Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 1 NORRÆNT TÆKNIÁR1988 Atburðir á íslandi Umsjón Sigurður H. Richter Mynd úr teiknisamkeppni 10 ára barna þar sem viðfangsefnið var „Tækni framtíðarinnar“. Textinn sem fylfjfdi myndinni var þessi: „Bóluhreinsari — sem tekur bólur og filapensla — lika spik og allt búið.“ Norðuriandaráð ákvað að árið 1988 skyldi helgaðtækni á Norðurlöndum. Markmíö Norræns tækniárs er aðeflaþekkinguátækni og auka skilning á mikilvægi tækniþróunar. NQRRJENT TEKNIAR Með þessu veggspjaldi var Norræna tækniárið kynnt hér á landi. Aðdragandi Árið 1986 samþykkti Norður- landaráð að mæla með því að árið 1988 yrði tileinkað tækninni og kallað Norrænt tækniár. Á fundi iðnaðarráðherra Norðurlanda sama ár var síðan tekin endanleg ákvörðun um Tækniárið. Markmið Tækniársins skyldi vera: „Að auka þekkingu á tækni, og auka skilning á mikilvægi tækninnar og tækniþróunarinnar fyrir samfélög og einstaklinga á Norðurlöndum. Að auka norræna tæknisam- vinnu milli fyrirtækja, rannsókna- stofnana, skóla og opinberra aðila, til að nýta betur norrænar auðlind- ir.“ Á öllum. Norðurlöndunum var síðan leitað til stofnana og félaga- samtaka, sem hefðu hugsanlega áhuga á framgangi þessa máls. í hveiju landi tilnefndu síðan þessir aðilar menn í; annars vegar nor- ræna samstarfsnefnd, en yfir- stjóm hennar sat í Osló; og hins vegar innlenda framkvæmda- nefnd. Hér á landi unnu þessar nefndir í reynd saman og réðu sér framkvæmdastjóra og ritara. Framkvæmdir í tilefni Norræns tækniárs hafa verið talsvert mis- munandi í hveiju landi fyrir sig. Það sem hefur einkum einkennt framkvæmdir hér á landi, er án efa, hve mikið kapp var lagt á að ná til almennings, ekki §íður en þeirra sem vinna að tæknimálum. Upphafshóf Hér á íslandi hófst Norræna tækniárið formlega 11. janúar, með samkomu í Norræna húsinu. Þang- að var boðið um 200 manns, einkum þeim sem höfðu tekið þátt í undir- búningi Tækniársins. Iðnaðarráð- herra og formaður íslensku sam- starfsnefndarinnar héldu stutt ávörp, og dagskrá Norræns tækni- árs var kynnt. Iðnaðarráðherra af- henti menntamálaráðherra nor- rænu kennslugögnin „Orka og Norðurlönd" og tæknivædd hljóm- list var leikin. Opin hús Þeir atburðir Norræna tækniárs- ins, sem hvað mesta athygli hafa vakið meðal almennings hér á landi, eru án efa „Opnu húsin“ svo- nefndu. Til að gefa fólki innsýn í, á hve fjölbreytilegan hátt tæknin er notuð, þá var leitað til fjöl- margra tæknivæddra opinberra stofnana, fyrirtækja og annarra aðila, og þau beðin um að hafa opið hús einn sunnudagseftirmið- dag hvert á Tækniárinu. Undirtekt- ir voru mjög góðar, og flestar stærri stofnanir og fjölmörg fyrir- tæki tóku þátt í Opnu húsi. Þannig hafa verið Opin hús 29 sunnudaga, en sneitt var hjá helstu hátíðum Þjóðkirkjunnar og sumarleyfa- tímanum. Þær stofnanir og þau fýrirtæki, sem opnuðu dyr sínar almenningi voru þessi: Borgarspítalinn, Bændaskólinn á Hvanneyri, Eim- skipafélag Islands, Flugbjörgunar- sveitin í Reykjavík, Flugumferðar- stjóm íslands, Hafrannsóknastofn- un, Hagvirki, Hampiðjan, hitaveitur víða um land, Iðnskólinn í Reykjavík, Iðntæknistofnun ís- lands, íslenska