Morgunblaðið - 23.04.1977, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23 APRIL 1977
Dr. Vilhjálmur Lúðviksson:
Vandamál Þörungavinnslunnar
Athugasemdir við gagnrýni
Sigurðar V. Hallssonar
INNGANGUR
Að undanförnu hefur stjórn Þör-
ungavinnslunnar h.f og þó sérstaklega
höfundur þessarar greinar, svo og
verkfræðilegir ráðgjafar fyrirtækisins,
legið undir mjög þungum ásökunum
frá Sigurði V Hallsyni, efnaverkfræð-
ingi, fyrir Stórfelld og margvisleg. en
venjuléga ótiltekin mistök um undir-
búníng, hönnun og val tækja, svo og
stjórnun framkvæmda við byggingu og
síðar rekstur Þangþurrkstöðvar að
Reykhólum. Ásakanir þessar eru svo
alvarlegar að persónuheiður og starfs-
heiður viðkomandi manna er í veði
Hefur sfðan Dagblaðið notað aðdrótt-
anir Sigurðar til nlðskrifa um einstaka
stjórnarmenn Þörungavinnslunnar,
þ.e. mig og Steingrim Hermannsson,
alþingismann, svo og Rannsóknaráð
rlkisins, sem' Steingrlmur veitir for-
stöðu, og kostaði ýmsar undirbúnings-
rannsóknir tengdar þessu máli. Hefur
Sigurður verið gerður að píslarvotti
þess vonda kerfis, sem Dagblaðið telur
sig berjast gegn Ónafngreindir tækni-
legir ráðunautarerueinnig atyrtir I skrif-
um þessum, sem reynslulitlir aðilar og
dómgreind þeirra léttvæg fundin við
hliðina á 20 ára reynslu Sigurðar V
Hallssonar.
Skrífum Dagblaðsins er ekki unnt að
svara, þar sem þau annars vegar mót-
ast af pólitlskum ofsóknum á hendur
Steingrími Hermannssyni og hins veg-
ar þeirri almennu stefnu blaðsins, að
þyrla upp moldviðri um menn og mál-
efni undir yfirskyni rannsóknablaða-
mennsku og svífast þá einskis I við-
leitni til að selja vöru slna I samkeppni
eftirrniðdegisblaðanna.
Þess má geta, að á blaðamanna-
fundi, sem stjórn Þörungavinnslunnar
h.f boðaði til 25 október s.l. til að
gera opinberlega grein fyrir vandamál-
um fyrirtækisins var Dagblaðið eini
fjölmiðillinn, sem ekki sendi fulltrúa og
var það væntanlega í samræmi við
dýpt þeirrar upplýsingasöfnunar sem
blaðið viðhefur.
Viðtali við Sigurð I Morgunblaðinu
hinn þ. apríl s.l verður þó að svara,
enda er hún alvarlegri tilraun til að
varpa Ijósi á atriði sem gagnrýnisverð
kunna að þykja, þótt ekki sé þar dómur
felldur.
Vandinn við að svara aðdróttunum
Sigurðar er sá, að þær eru annaðhvort
svo slagorðakenndar og órökstuddar
fullyrðingar um mistök I hönnun og
stjórnun, að ekki er unnt að taka á
þeim eða svo tæknilegs eðlis, að óljóst
er hvort almenningur nennir að setja
sig inn I þau atriði, sem máli skipta og
mynda sér sjálfstæða skoðun Hér
verður þó reynt að setja meginatriði
þessa máls fram, þémnig að flestir sem
vilja geti áttað sig á því En þvl miður
verður það ekki gert efnislega nema I
alllöngu máli, annars stæðu einurtgis
fullyrðingar gegn fullyrðingum
við Sigurð V. Hallsson, efnaverkfræð-
ing Um sjálfa öflunartæknina og mat á
ýmsum rekstaraðstæðum, var að meg-
inhluta stuðst við reynslu og ráðgjöf
Alginate Industries Ltd. sem er það
fyrirtæki I heiminum, sem mesta
reynslu hefur I vinnslu þangs og er
annar tveggja stærstu alginatframleið-
enda I heiminum. Sjálf öflunartæknin
sem valin var, hefur þó verið þróuð á
vegum hins stærsta alginatfyrirtækis-
ins, Kelco I Bandarlkjunum, sem m.a.
starfrækir litla alginatverksmiðju ná-
lægt Yarmouth I Nova Scotia og byggir
framleiðslu slna á vinnslu klóþangs.
