Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990 19 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fuiltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Álmálið - pólitískur veruleiki Af yfirlýsingum formanna tveggja ríkisstjórnar- flokka, Steingríms Hermanns- sonar í Framsóknarflokknum og Ólafs Ragnars Grímssonar í Alþýðubandalaginu, undan- farna daga má ráða, að þeir eru að búa sig undir að fallast á að álver verði reist á Keilis- nesi á grundvelli þeirra samn- ingsdraga, sem liggja fyrir. Hér er greinilega um breytingu á viðhorfi formannanna að ræða og verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig þeim tekst að fá fylgi í þingflokkum sínum við álver á þessum stað. Tíminn sem er til stefnu er ekki lang- ur, því að viðræðuaðilar lýstu hátíðlega yfír því á sínum tíma, að þeir stefndu að niðurstöðu í málinu nú í september. Altt frá því að ríkisstjórnin var mynduð hefur verið ljóst, að álmálið yrði erfitt viðfangs innan hennar. Viðræðurnar sem nú eru að komast á loka- stig hófust á vegum Sjálfstæð- isflokksins á sínum tíma. í þeim hafa verið viðurkennd ýmis meginsjónarmið sem flokkur- inn hefur jafnan haft varðandi samvinnu við erlenda aðila um stóriðju og fjárfestingu í landinu. Takist samningar við hina erlendu aðila nú með sam- þykki ríkisstjórnar með aðild bæði Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins er ljóst að á þeim aldarfjórðungi sem lið- inn er frá því að samið var við Alusuisse um álverið í Straumsvík hafa þessir flokkar breytt um stefnu. í pólitísku ljósi markaði slíkur samningur álíka mikla stefnubreytingu hjá Alþýðubandalaginu í stóriðju- málum og flokkurinn hefur sýnt í verki með því að taka ráðherrastóla fram yfir stefn- una: ísland úr NATÖ — herinn burt! Innan allra stjórnmálaflokka er ágreiningur um staðarval fyrir nýtt álver. Með hliðsjón af mikilvægi málsins fyrir þjóð- ina alla verða menn að ýta þeim ágreiningi til hliðar, ef fastheldni í einn landshluta ræður úrslitum um hvort álve- rið verður reist eða ekki. Um raforkuverð og aðra fjárhags- lega skilmála verður að semja á þann veg, að ekki sé tekin of mikil áhætta fyrir framtíðar- afkomu þjóðarinnar; hið nýja álver þarf að standa undir öll- um kostnaði við virkjanir vegna þess. Umhverfisverndarsjónar- mið vega þyngra en áður og taka verður fullt tillit til þeirra. Þegar litið er fram hjá þess- um hefðbundnu atriðum, sem virðist unnt að koihast að sam- eiginlegri niðurstöðu um í samningaviðræðunum, stendur hitt eftir að Alþingi þarf að samþykkja samninginn. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur jafnframt gefið til kynna að innan ríkis- stjórnarinnar verði að vera samkomulag um þetta mál, annars sé stjómarsamstarfið markleysa. Þegar alþýðubandalags- menn voru að laga stefnu sína að staðreyndum í varnarmálun- um í vinstri stjóminni frá 1971-74 bókuðu þeir andstöðu sína við framkvæmdir varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli, en sátu sem fastast í ríkisstjórn- inni. Bókanir kynnu að halda ríkisstjórninni saman í álmálinu núna og síðan færu ráðherrar með tvíræðar. yfirlýsingar um málið inn á Alþingi í von um að sjálfstæðismenn kæmu þeim til hjálpar þar, enda væri ríkis- stjórnin að framkvæma megin- stefnu Sjálfstæðisflokksins. Skynsamlegast er að skoða áherslubreytingarnar í