Morgunblaðið - 23.04.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23 APRlL 1977
5
Á blaðamannafundi í gær
gerðu forráðamenn félagsins
grein fyrir því með hvaða hætti
afmælis félagsins yrði minnzt.
Davíð Ólafsson, forseti félags-
ins, minnti í byrjun fundarins á
að markmið félagsins hefði frá
FORRAÐAMENN Ferðafélags Islands á blaðamannafundinum ( gær, talið frá vinstri: Böðvar Pétursson, Jón tsdal, Páll Jónsson, Haraldur
Sigurðsson, Davið Ólafsson, forseti Ferðafélagsins, Eyþór Einarsson, Kristinn Zóphónfasson og Tómas Einarsson. Ljósm Mbl. RAX.
r
Ferðafélag Islands 50 ára:
ERÐ
eru í árbókinni greinar etir 19
höfunda og eru það ýmist ferða-
minningar, frásagnir af ein-
Rithöfundar og vismdamenn
rita 1 Árbók 1977 — sýning
á búnaði til fjallaferða
stökum stöðum eða einstökum
þáttum í landslagi Islands. Þeir
sem rita í árbókina eru: Anna
Maria Þórisdóttir, Bjartmar
Guðmundsson, Eysteinn Jóns-
son, Eyþór Einarsson, Gestur
Guðfinnsson, Halldór Laxness,
Hannes Pétursson, Hjálmar R.
Bárðarson, Hjörtur Pálsson,
Kristján Eldjárn, Matthías Jo-
hannessen, Ólafur Jóhann Sig-
urðsson, Sigurður Blöndal, Sig-
urður Þórarinsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Þórarinn Guðna-
son og Þórleifur Bjarnason. Þá
er í bókinni minningargrein
um Sigurð Jóhannsson, fyrrver-
andi forseta Ferðafélagsins, er
Sigurður Þórarinsson ritar.
Páll Jónsson, ritstjóri Árbók-
ar Ferðafélagsins, nefndi á
fundinum sem dæmi um
hversu mjög Árbókin hefur
stækkað, að fyrsta bókin var
rúmlega þrjár arkir en nú er
Framhald á bls. 26
FIMMTlU ár verða í haust liðin
frá stofnun Ferðafélags ís-
lands. Þessara tímamóta verður
minnzt með ýmsum hætti af
hálfu félagsins og má þar fyrst
nefna að fimmtugasta árbók fé-
lagsins kemur út um þessar
mundir og er að því leyti ólík
fyrri árbókum að í henni er
ekki fjallað um einstakan
landshluta heldur rita nokkrir
kunnir rithöfundar og vísinda-
menn þætti um sjálfvalið efni
sem þó er innan þess sviðs, sem
tilgangur félagsins markar. I
nóvembermánuði n.k. efnir fé-
lagið til sýningar í Norræna
húsinu og er ætlunin að kynna
þar það nýjasta og bezta, sem
hægt er að fá til útbúnaðar í
ferðalög um óbyggðir og enn-
fremur ýmislegt um ferða-
mannsku áður fyrr. Þá efnir
félagið í tilefni af afmælinu til
alls tiu gönguferða á Esju i mai
og júní og verður fyrsta ferðin
farin 7. maí. Ferðafélag íslands
var stofnað 27. nóvember 1927
og núverandi forseti félagsins
er Davið Ólafsson seðlabanka-
stjóri.
upphafi verið að hvetja lands-
menn til ferðalaga og þá sér-
staklega að gefa mönnum tæki-
færi á að fara um landið gang-
andi. Til að auðvelda fólki slík
ferðalög gaf félagið strax á
fyrsta starfsári sínu út árbók og
fjallaði hún um Þjórsárdal. Á
árinu 1930 byggir félagið fyrsta
skála sinn og var hann i Hvítár-
nesi, við Kjalveg, en skálar fé-
lagsins eru nú orðnir 17 að tölu
en Davið tók fram að þar hefði
Ferðafélag Islands ekki staðið
eitt að verki heldur ættu ferða-
félögin fyrir norðan og austan
sinn þátt i uppbyggingu þeirra.
Eins og fyrr sagði er að þessu
sinni brugðið út af þeirri venju,
sem ríkt hefur, að helga árbók
Ferðafélagsins lýsingu á ein-
hverju ákveðnu landsvæði. Nú