Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 SAA á Norðurlandi opna skrifstofii: Morgunblaðið/Rúnar Þór Á göngu íjólasnjó Snjó kyngdi niður á Akureyri í gær — sannkölluðum jólasnjó, svona í tilefiii af því að jólunum var að ljúka. Þessar stöllur voru á gangi á Ráðhústorginu um miðjan dag, ótrauðar í snjómugg- unni. Áhersla lögð á að ein- staklingar verði virkir í þjóðfélaginu eftir meðferð - segir Ingjaldur Arnþórsson, starfsmaður SÁÁ-N SAMTÖK áhugafólks um áfengisvandamálið á Norður- landi, SAA-N, opnuðu í gær þjónustustöð að Glerárgötu 28 á Akureyri. Einn starfsmaður verður í fullu starfi á stöðinni til að byrja með, Ingjaldur Arnþórsson, sem starfað hef- ur sem leiðbeinandi hjá SÁÁ á Staðarfelli og unnið að stofiiun meðferðarstöðva í Sviþjóð, auk þess að annast fræðslunámskeið í Færeyjum og á Grænlandi. Stofnfundur SÁÁ-N var haldinn 1. október sl., þar sem kjörin var níu manna stjóm, sem séð hefur um undirbúninginn. Ingjaldur Amþórsson sagði í gær, við opnun þjónustustöðvar- innar, að þjónustan sem boðið yrði upp á væri aðallega tvíþætt: „ann- ars vegar aðstoð og leiðbeiningar fyrir fólk sem líður vegna neyslu sjálfs sín eða annarra, og hins vegar — það verður stærsti þáttur- inn til að byija með — aðstoð við fólk sem er að koma úr áfengis- meðferð." Ingjaldur sagði marga Norðlendinga hafa farið í áfengis- meðferð, „en við vitum að þeir skila sér ekki allir út í AA-samtök- in, sem er meginmarkmið með- ferðarinnar. Það er stórt stökk að fara úr vemduðu meðferðarum- hverfi út í þjóðfélagið og ákveðinn hópur þess fólks sem kemur úr meðferð nær ekki að brúa það bil. Það er slaemt, því það er yfir- leitt þessi sami hópur sem lendir í vandræðum og byijar drykkju aftur. Við ætlum að brúa þetta Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson Við opnun þjónustustöðvar SÁÁ-N í gær. Siljandi er Ingjaldur Arn- þórsson, starfsmaður, en standandi eru, frá vinstri: Stefán B. Einars- son, Áslaug Einarsdóttir, Ása Þorvaldsdóttir og Jóna Sigurgeirs- dóttir sem öll eru í stjórn samtakanna, Þórarinn Tyrfingsson formað- ur SÁÁ í Reykjavík, Davíð Kristjánsson og Sonja Gunnarsdóttir sem eru í stjórn SÁÁ-N. ^Ekið á gangandi stúlku á Ólafsfj arðarvegi EKIÐ var á gangandi stúlku á ÓlafsQarðarvegi nálægt bænum Syðri Reistará um þrjúleytið í gærdag. Stúlkan var flutt á sjúkrahús. Hún kvartaði undan eymslum í læri, en allt bendir til þess að hún hafi sloppið við bein- brot. Stúlkan er 14 ára. Nokkrir árekstrar urðu í um- ferðinni á Akureyri í gær, en fljúg- andi hálka var á götum bæjarins. Allir voru árekstramir „minnihátt- ar“, eins og iögreglan kallar það. Bifreiðir skemmdust að vísu nokk- uð, en engin meiðsl urðu á fólki. bil,“ sagði Ingjaldur. Hann gat þess ennfremur að lögð yrði áhersla á að „einstaklingamir nái virkni á ný í þjóðfélaginu — fái áhuga á því sem er að gerast í samfélaginu, nái félagslegum bata eins og stundum er sagt“, sagði hann. Þórarinn Tyrfingsson, læknir og formaður SÁÁ, var viðstaddur opnun þjónustustöðvarinnar í gær. Hann sagði vímuefnanotkun mikið vandamál hér á landi. „Eftirspum eftir vímuefnum fer vaxandi í Evrópu og við hér á íslandi förum ekki varhluta af því.