mál- flutningi þeirrar Steingríms Hermannssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar í þessu ljósi. Þeir átta sig á því, að algjör andstaða flokka þeirra við samningsdrögin eins og þau eru núna myndi hafa í för með sér stjórnarslit og kosningar. Alþýðuflokksmenn gætu varla við það unað, að drögin yrðu rekin ofan í Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og honum skipað að skila betri heima- vinnu. Niðurstöðurnar í skoðana- könnun Félagsvísindastofnun- ar sem birtar voru hér í blaðinu í vikunni sýna ráðherrunum að flokkar þeirra eiga ekki upp á pallborðið hjá kjósendum um þessar mundir, þeir vita einnig að almenningur bindur miklar vonir við skynsamlega samn- inga um nýtt álver. Þeir Steingrímur Hermannsson og Ólafur Ragnar Grímsson eru aðeins að bregðast við pólitísk- um veruleika með því að gerast talsmenn álvers á Keilisnesi. Y fírlýsingar ríkis- stj órnar á ári læsis eftir Þorstein Pálsson Þetta ár er helgað alþjóðlegri baráttu fyrir læsi. Lestrarkunnátta er svo almenn og góð hér á landi að flestum íslendingum kemur það nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar birtar eru upplýsingar sem sýna að víða er við mikinn vanda að etja vegna þess að fólk kann ekki að lesa. Hvað sem því líður hefur það þó gerst á alþjóðlegu ári læsis að Is- lendingum gengur æ verr að Iesa merkingu eða ákvarðanir sem standa frá einum degi til annars út úr yfirlýsingum ríkisstjórnarinn- ar. Vel færi á því að ríkisstjórnin stofnaði ráðherranefnd um málið undir forsæti þess ráðherra sem ber stjórnskipulega ábyrgð á ári læsis hér á landi. Það er ekki síst yfirlýsingar ríkis- stjórnarinnar varðandi samninga af ýmsu tagi sem er erfitt að lesa einhverja merkingu úr. Einu gildir um hvort er að ræða samninga við íslenska aðila, launþegasamtök, at- vinnurekendur og bændur eða er- lenda aðila, fyrirtæki og alþjóðieg samtök eða stofnanir. „Tímamótasamningar" Skemmst er að minnast samn- inga við bandalag háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna. Þegar þeir samingar voru gerðir vorið 1989 lýsti ríkisstjórnin yfir því að gerðir hefðu verið sérstakir tímamóta- samningar. Bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra fluttu þann boðskap fyrir hönd ríkisstjórnarinn- ar. Tímamótin voru fólgin í því að nú hafði ríkisstjórninni loksins gefst færi á að efna gömul fyrirheit um að stórhækka laun háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna. Þetta var unnt að gera samkvæmt yfirlýsing- um ráðherranna og engum ráðherra datt í hug að gefa út yfirlýsingar um annað en samningarnir væru í samræmi við þjóðarhag. í byijun þessa árs tóku launþeg- ar og atvinnurekendur fram fyrir hendur á ríkisstjórninni að því er varðar stjórn efnahagsmála. For- ystumenn þessara hagsmunasam- taka lögðu nýjan efnahagsgrund- völl. Ríkisstjórnin var þá spurð hvort hún teldi að samningar við Bandalag háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna stæðust enn. Svarið var já. Astæðulaust væri með öllu að breyta þeim lögum og það yrði ekki gert. Þegar kom frá á sumar og ríkis- stjómin horfðist í augu við tíma- mótasamningana frá árinu áður fóru að renna á hana tvær grímur. Enn vora þó gefnar út yfirlýsingar um að samningamir yrðu ekki afn- umdir með lögum. Síðan sendi ríkis- stjórnin málið fyrir Félagsdóm. um leið og það var gert lýsti starfandi forsætisráðherra yfir því að lögum yrði aldrei beitt til þess að breyta samningum eftir að dómstóll hefði kveðið upp úrskurð um hvert væri raunveralegt efni samninganna. Eftir að ríkisstjómin hafði tapað málinu fyrir Félagsdómi voru samn- ingarnir síðan afnumdir með lögum. Jafnvel háskólamenntaðir menn „ Almennt ólæsi Islend- inga á merkingn í yfir- lýsingum ríkisstjórnar- innar gerir þær sið- ferðilegu stoðir sem íslensk stjórnmál eiga að standa á að fúaspýt- um.