Morgunblaðið - 18.08.1992, Qupperneq 39
;;--- 39
Friðrik Guðni Þór-
leifsson — Minning
Fæddur 5. júní 1944
Dáinn 31. júlí 1992
í dag er til moldar borinn vinur
okkar og félagi Friðrik Guðni, sem
andaðist af völdum sjúkdóms sem
hann hafði átt í harðvítugri baráttu
við undanfarin misseri.
Leiðir okkar og Friðriks lágu
fyrst saman í Menntaskólanum á
Akureyri haustið 1960. Hópurinn
sem hóf þá nám í 3. bekk kom víðs-
vegar að af landinu. Þessir 3. bekk-
ingar fóru ekki með veggjum. Fljót-
lega urðu sumir einstaklingar í þeim
i hópi meira og meira áberandi en
aðrir. Það var ekki langt liðið á
vetur þegar flestir vissu hver Frið-
rik var. Bar þar margt að sama
brunni. Honum var margt til lista
lagt. Hann var tónlistarmaður af
guðs náð og einstaklega hagur í
meðferð íslenskrar tungu. Auk þess
má segja að Friðrik hafi haft fágæt-
lega gott vald á því að velta upp
nýstárlegum sjónarhornum á því
sem fyrir augu bar. Hann átti það
til að tala um það hvunndagslega
með hátíðlegum orðum eða afgreiða
það sem maður átti að venjast að
væri flókið eða hátíðlegt með einni
setningu. Við þetta skemmtum við
okkur oft, vinir Friðriks.
Ýmsum eldri bekkingum þótti
það jaðra við ofdramb þegar 3.
bekkingar gerðu sig gildandi í fé-
lagslífi skólans með því að leggja
skólanum til hljómsveit og þá ekki
af verri endanum. í þeirri hljóm-
sveit (Busunum) spilaði Friðrik.
Auk þess spilaði hann gjarnan und-
ir söng ef einhverjir vildu syngja
saman og það var mikið sungið í
MA á þessum árum.
Friðrik skrifaði og orti þegar í
menntaskóla. Hann var ritstjóri
skólablaðsins, Munins, og kom við
sögu Gambra.
Ef bók minninganna er flett frá
þessum árum má víða sjá þess stað
hversu Friðrik var virkur í félags-
lífi skólans, m.a. hangir enn uppi á
kennarastofu MA áskorun á kenn-
ara að keppa við bekkinn í fótbolta,
sem er sérstæð fyrir þær sakir að
hún er innbrennd í skinn cg í löngu
bundnu máli — eftir Friðrik. Þegar
við gáfum út Karmínu í 6. bekk
orti hann ásamt öðrum ferhenda
vísu um alla sem þá útskrifuðust.
Þegar við lítum til baka skynjum
við vel gildi góðra minninga og
hversu dýrmætt það er að hafa átt
þennan góða dreng fyrir vin. Og
það er ekki sársaukalaust að horf-
ast í augu við það að nú er það of
seint að taka aftur upp þráðinn sem
tíminn og e.t.v. fjarlægðin hefur
teygt of lengi.
1 Foreldrar Friðriks voru Þórleifur
Bjarnason rithöfundur og Sigríður
Hjartar kennari.
Frá Akranesi lá leið Friðriks til
Akureyrar í MA og þaðan til náms
í Reykjavík. Síðan fór hann utan
til frekara tónlistamáms m.a. í Vín.
Þá hafði hann bundist eftirlifandi
eiginkonu, Sigríði Sigurðardóttur,
og stunduðu þau saman tónlist-
arnám bæði hér og erlendis. Eftir
heimkomuna starfaði Friðrik fyrst
■og fremst við tónlistarkennslu og
söngstjórn, bæði í Reykjavík, á
Hvolsvelli og víðar. Fyrir austan
reistu þau sér fallegt hús, Kára-
tanga, þar sem heita Hólmabæir,
skammt austan við Hvolsvöll. Alla
tíð var hann iðinn við ritstörf og
ti gaf hann m.a. út fimm ljóðabækur
og kom sú síðasta, Kór stundaglas-
i anna, út í des. sl. Eftir að skóla-
göngu okkar lauk fórum við öll
hver í sína áttina en aldrei misstum
við sjónar hvert af öðru og alltaf
nutum við þess jafn vel að hitta
Friðrik og Sigríði.
Þau eignuðust eina dóttur,
Hjálmfríði Þöll, sem nú er búsett í
Reykjavík.
