Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 Ásakanir Ómars eru með öllu tilhæfulausar - segir Andri Már Ingólfsson ANDRI Már Ingólfsson fyrrum framkvæmdastjóri Útsýnar segir ásakanir Ómars Kristjánssonar eiganda Útsýnar, um að hann hafi leikið tveimur skjöldum, alvarlegar og með öllu tilhæfulausar. Hann hafi næg vitni meðal starfsmanna Utsýnar, viðskiptavina og fjöl- skyldu sinnar um að hann hafi lagt sig allan fram í starfi sínu þar til hann sagði því lausu. „Við uppsögn mína var Ómar með ýmsar hótanir um aðgerðir gegn mér ef ég vogaði mér að fara frá fyrirtækinu," segir Andri Már. „Ómar Kristjánsson fyrirgerði sjálf- ur möguleikum á frekara samstarfi okkar og að mínu mati hefði hann ekki staðið við nýtt samkomulag ef það hefði komið til frekar en það sem hann lofaði mér í haust." í máli Andra Más kemur fram að Ómar hefði ekki viljað skrifa undir starfssamning sinn við Útsýn og hefði greitt honum launamismun sem Andri átti inni hjá Útsýn með eftirgangsmunum. „Framkvæmdastjórastaða án framkvæmdastjómarvaids er auð- vitað engin staða og þegar Ómar byijaði að gefa nýjar forsendur fyr- ir starfí mínu allrækilega til kynna síðustu vikur mínar í starfi komu upp ýmis ágreiningsefni okkar í millurn," segir Andri Már. „Ég varð að taka afstöðu til sjálfstæðis míns sem persónu og til þeirra breytinga í Útsýn sem nauðsynlegt var að gera og ég var vel á veg kominn með.“ Andri segir fullyrðingar Ómars fáránlegar um að ákvörðun sín um uppsögn hafi verið fljótfærnisleg. í þessu sambandi vill Andri nefna að Ómar virðist hafa gleymt fundi þeirra í desember þar sem hann virti í engu skoðanir Andra og rök- semdir. „Og svo fínnst honum und- arlegt að ég telji forsendur fyrir starfi mínu brostnar. Um miðjan desember gerir hann þær kröfur að vilji ég starfa sem framkvæmda- stjóri hans verði ég að læra að hugsa og breyta eins og hann. Þetta eru kröfur sem ég kæri mig ekki um að uppfylla. Eg get ekki selt neinum sannfæringu mína um mannleg samskipti og virðingu. Slíkt verður Ómar að kaupa annars staðar,“ segir Andri Már. Andri segir að hann hafi enn ekki fengið að taka persónuleg plögg sín af skrifstofu sinni í Út- sýn, þar á meðal tölvu sem hann lagði fyrirtækinu til í meira en ár. Hvað varðar þá fullyrðingu Ómars um að hann hafi fjarlægt samninga af skrifstofu Útsýnar segir Andri Andri Már Ingólfsson vera meiðandi aðdróttun og með öllu ósanna. „Ég fjarlægði enga samninga af skrifstofunni og Ómar veit það best sjálfur. Ef eitthvað þarf að hressa upp á minni Ómars eru allir samningar í mö_ppu merktri „Sumar 1989“. Minni Omars hefur hinsvegar brugðist nokkuð oft í samskiptum okkar undanfarið," segir Andri Már. Andra finnst athyglisverðar þær yfirlýsingar Ómars Kristjánssonar um einhug Ómars með starfsfólki Útsýnar þegar hann hafi neitað starfsfólkinu um fund nokkrum dögum áður vegna þess að hann hafði sagt upp einum starfsmann- anna. Sá starfsmaður hafði leitað réttar síns hjá VR þar sem ólöglega hafði verið dregið af kaupi hans. „í þessu máli var ég gerður ómerk- ur orða minna oftar en einu sinni,“ segir Andri Már. „Virðist Ómari standa nákvæmlega á sama hvort starfsfólk geti borið traust til yfir- manna sinna eða ekki.“ Andri segir að hann skilji ekki af hveiju Omar telji sig þurfa á framkvæmdastjóra að halda þar sem hann hafi að eigin áliti mesta þekkingu á þessum rekstri. „Það er athyglisvert að framkvæmda- stjóri American Express sem kom hingað um daginn, sagði mér eftir að hafa átt kvöldverð með Ómari að: „Hann gerir ekki greinarmun á því að selja sláttuvélar og ferða- þjónustu." Ef þetta er það sem koma skal í ferðaþjónustu á íslandi erum við í vanda stödd," segir Andri. Að lokum vildi Andri taka eftir- farandi fram: „Ég tel mig hafa mikið langlundargeð sem persóna en einhvers staðar þarf maður að draga mörkin og standa við eigin grundvallarskoðanir. Peningar eru ekki algildur mælikvarði þótt aðrir virðist meta það þannig." VEÐUR IDAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 7. JANÚAR YFIRLIT GÆRDAGSINS: Búist er vift stormi á S-djúpi og SV- djúpi. Skammt suðvestur af Hvarfi er víðáttumikil 970 mb lægð sem grynnist en dálítil lægð á Grænlandshafi mun fara norð- austur yfir landið í nótt. Langt suð-vestur í hafi er að myndast lægð sem nálgast landið síðdegis á morgun. Heldur er að hlýna í veöri. SPÁ: Á morgun veröur norðan- og norð-austan gola eða kaldi og él víða við norðurströndina, en suð-vestan kaldi eða stinningskaldi í öðrum landshlutum. Skúrir verða á suö-vestur- og Vesturlandi, en úrkomulítið annars staðar. Hiti víöast ofan við frostmark. