Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 33 FEGURÐ Stefnt á Hollywood að sem er Heiðrúnu Önnu Björnsdóttur, nýkrýndri Miss World University, efst í huga, er að fara til Parísar í heimsókn til kærasta síns, Geirs Gunnars Geirssonar. Og kannski ekki nema von, þar sem undan- farnar vikur hafa verið strembn- ar og eftir jól taka við ferðalög um Evrópu og Asíu vegna keppn- innar. Heiðrún Anna, sem er nítj- án ára, er nýlega komin heim frá Kóreu, þar sem keppnin fór fram. Segir Heiðrún ferðina og dvölina í Seoul hafa reynst mun erfiðari en hún hafi gert sér í hugarlund, þar sem skipulagið hafí ekki verið upp á það besta. Þakkar hún fjölskyldu sinni hversu vel henni gekk í keppn- inni. Áður en Heiðrún hélt af stað, hafði hún tekið þátt í tveimur fegurðarsamkeppnum, keppn- inni um Ungfrú Norðurlönd, sem Þórunn Lárusdóttir sigraði í og svo keppninni um Ungfrú Evr- ópu í Grikklandi. „Þar sem mér hafði ekki gengið vel í þessum tveimur keppnum, gerði ég mér litlar vonir um gott gengi. Ferð- in var nær óundirbúin, það varð ekki ljóst fyrr en á síðustu stundu hvort ég færi eða ekki. Þegar út var komið, eftir erfíða ferð, var okkur keppendunum komið fyrir á hóteli þar sem aðbúnaður- inn var fyrir neðan allar hellur.“ Þessu var hins vegar fljótlega kippt í liðinn og gistu stúlkurnar það sem eftir var á 5 stjörnu hóteli. Þá leið ferðaþreytan fljótt úr. „Við æfðum stíft fyrir keppn- ina og voru Kóreumennirnir bæði þolinmóðir og vingjarnlegir. Við fórum víða um, heimsóttum skóla og alls staðar þar sem við komum var friður og ástandið í heiminum aðalumræðuefnið. Enda er það eitt af aðalverkefn- um þeirrar stúlku sem sigrar í keppninni að boða frið.“ Keppnin var haldin 7. október. í henni taka þátt stúlkur sem stunda eitthvert nám og eru á aldrinum 17-24 ára. Heiðrún var í Fjölbraut við Ármúla í fyrravet- ur en tók sér frí frá námi vegna keppninnar nú. Heiðrún segist hafa bundið vonir við það að sigra í hæfíleikakeppni, sem var hluti aðalkeppninnar, en hún hefur mikinn áhuga á að reyna fyrir sér í söng og leiklist. Úrslit þeirrar keppni voru ekki kunn- gjörð en Heiðrún sigraði í aðal- keppninni og fékk auk þess til- boð um að koma fram í Holly- wood. „Sá sem hafði samband við mig er umboðsmaðurinn sem uppgötvaði Henný Hermanns á sínum tíma. Auðvitað veit ég Heiðrún Anna Björns- dóttir ásamt fjölskyldu sinni; F.v.: Már Gunn- arsson, Helga Rós Másdótt- ir, Vigdís Másdóttir, Heiðrún Anna, Guð- rún Einars- dóttir og Anna Lilja Másdóttir. Þess má geta að Vigdís var kjörin Ford- stúlkan fyrr á árinu. Morgunblaðið/Þorkell ekkert hvort eitthvað verður úr þessu,“ segir Heiðrún. í kjölfar sig- ursins fór Heið- rún um Seoul, þar sem hún vakti óskipta at- hygli vegfar- enda, enda segir Heiðrún að mik- ið sé fylgst með keppninni í Kóreu. Þá stóð til að hún færi til Japan, en ei- líft hringl með ákvörðun þess efnis varð til Nýkomin frá Seoul og nýkrýnd Miss World University. þess að hún ákvað að fara beint heim eins og ráðgert var í fyrstu. Heiðrún hefur starfað sem fyrirsæta, m.a. í Þýskalandi og fer næsta sumar til Sri Lanka þar sem hún mun vinna fyrir vörulista. Hún segist ekki hafa neinn sérstakan áhuga á að reyna fyrir sér á því sviði, áhugi hennar beinist fyrst og fremst að söngnum og leiklistinni. Næsta ár mun væntanlega leiða í ljós hveijir möguleikar hennar eru úti í hinum stóra heimi. Eitt af fyrstu skrefunum sem söng- konu steig hún á föstudagskvöld, þar sem hún kom fram með þeim Jóni Axel og Gulla, tveim með öllu. Morgunblaðið/J úlíus Borgarbræðurnir í aldursröð, f.v.: Sigurður, sem er yngstur, þá Jóhann, Elías, Friðrik og Þorbjörn. FYRIRTÆKI Fimm fræknir bræður Fjölskylduböndin eru sterk í fyrir- tækinu Borgarbræðrum. Það er rekið af fímm bræðrum, dóttur- sonum Þorbjarnar heitins Jóhannes- sonar í Borg sem hafa með höndum kjötvinnslu, heildsölu og veislueld- ' hús. Elstur er Þorbjörn, fyrrum handboltakappi með Val, þá Friðrik, Elías, Jóhann og yngstur er Sigurð- ur. Þeir bræður eru synir Svanhildar Þorbjörnsdóttur og Guðmundar i Priðrikssonar en þau eru bæði lát- I in.„Við erum mjög samrýmdir bræð- i ur enda höfum við þurft að standa I saman,“ segir Elías, miðjubróðirinn. Hann segir þá bræður búa að mik- illi reynslu af því að vinna með afa sínum og segir þá vona að þeir hafi erft eitthvað af atorku Þorbjörns. „Fyrirtækinu komum við að minnsta ! kosti upp á mettíma, 8 vikum, en I það var opnað í bytjun september. Afi kenndi okkur margt, við vorum smápollar þegar við fórum að vinna hjá honum. Þar lærðum við að standa á eigin fóturn." Elías er sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins, Friðrik framkvæmda- stjóri, Þorbjörn innheimtustjóri, Jó- hann framleiðslustjóri og Sigurður afgreiðslu- og þjónustustjóri. Alls starfa þrettán manns í fyrirtækinu, sem er í rúmlega 600 fm húsnæði í Kópavoginum. Hafa þeir bræður lagt mikla á herslu á að uppfylla ströngustu kröfur um kjötvinnslu og matvælagerð, m.a. með fullkomnum kælibúnaði. Borgarbræður reka kjötvinnslu, veislueldhús og heild- sölu. Þá þekkja margir reykta laxinn þeirra, en hróður hans hefur borist víða um lönd. Aðferðina við reyking- una segir Elías bræðurna hafa lært af afa sínum. Elías segir ætlunina að halda merki Þorbjörns í Borg á lofti enda skipti þeir við marga af gömlum viðskiptavinum hans. Þeir ættu að vera bræðrunum kunnir enda unnu þeir Friðrik og Jóhann hjá afa sínum í um 15 ár. Þá hafa allir bræðurnir verið viðloðandi fyrirtæki hans frá unga aldri. „Þetta er það sem við þekkjum og viljum vinna við. Okkur er styrkur í því að vinna saman enda hefur það lengi verið okkar ósk.“ HAUST-TILBOÐ GERÐ RF181/80 - STGR. K R. 42900 KR. 44990 - MEÐAFBORGUNUM RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.