“ Þórarinn sagðist í gær telja brýnasta verk- efni SÁÁ-N á Akureyri að koma upp „gistiskýli fyrir félagslega illa stadda alkóhólista", því það hefði sýnt sig að þegar mönnum hefði verið veitt aðstoð með húsnæði í einhvem tíma þegar meðferð væri lokið næðu menn mun fyrr að aðlagast þjóðfélaginu á nýjan leik. Þórarinn sagði þessa skrifstofu aðeins fyrsta liðinn hjá SÁÁ-N í vöm gegn áfengisvandanum, en í gær kom fram að í framtíðinni er stefnt að því að koma á fót með- ferðarstofnun á félagssvæðinu. SÁÁ-N hefur sjálfstæðan íjárhag, auk þess sem þau munu fá hlut- deild í þeim tekjum SÁÁ sem afl- ast á félagssvæðinu, svo sem fé- lagsgjöldum og sölu happdrættis. Þá mun SÁA styðja starfsemi Norðurlandsdeildar með þvi að láta deildinni í 'té sérfræðiaðstoð og fyrirlesara án endurgjalds. í stjóm SÁÁ-N em Davíð Krist- jánsson, Jóna Sigurgeirsdóttir, Áslaug Einarsdóttir, Pálmi Matt- híasson, Heimir Ingimarsson, Guð- mundur Ólafsson, Stefán B. Ein- arsson, Albert Valdimarsson, Kristinn Eyjólfsson, Sigmundur Sigfússon, Sonja Gunnarsdóttir og Asa Þorvaldur, en þau Davíð, Stef- án og Jóna em í framkvæmda- nefnd samtakanna. Leiðrétting í GREIN á gamlársdag um Berhöftssystkin eft- ir Pétur Pétursson, varð meinleg prentvilla í lok fyrstu málsgreinar. Þar stóð matarleysi, en átti að vera matarlyst. Það leiðréttist hér með. Valur ekki í stjórn í>órshamars I frétt sem birtist á bls. 4 í blaðinu í gær um starfsskipti Vals Arnþórs- sonar er hann ranglega sagður í stjóm Þórs- hamars hf. á Akureyri. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Frá afhendingu styrlqa úr Rannsóknasjóði Krabbameinsfélagsins, talið frá vinstri: Davíð Ólafsson, form- aður Vísindaráðs Krabbameinsfélagsins, styrkþegarnir, Vilhjálmur Rafnsson og Laufey Tryggvadóttir og Almar Grimsson formaður Krabbameinsfélags íslands, en hann afhenti styrkina. Styrkir aflientir úr Rannsókna- sjóði Krabba- meinsfélagsins NÝLEGA voru afhentir styrkir úr Rannsóknasjóði Krabbameinsfé- lagsins, en sjóður þessi var stofiiað- ur á síðasta ári til að efla rannsókn- ir á krabbameini. Laufey Tryggvadóttir faraldsfræð- ingur hlaut 600 þúsund króna styrk til rannsókna á áhrifum blóðflokka og ættgengis á lifun íslenskra kvenna með bijóstkrabbamein. Vilhjálmur Rafns- son yfirlæknir hlaut 600 þúsund króna styrk til tveggja verkefna, annars veg- ar til rannsókna á nýgengi krabba- meina eftir búsetu, hins vegar til rann- sókna á nýgengi og dánartíðni krabba- mejna meðal íslenskra sjómanna. I frétt frá Krabbameinsfélaginu seg- ir, að það sé mat félagsins að bæði þessi verkefni séu mikilvæg til að auka skilning á eðli krabbameins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.