Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 35
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD MORGUNBLAÐIÐ IÞRQTTIR LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 FH-ingar hefja titil vömina gegn KA ÍSLANDSMÓTIÐ íhandknatt- leik hefst um helgina. Fjölgað hefur verið í 1. deild karla þannig að tólf lið leika í 1. deild. Islandsmeistarar FH hefja titilvörn sína í nýja íþróttahúsinu í Kaplakrika þeg ar þeir fá KA í heimsókn á morgun kl. 16.30. Meistararnir hafa ' misst tvo lykilmenn frá því sl. keppn- istímabil. Héðinn Gilsson er farinn til V-Þýskalands, þar sem hann leikur með Dusseldorf og Þorgils Óttar Mathiesen hefur lagt skóna á hilluna og snúið sér alfarið að þjálfun FH-liðsins. Stefán Krist- jánsson, vinstryhandarskytta, hefur gengið á ný til liðs við FH, eftir að hafa leikið með KR. . Tveir leikir verða leiknir í dag í deildinni. Nýiiðarnir frá Selfossi fá aðra nýliða í heimsókn - Fram. Björgvin Björgvinsson, fyrrum landsliðsmaður úr Fram, þjálfar Selfyssinga. Leikurinn hefst kl. 16.30 í dag og á sama tíma verða aðrir nýliðar í sviðsljósinu. Það eru Haukar sem taka á móti Víkingum í íþróttaliúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Víkingurinn Viggó Sigurðsson þjálfar Hauka og með þeim leikur Steinar Birgirsson, sem ' lék á árum áður með Víkingum. Eyjamemr fá KR-inga í heimsókn á morgun kl. 16.30 og annað kvöld leikur Grótta og Valur á Seltjarna- nesi kl. 20. Leik ÍR og Stjörnunnar hefur verið frestað vegna Evrópu- leiks Stjörnunnar. Þrír leikir verða leiknir í 1. deild kvenna um helgina. Fram og Valur leika í Seljarekóla kl. 17 í dag og Selfoss_ mætir Víkingi kl. 15. A morgun leikur Stjarnan og FH kl. 15 í Garðabæ. Morgunblaöið/KGA Tekið á loft... Flugturn kallar: „Viðar, flugtaksheimild leyfð!“ Þessi skemmtilega mynd var tekin í sumar á Valsvellinum - í leik Vals og Fram. Antony Karl Gragory, sóknarleikmaður Vals og Viðar Þorkelsson, vamarmaður Fram, kljást um knöttinn. Það er Viðar sem er í loftinu - Flugturninn á Reykjavíkurflugvelli er í baksýn. Bandarísk inn- rásíEvrópu BANDARÍSKIR knattspyrnu- menn hafa gert innrás í Evr- ópu. Eftir að Bandaríkjamenn léku í HM á Ítalíu hafa margir af bestu leikmönnum þeirra gerst leikmenn með félagslið- um í Evrópu. Tony Meola, markvörðurinn knái, skrifaði undir samning við Watford í Englandi í gær, en Meoia stóð sig mjög vel á Italíu. Meola, sem er 21 ára, æfði í þrjár vikur með Brighton og stóð sig vel með varaliði félagsins. En eftir að hann hafði leikið með Brighton gegn Watford buða for- ráðamenn Watford honum samn- ing. Meola er sjöundi leikmaður bandaríska landsliðsins sem gerist leikmaður í Evrópu. Miðvallarleik- maðurinn Paul Caligiuri gekk til liðs við a-þýska liðið Hansa Rostock í sl. viku og annar miðvallarspilari, Tab Ramos, gerðist þá leikmaður með spánska 2. deildarliðinu Figu- eres. Varnarmaðurinn John Doyle og miðvallarleikmaðurinn Hugo Perez leika með Örgryte í Svíþjóð. Sókn- arleikmaðurinn Chris Sullivan leik- ur með sænska liðinu Landskrona varnarmaðurinn Steve Trittschuh leikur með tékkneska meistaralið- inu Sparta Prag og hefur hann skorað tvö mörk fyrir liðið í 1. deild- arkeppninni. Tveir aðrir leikmenn bandaríska liðsins æfa nú með enskum liðum. Miðvallarspilarinn John Harkes er hjá Sheffield Wednesday og sóknar- leikmaðurinn Bruce Murray hjá Ips- wich. Það má segja að undirbúningur Bandaríkjamanna fyrir HM 1994 er hafinn. Tony Meola, markvörður. STJARNAN HELSING0R IF SUNNUDAGINN 16. SEPT. KL.20:00 í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNIÁSGARÐI GARÐABÆ Forsala aðgöngumiöa í Ásgarði laugardag kl.14:00-18:00 og sunnudag frá kl.14:00 KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.