Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 40
í40 ■MORGUNBLAÐIÐ TLAUGARDAGUR' t: ÍÁWÚAr; JlS89 ©1981 Universal Press Syndicate Hvað vil-tu þ>ó_—vjómaiS^eAa. Haslcolamenrrtuie P" -ai ást er. ia-sn . .. að nota ímyndunaraílið. TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved ® 1988 Los Angeles Times Syndicate Þetta er nýi dansinn diskó-pólitík. Eitt spor til vinstri og eitt til hægri og svo tvö spor til hægri og jafnmörg til vinstri, mjög flókið . . . Þú verður að skipta um olíu og slifsi... HÖGNI HREKKVÍSI © 4 /2-/8 „ t GÆf? KLIPPTI HAMN FJÁRHUSIP. " Þessir hringdu . . Dýrt spaug’ að firiða hvalinn Sjómaður hringdi: „Mikið hefur verið skrifað um hvalinn og hvalfriðunarmál í Vel- vakanda og ýmis sjónarmið hafa komið fram. Sumir vilja friða hvalinn hvað sem það kostar og hvort sem hann er í útrýmingar- hættu eða ekki. Hvalirnir eru fal- legar skepnur og skil ég vel að fólk hafi samúð með þeim. En það gæti reynst okkur dýrt spaug að alfriða hvalinn. Hvalurinn er eins og allir vita stór skepna og þarf mikið að éta. Þótt sumir hvalir lifi á svifi þá eru aðrir, og þeir eru í meirihluta, sem lifa á fiski. Ef hvölum og selum fjölgar hömlu- laust verðum við að draga veru- lega úr veiðum okkar og það fyrr en síðar, ella munu fiskistofnanir hrynja niður. Þetta yrði þjóðinni mjög dýrt og hæpið að hún gæti framfleytt sér til lengdar án þess að aðstoð erlends frá kæmi til. Að þessu ættum við að huga áður en við leggjum okkar mál í hend- ur friðunarsinna. Með hliðsjón af því sem gerðist í Grænlandi er nefninlega hætt við að þeim standi alveg á sama þó hér fari allt til fjandans. íslendingar ættu að standa fast á rétti sínum í þessu máli.“ Gott áramótaskaup Ragnheiður hringdi: „Fyrir skömmu var kona að flalla um áramótaskaup sjón- varpsins í Velvakanda. Ég er sam- mála henni um að þetta var gott áramótaskaup og betra en það hefur verið undanfarin ár. Það er ekki rétt að það hafi verið viðvæn- ingslegt, eins og ég sá einhvers staðar haldið fram, og það var gaman að sjá loks ný andlit í ára- mótaskaupi. Þessi kona segist ekki vera sátt við kvikmyndina Nonna og Manna. Ég skil ekki þá sem eru að finna að þeirri mynd því hún var mjög góð. Þó söguþræði Nonnabókanna hafi ekki verið fylgt í myndinni var andinn hinn sami og það skiptir mestu máli.“ Silfurhringur Silfurhringur með steini tapað- ist fyrir jól. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 23211. Gifitingarhringur Giftingarhringur fannst á Hótel íslandi fyrir jól. Upplýsingar gef- ur Mary í síma 40617. U mferðartöfin við Miklubraut Til Velvakanda. Það er með ólíkindum hve öku- mönnum er gert erfitt með að kom- ast inn á Miklubraut á löglegan hátt af þeim götum sem liggja á hana þvera. Vegabætur voru gerðar á Kringlumýrarbraut fyrir nokkru þegar settar voru upp tvær akrein- ar fyrir þá ökumenn sem taka vilja vinstri beygju í vestur átt. En ljósa- búnaður umferðarljósa leyfir þó aðeins að farið sé yfir á gulu ljósi, nema engin umferð sé á Kringlu- mýrarbraut í suður átt. Afleiðingin er sú að ökumenn aka farartækjum sínum inn á Miklubraut og sæta færis með að beygja í vestur átt og allt að 10 bílar fara yfir braut- ina á rauðu ljósi. Öllum er ljóst að þetta skipulag veldur stórhættu í umferðinni fyrir utan það að þarna myndast óþarfa umferðarhnútar. Ef sett væru upp ljós, svipuð þeim sem sett hafa verið upp fyrir þá er beyja vilja af Miklubraut inn á Kringlumýrarbraut, þá yrði um- ferð greiðari, hún yrði hættuminni og ökumönnum lærðist að bera virð- ingu fyrir rauðu umferðarljósunum. Okumaður Yíkverji skrifar Víkvetji fór að