Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 24
24 (,IylORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR, 7., JAflÚAR A9B9 ~p Nýársbarnið í Keflavík: 0122 marka dreng 1 sjúkrabifreið á Reykjanesbrautinni „MAÐUR ákveður ekki daginn þegar barnið fæðist og ég vildi ekki upplifa þessa stund aftur,“ sagði Rakel Kristín Gunnars- dóttir tveggja barna móðir sem ól 22 marka son í sjúkrabifreið á Reykjanesbrautinni á nýársdag. Þá var verið að flyfja Rakel i fæðingardeild Landspitalans þar sem talið var um bráðatilfelli væri að ræða. Enginn svæfingarlæknir var til staðar og var talið brýnt að fiytja hana til Reykjavíkur. Lea Oddsdóttir ljósmóðir sem var með í ferðinni tók á móti barninu og naut hún aðstoðar annars áhafiiarmeðlims sjúkrabifreiðarinnar, Davíðs Eyrbekks, en Ingimar Guðnason ók. Rakel sagði að hún hefði verið flutt í Sjúkrahúsið í Kefiavík um sexleytið á nýársdagsmorgun og við skoðun hefði vakthafandi læknir og ljósmóðir greint óreglu- legan hjartslátt hjá baminu og þá ákveðið að senda sig þegar í stað til Reykjavíkur. Haft var samband við Leu Oddsdóttur ljós- móður sem var í fríi og var hún strax tilbúin til að fara með í sjú- krabifreiðinni. Kall barst síðan til slökkviliðsins kl. 10.37 og nokkr- um mínútum síðar var lagt af stað til Reykjavíkur. Lea Oddsdóttir ljósmóðir sagði að þau hefðu ekki verið komin langt þegar Rakel hefði misst vatnið og naflastrengur bamsins hefði fallið fram.„Þetta eru ákaf- lega hættulegar aðstæður, því bamið fær ekki súrefni. Ég var því hrædd um að missa bamið ef það fæddist ekki strax. Fæðingin gekk ótrúlega vel, Rakel er dugleg kona og hún eignaðist þama 22 marka dreng um klukkan 10:55 á miðri Reykjanesbrautinni," sagði Lea sem hefur starfað sem ljósmóðir í 10 ár og var þetta 398. bamið sem hún tekur á móti. Lea sagðist hafa eytt und- anfömum áramótum í Vest- mannaeyjum og svo hefði einnig staðið til nú þar sem hún átti nokkurra daga frí, en hún hefði hætt við ferðina á síðustu stundu og ákveðið að vera heima. Davíð Eyrbekk sem aðstoðaði Leu sagðist vera sannfærður um Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Á fæðingardeild Sjúkrahússins í Keflavík, Ingimar Guðnason bifreiðarstjóri til vinstri, við hlið hans stendur Lea Oddsdóttir ljósmóðir með litla drenginn, til hægri við hana er Davíð Eyrbekk og fyrir framan þau er Rakel Kristín Gunnarsdóttir. að hún hefði bjargað lífi bamsins, hún hefði verið frábær. Sinn þátt- ur hefði ekki verið ýkja mikill, hann hefði gefið Rakel súrefni og reynt að aðstoða Leu eftir þörfum. Ingimar Guðnason bifreiðarstjóri var fljótur í fömm að þessu sinni og það vom ekki liðnar margar mínútur frá því að lagt var af stað þar til hann hafði skilað far- þegum sínum á fæðingardeild Landspítalans. Ingimar sagði að hann hefði aðeins einbeitt sér að akstrinum. Aðstæður á Reykja- nesbrautinni þennan morgun hefðu verið eins og best var á kosið — vegurinn þurr og engin umferð. Rakel Kristín Gunnarsdóttir er gift Jóhanni Guðjónssyni, þau em búsett í Keflavík og eiga tvo syni fyrir — Guðjón Óm 13 ára og Kristján Helga 9 ára. Þeir bræður gáfu litla bróður sínum lítið eftir þegar þeir komu í heiminn, en þeir vom 18 og 19 merkur við fæðingu. Rakel og drengurinn em komin til Keflavíkur og em í fæð- ingardeild Sjúkrahússins í Keflavík og heilsast vel. BB Orðhákur 2 kominn út HJÁ Námsgagnastofhun er komin út bókin Orðhákur 2, eftir Magn- ús Jón Árnason. Orðhákur 2 er verkefiiasafii í íslensku fyrir 7.