Morgunblaðið - 26.03.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
Stór skurðgrafa féll af vörubílspalli ofan á bíl á Miklubraut
Heppinn
að sleppa
lifandi
„EG VAR heppinn að komast
lifandi frá þessu, ég mátti ekki
vera einum metra framar,"
sagði Gísli Jónsson, 22 ára iðn-
skólanemi, sem fylgdist með
því inni í bíl sínum þegar stór
skurðgrafa féll af vörubílspalli
ofan á þak bílsins sem hann ók.
Það hefur líklega orðið Gísla
til lífs að hann hafði langt bil
á milli síns bíls og næsta bíls á
undan þegar umferðin stöðvað-
ist við umferðarljós á mótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar á
mesta umferðartíma síðdegis í
gær.
„Ég bý á Eyrarbakka og var á
heimleið úr skólanum þegar þetta
gerðist. Ég hafði stöðvað bflinn
minn. Ég sá flutningabflinn koma
aðvífandi á hinni akreininni og
hann þurfti að hemla snögglega
til að lenda ekki aftan á kyrrstæð-
um bíl. Ég hélt í fyrstu að flutn-
ingabfllinn lenti aftan á þeim bíl.
Síðan horfði ég bara á gröfuna
rúlla yfir mig. Fyrst datt mér í
hug að beygja mig fram í bflstjóra-
sætinu en þegar ég sá gröfuna
koma yfír mig reif ég í takka sem
leggur sætisbakið aftur og lagðist
aftur á bak og beið,“ sagði Gísli.
Grafan lenti einnig á afturenda
Saab-bifreiðar sem var kyrrstæð
fyrir framan bíl Gísla.
Aðeins fest að framanverðu
Þakið á bfl Gísla gekk niður,
en hann slapp óskrámaður úr þess-
um háska. Hefði bfllinn verið að-
eins framar hefði grafan lent
meira ofan á þakinu á bíl Gísla
og þá hefði líklega farið verr. Bíll-
inn er mikið skemmdur og líklega
ónýtur.
Gísli sagði að grafan hefði að-
eins verið fest að framanverðu
með taugum en ekki að aftan. „Ég
prísa mig sælan þó svo að ég tapi
bílnum,“ sagði Gísli.
Morgunblaðið/Sverrir
Undir þungu fargi
GÍSLI Jónsson iðnskólanemi prísar sig sælan að hafa sloppið ómeiddur undan þessu þunga fargi.
Stórtap
Islands
Frakkar með þriggja
vinninga forystu
ÍSLENDINGAR hlutu þrjá
vinninga en Frakkar sjö í átt-
undu umferð landskeppninnar
í skák milli íslands og Frakk-
lands í gær. Frakkar hafa nú
þriggja vinninga forystu, 41,5
vinninga gegn 38,5 vinningum
íslendinga.
íslendingar höfðu svart í viður-
eignunum í gær.
Héðinn einn vann
Úrslit urðu þau að Héðinn Stein-
grímsson vann sína skák, Jóhann
Hjartarson, Jón L. Árnason, Hann-
es Hlífar Stefánsson og Þröstur
Þórhallsson gerðu jafntefli, en
Helgi Ólafsson, Margeir Péturs-
son, Karl Þorsteins, Björgvin Jóns-
son og Róbert Harðarson töpuðu
sínum skákum.
Níunda umferð verður tefld í
Digranesskóla í kvöld kl. 16-23.
Sjá bls. 24-25: „Góður sigur..“
Gengi hefur lækkað á hlutabréfum í Eimskipafélagi íslands
Markaðsverð hefur lækkað
um 674 mílljónir frá 1991
MARKAÐSVERÐMÆTI hlutabréfa í Eimskipafélagi ís-
lands hefur lækkað um 674 milljónir frá árinu 1991.
Gengfi bréfanna hefur lækkað nokkuð á síðustu misser-
um. Gengið var 3,95 í viðskiptum sem urðu á Verðbréfa-
þingi íslands í síðustu viku en var 4,48 í viðskiptum
þann 3. mars sl. eða daginn fyrir aðalfund félagsins. Þar
var samþykkt að auka hlutafé um 10% með útgáfu jöfnun-
arbréfa og greiða 10% arð sem skýrir að miklu leyti
gengislækkunina í mars. Hins vegar hafði áður orðið
nokkur lækkun á genginu frá áramótum.
Skoðanakönnun ÍM-Gallups um efnahagsástandið
60% búast við verri tíð
TÆPLEGA 60% aðspurðra í nýrri skoðanakönnun
ÍM-Gallups segjast telja að ástandið í efnahagsmál-
um eigi enn eftir að versna. Réttur þriðjungur svar-
enda telur hins vegar að botninum sé náð.
Könnun Gallups náði til úrtaks 1.200 manna á aldrin-
um 15 til 69 ára, sem valið var tilviljunarkennt úr þjóð-
skrá. Svarhlutfall var 70-75%.
Spurt var: „Nú hefur verið lægð í íslenzku efnahags-
lífi undanfarna mánuði. Telur þú að botninum sé náð,
eða að ástandið eigi eftir að versna enn?“ Af þeim 772,
sem svöruðu, sögðust 59,7% telja að ástandið ætti enn
eftir að versna. Hins vegar sögðust 33,2% telja að botnin-
um væri náð og 7,1% að honum yrði náð fljótlega.
