Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LA.UGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 31 St)örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson ÁriÖ framundan hjá Ljóni í dag er umfjöllunin um árið framundan hjá Ljóni (23. júll- 23. ágúst). Einungis er miðað við sólarmerkið eða það sem varðar grunneðli og lífsorku. Heldur rólegt ár Þær plánetur sem verða sterkar hjá Ljóni á næsta ári eru Júpíter og Plútó. Júpíter myndar spennuafstöðu úr Nauti fram í mars og Plútó úr Sporðdreka. Satúmus, Úr- anus og Neptúnus verða hins vegar hlutlausari á árinu. Vetrar- og vorþensla Júpíter verður aftast í Nauti í des. 1988, og síðan í janúar til mars 1989 og myndar spennuafstöðu á Sól þeirra sem eru fæddir frá 19.-23. ágúst. Júpíter Þegar orka Júpíters er annars vegar eykst þörfin fyrir nýja reynslu, hreyfingu og það að víkka sjóndeildarhringinn. Hún hefur þau áhrif að ný boð berast til vitundarinnar og öll hugarstarfsemi verður mikilvirkari og hugmynda- flugið eykst. Afleiðing er sú að augu Ljónsins opnast fyrir því að lífið hefur upp á fleiri möguleika að bjóða en augun höfðu áður numið. Forvitni verður sterkari en áður og framandi staðir virðast meira heillandi en mörg undanfarin ár. Útþrá Á tímabilum Júpíters er ekki gott að einbeita sér að þröng- um og afmörkuðum viðfangs- efnum heldur er æskilegt að búa við hreyfingu, frelsi og svigrúnr). Orka Júpíters er til nýrra ætlunarverka, þó ekki sé endilega um sérstaklega róttækar breytingar að ræða. EndurfœÖing Plútó verður síðan sterkur t 'korti þeirra Ljóna sem eru fædd frá 4. til 10. ágúst, allt næsta ár. Orku Plútós fylgir þörf fyrir að komast dýpra en áður í viðfangsefni sín. Ljónið mun því að vissu leyti loka á umhverfi sitt og skera hirðina niður við trog, ef svo má að orði komast. Þau hirðfífl sem ekki segja nógu sannar og góðar sögur verða sett í gapastokkinn, væru- kærir ráðgjafar víkja og til verða kailaðir djúpvitrir spek- ingar. Konungurinn þarf að hreinsa til og framkvæma ætlunarverk sln án undan- bragða. Það má þvt segja að næsta ár verði ár hreinsunar og djúprar einbeitingar hjá Ljónum sem eru fædd frá 4.-10. ágúst. Mars Að lokum er rétt að geta stöðu Mars á næsta ári, en hann hefur með framkvæmdir að gera, eða orku og drifkraft. Hann verður í Hrút fram til 20. janúar 1989, sem veit á gott fyrir athafnasemi Hrúts- ins, en tákar fyrir Ljónið að þvi ætti að ganga vel að at- hafna sig. Um ákveðna mýkt verður að ræða, án þess að orkan sé teljandi sterk eða spennt. Athafnasemi Frá 20. janúar til 11. mars 1989 verður Mars í Nauti sem ætti að vera stressað en kraftmikið athafnatímabil fyrir Ljónið. I apríl og maí og fram til 17. júní verður hann ( Tvíbura og Krabba sem veit á mýkra og afslappaðra flæði í orkunni, og jafnframt minni • athafnasemi. Frá og með 17. júní og út júlí verður Mars síðan í Ljónsmerkinu. Það ætti að vera kraftmikill og góður athafnatími fyrir öll Ljón. GARPUR BRENDA STARR :::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::: ::::::: ::::::: UÓSKA Kennarinn vill að við skrif- um ritgerð um bæna- hald... PRAYIN6 15IMPORTANT UiMEKJ YOU UiAKE UPATTUJO 0‘CLOCK INTHE M0KNIN6 FEELIN6 5ICK FROM EATIN650METHIN6 (7UMBTHE PAY E5EFORE.. Bænahald er mikilvægt þegar maður vaknar klukkan tvö að nóttu og er veikur af því að hafa borðað eitthvað drasl dag- inn áður___ I LL JUST 5AY LUE LUERE OUTOFTOWNANPI PIPN'T WAVE TIME T0 UJRITE ANYTHIN6.. Ég segi bara að við höfum farið úr bænum og ég hafi ekki haft tíma til að skrifa neitt... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sagnhafi taldi sig þurfa að velja á milli þess að spila á 3-3- legu í tígli eða svíningu í spaða. Og þar sem hann var vel lesinn í skiptingarlíkum, tók - hann svíninguna: Suður gefur; allir á hættu. Vestur Norður ♦ Á3 ♦ G109 ♦ DG864 ♦ Á102 Austur ♦ 962 ♦ K8754 ♦ 8743 111 ♦ 2 ♦ K75 ♦ 1092 ♦ G65 Suður ♦ 9873 Vestur ♦ DG10 ♦ ÁKD65 ♦ Á3 ♦ KD4 Norður Austur Suður — — — 2 grönd Pass 6 grönd Pass Pass Pass Útspil: hjartaátta. Ekki eru allir hrifnir af þvt að opna á grandsögn með góðan fimmlit í hálit, en opnun suðurs hefur þó þann kost að lýsa styrknum nákvæmlega. Stökk suðurs í sex grönd er líka um- deilanlegt, þar eð sex (jafnvel sjö) tíglar gætu verið betri. En til þess að komast að því þarf nákvæman útbúnað. Hvað, sem þessum vangaveltum líður, þá komust NS t bestu slemmuna (sex hjörtu tapast, þar eð svíningamar fyrir kóngana tvo misheppnast). Fyrsta verk sagnhafa var að taka tígulás og spila tígli á drottningu blinds. Þegar hún átti slaginn gerði hann sér grein fyrir vandanum. Átti hann að spila tiglinum aftur og treysta á 3-3-legu, eða reyna við 12. slaginn með svíningu 5 spaða. Hann hafði lesið í Morgunblað- inu að líkur á 3-3-skiptingu væru 36%, en svtning var þó alltaf 50%, svo hann tók hana. Kannski réttilegan en á röngum forsendum. Það eru nefnilega fyrirframlíkumar sem em 36%, en í þessu tilfelli hafði litnum verið spilað í tvígang, svo það mátti afskrifa 6-0 og 5-1 skipt- ingu. Spumingin stóð aðeins um skiptingu þeirra tveggja spila sem úti vom, K10 í tígli. Og líkur á 1-1-dreifingu þeirra em 52% á móti 48% líkum á 2-0-legu. Hins vegar var rétt að svína spaða í stöðunni, þvt þótt hún misheppnaðist þarf austur að eiga tigul til að bana spilinu. En alit þetta kemur málinu ekkert við. Sagnhafí gat nýtt sér báða möguleikana með því að spila einfaldiega litlum tígli frá ásnum í öðmm slag. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á Norðurlandamóti framhalds- skóla í ár, sem fram fór á Akur- eyri f september, kom þessi staða upp í skák þeirra Boga Pálsson- ar, Menntaskólanum á Akureyri, sem hafði hvítt og átti leik, og Bjöms A. Hansen, Noregi. 35. BxíB! - gxf6 (35. - Rxf6, 36. Dg5 var líka alveg vonlaust.) 36. Rxf6+! - Kh8, 37. Dh6 - Dc7, 38. D18 mát. Þrátt fyrir þessa meðferð sigraði norska sveitin á mótinu, hlaut 15 v. af 20 mögulegum. Sú danska varö næst með 13 v. en heimamenn urðu í þriðja sæti með 12V2 v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.