Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 Marel selur Sovét- mönnum tölvuvogir UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur hjá Marel í Reykjavík við Sakhalinrybprom, útgerðar- fyrirtæki á Sakhalin-eyju við austurströnd Sovétríkjanna. Samningurinn, sem er um af- hendingu á 27 Marel-tölvuvogum fyrir skip, er að fjárhæð um 18 miljónir íslenskra króna og verður Miklaholtshreppur: Fjárskaðar vegna vatnavaxta Borg. UNDANFARNA daga hefur verið hér mikil úrkoma. Vatnsföll hafa flætt víða upp úr farvegum. Hæstu tindar hér, eins og Ljósufjöll, Elliðahamar og Skyrtupna, hafa fengið hvítan fald. Bændur í Kolbeinsstaða- hreppi fengu mikið vatnsveður eftir að þeir fóru að smala fé af Kaldárdal. Fé er vant að fara sínar venjulegu götur sem gengnar hafa verið um langan tíma. 3 kindur kvöddu í Kaldá en fleiri voru hætt komnar er tókst að bjarga þeim. - Páll greitt fyrir vogirnar í bandan'kja- dollurum. Samningurinn var undir- ritaður af Alexander Folomkin, tæknilegum framkvæmdastjóra Sakhalinrybprom, en hann hefur undanfama 10 daga dvalist hjá Marel, ásamt tæknimanni frá Sak- halin, Viktor Kim, þar sem þeir hafa kynnt sér tæknilegan grunn Marel-voganna, til að geta sjálfir séð um þjónustu og uppsetningar á Marel-skipavogum á Sakhalin. Shakalinrybprom keypti á síðasta ári 35 skipavogir frá Marel og hef- ur reynslan af þeim verið það góð að þeir vildu festa kaup á fleiri vogum. Það er e.t.v. tímanna tákn, að á síðasta ári ger Marel samn- ing við Sovrybflot ,eild innan sov- éska sjávarútvegs ðuneytisins, um afhendingu voganna til Sakhal- inrybprom, en nú var samið beint við útgerðaraðilann, sem hefur inn- kaupaheimild fyrir tæki sem auka- arðsemi fyrirtækisins. Alexander Folomkin tæknilegur framkvæmdastjóri Sakhalinrybprom og Geir A. Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Marel undirrita samn- ing. Á bak við þá standa Viktor Kim tæknimaður frá Sakhalin og Þórólfur Árnason markaðs- og framleiðslustjóri Marel. Hluthafafundur Eimskips: lllutafjárút- boð samþykkt Á HLUTHAFAFUNDI Eimskipa- félags Islands, sem haldinn var á fimmtudag, var samþykkt sam- hljóða að bjóða út 86 milljóna króna hlutafé í félaginu. Útboðs- skrá var því lögð fram og rennur þriggja vikna frestur forkaups- réttarhafa til að festa sér aukinn hlut í félaginu út 5. október. Til þessa hluthafafundar var boðað vegna þess að fundur hluthafa í fé- laginu, sem haldinn var fyrir skömmu, var ekki sóttur af nægilega stórum hluta eigenda félagsins til þess að hann væri bær til þess að samþykkja hlutafjárútboðið. Að sögn Harðar Sigurgestssonar,- forstjóra Eimskips, þurftu fulltrúar eigenda þriðjungs hlutafjár að mæta á þenn- an fund, og þrír fjórðu hlutar þeirra að samþykkja hlutafjáraukninguna. Bæði þau skilyrði voru uppfyllt, eig- endur 54% hlutafjár voru mættir og útboðið var samþykkt samhljóða. Sauðárkrókur: Annað gjaldþrotið á vikutíma Sauðárkróki. SKAMMT er nú stórra högga á milli, varðandi rekstur fyrir- tækja á Sauðárkróki. Fiskeldis- fyrirtækið Fornós hf., sem átt hefur við verulega rekstrarörð- ugleika að stríða á síðustu 12 til 18 mánuðum, var á fimmtudag afhent bæjarfógetaembættinu á Sauðárkróki til gjaldþrotaskipta. Meðal stærstu kröfuhafa í Fom- ósi hf. eru Byggðastofnun og fóður- stöðin ístess á Akureyri, en alls munu skuldir fyrirtækisins nema um 30—40 milljónum. Þá átti Forn- ós við verulega erfiðleika að stríða þegar kýlaveiki kom upp í stöðinni, en af þessum sökum drapst þó nokkuð magn af seiðum og sölu- hæfum fiski. Allmikið af lifandi físki er nú í kerjum Fomóss, og fyrir liggja und- irskrifaðir samningar milli Fomóss og íslandsfísks um það að hinir síðamefndu kaupi allan lax stöðvar- innar sem tilbúinn var til slátrunar fyrir nokkru og óveðsettur. Hins- vegar hefur þessi samningur ekki komið til framkvæmda, og hefur ásamt öðrum eignum verið afher^tur bæjarfógeta. Þá er ekki ljóst hverjir munu þurfa að standa við ábyrgðir fyrir- tækisins, þar sem ekki var gengið frá nýrri hluthafaskrá fyrr á þessu ári, en þá yfirtóku Fiskiðjan hf. á Sauðárkróki og Hólalax nokkuð af hlutafé fyrri eigenda. _ gg ■ MANUDAGINN 17. SEPT- EMBER verður haldinn kynningar- fundur Flugbjörgunarsveitarinn- ar í Reykjavík. Fundurinn verður í hinu nýja félagsheimili sveitarinn- ar v/Flugvallarveg (vegurinn að Hótel Loftleiðum) klukkan 20. stundvíslega. Flugbjörgunarsveit- in er kjörinn vettvangur fyrir hvern þann sem vill stunda heilbrigða úti- veru, gott félagsstarf og síðast en alls ekki síst að vera tilbúinn til þess að bjarga mannslífum við leit- ai^tört P& P&B 1)$^* Þ&Mr.; , Þakstál með stíl Plannja UII þakstál Aðrir helstu sölu- og þjónustuaðilar: Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733. Blikkrás hf, Akureyri, sími 96-26524. Vélaverkstæði Björns og Kristjáns, Reyðarfirði, sími 97-41271. Vélaverkstæðið Þór, Vestmannaeyjum, sími 98-12111 Tígulsteinsrauður litur, sígildurogfallegur. Einnig svartur litur. Hert lakk, mikiðveðrunarþol. ISVÖR hr Dalvegur 20 Kópavogur Fósthólf 435 • 202 Kópavogur Sími 91-670455 • Fax 670467

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.