Framleiðandi tækjanna Aquamarine
Corporatíon, hefur að sjálfsögðu ann-
ast tæknilega framkvæmd þessarar
þróunar
Alginate Industries Ltd. og Kelco
hafa með sér samkomulag um gagn-
kvæm skipti á upplýsingum um öflun-
artækni þessa og naut Þörungavinnsl-
an h.f þess samstarfs og hafa fulltrúar
allra fyrirtækjanna hittst nokkrum sinn-
um af þessu tilefni. Tæknileg aðstoð
við endurbætur og eftirlit með smlði
prammanna hefur verið fengið frá
Stefáni Erni Stefánssyni, svo og
bandarisku fyrirtæki, sem tók að sér
að fylgja eftir tæknilegum og viðskipta-
legum hagsmunum Þörungavinnslunn-
ar h.f. í sambandi við smlðina á öflun-
arprömmunum. Leitað var til Sigurðar
V Hallsonar um tillögur að endurbót-
um á prömmunum og kom hann
þeim á framfæri haustið 1974, að
svo miklu leiti sem honum hentaði þá.
Þess skal getið að þegar undir-
búningsfélag Þörungavinnslu h.f skil-
aði áliti sinu um hagkvæmari þörunga-
vinnslu, sem byggt var á frumhönnun
verksmiðjunnar og föstum tilboðum I
alla meginþætti aðbúnaðar, var af
hálfu Iðnaðarráðuneytis beðið um um-
sögn Framkvæmdastofnunar rlkisins
og Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen s.f. Voru frá þeim slðarnefndu ekki
athugasemdir um fyrirhugaða hönnun
verksmiðjunnar, en eðlilegir fyrirvarar
varðandr fyrirhugaða öflunartækni,
sem þvl var takmörkuð reynsla á.
Þar sem öflunarafköst prammanna
hér við hérlendar aðstæður verða ekki
ábyrgst af framleiðendum né tæknileg-
um ráðgjöfum Þörungavinnslunnar h.f,
hlýtur fyrirtækið sjálft og stjórn þess að
taka á sig þá ábyrgð og áhættu, sem
tækjavali var samfara og ætlar stjórn-
in ekki að afneita þeirri ábyrgð
SAMSKIPTI VIÐ
SIGURÐ V. HALLSSON:
Þar sem Sigurður V. Hallsson gagn-
rýnir mjör skort á samráði við sig um
undirbúning og daufar undirtektir við
tillögur hans I ýmsum tæknilegum efn-
um, er rétt að gera grein fyrir samn-
ingnum við hann, svo og tillögum
hans, að svo miklu leiti sem þær eru til
Vilhjálmur Lúðvíksson
skriflegar og verða bornar saman við
tæknilegar lausnir, sem valdar voru
Það verður að koma hér fram að
samskipti þeirra, sem staðið hafa að
undirbúningi Þörungavinnslunnar h.f.
við Sigurð, hafa löngum verið mjög
stirð og geta þeir sem um málið hugsa
getið sér til um hvort það sé af ein-
skærum illvilja til Sigurðar V. Hallsson-
ar, — sem án efa hefur mest manna
og lengst hugsað um hagnýtingu bot-
lægra þörunga hérlendis. Að notfæra
ekki þá þekkingu frá upphafi hefði virst
fásinna Gallinn hefur hins vegar verið
sá að Sigurður hefur gert tilkall til að
fjalla einn og á eigin skilmálum um alla
þá þættii sem málið varða Hefur hann
hvorki staðið við gert tilkall til að fjalla
einn og á eigin skilmálum um alla þá
þætti sem málið varða Hefur
hann hvorki staðið við gert samkomu-
lag og samninga um umfang og eðli
þeirra starfa sem honum hafa verið
falin, né þann kostnaðarramma verk-
efna, sem hann sjálfur hefur sett upp
og samþykkt. Skýrslum um störf sln
hefur hann sömuleiðis skilað að eigin
geðþótta, venjulega mjög löngu eftir
umsaminn tíma og án viðhlýtandi skýr-
inga á drættinum, en með stöðugum
loforðum um skil á næstu dögum
Á rannsóknarstigi málsins á árunum
fram að 1 973, skapaði þetta ekki stór-
vægilegt fjárhagslegt tjón fyrir umbjóð-
endur, heldur fyrst og fremst leiðindi,
sem m a. leiddu til þess að Sigurður V.
