Morgunblaðið - 20.08.1963, Qupperneq 23
Þriðjudagur 20. ágúst 1963
MORGUNBLAÐID
23
Þurrkdagar að undanfðrnu
hafa bjargað heyskapnum
HEYSKAPUR í sumar verð-
ur að líkindum í meðallagi.
Illa leit út um slátt um tíma,
en síðustu daga hafa komið
nokkrir þurrkdagar víðast
um land og ber fréttaritur-
um þeim, sem Morgunblaðið
talaði við í gær, saman um
að þessir þurrkdagar hafi
breytt útlitinu verulega.
Vegna kuldanna má heita
léleg háarspretta um allt
land.
Hér fara á eftir umsagnir
nokkurra fréttaritara blaðs-
ins um heyskapinn í sumar:
BÚÐARDAL, 19. ág. — Hey-
skapur er farinn að ganga sæmi
lega núna. Hér kom mjög erfið-
ur kafli, en síðasta vika var
sæmileg og nú er þurrkur.
Spretta var góð bæði á tún-
um og úthaga, sérstaklega var
vel gróinn úthagi upp í háfjöll.
Vegna þurrkakaflans núna og
ef svo heldur áfram má búast
við að heyskapur verði sæmi-
legur. — F.Þ.
ÞINGEYRT, 19. ág. —• Dásamlegt
veður er hér, hlýtt bæði í gær
og í dag. Sláttur gengur ágæt-
lega og eru bændur yfirleitt bún-
ir að hirða fyrri slátt, enda hef-
ur ágætur þurrkur verið alla
s.l. viku.
Tún voru ágætlega sprottin
fyrir fyrri slátt, en vegna kulda
er búizt við að háin spretti illa
og seinni sláttur verði í minna
lagi. — Magnús.
STAÐARBAKKA, 19. ág. — Góð
veðrátta hefur verið í Miðfirði
að undanförnu og í gær var
ágætur þurrkur. Hey eru kom-
in inn að mestu leyti og það sem
enn er úti er orðið þurrt.
II la lítur út með hána vegna
kulda, sem hafa verið, það
fennti meira að segja í fjöll fyr-
ir nokkru. — Benedikt.
VÉÐIDALSTUNGU, 19. ág. —
Sláttur hefur gengið heldur
seint 1 Vestur-Húnavatnssýslu,
enda hefur tíð verið óhagstæð.
Góður þurrkur var hér í 3—4
daga og þá náðu margir tölu-
verðu inn af heyjum.
Segja má í heild, að ástandið
sé vandræðalaust, en það er þó
verra á nesjum en innsveitum.
Fyrri slætti er að ljúka þar
— V. Þjóðverjar
Framh. af bls. 1
þeir undrandi á þýzka sendi-
manninn. Síðan varð þögn þar
til Scholl rétti forsvarsmanni
Rússanna höndina. Síðan skálaði
hann í kampavíni við Rússana
og erlenda sendimenn, sem und-
irrituðu samkomulagið í dag.
★
Sendiherra Vestur-Þýzkalands
1 Washington, Heinrich Kapp-
stein, hélt -stutta ræðu, er hann
hafði undirritað samkomulagið.
Sagði hann, að samkomulagið
gæti orðið fyrsta skrefið til bættr
ar sambúðar þjóða heims. Sagð-
ist hann vilja leggja áherzlu á,
að stjórn Vestur-Þýzkalands
væri hlynnt allri samvinnu, sem
miðaði að friði í heiminum.
Sendiherra Vestur-Þjóðverja í
London er í sumarleyfi og sendi-
ráðunautur þeirra Rudolf Thier-
felder undirritaði samkomulagið.
Engar ræður hafa verið haldnar
í London við undirritun sam-
komuiagsins.
sem bezt gengur. Spretta var
sæmileg, en fremur lítil spretta
er í hánni.
SAUÐÁRKRÓKI, 19. ág. —
Þurrt veður hefur verið undan-
farna 2—3 daga víðast hvar í
Skagafirði og hafa bændur náð
inn anzi miklu. Fram til þessa
hefur ástandið verið víða slæmt.