Við sendum Sigríði, Hjálmfriði
Þöll og öðmm ástvinum Friðriks
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Bergþóra Gísladóttir og Gunnar
Eydal.
Síðasta einkaviðtal okkar Frið-
riks Guðna fór fram í síma. Eins
og oft undanfarið var umræðuefnið
skáldskapur. í þetta skipti var rætt
um Heimsljós og við dáðumst bæði
að snilld Laxness við að sýna þróun
og þroska skáldsins Ólafs Kárason-
ar. Friðrik nefndi að langt væri síð-
an hann hefði lesið bókina, en fór
síðan með glefsur úr flestum ljóðun-
um, allt frá „Líneik veit ég langt
af öðrum bera ...“ aftur að „Þótt
form þin hjúþi graflín, granna
mynd ...“ Það var gamalkunnug
kveðandi í rómnum þó röddin væri
búin að missa sinn styrka hljóm.
Um leið og ég dáðist enn einu sinni
að andlegu atgervi mágs míns sem
sat alblindur við hinn enda línunnar
setti að mér ugg um líf hans og
heilsu.
Friðrik ætlaði sér snemma að
verða skáld. Þegar ég fyrst sá hann,
17 ára menntaskólanema á Akur-
eyri, bar hann teikn þess utan á
sér. Hann rigsaði þá um bæinn
hröðum og dálítið stífum skrefum
með alpahúfu og trefil og dró þegar
þess þurfti upp vekjaraklukku til
að glöggva sig á tímanum. Eftir
að hann fór að venja komur sínar
til mín sem verðandi mágkonu
reyndist hann óvenju vel lesinn
unglingur og að auki vel að sér um
bragarhætti, bæði forna og nýja.
Okkur varð vel til vina þótt ég undr-
aðist oft framferði þessa unga
manns sem stundaði yrkingar, tón-
listarflutning og félagsstörf á
kostnað námsins. Löngu síðar skild-
ist mér að allt var þetta hinn heppi-
legasti undirbúningur undir ævi-
starf hans.
Við tóku frekari kynni af Friðrik
á heimili foreldra hans, Sigríðar og
Þórleifs, að Heiðarbraut 58 á Akra-
nesi. Þar minnist ég sælla stunda
í hópi bræðranna þriggja sem gjarn-
an tóku lagið sér og öðrum til
skemmtunar. Oft voru útsetningar
fijálslegar og textum snarað eða
Okkur langar hér að minnast í
fáum orðum bekkjarsystur okkar,
Unnar Maríu Ríkarðsdóttur sem
lést af slysförum 2. ágúst sl.
Unnur María kom í bekkinn okk-
ar síðasta haust. Hún var á lokaár-
inu á myndlistarbaut en tók bókleg-
ar greinar með okkur. Það kunnu
allir strax vel við Unni, annað var
ekki hægt. Unnur virtist ekki eiga
til illar hugsanir og aldrei sáum við
hana í vondu skapi. Hún var alltaf
brosandi og hafði gott lag á að sjá
björtu hliðarnar. Það fór samt ekki
mikið fyrir Unni, hún var ætíð svo
hæg og róleg en þó var eins og
undir niðri ólgaði einhver fjörkálfur.
Þegar tók að vora fóru menn að
ræða um sumarfríið og allt sem
átti að gera þá. Það var augljóst
að Unnur hlakkaði mikið til. Hún
sagði okkur frá með eftirvæntingu
að hún og Stebbi færu aftur upp á
fjöll og myndu starfa sem landverð-
ir Líklega hefðu fá störf hentað
Unni betur. Hún var hið sannkall-
aða náttúrubarn, elskaði landið,
náttúruna og útivistir.
En það var ekki bara sumarið
sem hún horfði fram til. Hún hlakk-
aði líka til að fara suður og hefja
nám í nýjum skóla. Lífið beið henn-
ar, að því er virtist, bjart og fagurt.
En svo er hún hrifin frá okkur,
skyndilega á voveiflegan hátt, ung
stúlka í blóma lífsins sem átti svo
margt ógert. Enginn skilur af
hveiju og það er erfitt að sætta sig
við það. Oft hefur verið sagt að
þeir deyi ungir sem guðirnir elska
og við verðum að trúa því að Unni
hafi verið ætluð önnur störf á æðri
stöðum.
Um leið og við þökkum fyrir að
þeir samdir upp á nýtt, og fór Frið-
rik fyrir þeim bræðrum við þessa
iðkan. Á þeim árum var gjallandi
hlátur Friðriks oft síðasta kveðja
dagsins, en hann skemmti sér
gjaman við lestur fram á nætur.
