Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 GÖNGUDAGURINN 22. OKTÓBER GANGAER GÓÐÍÞRÓTT Dr. Sigrún Stefánsdótt- Ir, formaður íþrótta fyrir alla: „Skokk er skemmtilegt." Sigrún Stefánsdóttir, formaður íþrótta fyrir alla eftir Guðna Einarsson GÖNGUDAGURINN 22. október er fyrsta stórátakið á vegum landssamtakanna íþróttir fyrir alla (IFA), sem stofnuð voru 24. maíívor. íþróttasamband Islands erfrumkvöðull að stofnun ÍFA og er tilgangurinn sá að efla almenningsíþróttir undir kjörorðinu Heilbrigt líf — hagur allra. Talið er að um 27% þjóðarinnar séu nú ítengslum við hina hefðbundnu íþróttahreyfingu, hlutverk ÍFA er að ná til hinna 73% sem ýmist stunda engar íþróttir eða iðka einhverja líkamsþjálfun í meira eða minna mæli upp á eigin spýt- ur. Forystumenn samtakanna binda vonir við að innan skamms verði þau stærsta eining ÍSÍ með 30.000 iðkendur innan vébanda sinna. Við stefnum að því að ná til sem flestra landsmanna með hvatn- ingu og fræðslu um heilbrigði og heilsurækt," segir formaður ÍFA, dr. Sigrún Stefánsdóttir, sem auk for- mennskunnar í ÍFA starfar sem lekt- or og fréttamaður. „Við viljum hvetja fólk til að byrja að hreyfa sig og styðja þá sem þegar eru farnir af stað. Stöðug hvatning og fræðsla eru mikilvægar." Margir hafa sýnt viðleitni í þá átt að vemda heilsuna með hreyfingu og hollu mataræði. En góð viðleitni nær skammt ef vanþekkingin ræður ferðinni. Því skiptir almenn fræðsla um hreyfingu og hollustu í matar- æði og lífsháttum miklu máli. Sem dæmi um atriði sem Sigrún bendir á að þurfi að fræða fólk um er sund- iðkun. Margir fara reglulega í sund- laugar og telja sér trú um að þar með sé heilsunni borgið. En það gagnar ekki að fara í sund til að baða sig í heitu pottunum ef maður tekur ekki góðan sundsprett og reyn- ir á skrokkinn. Sundlaugarferðin verður enn ábatasamari í líkams- ræktarskyni ef maður skilur bílinn eftir heima og gengur til og frá laug- inni. Leið til betra lífs - Hvað hefst með því að stunda íþróttir? „Lífið verður svo miklu bærilegra ef maður er vel á sig kominn. Hreyf- ing leiðir til vals, sá sem er í góðu formi getur valið að gera miklu fleira og meira en sá sem er illa á sig kominn. Svo er þetta góð afþreying. Ég mæli með því að fólk velji þá hreyfingu sem það hefur gaman af. Sumir fara í dans, aðrir ganga, synda eða fara á skíði. Einum fellur vel að vera í hópi og annar vill vera útaf fyrir sig. Það skiptir mestu að hver og einn geri það sem honum LEIÐBEININGAR TIL GÖNGUFÓLKS Ganga krefst hvorki mikils undirbúnings né útbúnaðar. Hér fylgja nokkur góð ráð til þeirra sem hyggja á göngu sértil heilsubótar og ánægju. 1. Veldu þér góða gönguskó sem passa vel. Skóm- ir eiga að hafa þykkan fjaðrandi botn, stífan hælkappa og halda vel að fætinum. Ef þú átt vanda til að skæla skó eða misslíta sólunum skaltu láta skó- fræðing búa til innlegg í skóna þína. Keyptu þér skó síðdegis því fóturinn þrútnar yfir daginn. 2. Finndu hentugt göngusvæði, helst með mjúkum göngustígum. Stórar verslunarmiðstöðvar geta hentað til innanhússgöngu. 3. Klæddu þig eftir veðri. Húfa og vettlingar eiga við flesta mánuði ársins. í hita er gott að vera í víðum fötum sem „anda“. 