Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 21 Hrafnagilsskóli: Hönnunargalli á íþróttahúsinu HONNUNARGALLI á íþrótta- húsinu við Hrafnagilsskóla hefur haft í för með sér um hálfrar milljóna króna endurbætur á húsinu nú í haust. Klæðning efsta hluta stafna hússins þoldi ekki álagið og hefur furuklæðning verið sett þar upp. Húsið var tekið í notkun siðasta haust. Norðanpiltar skemmta Hríseyingum á sunnudaginn. Norðanpilt- aríHrísey Norðanpiltar skemmta Hríseyingum næstkomandi sunnudag kl. 16 í Sæborg. Hljómsveitina Norðanpilta skipa þeir Guðbrandur Sig- laugsson, Jón Laxdal Halldórs- son og Kristján Pétur Sigurðs- son. Þeir piltar hafa allir starf- að í öðrum hljómsveitum áður og auk þess getið sér gott orð á sviði bókmennta og lista. Umboðsmaður Norðanpilta er Halldór G. Pétursson. Dagskrá- in er blönduð í tali og tónum, rytmablús og dans sem flestum fellur vel í geð, segir í fréttatil- kynningu. Úlfar Hreiðarsson húsvörður íþróttahússins sagði að gallinn hefði fljótlega komið í ljós, eða skömmu eftir að húsið var tekið í notkun fyrir réttu ári. Eftir að nemendur skólans og aðrir unnendur íþrótta sem nýta húsið hófu þar að iðka íþróttir síðastliðið haust fóru ljós að hrynja úr loftum hússins og einn- ig kom umræddur hönnunargalli á stöfnum hússins í ljós. Stafnarnir voru klæddir fum- klæðningu, nema hvað efstu tveir metrarnir voru einungis klæddir spónaplötum. Þeir sem ábyrgð bera á hönnun hússins, aðilar úr Reykjavík hafa komið norður og litið á aðstæður og að sögn Úlfars hafa þeir viðurkennt að um styrk- leikagalla sé að ræða. Aður en kennsla hófst í húsinu í haust var furuklæðing sett á allan stafninn, en Úlfar bjóst við að end- urbætur á húsinu næmu um hálfri miljjón króna. Iþróttahúsið var mikið nýtt síðasta vetur og útlit fyrir að svo verði einnig í vetur. Eftir að al- mennri kennslu lýkur að deginum geta hópar tekið á leigu tíma i húsinu og kvaðst Úlfar ekki hafa áhyggjur af því að tímarnir gengju ekki út, en þegar hafa íjölmargir pantað tíma. Morgunblaðid/Haukur Ingólfsson Eldur kom upp í húsakynn- um Pósts og síma á Grenivík Grenivík. ELDUR kom upp í íbúð í húsa- kynnum Pósts og síma á Grenivík eftir liádegi í gær. Mikinn reyk lagði út um glugga þegar slökkvilið kom að. Einn maður var í íbúðinni auk þess sem starfsfólk pósthússins var þar að störfum. Það varð elds- ins ekki vart. Slökkviliðið á Grenivík hefur ekki verið kall- að út í um sex ár. Slökkviliðið var kallað út kl. 14.30 í gærdag, en þá hafði kom- ið upp eldur í íbúð sem er í húsi Pósts og síma á Grenivík. Eldur- inn kom upp í körfu með óhreinum þvotti í þvottahúsi. Mikinn reyk lagði út um glugga er slökkvilið kom á vettvang. Ibúi í húsinu, sem fyrstur varð eldsins var, kallaði út slökkvilið og hafði að mestu náð að hefta útbreiðslu eldsins er slökkvilið kom á staðinn, en liðs- menn þess réðu niðurlögum elds- ins. Alls eru 22 menn í Slökkviliði Grýtubakkahrepps, en 7 þeirra voru kallaðir út í gær. í sumar tóku slökkviliðsmenn þátt í reykk- öfunamámskeiði og nýttist það þeim vel við slökkvistörfin nú. Liðið er vel tækjum búið. Miklar skemmdir eru í þvotta- húsi og geymslu íbúðarinnar auk mikilla reykskemmda í allri íbúð- inni. Slökkvilið Grýtubakkahrepps hefur ekki verið kallað út til starfa vegna eldsvoða um sex ára skeið, eða frá því kviknaði í sumarbústað við Lund ofan Grenivíkur. - Haukur Fundur Bankaráðs Landsbankans á Akureyri: Utlán á Akureyri 8,5 millj- arðar - imilán 3,5 milljarðar Ný færavinda á markað frá DNG FRAMLEIÐSLA er hafin á nýrri tegund tölvustýrðrar færavindu hjá rafeindafyrirtækinu DNG. Vinda þessi er