Hallsson dró sig út úr verkfræðifyrir-
tækinu Virki h.f á árinu 1970 vegna
innri ágreinings einmitt út af skýrslu-
skilum I þvl fyrirtæki, þegar Virkir vann
að rannsóknum á vinnslu þara fyrir
Rannsóknaráð rlkisins, en verkefnis-
stjóri Virkis I þeim rannsóknum var þá,
SigurðurV Hallsson,
Þegar málið kom á framkvæmdastig
á árinu 1973 og slðar urðu sllkir
starfshættir óaðgengilegir. Sigurður
átti að skila skýrslu sinni um þang-
miðarannsóknir og öflunartilraunir,
með þangskurðarprammanum sumarið
1973 fyrir áramótin 1973—74. Sú
skýsla fékkst ekki fyrr en i aprll 1 974
eftir mikið þóf og leiðindi og löngu
eftir að taka þurfti ákvarðanir, sem sú
skýrsla hefði áttað undirbyggja
Sama skeði árið 1974, þegar Sig-
urður átti að kanna nánar skurðhæfni
þangskurðarprammans sem starfrækt-
ur var það sumar og skila tillögum um
endurbætur. Var það ákveðið sam-
komulag að skýrsla skyldi komin fram
fyrir lok nóvember haustið 1974,
þannig að unnt væri að taka mið af
henni við samninga (skilgreiningar á
hönnunarkröfum) um kaup á þangöfl-
unarprömmunum til afhendingar á ár-
inu 1975, þegar verksmiðja skyldi
hefja starfrækslu
Eftir mjög miklar tilraunir.l nóvember
og desember 1974 til að fá a.m k.
helstu niðurstöður til viðmiðunar, slitn-
aði upp úr samstarfi með yfirlýsingu
Sigurðar V Hallssonar við þáverandi
framkvæmdastjóra og undirritaðan,
þess efnis að hann hætti allri vinnu
fyrir Þörungavinnsluna h.f. Var þá
gengið frá hönnunarkröfum um næstu
5 pramma, án þess að formlegar
ábendingar kæmu frá Sigurði V. Halls-
syni aðrar en nokkrar lauslegar hug-
myndir um endurbætur á skurðgreiðu
og afturenda prammans. Þess skal þó
getið að Sigurður hafði verið með á
fundum með framleiðendum pramm-
anna, þá um haustið þegar breytingar
voru til umræðu, og alltaf átt kost á að
bera fram sllkar tillögur.
j mars 1 975 barst svo reikningur frá
Sigurði V. Hallssyni fyrir störf á tlma-
bilinu 16 12 '74 — 6.3. 1975, með
hótun um málshöfðun yrðu reikningar
ekki greiddir strax, og yrði engri
skýrslu skilað nema gengið yrði að
skilmálum hans.
Þegar samstarfi ráðgjafafyrirtækisins
var þannig komið og gagnkvæmt
traust algerlega brostið hlaut stjórnin
að taka þá ákvörðun að sllta samstarfi
formlega og var það gert á fundi 25.
aprll, 1975 og Sigurði tilkynnt það
bréflega
Um samskipti Sigurðar við fyrirtæk-
ið voru á árinu 1 973 I gildi samningar,
sem mæltu svo fyrir að hugsanlegum
ágreiningi yrði skotið til Gerðardóms
Verkfræðingafélags íslands og hefur
Sigurði verið boðið að leggja
ágreiningsmál hans og Þörungavinnsl-
unnar undir þann dóm, en hann neitað
og stðan reynt að ná stnum hagsmun-
um fram eftir pólitlskum leiðum og nú
með áróðri 1 fjölmiðlum í sambandi við
rekstrarerfiðleika Þörungavinnslunnar.