“ eiga erfitt með að lesa yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þannig að sam- ræmi fáist iriilli orða og athafna. Álver hér og þar Ríkisstjórnin hefur átt í samn- ingaviðræðum við þrjú erlend stór- fyrirtæki um að reisa hér nýtt ál- ver. Hún tók við þessum samning- um úr höndum Friðriks Sophusson- ar, sem lagði grandvöllinn að þeim í iðnaðarráðheiTatíð sinni. Og eðli- lega hefur fólk spurt hvar slíkt ál- ver ætti að rísa. Enginn skortur hefur verið á yfirlýsingum um það efni. Meðan Alusuisse var aðili að þessum viðræðum af hálfu hinna erlendu fyrirtækja tengdust þær eðlilega staðsetningu í Straumsvík. Astæðan var fyrst og fremst sú að þar hefur Alusuisse rekið álverk- smiðju í meira en'tvo áratugi. Sam- nýting fjárfestingar og aðstöðu hlaut því að vega þungt. Eftir að Alusuisse fór út úr þessum viðræð- um opnuðust möguleikar á að stað- Þorsteinn Pálsson setja álver annars staðar. Margir töldu, og það með réttu, að það gæti orðið byggðaþróun í landinu til framdráttar að reisa stórt orku- ver tii að mynda í Eyjafirði. Svo fór að ríkisstjórnin taldi sig þurfa að láta undan þrýstingi í þessa veru með því að gefa út yfirlýsingar. í yfirlýsingunum sagði að farið yrði í eins konar „rallí-ferð“ um- hverfis landið í þeim tilgangi að efna sem víðast til uppboða á stað- setningu álvers. Flestir sem til þekktu gerðu sér grein fyrir að líklegast var að yfirlýsingar af þessu tagi myndu leiða til jjess að ekkert yrði úr áformunum. Ýmsir töldu þó rétt að lesa út úr yfirlýsing- unum samkvæmt góðri og gildri íslenskri lestrarvenju það sem þar stóð. Sumir þingmenn stjórnar- flokkanna virðast jafnvel hafa gert það einnig með sama hætti og al- menningur. Fyrir fáum vikum lýsti forsætis- ráðherrann því síðan yfir að álver ætti að staðsetja úti á landsbyggð- inni enda hefði Morgunblaðið lýst þeirri skoðun sinni í forystugrein. Enn voru býsna margir sem lásu þessa yfirlýsingu samkvæmt hefð- bundnum íslenskum lestrarvenjum. Þingflokkur Aiþýðubandalagsins gaf einnig út yfirlýsingu þar sem sagði skýrt og skilmerkilega að flokkurinn myndi aldrei samþykkja nýtt álver nema það yrði reist á landsbyggðinni. Einn af forystu- mönnum sjálfstæðismanna á Akur- eyri hringdi til mín af því tilefni. Hann hafði lesið yfiriýsingu þeirra alþýðubandalagsmanna svo sem honum hafði verið kennt í barna- skóla að skilja íslenskt mál. Ég dró í efa í því sambandi að unnt væri að beita barnaskólalærdómi í lestri á það sem þeir alþýðubandalags- menn hefðu skrifað á blað. Nú hafa þingmenn Framsóknar- flokksins með formanninn í broddi fylkingar komið fram í fjölmiðlum og gefið nýjar yfirlýsingar. Aiverið skal rísa á Keilisnesi og fyrir því era færð rök sepi eru deginum Ijós- ari öllum sem til þekkja frá upp- hafí viðræðnanna. Allar fyrri yfir- lýsingar era nú skýrðar með því að þær