Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 Morgunblaðið/Kári Jónsson Mikið tjón varð á Laugarvatni í fyrradag. Þetta var einu sinni hjól- hýsi. Hjólhýsin fuku o g splundruðust Laugarvatni. FJÖGUR hjólhýsi gjöreyðilögð- ust á svæði Tjaldmistöðvarinnar á Laugarvatni í miklu hvassviðri í fyrradag. 6 önnur fóru á hliðina en skemmdust minna. Mikið norðan áhlaup með hvass- virði og úrkomu gerði á Laugar- vatni og brast veðrið á eins og hendi V etrar dagskrá Hótel íslands: Rokksýning og þijár hljómsveitir Stjórnin aftur á stóra sviðið Rokksýningin „Rokkað á himnum“ verður frumsýnd á Hótel íslandi 29. september næstkomandi og er hún liður i vetrardagskrá skemmti- staðarins. I þessari söng- og dansskemmtun munu koma fram nokkrir af þekktustu söngvurum landsins, íjöldi dansara, ásamt hljómsveit, alls um 25 manns. Hljóm- sveitin Stjórnin hefur verið ráðin til að leika fyrir dansi á stóra sviðinu í vetur, eins og tvö undanfarin ár. Að sögn forsvarsmanna Hót- el íslands er „Rokkað á himn- um“ hressileg skemmtun í anda rokkáranna, en þó með öðru yfirbragði en fyrri skemmtanir af slíku tagi. í þessari sýningu er söguþráður sem tengir tón- listina saman á nýstárlegan hátt. Sagan er um Jón, sem i upphafí deyr drottni sínum, og konu hans Píu, sem reynir ák- aft að koma bónda sínum i „Gullna liðið“, sem rok'kar á himnum. A sýningunni verða leikin sjötíu eftirminnileg rokk- lög úr gamla djúkboxinu, en veg og vanda af uppsetningu sýningarinnar eiga þeir Björn G. Bjömsson og Björgvin Hall- dórsson. Danshöfundur er He- lena Jónsdóttir. Áætlað er að sýna „Rokkað á himnum“ öll föstudags- og laugardagskvöld í vetur og verður kvöldverður borinn fram og svo dansað á eftir við undirleik Stjórnarinn- ar. í öðrum sölum Hótel íslands verður einnig boðið upp á lif- andi tónlist. I Ásbyrgi verður Anna Vilhjálms og hljómsveit, í Café íslandi verður Blúsband Andreu og í Norðursalnum verður leikin nýjasta tískutón- listin af diskóteki og telja for- svarsmenn skemmtistaðarins að með því eigi allir að geta fundið tónlist við sitt hæfi á Hótel íslandi. væri veifað um hádegi. Upp úr klukkan fjögur dró úr úrkomu en bætti þá í vind og fór allt lauslegat af stað. Tíu hjolhýsi af um 90 sem staðsett eru við Tjaldmiðstöðina fuku af stað og splundruðust tvö þeirra eftir að hafa rúllað tugi metra. Stjórnendur Tjaldmiðstöðvarinn- ar stóðu í ströngu við að binda nið- ur og bjarga hjólhýsum. Veðrið gekk niður eins snögglega og það byijaði og um klukkan sex var kom- ið besta veður. Ekkert húsanna sem fuku var bundið niður. Einn húseigandinn sem þarna var að rétta af sitt hjól- hýsi sagði það hinn mesta aulaskap af sér að hafa ekki sett stag á húsið því alltaf mætti búast við slíkum áhlaupum á þessum tíma. Hjólhýsin sem fuku eru flest nokkuð skemmd og aðminnsta kosti fjögur þeirra gjörónýt. -Kári Slátrun hafln á Suðurlandi: Ríflega 150 þúsund fjár undir hnífínn á þessu hausti Sex sláturhús starfrækt á Suðurlandi Selfossi. SAUÐFJÁRSLÁTRUN hófst í sláturhúsi Hafnar hf. á Selfossi í gær. Gert er ráð fyrir að slátrað verði þar um 15 þúsund fjár sem er svipað og í fyrra. í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi hefst slátrun næstkomandi miðvikudag og þar er gert ráð fyrir eitthvað minni slátrun en í fyrra en