Eru það hin ósæmilegustu vinnubrögð
fyrir sjálfstæðan ráðgjafaraðila gagn-
vart fyrrverandi umbjóðanda slnum og
satt að segja full ástæða til að taka fyrir
á faglegum vettvangi stéttarfélags
verkfræðinga, enda liggja ýmsir starfs-
bræður Sigurðar undir ámæli ámeðan
ásökunum hans er ósvarað.
TILLÖGUR SIGURÐAR UM
ÞANGVINNSLUTÆKNKI
í ársbyrjun 1973 var gengið sam-
HVER ERU VANDAMÁLIN?
Ljóst er að rekstur Þörungavinnsl-
unnar h.f., hefur fram að þessu mistek-
ist og er þvl um að kenna, að ekki
hefur aflast nema um fjórðungur þess
þangs sem þarf til að tryggja rekstur
verksmiðjunnar á ársgrundvelli (þ.e.
greiða vexti, afskriftir og lausagangs-
kostnað verksmiðjunnar, þegar ekki er
unnt að vinna þang). Hefur sú öflunar-
tækni brugðist sem beita átti og stafa
af þvl flest vandamál fyrirtækisins Auk
þess hafa nokkrir smlðagallar komið
fram I tækjum og r^nnsli heits vatns til
verksmiðjunnar orðið minna en hönn-
unarforsendur krefjast. Síðari vanda-
málin eru þó tiltölulega einföld I lausn
tæknilega þótt óhjákvæmilega fylgi þvl
nokkur kostnaður.
Áætlanir um stofnkostnað og starf-
semi að öðru leiti, hafa staðist.
HVERJIR HAFA VERIÐ
T/EKNILEGIR RÁÐGJAFAR?
Verkfræðifyrirtækið Virkir h.f , hafði
með höndum hönnun og eftirlit með
framkvæmdum við byggingu verk-
smiðjunnar, bæði hús, vélbúnað og
önnur tilheyrandi mannvirki, en Stefán
Örn Stefánsson. verkfræðingur hafði
yfirumsjón með þeim þætti fyrir hönd
Virkis h.f
Um ýmsar tæknilegar hliðar þang-
þukkrunar, svo og mölun og meðferð
afurða var notið tæknilegrar ráðgjafar
og reynslu Alginate Indurstries Ltd ,
þess skoska fyrirtækis sem samið hefir
um kaup á afurðum verksmiðjunnar.
Við könnun þangmiða og ráðfjöf um
ýmsa þætti varðandi öflun var samið
Kortið er gert af Mbl. eftir teikningu, merkt S.V.H., FEB. ’73.
tlmis frá skriflegum samningum við
Virki h.f. og Sigurð V Hallsson um
tæknileg ráðgjafastörf og er sú vinna
talin hefsjast 15 janúar, 1973 Þess
má geta að Virkir h.f. neiiaði að hafa
Sigurð V. Hallsson með I starfshópi
sinum um hönnun verksmiðjunnar og
er sérstaklega kveðið á um I samningi
við Virki, að öll samskipti við Sigurð,
fari I gegnum Þörungavinnsluna
[ sérsamningum við Sigurð eru hon-
um falin eftirtalin verkefni, eins og
segir I 2. gr. samningsins:
2.1. Verkfræðingur er til almennrar
ráðgjafar um tilhögun öflunar,
flutninga og þurrkunar þangs I sam-
bandi við þangvinnslu á Reykhólum og
getur eigandi leitað til verkfræðings
um öll mál, sem varða verkfræðilegan
undirbúnings verksins.
2.2 Verkfræðingur gerir tillögur um
fyrirkomulag þangflutninga frá hafnar-
svæði til þurrkverksmiðju og skilar um
það skriflegri greinargerð og rissmynd-
um, sem frekari úrvinnsla getur byggst
á
2.3. Verkfræðingur gerir tillögur um
fyrirkomulag þangskolunar og skilar
um það skriflegri greinargerð og riss-
myndum.
