Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1-989 3 Nýja sundlaugin við Ölduselsskóla. íbúar Seljahverfís Qölmenntu til vígslunnar. Ný sundlaug vígð víð Olduselsskóla NÝ útisundlaug við Ölduselsskóla var vígð í gær, en hún er ætl- uð til sundkennslu fyrir nemendur Öldusels- og Seljaskóla. Sund- laugin mun geta annað allri sundkennslu fyrir nemendur skól- anna, en þeir eru samtals 2.173. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði við opnun sundlaugarinnar, að hún væri heldur stærri en skólasundlaugar væru venjulega, enda væri gert ráð fyrir að notin af henni verði fjölþættari en við venjulegar skólasundlaugar. Hann sagði sundlaugina vera mik-* ilvægan þátt í því að skólarnir í Seljahverfi næðu samfellu í skóla- starfmu. Sjöfn Sigurbjömsdóttir skóla- stjóri Ölduselsskóla sagði að það hefði lengi verið baráttumál skól- ans að fá sundlaug, en nemendur hafi hingað til þurft að leita í sundlaugar í öðrum hverfum. Skólamir munu nýta laugina til kl. 18 alla virka daga það sem eftir er af skólaárinu, og sund- félög munu halda uppi sund- kennslu og sundþjálfun fyrir börn og unglinga í hverfinu þegar skólasundi er lokið og um helgar. I júní og júlí verða haldin sund- námskeið fyrir böm og fullorðna, og í athugun em möguleikar á afnotum vistmanna í Seljahlíð af sundlauginni utan kennslutíma. Nýja sundlaugin er 162/3 m að lengd og IOV2 m að breidd, og er hún öll flísalögð og með svoköll- uðum yfírfallskanti. Vatn í laug er hitað upp með varmaskipti. Steinsteypt aðstöðubygging á einni hæð, sem í eru m.a. sturtur og búningsherbergi, er 260 fer- metrar að flatarmáli. Hönnuðir hússins eru Teiknistofa Gunnars Hanssonar, Verkfræðistofa Stef- áns Ólafssonar hf. og Verkfræði- stofan Rafhönnun hf,. en umsjón með hönnun, gerð útboðsgagna og byggingareftirlit hafði bygg- Nokkrir nemendur úr Ölduselsskóla vígðu nýju sundlaugina, én á meðal þeirra var Kristfn Rós Hákonardóttir, heimsmeistari í 100 metra baksundi fatlaðra, sem sést til vinstri á myndinni. Morgunblaðið/Bjami Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, skólastjóri Ölduselsskóla og Davíð Ódds- son, borgarstjóri, við opnun sundlaugarinnar við Ólduselsskóla. Á milli þeirra sést Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar. ingardeild borgarverkfræðings. Framkvæmdir við byggingu sundlaugarinnar hófust í septem- ber 1987. Háfell hf. sá um alla jarðvinnu, Valvirki hf. sá um upp- steypu húss og laugar og Sel sf. sá um allan lokafrágang. Heildar- kostnaður húss, laugar og lóðar er um 55,3 milljónir króna á verð- lagi 1. janúar 1989. Aftiotagjald ríkisútvarpsins síðustu 4 ár: Hækkunin rúmlega tvöMt meiri en verðlagshækkun Hækkun lánskjaravísitölu, 1985-89 1131% Hækkun afnotagjalda, 1985-89 288% 1985 1986 1987 1987 1987 1988 1988 1989 Þessi tafla sýnir prósentuhækkun afhotagjalds ríkisútvarpsins, í hvert skipti, frá 1. júlí 1985 til 1. mars 1989, og til samanburðar er hækkun lánskjaravísitölu á sama tíma. Lánskjaravísitalan fyrir mars nk. er áætluð 2% hærri en hún er nú. Afnotagjald ríkisútvarpsins hækkar um 28,2% þann 1. mars nk. samkvæmt ákvörðun Alþing- is. Hefúr afhotagjaldið þá hækk- að um 288% frá ársbyrjun 1985, eða úr 387 krónum í 1500 krónur á mánuði. Ef lánskjaravísitala í mars nk. er lauslega áætluð, hef- BISKUPI íslands, herra Pétri Sigurgeirssyni, hefúr verið veitt lausn frá embætti frá og með 1. júlí