Á ytri hluta Skagans var ekki
komið strá í hlöðu fyrir 4 dög-
um. Þar voru eilífar þokur, en
nú hefur þurrt veður verið
a.m.k.
Frammi í Skagafjarðardölum
er heyskapur orðinn sæmilegur.
— Jón.
BÆ, 19. ág. — Á Höfðaströnd
hefur verið heldur tafsamur hey
skapur, en þó hafa hey ekki
hrakizt. Margir bændur eru bún-
ir að slá og eiga mikið úti af
þurru og hálfþurru Heyi. Þoka
er þessa dagana og lítið hægt að
þurrka.
Háarspretta er misjöfn. Þeir
sem báru á snemma fá sæmilega
sprettu.
Ég býst við, að náist það hey
sem nú er úti verði vel meðal-
heyskapur. — Björn.
BREIÐDALSVÍK, 19. ág. — Slátt
ur gekk seint hér í sveit á tíma-
bili vegna slæms og kalds veð-
urs, en það hefur verið ágætt
síðustu dagana.
Flestir eða allir bændur hafa
Fjölmennt hér-
nðsmót n Flúðum
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna
í Ámessýslu Var haldið síðastl,
laugardag að Flúðum. Mótið
var mjög fjölsótt og fór ágæt-
lega fram. Samkomuna setti og
stjórnaði síðan séra Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Hruna.
Dagskráin hófst með einsöng
Kristins Hallssonar, óperusöngv-
ara, undirleik annaðist Ólafur
Vignir Albertsson, píanóleikari.
Þessu næst flutti Sigurður Óli
Ólafsson, alþingismaður ræðu.
Að lokinni ræðu Sigurðar söng
Sigurveig Hjaltested, óperusöng-
kona einsöng. Þá flutti Bjarni
Benediktsson, dómsmálaráðherra
ræðu. Næst sungu þau Kristinn
Hallsson og Sigurveig Hjaltested
tvísöngva, við undirleik Ólafs V.
Albertssonar. Síðan flutti Brynj-
ólfur Jóhannesson leikari gaman-
þáttt
Ræðumönnum og listafólkinu
var ágætlega tekið. Mótinu lauk
svo með dansleik.
6 monna nefnd-
in kemur saman
S E X manna nefndin kemur
væntanlega saman á miðviku-
daginn til að gera tillögur um
verðlag á landbúnaðarvörum. í
nefndinni eru:
Fulltrúar neytenda: Sæmund-
ur Ólafsson, formaður, Edvard
Sigurðsson, form. Dagsbrúnar og
Einar Gíslason, málarameistari.
Fulltrúar framleiðenda: Sverr-
ir Gíslason, bóndi, formaður,
Einar Ólafsson í Lækjarhvammi
og Sveinn Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri.
Torfi Ásgeirsson, skrifstofu-
stjóri, er ritari nefndarinnar og
auk þess starfar Klemenz
Tryggvason, hagstofustjóri, með
henni.
nú getað náð inn heyjum eftir
fyrri slátt, en verr lítur út með
síðari slátt, því háin hefur sprott
ið seint.
Spretta var ágæt fyrir fyrri
slátt og þeir sem byrjuðu fyrst-
ir að slá náðu miklu inn, því tíð
var góð fyrr í sumar.
Mikið hefur verið um véla-
og bílakaup í Breiðdalnum. Hafa
a.m.k. 6 dráttarvélar verið keypt
ar og einir 12 bílar. Afkoman virð
ist því vera góð. — PáU.
ÞORLÁKSHÖFN, 19. ág. — Slátt
ur hefur gengið ágætlega í Ölfus
inu í sumar. Nokkrir bændur
eru búnir að hirða allt sitt hey
en aðrir eiga eftir seinni slátt.
Spretta var ágæt og náðu bænd
ur heyjum óhröktum. Veðurfar-
ið hefur verið mjög sæmilegt,
sólskin oft og tíðum. — Magnús.
