Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 Sólrún Anna Jóns dóttír - Minning Fædd 22. ágúst 1915 Dáin 11. október 1992 Sunnudaginn 11. októbersl. bár- ust okkur þau hræðilegu tíðindi að ástkær amma okkar væri látin. í huga okkar birtast margar góð- ar minningar um hana sem við munum aldrei gleyma. Alltaf þegar við komum í heimsókn til afa og ömmu tóku þau hlýlega á móti okk- ur. Við biðjum góðan Guð að styrkja afa því hann hefur misst svo mikið eins og við öll. Magnes, Esther og Ragnar Trausti. Alla ævina erum við að heilsa og kveðja, þó með misjöfnum hætti sé, sumir koma aftur, aðrir ekki og veltur á ýmsu. Sólrún Anna Jónsdóttir hefur gengið sinn æviveg, farið af jarð- neska leiksviðinu og því kveðjum við hana nú. Hún fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1915. Dóttir Þórdísar Toddu Benediktsdóttur, Þórarinssonar kaupmanns á Laugavegi 7 og Jóns Kristjánsssonar lagaprófessors, Jónssonar, en þau létust bæði úr spænsku veikinni 1918, og eftir stóðu 5 ára drengur og 3 ára stúlka, og var þá Benedikt afi þeirra betri en enginn og tók bömin á heimili sitt og seinni konu sinnar, Hansínu Eiríksdóttur frá Karlskála, ólust bömin síðan upp með bömum þeirra á Laugavegi 7. Ekki veit ég hvers konar skím bókamaðurinn mikli hefur haft uppi við dótturdóttur sína, en þaðan í frá hefur hún heit- ið Indí í munni allra þeirra er þekktu hana. Vex nú Indí úr grasi þar í mið- bænum, grönn og Ijós yfirlitum, með þessa flnu lund og góða geð, þrótt og þolgæði og bráðlæti kreppukynslóðarinnar; enda vom þau ung að árum Indí og Ólafur Guðbjartsson, Ólafssonar skip- stjóra, er þau giftust og stofnuðu heimili. Ólafur er húsgagnameistari og rak um árabil húsgagnaverk- stæði í bakhúsi á Laugavegi 7. Ungu hjónunum búnaðist furðu vel, fyrstu bömin fæddust og þau eignuðust eigið hús á Egilsgötunni. Indí stjórnaði húshaldinu, Ólafur fyrirtæki sínu og flest sýndist harla gott. En enginn má sköpum renna. Nú verður það að landið fer að kalla á þau, toga til sín, og hjónin selja eigur sínar og flytjast búferl- um vestur þangað, sem heitir Kolls- vík í Rauðasandshreppi. Og hér stendur hún þá við yzta haf miðbæj- arstúlkan úr Reykjavík, komin síð- asta spölinn um vegleysur og virðir fyrir sér jörðina þeirra, gengur svo í bæinn og hefst handa. Og nú sýn- ir húsfreyjan í Kollsvík hvað í henni býr, því þótt í Kollsvíkinni hafi ver- ið fjölmenn verstöð á ámm áður, var nú komin önnur tíð; Kollsvíkur- jörðin utan vegakerfis, og nútíma þægindi eins og rafmagn, sími og þess háttar ekki í húsum. En samt, þetta var þó gamalt ættaróðal hús- bóndans og þaðan komin Kollsvík- urætt. Nú tekur þessi hugumstóra fjölskylda til við búskapihn, við fmmstæð skilyrði í fyrstu, en fólkið á bænum samhent og elztu bömin stálpaðir unglingar og þau ganga saman götuna fram eftir veg. Það kemur heimarafstöð og fleira gott, en samt þvær húsmóðirin lengi vel þvotta í bala á hlóðasteinum á hlað- inu og skolar í bæjarlæknum, og ekki bognar bakið hennar, slík var seigla og þol þessarar fíngerðu konu. En öll ævintýri taka enda, eftir 11 ára búsetu í Kollsvik flytur þessi stóra fjölskylda sig um set inn til Patreksfjarðar, þar sem þau hjón bjuggu við rausn i rúma tvo ára- tugi. Ólafur rak þar eigið fyrirtæki auk þess, sem hann valdist til ýmissa trúnaðarstarfa. Börn þeirra hjóna urðu átta að tölu og stofnuðu íjögur þeirra heim- ili á Patreksfírði um sinn. Sólrún sá um heimilið og bömin þar til þau flugu úr hreiðrinu. Hún undi hag sínum allvel þar vestra, vönd að virðingu sinni, vinföst og frænd- rækin, létt í máli og spaugsöm við vini sína en óáreitin við aðra. Og árin líða, bömin flytjast suður og þau hjón orðin ein eftir og aldur- inn færist yfir þau. Þá loka þau hringnum, flytjast sjálf aftur til Reykjavíkur og búa sér fagurt heimili í Breiðagerðinu, komin í skrautlegan trjágarð úr gijótinu vestra. Þar hafa þau búið í tæp tíu ár. Nú hefur góð kona gengið á vit feðra sinna. Blessuð sé minning hennar. Sjálfur mun ég geyma ljúfar minningar um Indí frænku mína bak við bringubeinið. Við Þórdís og fjölskylda