hefi verið nauðsynleg leik- flétta til að halda sumum mönnum rólegum um tíma. Til þess að geta lesið yfiriýsingar ríkisstjórnarinnar þurfa menn með öðrum orðum að vita hverjum þarf að halda rólegum hveiju sinni. Mitterrand ólæs? Fyrir skömmu lýsti forsætisráð- herra því yfir í.blaðaviðtali að það versta sem fyrir okkur gæti komið væri innganga í Evrópubandalagið og aðild að löggjöf þess. Þegar ummæli þessi voru borin undir hann í áheyrn Frakklandsforseta höfðu þau skyndilega allt aðra merkingu en þá sem menn gátu lesið með því að nota einungis gamla barnaskóla- lærdóminn. Eða ætli það sé svo að ráðherrarnir í ríkisstjórn Islands segi eitt um stefnu þjóðarinnar við forystu menn Evrópubandalagsins en annað við þjóðina sjálfa? Fyrir ári lögðum við sjálfstæðis- menn mikla áherslu á að þegar í stað yrðu hafnar tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið til þess sér- staklega að gæta að hagsmunum íslands að því er várðar sjávarút- veginn og hindrunarlaus samskipti með sjávarafurðir. Þessum tillögum sjálfstæðismanna hafnaði ríkis- stjórnin m.a. með yfirlýsingum sem hljóðuðu eitthvað á þá leið að for- ystumenn Evrópubandalagsins væru ekki tilbúnir til slíkra við- ræðna. A undanförnum mánuðum hafa forystumenn Evrópubanda- lagsins á hinn bóginn, margir hveij- ir a.m.k., gefið tij kynna og sagt berum orðum að íslendingar gætu best tryggt hagsmuni sína í tvíhliða viðræðum. Síðast komu yfirlýsingar af þessu tagi frá ekki minni manni en forseta Frakklands. Ríkisstjórnin gaf þá til kynna að forseti Frakklands kynni ekki að lesa. Ég er ekki viss um a skýring- in sé svo einföld og held að álita- mál geti verið hvar vandi ólæsis liggur. Lestrarvandinn Hér hafa aðeins verið færð ófá dæmi sem sýna við hvern vanda við íslendingar eigum við etja á alþjóðlegu baráttuári fyrir læsi. Þar sem ólæsi er alvarlegt og útbreitt vandamál leiðir það ekki einasta til þess að þær þjóðir sem í hlut eiga dragast aftur úr öðrum heldur gref- ur það undan þeim siðferðilegu og menningarlegu stoðum sem sérhver þjóð verður að byggja á. Almennt ólæsi íslendinga á merkingu í yfir- lýsingum ríkisstjórnarinnar gerir þær siðferðilegu stoðir sem íslensk stjórnmál eiga að standa á að fúa- spýtum. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Barnaheill: Orðsending til almennings Morgunblaðið/Þorkell Félagar í Germaniu með nokkrum þýskum gestum, sem hingað eru komnir vegna afmælisins. Sjötíu ára afmælishátíð Germ- aníu í íslensku óperunni Á ÞESSU ári eru liðin 70 ár frá stofnun íslensk-þýska félagsins Germaninu, en félagið er stofnað 5. mars árið 1920. Tilgangur þess hefur frá upphafi verið að stuðla að auknum menningarsamskiptum íslands og Þýskalands. Á UNDANFÖRNUM vikum hef- ur fyrir allra augum verið háð barátta um unga telpu. Auk for- eldra telpunnar hefur fjökli aðila orðið þátttakandi í baráttunni og hafa fjölmiðlar haft veruleg áhrif á allt málið. Því miður hefur í þessari baráttu á stundum gleymst það sem ætti að vera aðalatriðið, þ.e. hagsmunir barnsins sjálfs og réttur þess til ótruflaðs þroska. Hinir ýmsu þátt- taker.dur í málinu hafa gjaman dregið taum annars foreldrisins og gleymt því að bestu hagsmunir telp- unnar era ekki síst fólgnir í því að sátt og samlyndi ríki í umhverfi hennar. Af þessu tilefni teljum við, sem sitjum í stjórn Samtakanna