álfélagið, íslenska jámbiendifélagið, Landhelgisgæsla íslands, Landssmiðjan, Landspítal- inn, Landsvirkjun víða um land, Líffræðistofnun Háskólans, Mjólk- urstöðvar víða um land, náttúru- fræðistofnun íslands, Náttúru- gripasöfn víða um land, Orkustofn- un, Osta- og smjörsalan, Póst og símamálastofnun, rafmagnsveitur víða um land, Rannsóknastofa Há- skólans í lífeðlisfræði, Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Raunvísindadeild Háskólans, Ríkisútvarpið — Hljóðvarp, Ríkisút- varpið — Sjónvarp, Sauðfjárveiki- vamir, skipasmíðafyrirtæki í Garðabæ, Slökkvistöðin í Reykjavík, Smjörlíki/Sól h/f, Stjömuskoðunartum Valhúsaskóla, Tilraunastöð Háskólans í meina- fræði að Keldum, Tækniskóli ís- lands, Veiðimálastofnun, Verk- fræðideild Háskólans, Verkfræði- stofnun Háskólans. Opnu húsin tókust mjög vel og móttökur fyrirtækja og stofnana voru góðar. Mikil vinna hafði oft verið lögð í undirbúning og gestum var boðið upp á veitingar. Aðsókn var mjög góð, yfirleitt á bilinu frá 5—6 hundmð upp í 5_—6 þúsund á hveijum sunnudegi. Áætlað er, að heildar heimsóknafjöldi ársins hafi verið um 60 þúsund. Ráðstefhur í tilefni af og í tengslum við Norrænt tækniár, vom eftirfarandi ráðstefnur eða námstefnur haldnar: 1. Þann 9. mars; „Konur og tækni“, skipulögð af konum í verk- og tæknifræðingastétt. 2. Þann 11. mars; „Sjálfvirkni fyrir framleiðsiufyrirtæki“,_ skipu- lögð af Verkfræðingafélagi íslands. 3. Þann 20. maí; „Tæknibreyting- ar og sjálfvirknivæðing í atvinnulíf- inu“, skipulögð af Félagi íslenskra iðnrekenda, Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna, Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda og Sambandi íslenskra samvinnufélaga. 4. Þann 7. október; „Tækni og umferðaröryggi", skipulögð af Verkfræðingafélagi Islands. 5. Þann 26. október; „Hugbún- aðariðnaður á íslandi", skipulögð af Skýrslutæknifélagi íslands. 6. Þann 4. nóvember; „Siðfræði og störf tæknimanna", skipulögð af Háskóla íslands. 7. Dagana 9.—11. nóvember; „Gróðurhúsaáhrif; náttúmhamfarir eða nýir möguleikar," skipulögð af Háskóla íslands. V eggspjaldasýning í janúar var veggspjaldasýning í verslunarmiðstöðinni Kringlunni í Reykjavík. Þar sýndu „Rannsókna- stofnanir atvinnuveganna" ásamt Rannsóknaráði ríkisins, samtals um 50 veggspjöld. Á þessum vegg- spjöldum kynntu þær starfsemi sína. Sýningin stóð í þijár vikur. Tölvusýning Tölvunarfræðinemar við Háskóla íslands héldu tölvusýningu í Laug- ardalshöll dagana 21. til 25. sept- ember. Sýningin hét „Tölvur á tækniári" og var sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. Alls tóku um 50 fyrir; tæki og stofnanir þátt í henni. I baksal Laugardalshallarinnar voru auk þess alla dagana haldnir fyrir- lestrar um efni er tengdust tölvu- búnaði. Um 11 þúsund manns sóttu sýninguna. í tengslum við tölvusýninguna var þann 21. september haldin ráð- stefna um strikamerki og strika- merkingar. Teiknisamkeppni í samvinnu við Menntamálaráðu- neytið og Félag myndmenntakenn- Morgunblaðið kynnti þær stofiianir og fyrirtæki, sem voru með „Opið hús“ á Tækniárinu. Hér sjást nokkrar fyrirsagnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.