Friðrik aflaði sér prýðilegrar
menntunar, fyrst með almennu
kennaraprófi og réttindum til tón-
menntakennslu og loks lauk hann
B.A. gráðu í bókasafnsfræði og
sögu frá Háskóla íslands. Líf sitt
helgaði hann tónlist og skáldskap,
þó áhugasvið hans næði til fjöl-
margra annarra sviða, s.s. sagn-
fræði og bókfræði. Hann mátti teljst
alæta á bókmenntir, var hraðlæs
og stálminnugur. Höfundarverk
hans var einkum á sviði ljóðlistar,
en hann reyndi sig einnig við smá-
, sögur og leikrit. Friðrik var orðhag-
ur svo af bar og tungumálið var
honum vettvangur leiks. í daglegu
tali kom þetta fram í orðaleikjum
og viðsnúningum og var þá oft lítið
skeytt um skilning viðmælandans!
Eins var hann sagnamaður ágætur
og svo sem títt er um ættmenni
föður hans varð honum flest að
sögu. Atvinnu sína hafði Friðrik
lengst af af tónlistarkennslu, en
fékkst einnig við kórstjórn og kom
fram sem skemmtikraftur, og mátti
m.a. heyra raddir þeirra hjóna í
fágætum samhljómi Eddukórsins. Á
síðustu árum lék Friðrik undir söng
hjá dóttur sinni á skemmtistöðum
og við ýmis hátíðleg tækifæri.
í vetur, um það leyti sem sólar-
gangur er stystur á íslandi, var
Friðrik orðinn alblindur. Það var
samt von mín að honum tækist að
læra að lifa með blindunni því í
hugskoti hans var heill heimur
skáldskapar, takts og tóna sem
aldrei yrði frá honum tekinn. Að
auki logaði þar það ljós sem gjarn-
an skín skærast í myrkrinu, ljós
trúarinnar. Jafnframt var það vissa
mín að Friðrik ætti sín bestu ljóð
enn óort, ef honum entist líf og
heilsa.
Á námsárunum kynntist Friðrik
konu sinni, Sigríði Sigurðardóttur,
tónmenntakennara frá Steinmóð-
arbæ í Vestur-Eyjafjallahreppi, og
fylgdi hann henni fljótlega á heima-
slóð þar sem þau reistu sér heimili
að Káratanga. Árið 1969 fæddist
þeim einkadóttirin Hjálmfríður Þöll
hafa fengið að kynnast Unni, biðj-
um við góðan Guð að varðveita
hana.
Elsku Stebbi, missirinn er mikill
og söknuðurinn er sár en minningin
um góða stúlku lifir. Við vottum
ættingjum og vinum Unnar samúð
okkar. Megi Guð styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Bekkjarsystkini úr 3. B,
Menntaskólanum á Akureyri.
Sautjándi júní rann upp bjartur
og fagur. Langþráðu marki var
loksins náð, hvíta kollinum. Þetta
var dagurinn okkar og ánægjan
skein af öllum. Þennan dag datt
engum í hug að rúmum mánuði
síðar yrði skarð höggvið í hóp okk-
ar.
Unnur var góð stelpa, sannur
vinur vina sinna og alltaf tilbúin til
að hjálpa öðrum. Hún útskrifaðist
af myndlistarbraut, en auk mynd-
listarinnar eyddi hún miklum tíma
við skátastörf. Hún var náttúruunn-
andi og vann sem landvörður í
Nýjadal í sumar ásamt unnusta sín-
um.
Það verður skrýtið þegar við hitt-
umst aftur sem eins árs stúdentar,
án Unnar.
Elsku Stebbi og aðrir ástvinir,
við vottum ykkur samúð okkar.
Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis
barið,
ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið.
Eg kallaði fram og golan veitti mér svarið;
hér kvaddi lífið sér dyra og nú er það farið.
(Jón Helgason)
Kveðja frá samstúdentum MA
1992.
Unnur M. Ríkarðs-
dóttir - Kveðjuorð
sem verið hefur foreldrum sínum
elskuleg dóttir og hefur tekið í arf
tónlistarhæfileika foreldra sinna og
fagra söngrödd móðurinnar. Sigríð-
ur reyndist manni sínum fágætlega
traustur lífsförunautur og annaðist
hann til hinstu stundar af einstakri
hollustu og virðingu fyrir óskum
hans.
í Káratanga var oft glatt á hjalla.