Barna- heilla, okkur skylt að leggja orð í belg í þeirri von að þau orð geti orðið til að hagsmunir ungu telp- unnar fái að njóta sín betur en nú horfír. Við hvetjum alla málsaðila, ■ LANDSSAMTÖK hjartasjúkl- inga voru stofnuð 1983 og voru stofnfélagar 230. Nú eru félags- menn orðnir um 1.700 og eru 600-700 þeirra búsettir utan höfuð- borgarsvæðisins. Verkefnin hafa vaxið stöðugt og er því fyllilega orðið tímabært að breyta skipulag- inu, svo að samtökin geti betur þjónað félagsmönnum sínum um land allt. Samkvæmt hinu nýja skipuiagi munu samtökin skiptast í deildir eftir landsvæðum. í hverri deild þurfa að vera a.m.k. 30 félags- menn. Þessi svæðafélög kjósa síðan ekki síst fjölmiðla, til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sættir komist á í málinu. Það er nauðsynlegt til þess að þroski telp- unnar geti komist í jafnvægi í stað þess að hugur hennar mótist ein- lægt af togstreitunni, sem nú ríkir í kringum hana. Um leið og stjórn Bamaheilla vil, með þessum orðum reyna að hamla gegn frekara uppnámi kring- um telpuna leyfum við okkur að vekja athygli almennings á því að þetta sorglega mál afhjúpar þá staðreynd að íslensk lög og reglur um málefni bama era ekki í nógu góðu horfi. Mál þetta hefur leitt í ljós fjölmarga annmarka á lögum og reglum um málefni bama og við svo búið má ekki standa. Ný framvörp að barnaverndar- lögum og bamalögum voru lögð fram á Alþingi íslendinga á sl. vetri. I nóvember sl. var á þingi Sameinuðu þjóðanna samþykktur nýr alþjóðasamningur um réttindi fulltrúa á aðlfund landssamtak- anna, sem haldinn verður annað hvert ár. Stofnfundir fyrstu félaga hjartasjúklinga hafa verið ákveðnir. Laugardaginn 15. september verður fundur fyrir félagsmenn á Reykjavíkursvæðinu á Hótel Sögu kl. li.OO.Sunnudaginn 16. septem- ber verður fundur fyrir félagsmenn við Eyjafjörð á Hótel KEA á Akur- eyri kl. 15.30. Áformað er að stofna síðan félög hjartasjúklinga í öllum kjördæmum landsins í október og nóvember. Aðalfundur landssam- takanna verður síðan í mars 1991. barna. Sá samningur hlýtur nú senn að fá stað í íslenskri löggjöf einkum þar sem Island var meðflutningsað- ili að samningnum. í þessum al- þjóðasamningi er fjöldi ákvæða, sem mundu hafa komið sér vel við umfjöllun um ofangreint mál og hefðu jafnvel getað orðið til að hindra ófarir þær sem nú blasa við. Á Alþingi, sem sett verður í næsta mánuði mun án efa verða fjallað mikið um málefni bama, ef til vill að nokkru leyti í ljósi þeirra hörmulegu atburða, sem gerst hafa undanfarið. Vonandi auðnast full- trúum þjóðarinnar á löggjafarsam- komunni að rísa vel undir þeirri skyldu að koma lögum og reglum um málefni bama í nútímalegt horf. Samtökin Barnaheill minna á það að leiðarljós allrar slíkrar lagasetn- ingar verður að vera réttur barnsins og það sem því er fyrir bestu. Nauð- synlegt er að um frumvörpin verði fjallað af yfirvegun og mannúð. Samtökin Barnaheill munu leggja sitt að mörkum til að svo megi verða. Til þess að hagsmunir barna fái notið sín sem best, hljóta aðstand- endur þeirra alltaf að fórna ein- hveiju af því sem þeir helst gætu óskað sér til handa. Sátt verður að ríkja kringum börn, jafnvel þótt foreldramir geti ekki komið sér saman um annað. Það er helgur réttur hvers barns að umgangast báða foreldra sína og fá að þykja vænt um þá. (Frá stjórn