4. Gakktu eins rösklega og þú getur án þess að þurfa að stansa til að hvíla þig með stuttu millibili. 5. Gakktu rólega í 5 mínútur í byrjun til að fá blóð- ið á hreyfingu og búa líkamann undir átökin. 6. Gakktu rólega í lok göngunnar til að kæla þig niður. Teygðu líkamann til að liðka vöðva og liðamót. líkar. Þetta á að vera og er bráð- skemmtileg tómstundaiðja, fyrir utan hvað hún er holl,“ segir Sigrún. Keppnisíþróttir hafa fengið obb- ann af athygli fjölmiðla en minna hefur borið á almenningsíþróttum. Fyrir rúmlega 20 árum gerði ISI mikið trimm-átak sem skilaði sér í viðhorfsbreytingu almennings. Skokkarar voru ekki lengur álitnir skrýtnir. Nú þykir tímabært að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og í því skyni stofnaði ÍSÍ samtökin íþróttir fyrir alla. „Við viljum að þeir sem hreyfa sig sér til heilsubót- ar fái svipaða aðstöðu og athygli og hinir sem stunda keppnisíþróttir. Nú er lag að ná til þeirra sem til þessa hafa ekki gert neitt sér til heilsubót- ar.“ Sigrún bendir á að íþróttaiðkun er orðin hluti af jákvæðum lífsstíl, eitthvað sem fólk er stolt af. Hin breyttu viðhorf til íþrótta má meðal annars greina í því að skokkið er farið að skipta máli í kosningaslag forsetaefnanna í Bandaríkjunum. George Bush hefur skokkað árum saman og nú er Bill Clinton farinn að skokka — til að vera ekki minni maður í augum kjósenda. Flestir geta gengið - Hvers vegna gönguátak? „Þegar við hjá IFA settum upp forgangsröð verkefna lenti gangan í fyrsta sæti. Það kemur til af því að ganga er góð íþrótt, hún er flest- um nærtæk og krefst ekki mikils undirbúnings. Það er kjörið fýrir þá sem ekkert hreyfa sig sér til heilsu- bótar að byija á göngunni. Göngu er hægt að iðka allt árið, þegar snjór- inn kemur getur fólk skipt yfír í skiðagöngu. Nýlegar rannsóknir benda til þess að röskleg ganga sé jafnvel hentugri æfing en skokk, en maður verður að ganga það hratt að maður hitni og svitni. Kostur við göngu og skokk er að maður hefur æfingasvæðið við útidyrnar. Það eina sem þarf til er viðeigandi klæðn- aður og góðir skór. Það er mikill misskilningur að ísland henti illa til útivistar sakir veðráttu. íslensk veðrátta verður ólíkt elskulegri þeg- ar maður hefur lært að takast á við hana. í þeim skilningi er ekki til vont veður heldur er maður bara illa eða vel klæddur. Reyndar furðar maður sig oft á fótabúnaði og klæða- burði landsmanna, einkum yfir vetr- artímann. Það er kominn tími til að við lærum að klæða okkur rétt.“ Á göngudaginn 22. október má fólk búast við að sjá fjölda gangandi vegfarenda á öllum aldri. ÍFA hefur haft samband við skóla, elliheimili, leikskóla og fyrirtæki um allt land og hvatt fólk til þátttöku. Göngudag- urinn 22. október er rétt byijunin á árslöngu átaki með tilheyrandi uppá- komum og auglýsingaherferð. ÍFA hefur látið útbúa Handbók líkamans sem dreift verður á bensínstöðvum og inniheldur hún leiðbeiningar og gönguæfingaáætlun. Þá er göngubæklingur á döfinni og vegg- spjald verður prentað. Stærsta íþróttafélagið Jafnframt gönguátakinu verður kejipt að því að fjölga félagsmönnum í IFA og í ljósi forkönnunar þykir raunhæft markmið að keppa að 30.000 félögum. Náist