Morgunblaðið - 18.08.1992, Page 42
fólk í
fréttum
Hópurinn fyrir utan skóla sinn skömmu fyrir brottförina snemma í maí.
HEIMSOKN
Breiðhyltingar gerðu strand-
högg í Nyköbing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1992
I danskri sól.
veittur. Bjöm Árnason kennari við
Breiðholtsskóla sagði, að krakkarn-
ir hefðu verið svo samstilltir og
duglegir að þetta hafi komið til
greina og svo vantaði oft hvatningu
í dönskunámið. Voru mynduð tengsl
við Ejegodsskóla í Nyköbing og
nemendur valdir saman þar sem
þeir yrðu hýstir í heimahúsum og
svo öfugt er Danirnir kæmu hingáð
til lands.
Þótt styrkurinn hafi verið veittur
var björninn ekki unninn, það þurfti
að afla stórra upphæða og var hald-
in tombóla, gefið út blað og seldur
klósettpappír svo eitthvað sé nefnt.
Á endanum þurfti hvert heimili
ekki að greiða nema um 10.000
krónur á hvern haus.
Það dreif margt á daga krakk-
anna í Danmörku, hátíðahöld, heim-
sókn til bæjarstjórans, kirkjuferð,
skógarferð , skoðunarferðum og
sérstökum íþróttadegi þar sem með-
al annars var keppt í handknattleik
og knattspyrnu. Sigruðu Breiðhylt-
ingar vini sína stórt, 19-7 í hand-
bolta og 10-0 í fótbolta.
Heimsókn íslensku ungmenn-
anna vakti talsverða athygli í
Nyköbing og var greint frá hinum
ýmsu uppákomum hópsins í bæjar-
blöðum á meðan á heimsókninni
stóð.
KNATTSPYRNA
Mínning íslensku stúlkunnar í
kanadíska landsliðinu heiðruð
KOnilllMGUR SVEIFLUNNAR
ásamt fpíðu föruneyti
föstudagskvöldið 2T. ágúst
frá kl. 22 til 03 “"
MIÐAVERÐ
850
KR.
lofargóðu!
Gunn Baldursson Memorial
Soccer Tournament er knatt-
spyrnumót kvenna sem haldið var
í fimmta sinn í síðasta mánuði í
Nova Scotia. Um 75 lið tóku þátt
í mótinu, sem mun vera stærsta
mót sinnar tegundar í Kanada.
Mótið er kennt við Gunnhildi Sif
Gylfadóttur, sem lést í bílslysi í
Nova Scotia 26. nóvember 1987,
á 21. aldursári. Gunnhildur var
nemandi við Acadia-háskólann og
lék sem fyrirliði með knattspymul-
iði skólans. Hún náði svo langt í
íþrótt sinni að hún var valin í lands-
lið Kanada.
Gunnhildur var auk þess ákaf-
lega vinsæl meðal skólasystkina
sinna, og skólayfirvalda. Ákvað
Acadia-háskólinn og knattspyrnu-
samband Nova Scotia fylkis að
heiðra minningu hennar og halda
knattspyrnumót kennt við hana
árlega í 25 ár frá láti hennar.
Gunnhildur var auk þess mikill
tónlistarmaður og lék á 1. fiðlu
með Sinfóníuhljómsveit æskunnar
í Nova Scotia og þótti eiga mikla
framtíð fyrir sér á tónlistarsviðinu.
Gunnhildur fluttist með fjöl-
skyldu sinni, Gylfa Baldurssyni
talmeina- og heyrnarfræðingi, og
Þuríði J. Jónsdóttur sálfræðingi,
til Kanada þegar hún var átta ára
gömul. Fjölskyldan flutti aftur til
Islands þremur árum síðar og lék
Gunnhildur knattspymu með Vík-
ingi árin 1981-1984. Fimmtán ára
hélt hún aftur til Kanada og hóf
tveimur ámm síðar nám í læknis-
fræði við Acadia-háskólann. Hún
var á þriðja ári í námi er hún lést.
Gunnhildur var kosin besti leik-
Nú í vor fóru nemendur 9. bekkj-
ar Breiðholtsskóla ásamt
kennurum og skólastjóra í náms-
og kynnisferð til Danmerkur, nánar
tiltekið til Nyköbing. Tildrög ferðar-
innar voru, að Breiðhyltingar urðu
þess vísari að til væri' samnorrænn
sjóður sem styrkti skólahópa til
ferðalaga um Norðurlöndin. Var
sótt um hann og í febrúar var hann
h I j ó m s v e i t
GEIRMUMRR
Gunnhildur Gylfadóttir
maður kvennaliðs Acadia-háskól-
ans 1985-1987 og leiddi lið sitt til
sigurs í keppni háskóla 1987. Hún
var einnig leikmaóur með liði Nova
Scotia fylkis og var valinn í kana-
díska landsliðið 1987. Hún ætlaði
að leika með landsliðinu á alþjóð-
legu móti á Tævan seinna sama
ár. Til að vera gjaldgeng í landslið-
ið varð Gunnhildur að gerast
kanadískur ríkisborgari og var hún
einmitt að vinna að þeim málum
er hún lenti í hörmulegu umferðar-
slysi sem varð henni að aldurtila.
í tengslum við minningarmótið
um Gunnhildi hefur komið fram
áhugi kanadískra kvennaknatt-
spyrnuliða á að þreyta kappi við
íslensk kvennalið, og hver veit
nema systir Gunnhildar, Yrsa Þöll,
sem leikur með 4. og 5. flokki
Stjömunnar í Garðabæ, eigi eftir
að leika á Gunn Baldursson Me-
morial Soccer Tournament. Önnur
systkini Gunnhildar eru Arngunn-
ur Ýr, sem er myndlistarkona gift
í San Francisco, Bryndís Halla
sellóleikari og Baldur sálfræði-
nemi.
Gunnhildur var afburðanemandi
og handhafi Clarke K. MacLeod-
styrksins. Hún átti í vændum að
hljóta annan styrk í minningu
James Bayer, sem veittur er þeim
nemanda sem skarar fram úr,
bæði á íþróttasviðinu og í námi.
Daginn eftir að Gunnhildur lést
barst henni bréf þar sem tilkynnt
var um að hún hefði verið tilnefnd
sem Rhodes-styrkþegi, en Rhodes
styrkurinn er ein mesta viðurkenn-
ing sem veitt er háskólanemum í
enskumælandi löndum. Fjöldi
minningargreina birtust um Gunn-
hildi Gylfadóttur í kanadískum
dagblöðum og i einu þeirra, Hali-
fax Herald, sagði:
„Dauði hennar var ekki aðeins
áfall fyrir Nova Scotia og kana-
díska íþróttaheiminn, heldur ríkti
sorg í háskólabænum. Þar var hún
ekki eingöngu þekkt sem afburða-
íþróttakona heldur einnig sem einn
af bestu nemendum skólans. Svo
hátt skrifuð var hún sem nemandi
við Acadia að háskólinn ákvað fá-
einum klukkustundum eftir slysið
að stofna styrktarsjóð í hennar
nafni.“