Morgunblaðið - 18.08.1992, Page 49
>ei tp.úoá .8i HUQAauiqoM aiQAjaviuoHO.M
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1992
49
Svefnpokagisting í Leifsstöð
Frá íslenskum ferðamanni:
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt af
okkur íslendingum. Fyrst byggj-
um við eina þá glæsilegustu og
vönduðustu flugstöðvarbyggingu
sem sést hefur með ærinni fyrir-
höfn og miklum tilkostnaði, síðan
látum við það yfir okkur ganga
að bakpokalið erlendra ferða-
manna beinlínis hertaki flugstöð-
ina að næturlagi. Öllum er ljóst
að hvergi er leyft að gista í flug-
stöðvarbyggingu, bæði hér sem
annarsstaðar. Fyrir okkur íslenska
ferðamenn og borgunarmenn
byggingarinnar er þetta með öllu
óviðunandi. Þegar gengið er um
bygginguna er ekki þverfótað fyr-
ir útlendingum sofandi í sófum,
stólum og á gólfi. Hvergi annars-
staðar í veröldinni upplifir maður
aðstæður sem þessar.
Ferðamennirnir hittast og ræða
málin t.d. á tjaldstæðum og fljótt
flýgur fiskisagan - að það sé
gráupplagt að gista síðustu nótt-
ina í flugstöðinni enda aðstæður
betri en á nokkru tjaldstæði. Þeir
geta og látið þess gétið í ferðabók-
unum sem gefnar eru út í Þýska-
landi og mikið lesnar af þeim sem
hyggja á íslandsferð.
Öryggisvörðurinn í flugstöðinni,
sem rætt var við í hádegisfréttum
Ríkisútvarpssins, hafði reynt að
koma liðinu út án árangurs. í við-
talinu kom fram að hjólreiðamenn-
irnir ættu í erfiðleikum með að
komast í tæka tíð væru þeir á
næsta tjaldstæði eða svefnpoka-
plássi í Keflavík. Hvergi erlendis
er séð fyrir almenningssamgöng-
um um miðjar nætur og notast
þá fólk einfaldlega við leigubíla.
Gerum ekki einföld mál flókin.
Gisting er ekki leyfð í flugstöð-
inni. Farþegar eru ekki skráðir inn
fyrr en tveimur tímum fyrir brott-
för og brottfararsalnum einfald-
lega lokað þangað til. Fyrir ferða-
mennina á hjólunum er lang hag-
kvæmast og best að vera áfram á
tjaldstæðinu sínu hvort sem það
er nú í Reykjavík eða annarsstað-
ar í námunda við flugvöllinn. Taka
daginn fyrir brottför rólega og
dvelja þar fram að kveldi og hjóla
síðan í rólegheitunum suður til
Keflavíkur, á besta tíma sólar-
hringsins, njóta sólarupprásar og
kyrrðar, verandi laus við nær alla
bílaumferð - og sleppa þá meira
segja við að borga tjaldstæðið
næstu nótt.
SIGRÚN GÍSLADÓTTIR,
íslenskur ferðamaður
Nýjar fatasendingar
Glœsilegur
haustfatnaður í
góðum stœrðum.
FATAPRÝÐI
BORGARKRINGLUNNI, 1. HÆO, SÍMI 32347
STEINAR WAAGE
r
SKÓVERSLUN
A
Verð nú Ýmsir litir.
Áður: 1.495,- Stæröin 25-35.
Póstsendum samdægurs.
VELVAKANDI
KETTLINGAR
TÆPLEGA 8 vikna gulbrön-
dóttur högni leitar að eiganda.
Hann er kassavaninn og heitir
Guðlaugur, kallaður Gulli.
Upplýsingar fást í síma
679810 eða 77895 eftir kl. 18.
TVEIR loðnir persa-angóru-
blendingar, annar fress en
hinn læða, eru tilbúnir að yfír-
gefa móður sína. Kettlingarnir
eru 8 vikna gamlir. Nánari
upplýsingar fást í síma
620118.
REIÐHJÓLA-
HJÁLMUR
TAPAÐIST
REIÐHJÓLAHJÁLMUR að
Specializedgerð tapaðist í
Flúðaseli 15. ágúst. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 77856. Fundar-
laun.
SNYRTI-
TÖSKUR
TVÆR snyrtitöskur fundust
hjá Laugardalslauginni mið-
vikudaginn 12. ágúst. Tösk-
urnar innihalda ýmsar snyrtiv-
örur og er önnur blá en hin
rauðskræpótt. Finnandi er í
síma 71929.
KÖTTUR
SNJÓHVÍT læða fæst gefins
vegna flutnings. Hún er 8 mán-
aða gömul og besta skinn að
sögn eiganda. Upplýsingar fást
hjá Ingu í síma 686765.
BANGSAR
BANGSAR tveir sem hafa orð-
ið viðskila við eiganda sinn
fundust á gluggasyllu á húsi
í Reykjavík. Annar er dökk-
brúnn api en hinn er brúnn
bjamdýrsbangsi. Upplýsingar
fást í síma 653425.
DÝRAR
SKÝRINGAR
Andrés Ólafsson:
ÉG VIL bera fram kvörtun
vegna útgáfu Alþjóðamála-
stofnunar Háskólans á skýr-
ingarriti um EES-samninginn.
Skýringarritið fæst aðeins inn-
bundið og kostar 2.400 kr. í
bókaverslunum Eymundsson-
ar. Ég skora á útgefanda að
gefa út skýringarnar í kilju-
formi á viðráðanlegu verði.
TÝNDUR
KÖTTUR
HÁLFSTÁLPAÐUR köttur,
Sykurmoli að nafni, hvarf frá
heimili sínu að Þingholtsstræti
35 sl. fimmtudag. Sykurmoli
er hvítur með svörtum flekkj-
um og hafði bláa ól með bjöllu
um hálsinn þegar hann hvarf.
Ef einhver þekkir til ferða
kattarins er hann vinsamleg-
ast beðinn um að hringja í síma
19109 eða 18732.
Lóra týnd
Hún Lóra, Hjallaseli 17, hefur
verið týnd í rúma viku. Síðast sást
til hennar í Kambaseli. Hún er
þrílit, svört, brún og alveg hvít á
maganum. Hún er ómerkt, afskap-
lega blíð og góð. Þeir sem kynnu
að hafa séð hana eða geta gefíð
upplýsingar vinsamlega hringi í
síma 74476.
LEIÐRÉTTING
Tónleikar á
sunnudagskvöld
í viðtali við Atla Ingólfsson tón-
skáld í blaðinu í gær um afmælis-
tónleika í Njarðvíkurkirkju voru
tónleikamir sagðir vera á laugar-
dagskvöld. Hið rétta er að tónleik-
amir verða annað kvöld, sunnu-
dagskvöld. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum.
Vinningstötur laugardaginn r?)(í7) 15.ágúst1992
^25X37) Qh)
VINNINGAR | UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 | 1 6.661.447
2. AÍTséf 5 145.976
3. 4a(5 I 216 5.828
4. 3aí5 I 5.892 498
Heildarvinningsupphæö þessa viku: 11.584.391 kr.
m
upplvsingar:sImsvari91 -681511 lukkulIna991002
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
simi 689212