43,8% svartsýnni
eftir Landsbankamál
Einnig var spurt: „Telur þú að aðgerðir ríkisstjómar-
innar í Landsbankamálinu gefi tilefni til aukinnar bjart-
sýni eða svartsýni í þjóðarbúskapnum?" Spurningunni
svaraði 621 og töldu 31,7% aðgerðirnar gefa tilefni til
aukinnar bjartsýni. Hins vegar voru 43,8% svartsýnni.
Þeir, sem hvorki töldu tilefni til bjartsýni né svartsýni
vegna Landsbankamálsins, voru 24,5%.
Markaðsverð hlutabréfa í Eim-
skip var rúmlega 5,5 milljarðar í
um miðjan mars árið 1991 en er
nú tæplega 4,9 milljarðar. Stærsti
hluthafí Eimskips er Sjóvá-
Almennar með um 11,6% hlut og
nemur lækkun á markaðsverði þess
hlutafjár um 78 milljónum á þessu
tímabili. Háskólasjóður Eimskips,
sem er næst stærsti hluthafínn, á
nú 5,23% og hefur sá hlutur lækk-
að um 35 milljónir miðað við núgild-
andi markaðsverð. Lífeyrissjóður
verslunarmanna á 3,66% hlut sem
hefur lækkað um 25 milljónir frá
árinu 1991. Lífeyrissjóðurinn á bréf
að nafnverði 45 milljónir og voru
þau bókfærð á 62 milljónir um sl.
áramót. Núgildandi markaðsverð-
mæti þeirra er hins vegar mun
hærra eða 178 milljónir miðað við
gengið 3,95.
700 milljóna lækkun
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur markaðsverðmæti hlutabréfa
í Flugleiðum lækkað um 2 milljarða
frá árinu 1991. Markaðsverðmæti
hlutabréfa Burðaráss, dótturfélags
Eimskips, í Flugleiðum hefur lækk-
að um rúmar 700 milljónir króna
frá árinu 1991. Hlutabréf Burðar-
áss í félaginu eru að nafnvirði um
700 milljónir og nemur markaðs-
verðmæti bréfanna nú rúmum 900
milljónum miðað við síðasta við-
skiptagengi, 1,29. Þessi bréf voru
hins vegar bókfærð á 777 milljónir
um áramótin eða um 126 milljónum
undir markaðsverði.
Annar stærsti hluthafi Flugleiða,
Lífeyrissjóður verslunarmanna, á
hlutabréf að nafnvirði 128 milljónir
króna eða sem svarar til 6,2%
hlutafjár í félaginu. Þessi bréf eru
að markaðsvirði um 165 milljónir
króna miðað við gengið 1,29 en
voru bókfærð á um 191 milljón um
síðustu áramót eða sem nemur um
26 milljónum yfír markaðsverði.
Hefur markaðsverð þessa hlutafjár
lækkað um 129 milljónir undanfar-
in tvö ár.
Sjóvá-Almennar eru þriðji
stærsti hluthafí Flugleiða með um
5,9% hlut eða 121 milljón að nafn-
virði. Ársreikningur vegna sl. árs
liggur hins vegar ekki fyrir þannig
að ekki er unnt að skoða hluta-
bréfaeign félagsins í samhengi við
bókfært verð bréfanna. Markaðs-
verð bréfanna hefur lækkað um
tæplega 122 milljónir undanfarin
tvö ár.
í dag
Framkvæmdir viö Geirsgötu
Lægsta tilboð í lagningu götunnar
var 74 millj. kr. 16
Besta leikkonan
Sólveig Arnarsdóttir var valin
besta leikkonan á norrænni kvik-
myndahátíð í Rúðuborg 19
Nýr heimsmeistari í skák?
Timman vill tefla við Karpov 21
Leiðari
Valdataf! í skákheiminum 24
Fasteignir
► Lóðaframboð - Skíða -
geymslur - Stöðugleiki á
húsnæðismarkaði - Tuminn
á Hvaleyrarholti
Daglegt líf
► Er nauðsynlegt að lengja
skóladaga? - Áhugaleysi kvenna
um kynlíf - Þjóðbúninginn þarf
að umgangast með virðingu -
Seychelles, ferðamál á föstudegi
Ný þjónusta í boði hjá Nóa-Síríusi
Persónuleg skilaboð
sett í páskaeggin
SÆLGÆTISGERÐIN Nói-Siríus hefur tekið upp þá nýbreytni að
bjóðast sérstaklega til þess að koma fyrir persónulegum sldlaboð-
um í páskaeggjum. Jón Björnsson, markaðsstjóri fyrirtækisins,
segir að ennþá hafi fáir nýtt sér þessa þjónustu enda fari fólk
ekki að hugsa alvarlega um páskaundirbúning fyrr en um helgina.
Jón sagði að þó ekki hefði form- væri komið í páskaegg makans.
lega verið boðið upp á þessa þjón-
ustu áður hefði dálítið verið um
að fólk hefði komið í verksmiðjuna
og beðið um að persónulegum
skilaboðum eða gjöfum væri kom-
ið inn í eggin. Hann sagði að
mest hefði verið um að eiginmenn
eða -konur bæðu um að t.d. máls-
háttum, ljóðum eða litlum gjöfum
Eggin eru steypt í einu lagi og
því er aðeins hægt að koma hlut-
um gegnum lítið gat efst á egginu.
Vilji fólk notfæra sér þjónustu
Nóa-Síríusar er því bent á að fara
í Konfektbúðina í Kringlunni, velja
sér egg og afhenda innihaldið.
Eggið er tilbúið 2 dögum síðar.