-9. bekk grunnskóla og hentar sem ítarefni með Málvísi 1—3 sem Námsgagnastofhun gefur út. Orðhákur 2 er einnota verkefna- bók og framhald af Orðháki 1, sem kom út árið 1987. Verkefni Orðháks 2, fjalla m.a. um merkingu orða og setninga, margræðni orða, samsett orð, nýyrði, líkingar og tilfínninga- orð. Málshættir, orðtök, furðufem- ingar, orðasúpur, nafnamgl og myndagátur koma einnig við sögu. I Orðháki 2 em margar myndir , eftir Grétar Reynisson myndlistar- mann. Bókin er 52 blaðsíður, í brot- inu A4, sett og prentuð í prentsmiðj- unni Rún sf. (Fréttatilkynning) Fiskverð á uppboðsmörkuöum 6. janúar. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verft verft verft (lestir) verft (kr.) Þorskur óslægður 56,00 30,00 48,70 16,0 779.777 Ýsa óslægð 134,00 111,00 127,29 641,0 81.594 Smálúða 330,00 330,00 330,00 2.970 Samtals 51,88 16,6 864.341 Selt var úr netabátum. f dag, laugardag, verður uppboö kl. 13.00. Þá verður seldur afli sem landað var í gær, föstudags- kvöld, og fiskur sem veiðist í dag, laugardag. GÁMASÖLUR í Bretlandi 2. -6. janúar. Þorskur 79,03 236.660 18.702.537 Ýsa 96,97 112.425 10.901.426 Ufsi 34,22 13.580 464.699 Karfi 46,48 13.535 629.048 Koli 114,38 33.905 3.878.191 Grálúða 79,05 50 3.952 Blandað 95,49 21.998 2.100.624 Samtals 84,88 432,154 36.680.77 SKIPASÖLUR í Bretlandi 2.-6. janúar. Þorskur 80,79 481.545 38.903.308 Ýsa 151,75 47.510 7.209.584 Ufsi 60,36 11.590 699.593 Karfi 29,69 6.135 182.175 Koli 202,63 280 56.735 Grálúða 81,22 34.880 2.832.940 Blandað 98,63 10.945 1.079.532 Samtals 85,96 592.885 50.963.868 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 2.-6. janúar. Þorskur 80,38 58.279 4.684.331 Ýsa 104,77 30.026 3.145.807 Ufsi 104,96 67,212 7.054.333 Karfi 101,46 134.172 13.613.288 Koli 158,45 15 2.376 Grálúða 87,47 2.005 175.382 Blandaö 68,64 14.967 1.027.269 Samtals 96,85 306.676 29.702.788 Vinnueftirlit ríkisins: Fræðsluátak gegn rangri líkamsbeitingu NIÐURSTÖÐUR nýlegrar könnunar á vegum vinnueftirlitsins sýna að óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfinu meðal fólks hér á landi eru mun algengari en álitið var, og eru fjarvistir fólks frá vinnu af þeim sökum miklar. Álitið er að kostnaður sem þessu fylgir fyrir þjóðfélagið og atvinnurekendur skipti milljörðum króna árlega, og hefur Vinnueftirlitið ákveðið að bregðast við þessu með því að gera átak til að sporna við álagssjúkdómum. Það hefúr nýlega gefið út leiðbeiningabækling um rétta likamsbeitingu i samstarfi við Félag íslenskra sjúkraþjálfara, auk þess sem fræðsluþættir um bakið verða sýndir í sjónvarpi í samvinnu Vinnueftirlitsins og Fræðsluvarps. Vilhjálmur Rafnsson yfirlæknir, deildarstjóri atvinnusjúkdómadeild- ar Vinnueftirlitsins, segir að í úr- takskönnun á vegum atvinnusjúk- dómadeildarinnar, sem miðaði að því að fá almennt yfirlit .yfír óþæg- indi frá