næstkomandi. Að sögn Þorsteins Geirssonar ráðuneyt- isstjóra í dómsmálaráðuneytinu kemur kjörsljórn vegna bisk- upskosninga fljótlega saman til að útbúa kjörskrá, sem síðan verður lögð fram, svo gera megi við hana athugasemdir ef ein- hveijar eru. Kjörskráin á að liggja frammi í Qórar vikur, en að því loknu fer fram biskups- kosning. Þorsteinn Geirsson segir að umferðir í biskupskosningu geti orðið tvær, þar sem hreinan meiri- hluta þarf til að hljóta kosningu. Fái enginn meirihluta í fýrstu kosningu er kosið milli þeirra ur sú vísitala hækkað um 131% á sama tíma. Síðast hækkaði af- notagjald í júli síðastliðnum um 10%. Svokallað litagjald, eða afnota- gjald fyrir útvarp og sjónvarp, var 2.320 krónur, eða 387 krónur á mánuði, fyrri hluta ársins 1985. tveggja, sem flest atkvæði hljóta. I kjörstjórn eiga sæti Þorsteinn Geirsson, sem er formaður, Vil- hjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, sem er skip- aður af kirkjumálaráðherra og sr. Valgeir Ástráðsson, sem er til- nefndur af Prestafélagi íslands. Varamenn eru Ólafur Walter Stef- ánsson, skrifstofustjóri í dóms- málaráðuneytinu, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og Ragnheiður Bene- diktsdóttir, skrifstofustjóri á Bisk- upsstofu. Fjórir hafa opinberlega gefið kost á sér í embætti biskups: Sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup, sr. Jón Bjarman, sjúkrahúsprestur, sr. Sigurður Sigurðarson, formaður Prestafélags Islands, og sr. Heimir Steinsson, prestur á Þingvöllum. Núna er þetta gjald 1.170 krónur á mánuði, sem er hækkun um 202%. Á sama tíma hefur lánskjaravísitala hækkað um 126%, og framfærslu- vísitala um 122%. Ef reiknað er frá ársbyrjun 1987, hefur afnotagjaldið hækkað um 109% en lánskjaravísi- tala um 45,6% á sama tíma. Afnotagjaldið mun 1. mars nk. hækka í 1.500 krónur á mánuði og lauslega áætlað verður lánskjara- vísitalan þá 2-2,5% hærri en nú. Árið 1985 var afnotagjald ríkisútvarpsins innheimt tvisvar á ári. Fyrri hluta ársins var það 2.320 krónur, eða 387 krónur á mánuði. Síðari hluta ársins hækkaði gjaldið í 2.650 krónur, eða 441 krónu á mánuði, sem er 14% hækkun. Afnotagjaldið hækkaði um 15% áramótin 1985-86, í 508 krónur á mánuði og var síðan óbreytt það ár. Þá var afnotagjaldið innheimt ársfjórðungslega, 1.525 krónur í hvert sinn, nema á þriðja ársfjórð- ungj þegar 75 krónur voru dregnar frá afnotagjaldinu þar sem útsend- ingar sjónvarps féllu niður vegna vinnudeilna. Þessi tvö ár hækkaði afnota- gjaldið ívið minna en almennt verð- lag. En árið 1987 hækkaði afnota- gjaldið samtals um 80%, meðan verðlag hækkaði um 20-25%. Fyrst hækkaði afnotagjaldið um 10% um áramótin, í 560 krónur á mánuði, eða 1.680 krónur ársfjórðungslega. Þann 1. júlí hækkaði afnotagjaldið um 40%, í 784 krónur á mánuði eða 2.352 krónur ársfjórðungslega. 1. október hækkaði gjaldið um 20%, í 940 krónur á mánuði eða 2.822 krónur ársfjórðungslega. Afnotagjaldið var hækkað um 13% áramótin 1987-88, í 1.063 krónur á mánuði, eða 3.190 krónur ársfjórðungslega. 1. júlí hækkaði gjaldið síðan um 10%, í 1.170 á mánuði, eða 3.510 á ársfjórðungi, og hefur verið það síðan. Gjaldið breytist næst 1. mars nk., í 1.500 krónur á mánuði, en síðustu inn- heimtuseðlar ríkisútvarpsins voru fyrir tvo mánuði, janúar-febrúar, alls 2.340 krónur. Biskupi Islands veitt lausn firá 1. júlí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.