Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B 238. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bras er mat- sveinn ársins FRANSKIR matsveinar hafa lengi haft þá venju að velja matsvein ársins fyrir franska tímaritið Le Chef. I ár varð fyrir valinu matreiðslumaður sem heitir Michei Bras. Sá mun einkum þekktur fyrir Ijúffenga grænmetisrétti og meist- aralega notkun á kryddi. Veitingahús Bras, sem er í franska bænum Laguiole, fær að vísu aðeins tvær sljörnur í bók- inni Michelin, en þeir sem hafa hlotið nafngiftina síðustu ár hafa allir brasað fyrir þriggja sljarna veitingahús. Skammarkrókur fyrir þingmenn ÁSTRALSKIR þingmenn hafa lagt til, að óstýrilátir starfsbræður þeirra verði settir i „skammarkrók" til að kæla þá, meðan harðar umræður standa yfir í þingsölum. Hugmyndin, sem sótt er í íþróttir, þar sem keppendum er vikið af velli til kælingar, var kynnt sem nefndarálit þingmanna úr öllum flokk- um á dögunum. Formaður nefndarinn- ar, Gordon Scholes, sagði þingheimi, að þingforsetinn, sem hefur því hlutverki að gegna að stjórna þingfundum, hefði nú þegar vald til að vísa þingmönnum úr sölum þingsins í einn til 28 daga — sem jafngildir því að sýna leikmanni rauða spjaldið á knattspyrnuvellinum. „Ef forseti hefði mildara viðbótarúr- ræði, sem kalla mætti „skammarkrók", mundi það auðvelda honum að halda uppi aga,“ sagði Scholes. Nefndin legg- ur til, að þingmaður, sem áminntur er fyrir óviðeigandi orðbragð, skuli yfir- gefa þingsalinn í bili, en fá engu að síð- ur að greiða atkvæði um þau mál, sem fjallað er um. Einnig er lagt til, að brott- vikningarákvæði verði hert, en þau eru nú á þann veg, að við fyrsta brot víkur þingmaður í 24 klukkustundir, við annað brot í sjö daga og við þriðja brot í 28 daga. Kröfum hersins í Kúveit fullnægt STJÓRNIN í Kúveit hefur ákveðið að kaupa hraðskreiða bandaríska skrið- dreka af gerðinni Abrams M1A2 frekar en breska af gerðinni Challenger 2, sem hafa sterkari brynvörn. Varnarmálaráð- herra Kúveits kvað ástæðuna þá að bandarísku skriðdrekarnir „fullnægðu best kröfum kúveiska hersins“. Bretar brugðust ókvæða við þessari ákvörðun og heimildarmaður í breska hergagna- iðnaðinum sagði: „Með tilliti til frammi- stöðu Kúveita í ágúst 1990 ættu menn ekki að vera hissa á því að þeir skyldu ve|ja hraðskreiða skriðdreka til að flýja á frekar en sterka skriðdreka til að standa fastir fyrir og berjast.“ Sveitarstjómakosningar í Finnlandi FJARAN HEILLAR Morgunblaðið/Alfons Fréttaritari Morgunblaðsins rakst á þessar yngismeyjar að leik í fjörunni í Ólafsvík einn blíðviðrisdaginn í lið- inni viku og stóðst ekki mátið að festa þær á filmu. Þær heita Freyja, Steinunn Bára og Díanna Rós. Sigur jafnaðarmanna gæti merkt stjómarslit Helsinki. Reuter. KOSIÐ verður til bæjar- og sveitarstjórna í Finnlandi i dag, sunnudag, og er úrslit- anna beðið með óvei\ju mikilli eftirvænt- ingu. Helstu stjórnarflokkarnir, íhalds- menn og Miðflokkur Eskos Ahos forsætis- ráðherra, hafa þurft að grípa til róttækra og óvinsælla aðgerða í efnahagsmálum vegna þeirra áfalla sem landið hefur orð- ið fyrir undanfarin ár og mánuði. Fái íhaldsmenn slæma útreið er talið hugsan- legt að þeir ijúfi samstarfið. Atvinnuleysi og kjaraskerðing hefur bitnað á öllum, en misjafnlega þungt. Ein stétt, bændur, hefur sloppið betur en aðrar þar sem í gildi er samningur er tryggir afkomu þeirra að mestu án tillits til versnandi aðstæðna í þjóðfélaginu. Bændur styðja flestir Miðflokk- inn. Stjórnmálaskýrendur spá því að margir kjósendur noti tækifærið og sýni hug sinn til ríkisstjómarflokkanna í kosningunum. Kann- anir benda til þess að þeir tapi fylgi en sama er upp á teningnum hjá jafnaðarmönnum, öflugasta flokki stjómarandstöðunnar. Fari þrátt fyrir allt svo að jafnaðarmenn vinni á er talið að hægrimenn íhugi stjómarslit af ótta við að verða helsta fórnarlambið í þeim umbrotum sem fylgt gætu í kjölfar efnahags- þrenginganna. Sumir stjórnmálaskýrendur segja reyndar að flestir Finnar hafi vitað að róttækar neyðarráðstafanir yrðu senn óhjá- kvæmilegar. Þess vegna muni margir virða stjómina fyrir að bíða ekki lengur með að grípa til nauðsynlegra aðgerða og jafnvel sýna þann hug sinn í verki í kosningunum. Aðrir spá því að flokkur græningja hagnist á erfiðleikunum á kostnað stóm flokkanna. Stuðningsmenn EB í minnihluta Frá Lars Lundsten, fréttaritara Mbi. AÐEINS 46% Finna eru nú fylgjandi aðild að Evrópubandalaginu (EB). Er þetta í fyrsta skipti frá því Finnar skil- uðu umsókn um EB-aðiId í vor sem stuðningsmenn hennar eru i minni- hluta. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar, sem finnska blaðið Helsingin Sanomat birti í gær, laugardag. í samskonar könn- un blaðsins í maí voru 60% fylgjandi aðild að EB. Þeir, sem em algjörlega á móti aðildinni, eru nú um 40 af hundraði. Ulf Dinkelspiel Evrópuráðherra Svíþjóðar BANDARÍKI EVRÓPU VERDA ALDREI AD VERULEIKA 10 TEFLIR PEROT KOSNINGUNUM f TVfSÝHU? RISI ™ DEYR ALIÐAOTTA VIÐ FRELSIÐ Gunnar Einarsson ó Daðastöðum segir frjóls viðskipti með kindakjöt einu færu lausnina 14 FjHskyldBsng

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.