«*W»«
Á SUNNUDAG veiddi Helgi
Guðmundsson, pípulagninga-
meistari, 23ja punda sjóbirt-
ing á stöng í Hólsá í Land-
eyjum. Mun þetta vera einn
sá stærsti sjóbirtingur sem
veiðzt hefur á stöng hér á
landi, en Mbl. tókst ekki að
fá óyggjandi upplýsingar um
þáð í gær.
Helgi kveðst hafa veitt sjó-
birtinginn í Hólsá að austan-
verðu, rétt neðan við Gríms-
staði, úti í miðri á. Hann var Uelgi Guðmundsson með fcuttugu og þriggja punda sjóbirtinginn.
Veiddi 23ja punda sjó-
hirting á stöng I Hólsá
með 12 gramma spón og var
klukkutíma að þreyta laxinn,
sem var afar sprettharður.
— Ég sá að hann stökk
upp rétt við fæturnar á mér
rétt eftir að ég var búinn að
setja í hann, og svo tók hann
strikið, á annað hundrað
metra vegalengd. Það var
nokkuð mikill straumur þarna
en það er sama, hann var
mjög sprettharður.
— Hafði hann bitið almenni
lega á. Varstu ekki hræddur
um að missa hann?
— Hann var mjög naumt
tekinn, en fór samt ekki af.
Ég var auðvitað alltaf hrædd
ur um að missa hann, einc
og maður er alltaf þegar mað
ur fær stóran fisk. Annars
gekk þetta vel. Ég býzt við
að hann hafi vegið 23 pund
nýr, því sólarhring seinna þeg
ar ég vigtaði hann, vóg hann
22 pund.
— Er þetta ekki sfærsti sjó
birtingur sem veiðzt hefur
hér á stöng?
— Ég veit til að 24ra punda
hafi fengizt í net, en ég veit
ekki um stærri sjóbirting sem
veiðzt hefur á stöng. Þó get-
ur það vel verið.
— Eruð þið búin að borða
stórlaxinn?
— Ónei, ég setti hann í
reyk. Ég hugsa að svona stór-
ir fiskar séu kannski dálítið
strembnir.
— Veiðirðu mikið í Hólsá?
Hefur verið góð veiði þar í
sumar?
— Ég hefi verið nokkuð
marga daga þar í sumar, og
hefi veitt þar ágætlega. Manni
þykir gott að fá 5—6 á dag og
einn daginn fékk ég 12. En
það er nú næstum of mikið.
Agætt héraðsmót d Bíldudal
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna
í Vestur-Barðastrandasýslu var
haldið síðastl. laugardag á Bíldu-
dal. Mótið var ágætlega sótt og
fór mjög vel fram. Samkomuna
setti og stjórnaði síðan Hjálmar
Ágústsson, verkstjóri á Bíldudal.
Dagskráiin hófst með því að Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, fram
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, flutti ræðu. Að lokinni ræðu
Þorvaldar söng Guðmundur Guð-
jónsson, óperusöngvari einsöng,
undirleik annaðist Skúli Halldórs
son, píanóleikari. Þessu næst
flutti Jónas G. Ráfnar, alþingis-
maður ræðu. Guðm. Guðjónsson
söng síðan nokkur lög. Síðast á
dagskránni var gamanþáttur er
þeir fluttu leikararnir Árni
Tryggvason og Jón Sigurbjörns-
son.
Var gerður mjög góður rómur
að máli ræðumanna og einnig var
listamönnunum ágætlega tekið.
Lauk samkomunni svo með
dansleik.
Syndið 200 metrana
Það tilkynnist hér með að
GUÐRÍÍN árnadóttir
frá Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi,
andaðist að Elliheimiiinu Grund 18. ágúst 1963.
Aðstandendur.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
JÓHANN BERNHARD
andaðist að heimili sínu Öldugötu 33 Reykjavík, föstu-
daginn 16. ágúst s.l.
Svava Þorbjarnardóttir og dætur.