Morgunblaðið - 20.08.1963, Síða 24
[!_, e tt \fy rv-
HAHKREM
176. tbl. — Þriðjudagur 20. ágúst 1963
mens vorur
****************■»**■*+*************
BRAGDAST BEZT
Síld langt út
af Dalatanga
Saltað á Austfjarðahöfnum
TALSVERÐ síldveiði var um
helgina um 100 mílur SA af
Dalatauga, en þaðan er um 14
tima sigling í land. Voru bátarnir
að koma inn í gær með síld tii
söltunar á alla suðurfirðina aust-
anlands, allt norður til Vopna-
fjarðar og var saltað þar á öll-
um söltunarstöðvum í gær og
fyrradag. Og mun hafa orðið
mesti söltunardagurinn á Seyðis-
firði, saitaðar 7505 tunnur.
Síðdegis í gær voru bátarnir
aftur farnir að kasta á sömu slóð-
um og fengu góðan afla. Var í
gærkvöldi vitað um eftirtalin
skip á landleið:
Sæfari BA 700, Halldór Jóns-
son 1100, Baldvin Þorvaldsson
700, Heiðrún 850, Áskell 800,
Sæúlfur 700, Baldur 1000, Sunnu-
tindur 700, Hilmir II 600, Seley
700, Þórkatla 1000, Sigurpáll á
annað þús.
Þá var ennfremur vitað að
Stefán Árnason, Mímir og Jón
á Stapa og fleiri voru lagðir á
stað, en ekki vitað um aflamagn.
Síðdegis var Sigurbjörg úr
Keflavík á leið á miðin og kom-
in 50 mílur út, er hún rakst á
síld, og þar var einnig vaðandi
5 Eyjabát-
ar i viðbót
teknir
SIF, flugvél Landhelgisgæzl-
unnar, stóð 4 Vestmannaeyja-
báta að ólöglegum veiðum í
landhelgi á laugardaginn var,
og þann 5. að ólöglegum hum-
arveiðum. Þeir eru Júlía VE
123 og Frygg VE 116, sem
voru að veiðum á Selvogs-
banka, og ísleifur VE 63 og
Maggý VE 111, sem voru að
veiðum út af Vík i Mýrdal,
og Heimir VE 138 var kærður
fyrir ólöglegar veiðar með
humarvörpu.
Landhelgisflugvélin hefur
alis kært 27 báta frá áramót
um. 12 Eyjabátar höfðu áður
verið kærðir fyrir ólöglegar
veiðar. 8 þessara báta eru
humarveiðibátar og hefur
sjávarútvegsmálaráðuneytið
svift þá humarleyfum.
síld. Var hún búin að fá 600
tunnur um 10 leytið í gærkvöldi.
Anna frá Siglufirði var einnig
þar, Hannes Hafstein og Skarðs-
vík voru komin þangað og búin
að kasta. Veður var ágætt á mið-
unum.
Á Seyðisfirði var saltað á öll-
um söltunarstöðvum í gær og í
Neskaupstað voru saltaðar um
3 þús. tunnur.
Fréttaritarinn á Eskifirði sím-
ar í gær: Landanir frá hádegi á
laugardag til hádegis í dag: Hall-
dór Jónsson 1200 tunnur, Sæfari
BA 500, Steingrímur trölli 550,
Þorleifur Rögnvaldsson 55Q, Ak-
urey 250, Jón Guðmundsson 350,
Björg SU 200, Guðrún Þorkels-
dóttir 400, Jónas Jónasson 150,
Ólafur Tryggvason 800, Vattar-
nes 300, Helgi Helgason 450,
Einir 150.
Á Eskifirði hafa verið saltaðar
16.677 tunnur og skiptist á sölt-
unarstöðvarnar þannig: Auð-
björg 10677, Framnes 2100,
Askja 3200. Bræðslan hefir tek-
ið á móti 31289 málum, í fryst-
ingu hafa farið 3615 tunnur.
Frá Norðurmiðunum voru eng-
ar síldarfregnir. Ægir fann þó
mikla rauðátu á norðaustanverðu
Digranesflaki, allt upp í 70 milli-
lítra, og á aðeins 2 faðma dýpi.
Ætti síldin að geta sótt á þau
mið átunnar vegna.
Teljarinn í Elliðaánum. Girt er báðum megin við hann, svo laxinn kemst aðeins upp hjá telj-
aranum, og þannig búið um að hann kemst ekki til baka.
3400 laxar gengnir upp
Elliðaárnar
3400 laxar höfðu síðan 1. júni
farið upp Elliðaárnar fram hjá
teljaranum þann 16. ágúst sl.
Er þvi óvenjumikill lax i ánum
eins og er. En í fyrra gen,gu
innan við 2000 laxar gegnum
teljarann á öllu veiðitímabilinu.
Þessar upplýsingar fékk Mbl.
hjá Eðvardi Bjarnasyni í gær.
Laxinn gekk óvenju seint í
árnar á þessu sumri, sem kunn-
ugt er, ekkert að ráði fyrr en
um miðjan júlí. Veiði var þvi
'lítil framan af, en er nú sæmi-
leg. Telja sumir veiðimenn vatn
ið heldur lítið í ánum. Að und-
anförnu hefur aðallega veiðzt á
fluigu og mest á efra svæðinu,
þar sem ekki er notað annað en
flugan. Fá menn allt upp í 5—6
laxa á 6 tímum, að sögn Eðvards
Bjarnasonar, en veiðileyfin gilda
ýmist frá 7 á morgnana til kl. 1
e. h. eða frá 15—21 síðdegis.