samtakanna Barnaheilla) í tilefni afmælisins eru þessa dagana staddir hér á landi 20 Þjóð- veijar frá 4 þýsk-íslenskum félög- um, sem starfa í Þýskalandi, þ.e. í Hamborg, Köln, Bremen og Dort- mund. Þeir ferðast til Akureyrar og Mývatns, auk þess sem þeir fara í skoðunarferðir og heimsóknir í Reykjavík og nágrenni. Þiggja þeir boð bæjarstjórnar Akureyrar, ut- anríkisráðherra og Reykjavíkur- borgar. Meðal gesta Germaniu eru formenn þýsk-íslensku félaganna, sem starfandi eru í Þýskalandi, þ.e. Oswald Dreyer-Eimbcke frá Ham- borg, Heinz Böcker frá Köln og A. Stráter frá Dortmund. Þá eru meðal gesta Germaniu tveir ráð- herrar frá fylkinu Bremen, þeir Uwe Beckmeyer efnahagsráðherra, sem er formaður íslandsvinafélags- ins þar og Claus Grobecker, fjár- málaráðherra. í dag, laugardaginn 25. septem- ber kl. 16.00, verður efnt til afmæl- issamkomu í „íslensku óperunni“. Þar flytur formaður Germaniu, Þor- varðar Alfonsson, ávarp en aðal- ræðumaður verður próf. dr. Otto Wulff, þingmaður í Bonn, og nefnir hann ræðu sína: „Vielfalt der europáischen Kultur — Bereicherung oder uberlebter Regionalismus." Mun hann þar m.a. ræða um efni sem mjög er til umræðu í dag, þ.e. framtíð menningar smáþjóða í aukinni samvinnu Evrópuþjóða. Á afmælissamkomunni leikur Kammersveit Reykjavíkur og Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngv- ari syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Kynnir á afmæl- issamkomunni verður Gísli Alfreðs- son, þjóðleikhússstjóri. Um kvöldið verður síðan afmæl- isfagnaður í Lækjarhvammi, Hótel Sögu. Þar kemur m.a. fram leikkon- an Liesel Hambach frá Köln og flyt- ur kafla úr metsölubók Christine Briickner, „Wenn Du geredet hátt- est Destemona“. Einnig flytur hún lög eftir Kreisler. Ljóðatónleikar í Norræna húsinu GUNNAR Guðbjörnsson tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson flytja ljóðaflokkinn „Die Shöne Miillerin" eftir F. Shubert. í Norræna húsinu á morgun sunnudag klukkan 17 í Norræna húsinu og verða tónleikarn- ir endurteknir á mánudagskvöld klukkan 20.30. Ljóðaflokkurinn „Die Shöne Miill- erin“ eða Malarstúlkan fagra, sam- astendur af 20 lögum við ljóð Wil- helms Míillers. Sagan segir af föru- sveini er ræður sig til starfa við myllu nokkra en áður en langt um líður fellir hann hug til dóttur malar- ans. Fjalla ljóðin svo eitt af öðru um sársauka þessarar óendurgoidnu ást- ar. Malarastúlkan fagra hefur löng- um verið nefnd sem ein af perlum þýskrar ljóðatónlistar enda ljóðræn og hrífandi. Þýðingar Þorsteins Gylfasonar á flokknum munu fylgja efnisskrá. Gunnar Guðbjömsson hefur á síðustu árum komið víða fram sem einsöngvari hér heima sem erlendis. Hann hefur sungið í óperum, síðast hlutverk Ferrando í „Cosí fan tutte“ fyrir velsku þjóðaróperuna. Hann hefur einnig sungið á tónleikum í Kaupmannahöfn, Vín, Edinborg og London, svo eitthvað sé nefnt. Gunn- ar hefur oft komið fram í útvarpi og sjónvarpi m.a. í Vikivaka A.H. Sveinssonar og þætti Granada TV um ferðaóperur í Englandi. Gunnar hefur nýlega skrifað undir samning við National Opera Studio í London en hann mun samhliða halda áfram tónleikahaldi. Jónas Ingimundarson hefur um árabil verið einn af okkar fremstu píanóleikurum. Hann hefur starfað sem einleikari og kórstjóri en einnig hefur hann átt farsælt samstarf með fjölda íslenskra