ná í bækur í póststöðina við Ármúla í fyrra- dag. Á þann stað er þeim mönnum stefnt, sem fá bækur sendar til landsins í pósti. í ferðinni að þessu sinni hitti Víkverji þjáningarbróður, sem sagði að þeir afgreiðsluhættir á bókum, sem íslenska ríkið stendur fyrir á þessum stað, væru með þeim ósköpum, að hann hefði beðið er- lenda bókaútgefendur, sem vildu í vinsemd kynna honum bækur sínar, að hætta að senda þær til landsins. Datt Víkvetja þá í hug, að þar með væri líklega tilganginum náð hjá þeim fjandmönnum ritfrelsis sem standa að stíflunum gegn innflutn- ingi á bókum, sem hafa verið reist- ar þarna við Ármúlann í Reykjavík. Af gamalli reynslu er Víkvetja ljóst að líklega þýðir ekkert að tala um mál þessarar opinberu stofnun- ar með þá von í bijósti, að gripið verði til ráðstafana í því skyni að bæta þjónustu við almenning og auðvelda honum að nálgast það éfni, sem hann fær sent frá útlönd- um. Slíkar hömlur á dreifingu prentaðs máls þekkjast hvergi nema í ofbeldis- og alræðisríkjum, þar sem skriffinnar fara sínu fram og haga sér eins og þeim sýnist. Þegar Víkverji lýsti undrun sinni yfir starfsháttum stofnunarinnar á fimmtudaginn, sagði afgreiðslu- maðurinn einfaldlega: Kvartaðu bara, það er betra fyrir okkur! Víkverji fékk sendan heim til sín miða um að hann ætti send- ingu í Ármúlapósthúsinu. Við mið- ann var festur reikningur frá bóka- verslun í Englandi og kom þar fram að nokkrar bækur biðu afgreiðslu í pósthúsinu. Fór Víkverji með mið- ann og afhenti hann afgreiðslu- stúlku, sem hvarf á brott með skjal- ið. Síðan beið Víkverji í rúmlega fimmtán mínútur. Þá var nafn hans kallað upp. Honum var afhent eyðu- blað og sagt að fylla það út. Þetta var innflutningsskýrsla með yfir- skriftinni Tollstjórn. Víkverji hefur aldrei stundað innflutning, þannig að hann veit ekk, hvernig á að fylla slík skjöl út. Afgreiðslustúlka sagði, að einstaklingum væri veitt hjálp við að útfylla slík skjöl en í þann mund bar bjargvætt að garði, bóka- mann, sem rétti Víkverja hjálpar- hönd. Var hann með útfyllta skýrslu sem Víkverji gat notað sem fyrir- mynd. Með aðstoð þessa góða manns voru færðar alls kyr.s tölur inn á fjölmarga reiti á skýrslunni og einnig var með aðstoð reiknivél- ar á staðnum reynt að reikna út prósentur og breyta pundum í krón- ur. Gekk heldur illa að glíma við þann opinbera reiknigrip. Allt tókst þetta þó að lokum og var rúmlega hálftími liðinn frá því að Víkverji kom í pósthúsið, þegar hann af- henti síðan gjaldkera skýrslu sína, en samkvæmt útreikningum virtist Víkverja sem hann ætti að greiða um 1700 krónur til hins opinbera eða um 30% af verði bókanna. Gjaldkerinn tók við skýrslunni og sagði: Þetta verður tilbúið á morgun! Víkveiji hváði og spurði, hvort ekki væri unnt að fá bækum- ar strax. Nei, hér er svo mikið að gera, að það tekur sólarhring að afgreiða svona pakka, var svarið. Ameðan Víkveiji dvaldist þarna á þessum stað, heyrði hann fleiri en einn viðskiptavin hrópa upp yfir sig af undrun, þegar hann kynntist hinu þunglamalega af- greiðslukerfi og þeirri skriffinnsku sem fylgir því að nálgast erlendar bækur eða eitthvað annað smálegt. Víkveiji skorar hérmeð á yfirvöld landsins að leiða hugann að því, hvort ekki sé unnt að haga þeirri starfsemi sem hér hefur verið lýst með öðrum hætti. Starfshættirnir eru í hróplegri andstöðu við þróun- ina á upplýsingaöld. Að það kosti skýrslugjafir og margar ferðir að ná til sín nokkrum bókum á sér aðeins fyrirmynd í afturhaldsríkjum sem em andvíg upplýsingu, al- mennri menntun og menningu. ~r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.