Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 Garðar Thor Cortes og Einar Örn Einarsson. Morgunblaðið/Karl „Nonni o g Manni“ fá hundruð aðdáendabréfa Aðalleikurum í sjónvarpsþátt- unum um „Nonna og Manna“, þeim Garðari Thor Cortes og Ein- ari Emi Einarssyni, berast nú hundruð aðdáendabréfa og eykst fjöldi þeirra með degi hveijum. Eru bréfin nú á milli fjögur til fimm hundruð talsins. Koma þau einkum frá Þýskalandi og Aust- urríki en einnig frá Danmörku. Flest eru þau frá ungum stúlkum sem biðja um eiginhandaráritanir og/eða myndir af piltunum en einnig frá fullorðnum einstakling- um sem hæla frammistöðu þeirra. Sum bréfanna koma frá eldra fólki, sem áratugum saman hefur safnað eiginhandaráritunum frá frægu fólki. Þá hringja daglega fjölmargir til þeirra frá útlöndum með hverskonar fyrirspurnir eða hrós. Að sögn þeirra Garðars og Einars hafa þeir enn ekki komist til þess að svara bréfum aðdá- enda. Bankaráð Landsbankans: Valur í stól banka- sljóra 1. febrúar Fullnægjandi, segja bankaeftirlit og viðskiptaráðherra BANKARÁÐ Landsbanka íslands samþykkti í gær að Valur Arnþórs- son tæki ekki við stöðu bankastjóra fyrr en 1. febrúar næstkom- andi, þegar hann hefur fullnægt skilyrðum bankalaga með því að losa sig að fullu úr fyrra starfi. Þá samþykkti ráðið að fela Gunn- laugi Kristjánssyni aðstoðarbankastjóra að gegna störfum aðalbanka- stjóra til 1. febrúar. Þórðnr Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabankans, sagði að eftirlitið teldi svar bankaráðs Landsbankans fullnægjandi og Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, tók í sama streng. Bankaráðið var kallað saman til sérstaks fundar um þetta mál í framhaldi af fyrirspum bankaeftir- lits Seðlabankans um störf Vals. í samþykkt þess segir að ráðgert hafi verið að Valur tæki við stöðu sinni við bankann 1. janúar sl. og vitnað í bókun sem gerð var við ráðningu hans þann 14. júlí síðast- liðinn. Síðan segir: „Nú hefur kom- ið í ljós, að honum hefir ekki tekist að losa sig að fullu úr fyrri störfum og þar með ekki að fullnægja skil- yrðum bankaráðs og laga um við- skiptabanka. Hann mun því ekki taka við stöðu bankastjóra fyrr en þeim skilyrðum er fullnægt, en nú er ákveðið að það verði 1. febrúar næstkomandi." „Ég fagna þessari samþykkt. Hún staðfestir það samkomulag sem ég gerði við formann banka- ráðs,“ sagði Valur Amþórsson þeg- ar álits hans var leitað. „Þetta sýn- ir að ég hef verið í fullum rétti og góðri trú um að störf mín sem bankastjóri hæfust ekki fyrr en síðar í mánuðinum eða í síðasta lagi þann 1. febrúar,“ sagði Valur einnig. „Ég hef ekki séð formlegan frá- gang málsins, en ég tel að með þessu sé búið að ganga rétt frá því,“ sagði Jón Sigurðsson, við- skiptaráðherra, þegar samþykkt bankaráðs var borin undir hann. „Ég tel það eðlilegt að það sé gert ljóst að á meðan Valur Amþórsson er stjómandi í atvinnurekstri á veg- um annara fyrirtækja getur hann ekki verið bankastjóri í Lands- bankanum." V erðlagsstofiiun: Nefiid undirbýr kynning- Kaupmönnum bannað að selja viðskiptavinum burðarpokana Kaupmannasamtökin mótmæla harðlega VERÐLAGSSTOFNUN hefur bannað verslunum að selja við- skiptavinum burðarpoka undir keyptar vörur vegna gildandi verðstöðvunar. Margir kaupmenn hófu að selja burðarpokana, sem áður voru afhentir án endur- gjalds, um áramót, eftir sérstakt samkomulag Kaupmannasamtak- anna, verslunardeildar Sambands- ins og Landverndar, en hluti sölu- verðsins átti að renna til Land- vemdar. Verðlagsráð var kallað saman til sérstaks fundar um málið í gær og í framhaldi af honum var þessi ákvörðun tekin. Kaupmannasamtök íslands sendu frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem þessi ákvörðun er hörmuð og sagt að sala á plastpokum verði hafin aftur 1. mars, þegar verð- stöðvun lýkur. í tilkynningu Verðlagsstofnunar við upphaf verðstöðvunar í haust segir að hvers kyns breytingar á við- skiptakjörum neytendum í óhag séu óheimilar. „Við lítum svo á að verðið á pokunum hafi verið komið inn í verslunarálagninguna og með þvi að hefja innheimtu á sérstöku gjaldi fyrir burðarpokana sé verið að hækka álagninguna og verðið til neytenda og þar með bijóta ákvæði verðstöðvunar," sagði Guðmundur Sigurðsson yfirviðskiptafræðingur Verðlagsstofnunar í samtali við Morgunblaðið. í fréttatilkynningu Kaupmanna- samtakanna kemur fram að þau telja að með þessari ákvörðun „sé Verð- lagsstofnun notuð í pólitískum til- gangi til þess að beina athygli al- mennings frá þeim stórkostlegu hækkunum á þjónustu og sköttum sem orðið hafa að undanfömu að undirlagi ríkisins á tímum svokall- aðrar verðstöðvunar." í mótmælun- um segir að Verðlagsstofnun hafi vitað um þessi áform en ekki séð ástæðu til að gera athugasemd, held- ur hafi formaður verðlagsráðs og verðlagsstjóri tekið vel í hugmynd- ina. Þá hafí þeim verið gerð ítarleg grein fyrir málinu með bréfi 8. des- ember. Telja Kaupmannasamtökin að með þessari afstöðu Verðlags- stofnunar sé verið að ógna því góða samstarfi sem ríkt hafi á milli kaup- manna og verðlagsyfirvalda um langt skeið. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði í gær, vegna ummæla í mót- mælum Kaupmannasamtakanna, að Verðlagsstofnun hefði aldrei fengið formlegt erindi frá Kaupmannasam- tökunum eða verslunardeild Sam- bandsins um sölu á plastpokum. Landvemd hefði sent bréfið sem kaupmenn vitnuðu til en þeim hefði verið bent á að verslunaraðilar yrðu sjálfir að óska eftir leyfi. Verðlags- stjóri sagði að starfsmaður Kaup- mannasamtakanna hefði rætt málið við sig í síma skömmu áður en byrj- að var að selja plastpokana en í því samtali hafí hvorki verið sagt af eða á um hvort þetta væri heimilt enda ekki hægt að afgreiða slíka hluti í síma. Kaupmenn hefðu því aldrei fengið samþykki Verðlagsstofnunar fyrir ákvörðun sinni. Hermannsson forsætisráðherra hefur skipað ráðgjafarnefiid ríkis og einkaað- ila til að undirbúa sérstakt kynn- ingarátak íslands á sviði mark- aðs- og sölumála og ferðamála. Formaður nefndarinnar er Bald- vin Jónsson, auglýsingastjóri, en aðrir nefndarmenn eru Bjöm Theó- dórsson, framkvæmdastjóri þróun- arsviðs Flugleiða, Jón Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Magnús Gunnarsson, formaður Út- flutningsráðs, Ragnhildur Hjalta- dóttir, deildarstjóri í samgöngu- ráðuneytinu, og Stefán Friðfinns- son, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra. Svipting þinghelgi og Hafskip: Harkaleg umniæli Prövdu um Jóhann Einvarðsson SOVÉSKA blaðið Pravda, málgagn Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, gerði harkalega árás á Jóhann Einvarðsson, alþingismann og formann utanrikismálanefiidar Alþingis, í lok nóvember sl. Nokkru síðar birti blaðið grein um Island, þar sem ummæli í frétt blaðsins 28. nóvember voru milduð. Tilefiiið var umræður um Hafskipsmálið, þinghelgi Jóhanns og störf hans í bankaráði Útvegsbankans. í frétt Prövdu 28. nóvember, sem höfð er eftir fréttaritara blaðsins í Reykjavík, segir frá því að Alþingi Islendinga, elsta þjóð- þing Evrópu, hafí í fyrsta sinn í sögu sinni leyst einn þingmanna undan banni við ákæru, það er þinghelgi. Nú sé því hægt að draga þingmanninn, J. Einvarðs- son, fyrir dóm, þar sem hann sé grunaður um „aðild að svindli og stórkostlegum fjárglæfrum", eins og blaðið orðaði það. Fréttaritarinn kemst þannig að orði eins og lesendum Prövdu sé kunnugt um að Jóhann Einvarðs- son hafi verið viðriðinn mikið fjár- málahneyksli vegna gjaldþrots Hafskips. Þá hafi hann átt sæti í stjórn þess ríkisbanka, sem hélt lífi í félaginu með því að veita því „ólögleg lán“. Þrátt fyrir þetta hafi félagið orðið gjaldþrota og bankinn orðið fyrir milljarða tjóni. Sé J. Einvarðssyni og samstarfs- mönnum hans gefið að sök að hafa sýnt vanrækslu í starfí. Hafi hann valið þann kost að fara þess. á leit við Alþingi að vera sviptur þinghelgi til að verja sig fyrir dómstólunum. Fréttinni lýkur á þessum orðum: „Hvemig skiptust milljónimar? Enn þá heldur það áfram að vera leyndarmál." Skömmu síðar birtist grein um ísland í Prövdu, sem ber yfír- skriftina: Úr minnisbók frétta- manns: Eyja í úthafinu. Undir henni stendur höfundarnafnið Jú. Kúznesov. Undir lok greinarinnar er vikið að Alþingi og sagt, að þar séu menn helst að leita að nýjum leiðum í skattamálum. Þó gerist þar einnig sérkennilegir atburðir, eins og þegar farið hafí verið að tengja nafn eins þing- mannsins, J. Einvarðssonar, við rannsókn á gjaldþrota fyrirtækinu Hafskipi. Honum til heiðurs verði að taka fram, að hann hafi sjálfur lagt til að hann yrði sviptur þing- helgi, svo að hægt væri að rann- saka málið óhindrað og hann myndi endurheimta mannorð sitt. Hafi þingmenn fallist á þetta og margir látið í ljós þá skoðun að aðeins væri um að ræða yfirsjón í starfí og hann fengi þingheigina fljótt aftur. J. Einvarðsson gegni áfram starfí formanns utanríkis- málanefndar Alþingis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.