það takmark verður ÍFA stærsta aðildarfélag ÍSÍ. Búið er að semja um fríðindi til handa félagsmönnum samtakanna, má þar nefna afslátt í ýmsum íþróttavöruverslunum, heilsuræktar- stöðvum og á sundstöðum. Nú þegar hafa um 150 fyrirtæki og stofnanir gerst aðilar að IFA og njóta þá starfsmenn þeirra allra fríðinda fé- lagsmanna. Einnig er boðið upp á einstaklingsaðild. Nýtt líf í Noregi - Stundar þú sjálf íþróttir? „Já, mér þykir gott að skokka. Þá fæ ég gott næði til að hugsa og útiveran er hressandi. Ég hef alltaf haft gaman af íþróttum en ekki íþróttakeppni. Þegar ég var í skóla var mikil áhersla lögð á keppni og hópíþróttir. Ég hafði meira gaman af að ganga og fór á skíði og skauta. Síðar lá leið mín í íþróttakennara- skólann og ég var íþróttakennari í nokkur ár. Þá breytti ég áherslunni í kennslunni frá því sem var algeng- ast. Ég lagði áherslu á að gera íþróttirnar skemmtilegar fyrir krakkana, þeir sem áður höfðu misst áhugann urðu nú jafnvel fremstir í flokki. Þegar ég bjó í Noregi varð ég vör við hvað íþróttaiðkun var al- menn og hvetjandi. Þar fór ég að ganga á skíðum og skokka. Það var líkt og ég byijaði nýtt líf þegar ég uppgötvaði hvað þetta var skemmti- legt. í Bandaríkjunum smitaðist ég svo af alvöru af skokkáráttunni og ég sé ekki eftir því.“ Sverrir Hermannsson bankastjóri SKEMMTILEGT AÐ GANGA FYRIR nokkrum árum fór Sverrir Hermannsson bankastjóri að stunda gönguferðir til að við- halda likamsþrekinu. Hann gengur mest um Reykjavík og nágrenni og telur sig hafa kynnst borginni á nýjan hátt við það að ganga um hana. Sverrir hefur dálæti á útiveru. Auk gönguferð- anna í borginni fer hann til laxveiða og rjúpna og gengur um í náttúrunni. MT Aþessu árabili sem liðið er frá því ég fór að stunda gönguæfingar hef ég stórstyrkst að öllu þreki. Það fer ekkert á milli mála. Ég hleyp á fjöll eftir ijúp- um og er miklu léttari á mér, þótt aldurinn færist yfir, en ég var meðan ég stundaði engar svona æfíng- ar. Það skapast alveg ný viðhorf við að reyna svona á sig. Fyrir utan hressinguna af gönguferðunum er það mikil upplifun að kynnast borginni og sér í lagi að lesa hús borgarinnar. Ég sá aldrei hús eða um- hverfi úr bifreiðum," segir Sverrir. Sverrir gengur að jafnaði um fimm kílómetra á virk- um dögum. Venjulega fer hann í göngu síðdegis að vinnu og segist taka göngutúrinn fram yfir öll kokteilboð. „Ég þarf að vera mikið upptekinn til þess ég láti þetta ekki ganga fyrir.“ Um helgar fer Sverr- í morgungöngur og eru þær að jafnaði lengri en Morgunblaðið/Sverrir Sverrir Hermannsson bankastjórl. síðdegisgöngumar. „Ég geng rösklega, nokkum veginn eins og ég kemst, því ég hef talið mér trú um að að það sé lítið gagn að þessu nema reyna verulega á sig. Ég hleyp aldrei. Aðrir iðka sund og annað en ég fékk mikla trú á þessari aðferð fyrir kyrrsetumanninn. Fyrir utan áreynsluna og hollustu, sem ég tel að líkaminn njóti, er þetta svo skemmtilegt. Þó að maður fari sömu gönguleiðirnar er alltaf mismunandi veður og Seltjarn- arnesið er ekki ónýtt útivistarsvæði. Ég er í engum vafa um að útivistin og að fylgjast með umhverfi sínu er mikils virði.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.