Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 HótelrekstrarFræði- menntun í Sviss Fyrstir til að bjóða viðurkennt svissneskt-amerískt prófskírteini á háskólastigi í hótelrekstrarfrœðum. Gjöríð svo vel og fáið ókeypis ráðgjöf/námsmat. SIMI 90 41 25 81 38 62. Fax 90 41 25 81 36 50. Skrifið SHCC Colleges Admissions Office CH-1897 Le Bouveret. Islandica: Herdís Hallvarðsdóttir, Gísli Helgason, Ingi Gunnar Jóhannsson og Eggert Pálsson, sem er fimmta hjól undir vagninum. TILBOÐ ÓSKAST íFord BroncollXLT 4x4(ekinn21 þús. mílur), árg. '89, Chevrolet Blazer S-10 4x4, árg. ’86 og aðrar bifreiðar, er sýndarverða á Grensás- vegi 9, þriðjudaginn 20. október kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í rafmagns-gaffallyft- ara Mercury 6000 Ibs. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA Kanaríeyjaferðir í beinu leiguflugi á frábæru verði ■ Bcint leiguflug ■ Spenuandi kymúsferbir ■ Reyndir farar5t|órdr ■ Cilœsilvgir gististabir AÐEINS 250 SÆTI Á ÞESSU VERÐI HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 Aðeins fró kr. 39.700 pr. mann M.v. hjón incó 2 börn Verö frá aðeins kr. 49.900 pr.niann 4 íuliorðnif í íhúð ÞJÓÐLÖG Rammíslensk Islandica Vinsældir hljómsveita fara mjög eftir því hversu þær hafa sig í frammi og hve mikið þær selja af plötum. Á síðasta ári átti þó ein sveit, Islandica, eina söluhæstu plötu ársins án þess að vera í fjölmiðlum dag- lega. Hljómsveit þessi leikur þjóð- lega, íslenska tónlist og frumsamda jöfnum höndum og hefur komið víða fram ytra, með um tug tónleika á hverju ári í ýmsum Evrópulöndum. Víða þar sem þjóðleg tónlist er í hávegum er Islandica mikil aufúsu- gestur. Nýjasta dæmið um það eru frábærar viðtökur, sem sveitin hlaut á tónleikaferð sinni um Færeyjar í ágúst síðstliðnum. Fyrir tveimur árum gaf Islandica út plötuna Rammíslensk, sem nú er komin út á erlendum markaði fýrir tilstilli þýsk-ensks fyrirtækis. Fregn- ir herma að hún seljist vel. Á Ramm- íslenskri eru aðallega íslensk þjóðlög auk nokkurra nýrra alþýðuperla. Eitt lag á Herdís Hallvarðsdóttir í ramm- íslenskum stíl. Islandicu skipa þau Gísli Helgason, Guðmundur Bene- diktsson, Herdís Halvarðsdóttir og Ingi Gunnar Jóhannsson. Þeir Ingi Gunnar og Gísli segja velgengni sveitarinnar erlendis byggjast á því að hún flytur rammíslenska tónlist í eigin útsetningum og að það falli fólki vel. Eftirspurnin hefur komið smátt og smátt og er aðallega sóst eftir hljómsveitinni á stórum þjóð- lagahátíðum og við ýmiss konar ís- landskynningar. Eins og áður sagði gaf sveitin, eða réttara sagt fyrirtæki hennar Fim- mund, út plötuna Rammíslensk og sér jafnframt um dreifmgu hennar ásamt Steinum hf. „Við buðum reyndar hjómplötuútgefendunum efnið til útgáfu í upphafi, en þeir höfðu ekki áhuga. Við gáfum því bara plötuna út sjálf, enda erum við vön að standa í þessu og sjáum alls ekkert eftir því núna, því að hún varð með söluhæstu plötum ársins, þegar hún kom út, og er enn að selj- ast vel.“ Eftir það hafa tveir sveita- menn gefíð út sólóplötur undir merki Fimmundar. Gísli Helgason gaf út plötuna Heimur handa þér í lok síðsta árs og nú nýverið sendi Ingi Gunnar frá sér plötuna Undir fjögur augu. Þeir félagar segjast alltaf vera að safna fleiri lögum til að auka við dagskrána, og jafnvel hefur Islandica hug á að gera aðra þjóðlagaplötu, enda af nógu að taka. En eins og sakir standa er hijómsveitin með önnur jám í eldinum og vinnsla nýrr- ar plötu krefst mikils tíma og undir- búnings. „Það tók okkur rúmt ár að gera síðustu plötu og næsta plata má ekki verða síðri,“ segja þeir Gísli og Ingi Gunnar. „Við vitum t.d. að í Þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinsson- ar leynast margar líttþekktar perlur. Þá vitum við einnig að í gömlum handritum og víðar leynast mörg þjóðlög og danskvæði, sem algjörlega á eftir að rannsaka. Þá hefur Ríkisút- varpið og fólkið frá Árnastofnun unnið að þjóðlagasöfnun, t.d. Helga Jóhanndóttir, sem er líklega einn merkasti þjððlagasafnari á seinni árum.“ Þeir Gísli og Ingi Gunnar sögðu að iokum að nóg væri framundan. Þeir nefndu að á þessu ári hefur hljómsveitin ferðast til Luxemborgar og Glasgow, þar sem Islandica kom fram á menningarhátíð sem Glasgowborg og Reykjavíkurborg stóðu að. Þá ferðaðist Ingi Gunnar einn um Sviss og Gísli og Herdís komu fram í Svíþjóð í sumar. Þá má ekki gleyma Færeyjaferðninni sem þeir félagar telja toppinn á ár- inu. Um daginn var svo hljómsveitin í Amsterdam og er á leið til Lundúna að halda tónleika í einu virtasta menningarsetri borgarinnar, Barbic- an Centre. Á næsta ári fer svo hljóm- sveitin m.a. til Bonn og Stuttgart á miklar menningarhátíðir sem þar eru haldnar. ÁHUGAMÁL -• 'V Steingrímur Guðmundsson, t.v., og Eyjólfur Jónsson við trommusettið góða. Morgunbiaðið/RAX Trommusett á milljón Ahugamálin leiða menn út í sitt- hvað eins og sjá má af Ey- jólfi Jónssyni, sem keypti sér nýver- ið trommusett fyrir um miiljón króna. Eyjólfur, sem starfar sem ýtustjóri á Vestfjörðum, er mikill áhugamaður um trommuleik, þó hann hafi ekki fengist við slíkt all- lengi. Settið er af nýrri tegund frá Premier, Premier Signa, sem gert er úr hlyn, en alls kostar trommu- settið, sem er gríðarstórt, um millj- ón, en hægt er að fá gott trommu- sett á 80 þúsund. Steingrímur Guðmundsson, sem rekur Samspil, sagði að settið væri vissulega stórt og það stórt reyndar að hægt væri að nota það sem tvö sett. Verðið sagði hann liggja í því hve settið væri stórt og vandað, en einnig sérstökum palli sem það stendur á og líka grind uitan um settið. Hann sagði að ekki væri nóg að vera í góðu andlegu ástandi sem tónlist- armaður, heldur þyrftu menn líka að vera í góðu líkamlega ástandi til að geta spilað á svona sett og ráða yflr mikill tækni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.