þá var þar slátrað um 40 þúsund fjár. Slátrun hefst einnig á miðvikudag í slátur- húsi Þríhyrnings hf. í Þykkvabæ þar sem áformað er að slátra 18 þúsund fjár. Á Hvolsvelli hefst slátrun um miðja næstu viku og þar er gert ráð fyrir að slátra um 26 þúsund fjár. í Vík í Mýrdal hefst slátrun 20. september og þar er gert ráð fyrir að slátra 15 þúsund íjár sem er heldur minna en í fyrra. Á Kirkju- bæjarklaustri hefst slátrun 19. september og þar er gert ráð fyrir að slátra um 25 þúsund fjár. Miklar endurbætur hafa verið á slátursal og öll aðstaða fyrir gerðar á sláturhúsi Hafnar hf. á innmat hólfuð niður í sérklefa Selfossi og sláturhúsi Þríhyrnings hf. í Þykkvabæ og hafa þau bæði fengið löggildingu sem sláturhús en störfuðu áður á undanþágu. Gengið hefur verið frá kjötsal sláturhúss Hafnar hf. á Selfossi með kælingu, endurbætur gerðar fyrir einstaka hluta hans. Haraldur Gestsson sláturhús- stjóri Hafnar hf. sagði breyting- arnar koma vel út og gott yrði að starfa í húsinu eftir þær. Hann gerði ráð fyrir að sauðfjárslátrun lyki í húsinu undir lok október. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fyrsta sláturpásan í sláturhúsi Hafnar. Menn ræða málin undir sláturhússvegg. Alls vinna 43 við slátrun í Höfn hf. en af þeim eru 6 fastráðnir starfsmenn sem vinna við slátrun allt árið. Hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi munu 90 manns starfa við sauðfjárslátrun á þessu hausti. Vel hefur gengið að manna slátur- húsið en erfitt hefur verið að fá fláningsmenn. Kjarni þeirra sem vinna við sauðljárslátrunina er úr sveitunum en einnig kemur fólk til starfa frá Selfossi og úr þétt- býliskjörnunum í kring. Auk þeirra sem starfa við sauð- fjársltrun eru fastráðnir starfs- menn Sláturfélagsins á Selfossi um 35 sem starfa við aðra slátrun og vinnslu. í Garnastöð félagsins vinna auk þess að staðaldri 20 manns. Frekar vel gengur að ráða fólk til starfa í sláturhúsin en þau eiga það þó sammerkt að erfiðast er að fá fláningsmenn til starfa. Það var létt hljóð í mönnum hjá Höfn hf. á Selfossi þennan fyrsta sláturdag. Það fylgir slát- urtíðinni alltaf viss stemmning, hún er hluti af því þegar haustar að og er vettvangur samskipta fólks sem hittist aftur við þessi störf enda er það svo að við hvert sláturhús starfar ákveðinn kjarni. fólks. „Það er alltaf gaman að byija í þessu,“ sagði einn hinna vösku slátrara Hafnar hf. í fyrstu sunnlensku sláturpásunni á þessu hausti. Og það var að venju létt yfir Kolbeini Kristinssyni fram- kvæmdastjóra Hafnar hf. og Þríhyrnings enda kominn með tvö löggilt sláturhús og auk þess full- komna kjötvinnslustöð sem sann- ar sig æ betur með hveiju árinu. - Sig. Jóns. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum: Tíðar ferðir almenn- ingsvagna til umræðu Vogum. AÐALFUNDUR Sambands sveit- arfélaga á Suðurnesjum hófst í Stóruvogaskóla I Vogum í gær. Meðal helstu mála sem lágu fyrir fundinum var skýrsla nefndar um almenningsvagnakerfi á Suður- nesjum. Tillögur nefndarinnar byggja á tíðum ferðum almenn- ingsvagna til allra byggðarlaga á Suðurnesjum. Samstarf sveitarfélaganna í nútíð og framtíð var einn dagskrárliða fundarins og var málið rætt í nokkr- um undirflokkum. í erindi Magnúsar Guðjónssonar, heilbrigðisfulltrúa, kom fram, að íslendingar