
háseta af togaranum Þor-
móði goða. Það var Gunnar
F. Jónsson, 31 árs, og var
1 hann tábrotinn. Komum við
með hann til Færeyinga-
hafnar að kvöldi 6. ágúst og
skildum hann þar eftir. Á
leiðinni þangað lentum við
í mjög slæmu veðri, en allt
gekk þó vel sem fyrr. Og til
Sukkerloppen komum við
að kvöldi þess 7.“, sagði
Þröstur.
Vikuyfirlit Fiskifélagsins
Reitingsafli fyrir
Austfjörðum
Engin
síld
í GÆR veiddist engin síld
og skipin lágu í landvari,
flest skip í Austfjörðum.
Ægir fór út frá Loðmundar-
firði kl. 19 í gær, en fann
enga síld á leitartæki og var
á leið til lands kl. hálf ellefu.
Akraborg fékk 50 tonn af
ágætum ufsa við Grímsey
I gær.
I SÍÐUSTU viku veiddist engin
síld fyrir Norðurlandi, en reitings
afli var fyrir Austfjörðum. Si.
laugardag voru þrjú skip með
yfir níu þúsund mála afla. Hæst
var Guðrún Þorkelsdóttu, Eski-
firði, með 10.810 mál og tunnur,
Eldborg, Hafnarfirði, með 9.569
og Þorbjörn, Grindavík, með
9215. Um vikuaflann segir á
þessa leið í skýrslu Fiskifélagsins:
Síðastliðna viku var bræla á
Norðurmiðum og engin herpi-
nótaveiði. Á Austurmiðum var
hagstætt veiðiveður fram eftir
vkunni og reitingsafli. Vikuafl-
inn var 90.744 mál og tunnur (í
fyrra 114.566).
Síðastliðinn laugardag var
heildaraflinn sem hér segir: Töl
urnar í svigum eru frá sama tíma
í fyrra.
í salt 125.483 uppsalt tunnur
(201.204).
1 bræðslu 632.288 mál (730.601).
í frystingu 15.741 uppmæld.
tunnur (17.430).
Útflutt ísað 834 uppmældar
tunnur.
Samtals 744.346 mál og tunnur
(949.235).
241 skip höfðu aflað 500 mál
og tunnur og þar yfir og fylgir
hér með skrá yfir þau skip.
Hjólkoppum stolið
STOLIÐ hefur verið hjólkoppum
af amerískum bíl, þar sem hann
stóð við húsið Grettisgötu 66. —
Þeir, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um mál þetta varð-
andi eru beðnir að gera rann-
sóknarlögreglunni viðvart.