2 4 Verkfræðingur tekur saman allar
þær, upplýsíngar, áem tiltækilegar eru
um þangmagn og endurvaxtarhraða
þangs á Breiðafirði
2.5 Verkfræðingur gerir tillögur um
fyrirkomulag þangþurrkunartækja og
gerir verkfræðilega skissu af hugmynd
sinni um fyrirkomulag loftblásturs og
hitunar við þurrktæki. Hugmyndinni
skal fylgja skrifleg greinargerð með
áætlun um loftmagn, loftþrýsting,
orkuþörf, hita- og rakastig lofts, svo og
stærð og áætl uð afköst þurrktækja
Hinn 12, febrúar leggur Sigurður
skriflega fram tillögur slnar um al-
menna tilhögun öflunar, flutnings og
þurrkunar þangs svo og tilhögun
undirbúnings. Er I skýrslunni strax
þung gagnrýni á þá nýskipuðu fulltrúa
iðnaðarráðuneytisins, sem höfðu
undirbúning málsins með höndum, á
meðan verið var að ganga frá stofnun
U ndirbúni ngsfélags þörungavinnsl u
h.f., fyrr að hafa ekki þegar haft meira
samráð við höfund skýrslunnar um
allan undirbúning. Með tilliti til þess
að Alþingi hafði gengið frá lögum um
félagsstofnunina þá tæpum tveim
mánuðum áður og lög voru undirrituð
á gamlársdag, sýndist það æði
snemmborin ádeila, og verður hún
ekki skilin á annan veg, en þann að
Sigurður hafi ekki viljað afskipti ann-
arra tæknilegra ráðgjafa af málinu.
Sú vinnslurás fyrir þangvinnslu, sem
Sigurður V. Hallsson lagði þar til er
sýnd á meðfylgjandi mynd, sem er
gerð eftir teikningu Sigurðar sjálfs
merkt SVH FEB. '73. Vinnslurás þessi
átti að verða eins og Sigurður tekur
skýrt fram I skýrslu þessari orðrétt:
„leiðarvlsir, ef ekki ákvörðunar-
grundvöllur um val á tækjum. mönn-
um og framleiðsluleiðum nú þegar
eða slðar á þessu ári 1973."
[ megindráttum byggjast tillögur
þessar sem átti þá þegar eða sfðar á
árinu að taka ákvarðanir um á þvl að:
1 Smiðað yrði og reynt þangöflun-
artæki samkvæmt teikningu Sigurðar,
(sýnd sérstaklega). [ skýrslunni kemur
fram að höfundur gefur sér að afköst
tækisins verði 6, t. af skornu þangi á
klst
2. Þangið skildi fara I samfellda
lengju af flötum (ca. 15—20 cm.
þykkum) og breiðum (2—3 m) poly-
propylen strigapokum, beirit frá þang-
ölunartæki til verksmiðju, I gegnum
þurrkara og I geymslu og síðast til
skipá
3. Gert er ráð fyrir skolun eða þvotti
á þanginu I þeim tilgangi að auka
hlutfallslegt innihald alginsýru lendan-
legri afurð og þar með verðmæti afurð-
ar og höfðu tilraunir sem Sigurður V.
Hallsson hafði áður gert bent til hag-
kvæmni þess
Með vinnsluferli þessum taldi Sig-
urður V. Hallsson sig benda á nýja
aðferð þar sem: ,,þangið fer fljótandi
eSa á færiböndum f gegnum fram-
leiðslurásina frá sjávarbotni á
Breiðafirði f úrvinnslu f Gfrvan f
Skotlandi", eins og hann orðar það
sjálfur.
i umræðum um tillögur þessar með
öðrum tæknilegum ráðunautum fyrir-
tækisins hinn 12. febrúar var bent á
ýmsa vankanta á þessum tillögum, og
má nefna eftirfarandi atriði:
A. Skurðartæki væri enn lausleg
hugmynd höfundar og engir þættir
þess reyndir. Vitað væri að þróun sllks
tækis væri mjög dýrt fyrirtæki, sem
margir hefðu reynt og gefist upp á.
Jafnframt var þó komið fram tæki, sem