söngvara. Jónas hef- ur komið oft fram erlendis nú síðast með Kristni Sigmundssyni á tónlista í Stratford upon Avon í Englandi. Miðasala hefst á laugardaginn kl, 14,00 en á mánudaginn kl.18.00. Sýningu Braga lýk ur 23. september SÝNINGU Braga Ásgeirssonar listmálara, „Hlustað með augun- um - málað með skynfærunum", lýkur um næstu helgi, suunudag- inn 23. september. Bragi segist vera mjög ánægður með viðtök- urnar, sem sýningin hefur feng- ið. Á sýningunni sýnir Bragi 36 olíu- málverk, mest stórar rnyndir. Nokkrar myndanna hafa selzt og hafa meðal annarra Reykjavíkur- borg og- Listasafn Islands fest sér myndir, að sögn Braga. Sýning Braga er í Listhúsinu, nýju galleríi að Vesturgötu 17, og er hún fyrsta sýningin sem þar er haldin. Sýningin er opin frá kl. 14 til kl. 18. Bragi Ásgeirsson listmálari. Álver og vinnumark- aður, athugasemd eftir Sigurð Guðmundsson í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Þórólf Matthíasson, lekt- or við Háskóla íslands, sem ber heitið Álver og vinnumarkaður. í greininni er fjallað nokkuð um vinnuaðferðir Byggðastofnunar við mat á áhrifum álvers á vinnumark- að og þróun byggðar og þær gagn- rýndar. Þórólfur setur fram „hugmynda- ramma“ í fjórum liðum að því hvernig hann myndi kanna þessi áhrif. Vissulega væri afar fróðlegt að sjá hvernig höfundur hyggst tengja þau lögmál sem hann ætlar að uppgötva við hinn þjóðfélagslega veruleika í líkani sínu. Ég efast um að sú klassíska jafnvægishugsun sem gengið er út frá komi að miklu gagni. Ein meginforsenda Þórólfs er að Byggðastofnun hafi ekki tekið tillit til framboðshliðarinnar í mati sínu á áhrifum álversins á vinnumarkað- inn. Þórólfur telur heildarframboð vinnuafls „fast og gefið“ og því hafí eftirspurn eftir vinnuafli á ein- um stað í hagkerfinu þau áhrif að annars staðar verði samdráttur. Þetta er rangt. Framboð vinnuafls hefur vaxið verulega á undanförn- um árum vegna þess að þjóðinni fjölgar og vegna þess að atvinnu- þátttaka hefur vaxið. Þannig hefur vinnuafl þjóðarinnar vaxið um 2.500 ársverk á ári að meðaltali undanfarin ár en fóiki á starfsaldri hefur fjölgað minna. Þegar gerðar eru forsendur um vöxt mannafla í framtíðinni höfum við ekki þorað að reikna með því að atvinnuþátt- taka vaxi enn, þótt það geti vissu- lega orðið. Að óbreyttri atvinnu- þátttöku vex mannafli í landinu um 1.700 ársverk á ári á næstu árum. Nýtt álver og margfeldisáhrif þess rúmast vel innan vaxtar vinnu- markaðarins. Þegar meta skal áhrif nýs fyrir- tækis á vinnumarkað þarf að taka tillit til þessa en það er að sjálf- sögðu rétt hjá Þórólfi að atvinnrek- andi sem greiðir há laun getur vald- ið því að önnur atvinnustarfsemi missi starfsmenn burt. Þá er eftir spurning um það hvort einhveijir eru tilbúnir að taka þau störf sem losna. I áætlunum okkar er gert ráð fyrir að svo sé. Þórólfur gagnrýnir Byggðastöfn- un fyrir að taka ekki til athugunar ýmsa aðra mikilvæga þætti. Það verkefni sem iðnaðarráðherra fól stofnuninni og er tilefni gagnrýn- innar er einungis hluti af mun viða- meiri athugun á áhrifum álversins á þjóðarhag. Þau atriði sem Þórólf- ur telur vanta eru öll tekin til athug- unar í þeim hluta verkefnisins sem Þjóðhagsstofnun sér um. Höfundur er forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. V*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.