stoð- og hreyfikerfi á með- al fólks, hafi meðal annars komið í ljós að 17,6% kvenna og 12,6% karla töldu óþægindi frá neðri hluta baks hafa komið í veg fyrir að þau gætu stundað dagleg störf síðustu 12 mánuði áður en spurt var. Meira en 40% kvenna og rúmlega 20% karla í úrtakinu töldu sig hafa haft óþægindi frá hálsi eða hnakka og herðum eða öxlum síðustu 7 sólar- hringana áður en könnunin var gerð. Auk ama og þjáninga, sem óþæg- indi eins og vöðvabólgur og slitsjúk- dómar valda, fylgir þeim gífurlegur Rættum brunarústir Eldvarnaeftirlit Reykjavíkur- borgar býður hönnuðum og byggingameisturum að koma að brunarústunum að Réttarhálsi í dag, laugardag, kl. 11. Ætlunin er að hönnuðir og bygg- ingameistarar fái séð með eigin augum hvernig eldur fer með bygg- ingarefni. Sérfræðingar verða á staðnum til skrafs og ráðagerða. Fréttatilkynning kostnaður fyrir þjóðfélagið og at- vinnurekendur. Kostnaðurinn felst í fjarvistum vegna veikinda, þjálfun nýrra starfsmanna, tryggingar- gjöldum og kostnaði innan heil- brigðiskerfisins. í nýlegu yfírlitsriti frá danska vinnueftirlitinu er áætl- aður að þessi kostnaður vegna ein- kenna frá hreyfi- og stoðkerfi nemi um 14 milljörðum danskra króna árlega, og er það næstum fimm sinnum hærri upphæð en það telur vera kostnað vegna vinnuslysa. Að sögn Harðar Bergmann fræðslufull- trúa Vinnueftirlitsins hefur ekki verið gerð könnun á því hver sam- bærilegur kostnaður er hér á landi, en ef mið er tekið af upplýsingunum frá Danmörku mætti ætla að hann væri nálægt 5 milljörðum króna. Leiðbeiningabæklingur sem gef- in hefur verið út á vegum Vinnueft- irlitsins í samvinnu við Félag íslenskra sjúkraþjálfara um rétta líkamsbeitingu hefur meðal annars verið kynntur stéttarfélögum, heil- sugæslustöðvum, öllum starfandi sjúkraþjálfurum á landinu. Einnig hafa verið gefin út fjögur vegg- spjöld, sem minna á nokkur mikil- væg atriði varðandi rétta líkams- beitingu við vinnu og hreyfingu yfirleitt. Samningu texta og leið- beiningar um myndir og útlit önn- uðust sjúkraþjálfaramir Björg Björnsdóttir, Guðrún Guðmunds- dóttir og Ólöf Á Steingrímsdóttir, en teikningar gerði Búi Kristjáns- son. Átta fræðsluþættir frá danska HUGSADU ÁÐUR EN ÞÚ LYFTIR fræðslusjónvarpinu um bakið verða væntanlega sýndir í sjónvarpi í vet- ur á vegum Vinnueftirlkitsins í sam- vinnu við Fræðsluvarp. í þáttunum, sem em um 15 mínútna langir hver, verður fjallað um uppbyggingu hryggjarins, rétta líkamsbeitingu við vinnu og heimavið, um hvíld og þjálfun og hvemig koma má í veg fyrir bakverk. Að sögn Huldu Ólafsdóttur sjúkraþjálfara hjá Vinnueftirlitinu hefur verið leitað til sjúkraþjálfara um allt land til þess að taka að sér ráðgjöf á vinnustöðum og í skólum svo þetta fræðslustarf geti orðið sem best og náð til sem flestra. Hafa á bilinu 20-30 sjúkraþjálfarar í öllum landsfjórðungum lýst sig reiðubúna til að vinna að þessu verkefni, og mun sjúkraþjálfari Vinnueftirlitsins vinna í nánu sam- starfi við þá, auk þess sem hann tekur að sér að leiðbeina starfs- hópum, félögum og fyrirtækjum um hvar aðstoð og leiðbeiningar um þetta efni er að fá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.