Morgunblaðið - 16.11.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR16. NÓVEMBER1985
„Gala greidsla" Sólveigar
Leifsdóttur sem lenti í einu
af tíu efstu sstunum á
Evrópumeistaramótinu í
hirgreiðslu.
„Vid stóðum okkur ágætlega. Allar lentum við fyrir ofan miðju.“ Talið efrí
röð frá vinstri: Dagmar Gunnarsdóttir, Jónheiður Steindórsdóttir, Steinunn
Ben og Hildigunnur Hilmarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: þátttakendurnir,
Guðfinna Jóhannesdóttir, Dóróthea Magnúsdóttir, Helga Bjarnadóttir og
Sólveig Leifsdóttir. Auk þeirra voru í förinni Torfi Geirmundsson liðsstjóri
og Arnfríður ísaksdóttir dómari.
Evrópumeistaramót
ið í hárgreiðslu
og hárskurði
Evropumeistaramótið í hár-
greiðslu og hárskurði fór
fram í september siðastliðnum.
íslendingar voru nú í fyrsta skipti
með í keppninni og stóðu sig með
sóma, lentu ofan við miðju í öllum
þremurgreinunum. Keppnin fór
fram í Vínarborg og að sögn Dóró-
theu Magnúsdóttur, sem var einn
af þátttakendunum, var ferðin
mjög reynslurík og skemmtileg.
„Þetta var mikil reynsla og
ekkert til sparað í þessari keppni.
Byrjunin hjá okkur þegar til Vín-
arbörgar kom var einnig söguleg.
Þá kom í ljós að við höfðum aldrei
verið skráð í keppnina og ekkert
pláss til fyrir okkur. Þátttökutil-
kynningin hafði farið á vergang
og á aðalskrifstofuna í París, sem
ekki sendi svo tilkynninguna
áfram.
Þetta blessaðist þó eftir mikið
umstang en háði okkur dálítið til
að byrja með, því við komumst t.d.
ekki inn á tölvuna í keppninni og
vorum með borð einhversstaðar
úti í horni.
Keppnin byrjaði svo með íburð-
armiklum koktail í stórglæsilegri
höll hjá borgarstjóranum í Vín.
Þátttakendur voru um 200 tals-
ins og áhorfendur og áhangendur
sýningarinnar margir tugir þús-
unda.
Við erum mjög ánægðar með að
hafa komist í þessa keppni og við
fengum góða kynningu á landinu
okkar.
Fyrir utan verðlaunin sem veitt
Steinunn, Jónheiður, Hildigunnur og Dagmar.
voru fyrir þrjú efstu sætin í hár-
greiðslu og hárskurði þá fengu tíu
efstu viðurkenningarskjal. Sólveig
Leifsdóttir hlaut slíkt skjal, hún
lenti í 10. sæti með Gala greiðsluna
sína. þjóðverjar áttu fyrsta sætið
í hárgreiðslunni en í hárskurðinum
bar Toni Constantino sigur úr být-
um. Hann var einmitt staddur hér
á íslandi fyrr á árinu þar sem
hann hélt sýningu og námskeið.
Bróðir hans lenti svo í öðru
sæti.“
— Þegar þið eruð svona komnar
á bragðið með þátttöku í þessum
keppnum, er þá ekki meiningin að
halda áfram?
„Jú, alveg tvímælalaust. Það er
spurning hvort haldið verður á
„Golden Tulip" mótið í Hollandi í
mars næstkomandi, en stefnan er
allavega að fara til Verona að ári
liðnu í september á heimsmeist-
aramótið.
Það eru þó ljón í veginum, það
er að segja hvað snertir fjárhags-
legu hliðina. Að þessu sinni fjár-
mögnuðum við allt sjálfar og það
er bara ekki hægt að bjóða upp á
slíkt aftur.
Hvort að einhverskonar fjáröfl-
un er rétta leiðin eða eitthvað
annað er óljóst, en það er einnig
ráð að leita til ríkisins sem styrkir
oft á tíðum lið, sem halda utan að
keppa.
Það er nefnilega mikill kostnað-
ur samfara þessu, ekki aðeins
fargjaldið fyrir okkur sjálfar né
heldur fyrirsæturnar, það þarf
dómara með í fðrina, íiðsstjóra ...
fclk f
fréttum
Guðrún Alfreðsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Saga Jónsdóttir eða með öðrum orðum Stjúpsystur.
STJÚPSYSTUR
Þrjár flökku-
skottur á ferð
Stjúpsystur" sitja ekki auðum höndum þessa dagana. Þær
stöllur sem starfað hafa saman síðan 1981 æfa nú af fullum
írafti barnaleikrit sem er nýtt á nálinni og nefnist „Skottuleikur".
Höfundur þess vill ekki láta nafns síns getið og kýs að kalla sig
Móra. Skottuleikur er létt leikrit með söngvum og uppákomum og
fjallar um þrjár flökkuskottur sem lenda í öllum mögulegum ævintýr-
um. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir en Revíuleikhúsið stendur
að sýningunni. Stendur til að frumsýna leikritið á höfuðborgarsvæð-
inu I janúar, en jafnvel kemur til greina að sýna það eitthvað fyrr
úti á landi. Þá hefur þeim systrum boðist að halda til Lúxemborgar
með leikritið nú á næstunni til að sýna fyrir landann þarlendis.
Þá eru stjúpsystur komnar á fulla ferð með nýja skemmtidag-
skrá, lög og texta en undanfarið hafa þær sýnt á Hótel Sögu, Broad-
way og um síðustu helgi voru þær í Sjallanum á Akureyri.
Stjúpsystur eða með öðrum orðum þær Saga Jónsdóttir, Guðrún
Alfreðsdóttir og Guðrún Þórðardóttir hafa í mörg horn að líta, því
auk þessa hafa þær á sínum snærum sérstök skemmtidagskráratriði
fyrir hverskonar gleðskap eins og árshátíðir og búa gjarnan til
dagskrá sem fjallar um starfsfólk viðkomandi vinnustaðar, eða slá
upp innanhúss bröndurum.
Þá hafa þær Guðrún Þórðardóttir og Saga Jónsdóttir verið með
útvarpsþætti sem ganga undir nafninu „Elsku mamma" en von bráð-
ar skipta þeir um nafn og bera þá heitið „Elsku pabbi". Aðgerðarleys-
inu er ekki fyrir að fara á þeim bæ.