Þau hjónin veittu gestum og gang-
andi af andlegum auði sínum og
leikur og sönggleði réði ríkjum.
Ljúfustu minningar mínar um Frið-
rik eru þó tengdar hljóðlátari stund-
um þegar maðurinn að baki hins
glaða trúbadúrs kom í ljós: Hinn
frændrækni maður sem ætíð leitaði
eftir sambandi við ætt sína og upp-
runa. Hugsjónamaðurinn sem
dreymdi um jafnrétti og frið og bar
lítilmagnann fyrir brjósti. Tilfinn-
ingamaðurinn sem lét tilfinningar
sínar í ljós jafnt í sorg og gleði og
umbar tilfinningar annarra. Maður-
inn sem hægt var að ræða við um
hinstu rök tilverunnar og vissi að
ekki var allt gefið í yfírborði hlut-
anna. Fyrir þessar stundir þakka
ég og harma jafnframt að þær urðu
ekki fleiri.
Friðrik var hluti af þeim stóra
faðmi sem við mér tók ungri konu
í fjölskyldu mannsins míns. Faðm-
lag hans var enn þétt og hlýtt þeg-
ar við kvöddumst á vordögum í
Reykjavík með fyrirheit um að hitt-
ast í júlíbyijun í Káratanga. Nú er
lífi hans skyndilega lokið og söngur-
inn þagnaður. Sár harmur er kveð-
in að þeim mæðgum Sigríði og
Þöll svo og sambýlismanni Þallar,
Jóhanni. Systkini Friðriks, Þóra,
Hörður og Björn, sjá nú á bak elsku-
legum bróður, um leið og ótíma-
bært skarð er rofið í frændgarð
hans. Ollum þeim sem um sárt eiga
að binda vegna fráfalls mágs míns
sendi ég samúðarkveðjur og bið
þess að þeir megi leita styrks í
kærleikanum.
Svanfríður Larsen.
hæfileikaríkan og sem betur fer
fyrir þá sem eftir lifa liggja eftir
hann ótal sögur, ljóð, kvæði og
fleira sem gleður mannsins hjarta.
Að lokum langar mig að vitna í
eftirfarandi -Ijóð eftir Friðrik.
Er bitra sest í blæinn
og blána af kulda stráin
þig fer að nálgast nótt.
Af þreytu þung er höndin
og þrotin dægurstundin
sem aldrei verður aftur sótt.
Þú sérð að sortnar himinn,
þú sérð að hverfur bláminn
og allt er myrkurmótt,
þú berð þín verk til viðar,
þín vaka nemur staðar
og svefn þér ber hin svarta nótt.
Elsku Sigga, Þöll og Jóhann, Guð
styrki ykkur í þeirri miklu sorg sem
þið hafið orðið fyrir.
Guð blessi minningu Friðriks
Guðna Þórleifssonar.
Þóra frænka, Hálsi.
Bríldrykkjur
(ilæsílug l:«iííi
hladbítrð íailcgir
salir og rnjög
;■ óo þjónusta.
(. j )j)lýsmg,ar í
síma 2 2$ 22
/*
. FLUGLEIÐIR
HÍTIL LIFTLIIill
Mig langar hér í fáeinum orðum
að minnast Friðriks frænda míns.
Mér brá all ónotalega og gat ekki
tára bundist þegar ég frétti að Frið-
rik væri dáinn. Þetta var svo óvænt,
eitthvað sem ég átti alls ekki von á.
Friðrik var uppáhalds frændi
minn og skipaði stóran sess í lífi
mínu, alveg frá því ég var lítfl
stelpa. Þær eru ekki ófáar ferðirnar
sem ég hef farið Austur í Kára-
tanga þar sem Friðrik var hrókur
alls fagnaðar, spilaði og söng og
gerði að gamni sínu, m.a. með sín-
um víðfrægu viðsnúningum.
Eftir að ég kynntist manni mín-
um var ég ekki lengi að kynna
hann fyrir Káratangafólkinu því ég
vissi að honum myndi líka andrúms-
loftið þar, enda urðu hann og Frið-
rik góðir vinir.
ekki bara skemmtilegan og góðan
eiginmann og föður, heldur afburða
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
bSÓífi)QÚ€)l
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
HRINGDU OG FAÐU SENT EINTAK.
Pöntunarlistinn kostar 250 kr. + póstburðargjald.
PÖNTUNARLÍNA
' 91-653900
BÆJARHRAUN114 • 220 HAFNARFIRÐI
R. LINDA