Síldin við Suðurland ókyn
broska ungsíld
40—50 sildarbátar komnir suöur
til veiða
EFTIR AÐ fréttist um síld-
veiði við Suðurlandið, héldu
margir af síldarbátunum fyr-
ir norðan heim. Munu 40—
50 bátar vera farnir suður,
HÉRAÐSIMOT
Sjálfstæðismanna
*
I Borgarnesi 24. ágúst
IIÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Norður-Þingeyjarsýslu
verður haldið að Skúlagarði, Norður-Þingeyjarsýslu laugar-
daginn 24. ágúst kl. 9 síðd.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Sjálf- |
stæðisflokksins og Jónas G. |
Rafnar, alþingismaður, flytja
ræður.
Leikararnir Árni Tryggva- |
son og Jón Sigurbjörnssonf
skemmta. Ennfremur syngur
Guðmundur Guðjónsson,
óperusöngvari, með undirleik
Skúla Halldórssonar, píanó-
leikara.
Dansleikur verður um kvöldið.
Þorvaldur G.
Kristjánsson
Jónas G.
Rafnar
þar af sumir af aflahæstu bát
unum á síldveiðinni fyrir
norðan. Fiskideild Atvinnu-
deildarinnar hefur að undan-
förnu verið að rannsaka síld-
ina sem veiðist hér fyrir sunn
an og í gærkvöldi skýrði
Egill Jónsson, aðstoðarmaður
Jakobs Jakohssonar, fiski-
fræðings, frá niðurstöðum
í fréttaauka útvarpsins.
Sagði Egill að þarna væri um
að ræða íslenzka síld af vorgots-
stofni, aðallega tveggja ára eða
um 90% af afla. Varla sæist
eldri síld en 5 ára. Sé síldin
25% sm að meðaltali á lengd.
Þetta sé ókynþroská fiskur og
því mjög varhugavert að veiða
hana, það heyrði úndir rányrkju.
Yrði þarna að treysta á dórp-
greind útgerðarmanna og sjó-
manna, að þeir sjái að þetta
getur ekki gengið, þar sem auð-
æfin í hafinu séu sá höfuðstóll,
sem við höfum til að lifa af, og
aldrei sé gott að tekið sé meira
af honum en vextirnir. Alveg
eins og sá bóndi þætti ekki hygg
inn sem dræpi öll sín lömb að
hausti ef hann ætlaði sér að búa
áfram. Það sama sé nú að ger-
r ■
miðunum fyrir sunnan
Elliðaárláxinn er aldrei mjög
stór, en Eðvard sagði að þessi
sem hefði verið að veiðast und-
anfarið væri ágætur, upp undir
10 punda lax.
— Annars er verst að veiði-
timabilið er að verða búið, þvl
lýkur 4. september í Elliðaánum,
sagði Edvard. En út af fyrir siig
er ekki nema gott að laxinn
komist sem mest upp, þar eð
hann fer upp í árnar til að
hrygna.
Sem sagt það er mikill lax I
Elliðaánum og ef kæmi rigning-
artímabil núna, mætti búast við
mikilli veiði þar.
Eiga laxana fram yfir 3000?
Mbl. hefur frétt að borgaryfir-
völdin eigi eignarrétt á miklum
hluta af þeim laxi sem er fram
yfir 3000 og gengur upp í Elliða
árnar, og megi taka hann, ef
óskað er. Ekki tókst Mbl. að fá
þetta staðfest í gærkvöldi.
JVorrsenir ráðherrar
sitja iund í Biiröst
í GÆRKVÖLDI kom sænski
félagsmálaráðherrann Svend Asp
lin,g til landsins, til að sitja fund
félagsmálaráðherra Norðurlanda,
sem hefst í Bifröst á fimmtudag.
-undinn sitja ráðherrar frá
öllum Norðurlöndum, nema
Noregi. Frá Danmörku kemur
Lars B. Jensen innanríkisráð-
herra og 5 Danir og tveir ráð-
herrar koma frá Finnlandi I
kvöld. Af íslands hálfu situr
íundinn Emil Jónsson, félags-
málaráðherra og 5 íslendingar
aðrir.
Á miðvikudagsmorgun verður
haldið að Bifröst um Þingvelli
og verðúr fundurinn settur á
fimmtudagsmorgun.
HÉRAÐSMÚT
Sjálfstæðismanna
að Skúlagarði 24. ágúst
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Mýrasýslu verður haldið
i Borgarnesi laugardaginn 24. ágúst kl. 8,30 síðdegis.
Jón Árnason, alþingismað-
ur og Ásgeir Pétursson, sýslu-
maður flytja ræður.
Til skemmtunar verður
einsöngur og tvísöngur. —
Flytjendur verða óperusöngv-
ararnir Kristinn Hallsson og
Sigurveig Hjaltested, undir-
leik annast Ólafur Vignir
Albertsson. — Ennfremur
skemmtir Brynjólfur Jóhann-
esson, leikari.
Dansleikur verður um kvöldið.
Jón
Árnason
Ásgeir
Pétursson