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG: Suð-vestan átt og rigning um sunnan- vert landið. Hiti rétt yfir frostmarki. Á Norður- og Austurlandi verð- ur hiti undír frostmarki. Norð-austan átt og él síðdegis. HORFUR Á MÁNUDAG: Norð-austan- og norðanátt um land allt. Él við norður- og austurströndina en þurrt að mestu annars stað- ar. Frost 2—4 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / r / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El == Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J* Skafrenningur |"T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tima Akureyri Reykjavík hlti +6 0 veður snjókoma snjókoma Bergen 3 akúr Helsinki 0 alskýjað Kaupmannah. 1 þokumóða Narssarssuaq 5 skýjað Nuuk +8 alskýjað Osló +3 þoka I gr. Stokkhólmur 0 lóttskýjað Þórshöfn 2 alskýjað AJgarve 14 skýjað Amsterdam 10 þokumóða Barcelona 8 rykmistur Berlln 3 þokumóða Chicago Feneyjar 0 vantar þokumóða Frankfurt 8 skýjað Glasgow 7 trokumóða Hamborg 2 þokumóða Las Palmas 20 lóttskýjað London 10 léttakýjað Los Angeles 9 skýjað Lúxemborg 7 alskýjað Madrld 3 þokumóða Malaga 17 skýjað Mallorca 15 skýjað Montreal +20 isnólar New York +5 snjókoma Orlando 12 lóttskýjað Parls 10 skúr Róm 12 hálfskýjað San Dlego 11 skýjað Vín +3 kornsnjór Washlngton 1 þokumóða Winnipeg +13 snjókoma Karvel Pálmason alþingismaður: Hef allan fyrir- vara á stuðningi við efiiahagstillögurnar KARVEL Pálmason alþingismaður segist hafa allan fyrirvara á stuðn- ingi við þær tillögur um aðgerðir til bjargar sjávarútveginum, sem ríkisstjórnin hefur kynnt. Karvel segir þessar tillögur ekki unnar í samvinnu við þingflokk Alþýðuflokksins, og hafi raunar ekki verið kynntar þar fyrr en eftir að stjórnarandstaðan og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fengu þær í hendur. Karvel Pálmason, fulltrúi Al- þýðuflokksins í sjávarútvegsnefnd efri deildar, sagði við Morgunblaðið að sér sýndist þessar tillögur vera varhugaverðar og hann hefði því allan fyrirvara á stuðningi við þær. Hins vegar ætti hann eftir að kynna sér tillögumar nánar, þar sem hann hefði fyrst séð þær á miðvikudags- kvöld á þingflokksfundi. „Það er ámælisvert hvemig menn haga sér í þeim efnum að útbýta svona tillög- um til allra annarra en þeirra sem ættu þó að fá þær fyrst,“ sagði Karvel. Hann sagði síðan að sér heyrðist á sjávarútvegsaðilum að þeir væm ekki mjög ánægðir með tillögurnar. „Og ef inni í þeim er fyrsti vísir að Stykkishólmur: Pálmi Frímanns- son læknir látinn auðlindaskatti og veiðileyfasölu þá verður að gefa því sérstakan gaum. Ég mun gefa mér tíma til að gaum- gæfa þetta, því í fljótu bragði sýnist mér tillögurnar vera þess eðlis að spuming' sé hvort menn séu enn að herða að í saniþandi við kvóta og að koma enn frékar í veg fyrir við- leitni manna til að bjarga sér sjálf- ir,“ sagði Karvel. Hann sagði síðan, að ef það væri rétt að verið væri að tryggja kvóta- kerfið í sessi með stofnun úrelding- arsjóðs fiskiskipa, þá væri það þvert á stefnu Alþýðuflokksins í þeim málum. Samkvæmt hugmyndum sjávarútvegsráðherra á m.a. að afla þessum sjóði tekna með sölu á kvóta þeirra skipa sem úreldast. Stykkishólmi. PÁLMI Frimannsson heilsugæslu- iæknir í Stykkishólmi lést á Lands- pítalanum í Reykjavík síðastliðinn fímmtudag eftir erfið veikindi, 44 ára að aldri. Pálmi fæddist í Garðshomi á Þela- mörk í Eyjafirði 1. ágúst 1944, son- ur hjónanna Frímanns Pálmasonar bónda og. Guðfinnu Bjamadóttur. Hann láuk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri og læknisprófi frá Háskóla íslands 1972. Hann starfaði fyrst sem læknir á ýmsum stofnunum en hefur verið héraðs- læknir í Stykkishólmi frá því í júlí 1974. Pálmi var virkur í ýmsum félögum í héraði, gegndi m.a. formennsku í Læknafélagi Vesturlands, Rauða kross-deildinni í Stykkishólmi, Hér- aðssambandi Snæfellinga (HSH) og ungmennafélaginu Snæfelli og sat í stjóm Rotaryklúbbsins og Krabba- meinsfélags Snæfellinga. Pálmi lætur eftir sig eiginkonu, Heiðrúnu Rútsdóttur póstafgreiðslu- Pálmi Frímannsson mann, tvær dætur og eina kjördóttur. Árni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.