hafa ekk- Dómkirkjan: Safnaðarheimili tekið í notkun Dómkirkjusöfnuðurinn tekur í notkun nýtt safnaðarheimili við Lækjargötu 14a eftir guðsþjón- ustugjörð í Dómkirkjunni á sunnudaginn kl. 14. Þá verður kirkjugestum boðið að koma og skoða húsið sem orðið er hið glæsilegasta eftir miklar endur- bætur sem staðið hafa í tæpt ár. Húsið, sem er í eigu Reykjavíkur- borgar, hefur söfnuðurinn tekið á leigu og geldur fyrir með kostnaði við endurbyggingu hússins. Þar verða framvegis skrifstofur prestanna sem verða með viðtalstíma sem hér segir: Sr. Hjalti kl. 11.30— 12.30 og sr. Jakob kl. 11—12 þriðju- daga til föstudaga. I húsinu er samkomusalur, vandað eldhús, kennslustofa, föndursalur og vinnustofur. Lyfta er í húsinu. Við guðsþjónustuna, sem hefst kl. 14, þjóna dómkirkjuprestarnir, sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sem predikar. Dómkórinn syngur og Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti, stjórnar söng og leikur á orgelið. í tilefni opnunar hússins verður sýning á nýjum kirkjuskrúða eftir Sigrúnu Jónsdóttur, kirkjulistakonu, í kennslustofu á fyrstu hæð og verð- ur hún opin fram á sunnudaginn 23. september kl. 4—6. (Frcttatilkynning) ert gert til að hindra mengun sjávar frá þéttbýlisstöðum, jafnvel þó mikil- vægustu hrygningarsvæði okkar nytjafiska séu á grunnslóð hér skammt frá. Hann sagði einnig íjör- ur svo gerlamengaðar að stórvara- samt væri fyrir fólk, einkum börn, að ganga þar um. Magnús sagði að í augum ná- grannalanda okkar værum við enn á því stigi að skvetta úr koppunum okkar út um gluggann. Sú staðreynd að 80% af mávastofninum við strend- ur landsins bæri með sér salmonella- sýkilinn endurspeglaði ástand frá- rennslismála. Tillaga var lögð fyrir fundinn frá bæjarstjórn Njarðvíkur um að sam- inn yrði atvinnuáætlun á vegum sam- bandsins og að gjöldum af stórat- vinnurekstri yrði skipt milli sveitarfé- laganna fyrirfram. EG Heimsmeistaramótið í tvímenning: Islensku konurnar í 31. sæti ÞEIM Hjördísi Eyþórsdóttur og Jacqui McGreal hefur ekki gengið sem best í úrslitum heimsmeist- aramótsins í tvímenning. Þær eru í 31. sæti af 36 pörum í kvenna- flokki þegar fjórum umferðum er lokið af fimm. í opna flokknum voru efstir Gabri- el Chagas og Marcelo Branco frá Brasilíu, en þeir eru núverandi heimsmeistarar í sveitakeppni. Heimsmeistaramótinu í öldunga- flokki lauk í gær. Þar urðu sigurveg- arar Bretarnir Albert Dormer og Alan Hiron. Jón G. Briem, hdl., hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræði- deildar Islandsbanka hf. íslandsbanki hf.: Nýr forstöðu- maður lög- fræðideildar JÓN G. Briem, hdl., hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræði- deildar Islandsbanka hf. Jón, sem er liðlega fertugur, varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1968. Hann útskrifaðist sem lögfræðingur árið 1974 og starf- aði við Bæjarfógetaembættið í Keflavík til ársins 1976, er hann stofnaði eigin lögfræðistofu og síðan Lögfræðistofu Suðurnesja sf., sem hann hefur rekið ásamt Ásbirni Jónssyni, hdl. Jón hefur verið virkur í félags- málum og hefur meðal annars verið formaður Taflfélags Reykjavíkur frá árinu 1986. Hann er kvæntur Sigurþóru Stefánsdóttur Briem og eiga þau þijú börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.