árangur langrar þróunarvinnu starfsmanna fyrir- tækisins, en aðalbreytingarnar frá gömlu gerðinni eru á innviðum vind- unnar. Með tilkomu stærri og betri örtölvu hafa notkunarmöguleikar hennar aukist til muna. Starfsmenn fyrirtækisins hafa einnig þróað línuspil fýrir smábáta, smíðin hófst síðastliðinn vetur og hefur það reynst ágætlega. Spilið er drifið áfram af DNG-tölvuvindu, þannig að ekki þarf að fjárfesta í vökvakerfi. BJÖRGVIN Vilmundarson, einn bankastjóra Landsbankans, verður fyrsti formaður bankastjórnar og mun hann gegna stöðunni í eitt ár, þá tekur Sverrir Hermannsson við stöðunni um eins árs skeið og síðan Valur Arnþórsson, en tekið er mið af starfsaldri bankastjóranna. Bankaráð Landsbankans hélt sinn fyrsta fund eftir sumarfrí í gær og var hann haldinn á Akureyri. Bankaráðið mun halda fundi úti um landið á næstu árum og líklega verður sá næsti á Isafirði að ári. bankann á Akureyri og var það m.a. gert í þeim tilgangi að flytja þekk- ingu og störf út á landsbyggðina. í tilefni af fundinum á Akureyri færði bankinn Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri tíu töfl og skákklukkur hvorum skóla. Háskólinn á Akureyri fékk 200 þúsund króna framlag til rannsókna. Tillaga um að einn af bankastjór- um Landsbankans gegni stöðu for- manns bankastjórnar er í upphafí komin frá bankastjórunum, en nú er verið að vinna að heiidarendur- skipulagningu á starfsemi bankans. Eyjólfur K. Sigurðsson formaður bankaráðs Landsbankans sagði að þetta myndi gera bankann sterkari en áður. Hann sagði að ýmissa breyt- inga væri að vænta, þær fyrstu kæmu til framkvæmda um áramót, en skipulagsbreytingar innan bank- ans ættu að fullu að vera komnar til um mitt næsta ár. Afgreiðslustaðir Landsbankans eru 43 víða um land, auk 18 af- greiðslustaða Samvinnubankans. Á fundinum kom fram að mikla hag- ræðingu mætti gera varðandi mál- efni útibúanna og samkvæmt hug- myndum sem fram væru komnar þar um væri gert ráð fyrir að afgreiðslu- staðir yrðu flokkaðir í fjóra flokka eftir þjónustustigi. Stærstu útibúin yrðu svokölluð svæðisútibú og yrði eitt þeirra á Akureyri, en ef farið verður eftir hugmyndinni verður landinu skipt í sjö svæði með jafn- mörgum svæðisútibúum. í máli bankastjóra Landsbankans kom fram að fullur vilji væri fyrir því innan bankans að styðja við at- vinnulífíð í bænum sem heldur hefði átt undir högg að sækja síðustu misseri. Heildarútlán bankans á Akureyri voru á síðasta ári 8,5 millj- arðar en innlánin 3,5 milljarðar. Nýlega var stofnuð hagdeild við Húsbyggjendur - húseigendur Getum tekið að okkur hvers konar við- haldsverkefni eða nýsmíði. Upplýsingar veitir Páll Alfreðsson í síma 96-21603. Islandsmótið Hörpudeild - Akureyrarvöllur í dag kl 14. ÞOR—VIKINGUR Þórsarar, komid og sjáiú síúasta leik sumarsins é?)— Skálafell sf. rAL Fóstrur -fóstrur Nú er gullið tækifæri að breyta til og reyna eitthvað nýtt. Staða hverfisfóstru á Akureyri í Glerárhverfi er laust til umsóknar. Staðan er 100% staða og starfið er mjög fjölbreytt. Hverfisfóstra sér um dagvistir, leik- velli og dagmæður í sínu hverfi. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt, vera skipulagður og hafa áhuga á því að vinna með fólki. Starfið veitist frá 1. desember nk. Allar nánari upplýs- ingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi, alla virka daga frá kl. 10-12 í síma 96-24600. Skriflegar umsóknir skulu berast dagvistarfulltrúa fyrir 20. október 1990, á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá starfs- mannastjóra og dagvistarfulltrúa. Dagvistarfulltrúi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.