okkar send- um Ólafí og bömum hans hugheil- ar samúðarkveðjur. Egill Björgúlfsson. Elsku besta amma mín er látin, hún lést á Landspítalanum sunnu- daginn 11. október eftir stutta legu. Minningamar um hana ömmu þjóta fram í hugann. Minningamar um öll sumrin sem ég dvaldist hjá henni og afa í Urðargötunni á Pat- reksfirði, og þegar ég var lítil og amma klæddi mig á morgnana og fór með bænina Nú er ég klæddur og kominn á ról... fá mig til að fyllast enn meiri söknuði. Eftir að amma og afí fluttust til Reykjavík- ur átti ég alltaf öruggt skjól uppi í Breiðagerði og þar var gott að vera og spjalla við ömmu og afa. Þó amma hafi oft verið lasin síðustu ár var hún alltaf svo dug- leg og kvartaði aldrei, en fylgdist af áhuga með öllu sem maður var að gera og ef hún gat eitthvað gert fyrir mann gerði hún það með glöðu geði. Eitt af sameiginlegum áhuga- málum okkar ömmu var knatt- spyma og var enska knattspyrnan í sérstöku uppáhaldi hjá ömmu og þekkti hún þar flesta leikmenn með nafni. Eftir að amma var komin upp á Landspítala og við vorum ein saman í síðasta sinn var talað um skólann og svo auðvitað landsleik íslands og Grikklands, sem farið hafði fram kvöldið áður. Eflaust fannst mörgum skrítið að svo full- orðin kona hefði áhuga á fótbolta, en svona var amma, alveg einstök og ólík öllum öðrum. Það er sárt að kveðja þann sem maður elskar og að kveðja elsku ömmu í Breiðagerði er vissulega sárt, en hún skilaði sínu í lífinu og meira en það og var mér og öllum þeim sem þekktu hana svo óendan- lega kær. Ég þakka fyrir að hafa átt þessa einstöku konu fyrir ömmu og mun geyma allar góðu minning- amar um hana í huga mér um ókomna tíð. Elsku afi, í næstum sextíu ár voruð þið saman og segir það meira en mörg orð um þann tómleika sem nú býr í hjarta þínu og bið ég góð- an Guð að styrkja þig og varð- veita. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Fjalar. Þig, sem að alla ávallt vildir gleðja. Þú, sem að aðra aldrei vildir hryggja. Þú, sem úr öllu ætíð vildir bæta. (Grimur Thomsen) í minningu elskulegrar tengda- móður minnar, Sólrúnar Önnu Jóns- dóttur. í mínum huga var lífshlaup hennar með sérstökum blæ. Hug- heilt og líkamlegt atgervi hennar var sérstakt. Hún var sterk kona. Ung að árum fór hún til Englands og var þar við nám um tveggja ára skeið. Nokkru eftir heimkomu sina kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Ólafi H. Guðbjartssyni, og eignuðust þau átta börn. Árið 1952 fluttust þau búferlum úr Reykjavfk. Rétt sunnan Patreksfjarðar er önn- ur fögur vík, Kollsvík í Rauðasands- hreppi. Þar settust þau að með hópinn sinn. Þrátt fyrir engin þægindi á af- skekktum sveitabæ leysti Sólrún öll sín störf með dugnaði, eins og ávallt. Hún var eins og „kletturinn í hafinu“. Stóð og sterk og óhögguð. Þar undi þessi stóra fy'ölskylda hag sínum vel. Mörg þeirra hafa sagt mér að þar hafi þau átt sín bestu ár og stærstu minningar. Síðar fluttu Sólrún og Ólafur sig um set til Patreksfjarðar. En 1980 komu þau aftur til Reykjavíkur, á æsku- slóðir. í Breiðagerði 15 átti öll fjöl- skyldan opinn faðm elskulegrar eig- inkonu, móður og ömmu. Fyrir um fímm árum fór heilsu t Mín ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍNBORG BATSEBA VAGNSDÓTTIR, Ennisbraut 37, Ólafsvik, andaðist í Sjúkrahúsi Stykkishólms miðvikudaginn 14. október. Ingólfur Gunnar Gíslason, börn, tengdadóttir og barnabarn. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY ÞÓRÐARDÓTTIR, Sólvallagötu 11, Reykjavík, er látin. Sigurður Demetz Fransson, Bjarni Stefánsson, Þórður Stefánsson og fjölskyidur. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI ANTON JÓNSSON, andaðist í Landspítalanum 15. október. Ingimundur Bjarnason, Margrét Bjarnadóttir, Bryndís Bjarnadóttir, tengdabörn og barnabörn. t Systir mín, HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, frá Skálavik, sem andaðist á elliheimilinu Grund, verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu mánudaginn 19. október kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja, Björn Halldórsson. t Ástkær eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir, afi og langafi, HRÓLFUR JÓNSSON, Furugerði 1, áður búsettur á Akranesi, andaðist sunnudaginn 11. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. október kl. 15.00. Guðrún Jónasdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Faöir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚSÞÓRÐARSON framkvæmdastjóri, Hávallagötu 42, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. október kl. 13.30. Andrés Magnússon, Kjartan Magnússon, Guðrún Magnúsdóttir, Jóhann Hilmarsson, Jóhanna Jóhannsdóttir, Steinunn Jóhannsdóttir. Sólrúnar að hraka og svo kom að heimilisstörfin urðu henni ofviða. Þá tók Ólafur við heimilisstörfum, eins og hann hefði aldrei gert ann- að. Það var aðdáunarvert hve vel hann hlúði að og hugsaði um Sól- rúnu síðustu árin. Samheldni og tengsl fjölskyldunnar eru svo mikil og innileg, og fann ég hvað Sólrúnu var það mikils virði. Minninguna um Sólrúnu geymi ég í hjarta mér. Minningu um konu sem var sterk. Héðan skal halda. Heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinzta sinn. Síðasta sinni, sárt er að skilja. En heimvon góð í himininn. (V. Briem) Elsku Ólafur, þér og stóra hópnum þínum votta ég samúð. Grímkell. Sunnudaginn 11. október andað- ist á Landspítalanum tengdamóðir mín Sólrún Anna Jónsdóttir. Indý, eins og hún var kölluð, hafði ekki gengið heil til skógar hin síðari ár, en þrátt fyrir það áttum við hennar nánustu ekki von á því að svo brátt yrði um hana. Indý lagði það ekki í vana sinn að kvarta, og æðruleysi hennar var aðdáunarvert, og þannig var það til hinstu stundar. Þegar litið er til baka, er margs að minnast, en ég gleymi aldrei þegar ég hitti tengdaforeldra mína í fyrsta sinn, því er ekki að neita, að ekki var ég alveg laus við kvíða en það var nú fljótt að hverfa, því bæði tóku þau mér opnum örmum, og hafa gert allar götur síðan. Indý kom mér svo sannarlega á óvart á þessum fyrsta fundi okkar. Er líða tók á daginn, sem var laudardagur, settist ég fyrir framan sjónvarpið því enska knattspyman var að byija. Ég átti von á því að ég sæti einn yfír leiknum, en svo var ekki. Indý kom er leikurinn var að hefj- ast, og saman sátum við og horfðum á leikinn, ég komst fljótt að því að hún hafði mikinn áhuga á íþróttum, og sérstaklega ensku knattspym- unni, sem hún kynntist á sínum yngri árum er hún dvaldist á Eng- landi. Indý tók mikið gæfuspor í lífí sínu er hún giftist Ólafí H. Guð- bjartssyni húsgagnameistara og eignuðust þau 8 börn og að sjálf- sögðu er afkomendahópurinn orð- inn stór. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykjavík en fluttu síðan vestur á fírði og hófu búskap í Kollsvík. Seinna fluttu þau til Patreksfjarð- ar, 1980 fluttu þau aftur til Reykja- víkur og hafa frá þeim tíma búið í Breiðagerði 15, það var alltaf gott að heimsækja þau. Voru það sannkallaðar ánægju- stundir, þegar þessi stóra fjölskylda safnaðist saman í stofunni í Breiða- gerði, við hin ýmsu tækifæri. Ólafur minn, missir þinn er mik- ill en góðar minningar munu ylja okkur öllum, nú þegar skammdegið sígur á og um alla framtíð. Ég votta Ólafi, börnum hans og öllum ástvinum mína dýpstu samúð. Megi mín elskulega tengdamóðir hvíla í friði. Ég kveð hana með virð- ingu og þakklæti. Guðmundur Haraldsson. Hún amma mín í Breiðó er dáin, hún sem var mér alltaf svo góð og var svo stór hluti af lífi mínu. Það verður tómlegra að koma upp í Breiðagerði þegar hún situr ekki lengur í stólnum sínum, en ég á margar góðar minningar um ömmu, eins og t.d. þegar ég bjó hjá ömmu og afa um tíma sumarið 1990 og við fylgdumst saman með heimsmeistarakeppninni í fótbolta, þá var nú amma í essinu sínu og við skemmtum okkur vel. Alltaf fylgdist amma með hvern- ig mér gengi í skólanum og öllu öðru sem ég var að gera. Amma var svo sterk kona, dugleg og góð og þannig ætla ég að muna hana. Elsku afi, ég veit að þú sakn- ar hennar mikið og ég bið Guð að styrkja þig í sorginni. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Hilma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.