Morgunblaðið - 26.03.1993, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
ÚTVARP/SJÓNVARP
SJÓIMVARPIÐ
17.30 ►Þingsjá Endursýndur þáttur frá
fímmtudagskvöldi.
18 00 RRDUNEFUI ►Ævintýri Tinna
DARRHLrnl Vindlar faraós -
síðari hluti (Les aventares de Tintin)
Franskur teiknimyndaflokkur um
blaðamanninn knáa, Tinna, hundinn
hans, Tobba; og vini þeirra sem rata
í æsispennandi ævintýri. Þýðandi:
Ólöf Pétursdóttir. Leikraddir: Þor-
steinn Bachmann og Felix Bergsson.
(8:39)
18.30 ►Barnadeildin (Chiidren’s Ward)
Hér hefst ný syrpa í leiknum, bresk-
um myndaflokki um daglegt líf á
sjúkrahúsi. Þýðandi: Þorsteinn Þór-
hallsson. (1:13)
18.55 ►Táknmálsfréttir
19.00 ►Poppkorn Glódís Gunnarsdóttir
kynnir ný tónlistarmyndbönd. GO
19.30 ►Skemmtiþáttur Eds Sullivans
(The Ed Sulliyan Show) Bandarísk
syrpa með úrvali úr skemmtiþáttum
Eds Sullivans, sem voru með vinsæl-
asta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum
á árunum frá 1948 til 1971. Fjöldi
heimsþekktra tónlistarmanna, gam-
anleikara og fjöllistamanna kemur
fram í þáttunum. Þýðandi: Ólafur
B. Guðnason. (22:26)
20.00 ►Fréttir og veður
20.35 ►Kastljós Fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
21.05 ►Norræna kvikmyndahátíðin
1993 Kynnt verður dagskrá hátíðar-
innar í kvöld og á morgun.
21.20 ►Gettu betur Spurningakeppni
framhaldsskólanna. Seinni þáttur
undanúrslita. Spyijandi: Stefán Jón
Hafstein. Dómari: Alfheiður Inga-
dóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indr-
iðason.
22.20 hlCTTID ►Garpar og glæponar
rlL I 111% (Pros and Cons) Banda-
rískur sakamálamyndaflokkur. Hér
er um að ræða sjálfstætt framhald
þáttanna um eldhugann Gabriel Bird,
sem sýndir hafa verið á fimmtudags-
kvöldum í vetur. Aðalhlutverk: James
Earl Jones, Richard Crenna og
Madge Sinclair. (2:13)
23.10 |fU||f||Yyn ►Logandi víti
ItTlAffFlVniJ (Towering Inferno)
Bandarísk bíómynd frá 1974. Þegar
verið er að vígja stærsta skýjakijúf
í heimi kemur upp eldur og breiðist
hratt út um hæðimar 133. Vígslu-
gestir eru innilokaðir á efri hæðum
hússins og arkitekt þess og slökkvi-
liðsstjóra San Francisco bíður ærinn
starfi við að stjórna björgunaraðgerð-
um. Leikstjóri: John Guillermin. Að-
alhlutverk: Steve McQueen, Paul
Newman, WiIIiam Holden, Faye
Dunaway, Fred Astair, Susan Blake-
ly og Richard Chamberlain. Þýðandi:
Kristmann Eiðsson. Maltin gefur
★ ★'/2.
1.50 ►Útvarpsfréttir f dagskrárlok
STOÐ TVO
16.45 ►Nágrannar Ástralskur framhalds-
myndaflokkur.
-I7.30 niny irryi ►Rósa Gaman-
DflnnALrlll samur teikni-
myndaflokkur byggður á æskuminn-
ingum Roseanne Barr. (2:13)
17.55 ►Addams-fjölskyldan Teikni-
myndaflokkur. (10:13)
18.20 ►Ellý og Júlli Leikinn ástralskur
myndaflokkur um Júlla og drauga-
vinkonu hans, Ellý. (10:12)
18.40
IhDflTTID ►NBA-tilþrif (NBA
Ir nU I I in Action) Endurtekinn
þáttur frá síðstliðnum sunnudegi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20.15 hJFTTID ►^'r'*<ur Viðtalsþáttur
rlLl IIII í beinni útsendingu.
Umsjón: Eiríkur Jónsson.
20.30 ►Ferðast um tímann (Quantum
Leap) Bandarískur myndaflokkur um
þá Sam og Albert sem ferðast um
tímann. (14:22)
21.20 ►Góðir gaurar (The Good Guys)
Gamansamur, breskur myndaflokkur
• um félagana Guy og Guy. (6:8)
22.15 |#«|||f IIVklfllD ►Skíðaskólinn
n ¥ Inffn V RUIn (sm schooi)
Ekta unglingamynd í léttari kantin-
um. Aðalhlutverk: Dean Cameron,
Stuart Fratkin og Patrick Labyorte-
aux. Leikstjóri: Damian Lee. 1990.
23.50 ►Dregaeldur (Dragonfire) John
Tagget slasaðist alvarlega í Víetnam-
stríðinu og man ekkert sem gerðist
á meðan á því stóð. Engu að síður
hefur honum tekist að koma undir
sig fótunum og rekur eigið stórfyrir-
tæki. Þótt hann muni ekkert frá at-
burðum stríðsins vekur grein eftir
fyrrverandi leyniþjónustumann Breta
um verkefni í Víetnam athygli for-
stjórans. Honum finnst sem málið
tengist sér á einhvern hátt og hann
tekur til við að rannsaka skipulega
sinn eigin feril. Aðalhlutverk: Daniel
J. Travanti, Roxanne Hart og Peter
Michael Goetz. Ieikstjóri: Richard
T. Hefron. 1990. Stranglega bönn-
uð börnum.
1.15 ►Hjartans auðn (Desert Hearts)
Háskólaprófessor fer til Reno í Nevada
til að fá skilnað frá manni sínum.
Aðalhlutverk: Helen Shaver, Patricia
Charbonneau, Audra Lindley og Andra
Akers. Leikstjóri: Donna Deitch. 1985.
Lokasýning. Stranglega bönnuð
börnum. Maltin gefur ★★'A.
2.45 ►Skjálfti (Tremors) Tveir viðvika-
menn lenda mitt í ógnvænlegum at-
burðum þar sem koma við sögu risa-
vaxnir jarðormar sem af einhveijum
dularfullum ástæðum hafa náð gríðar-
legri stærð. Aðalhlutverk: Kevin Bac-
on, Fred Ward, Finn Carter og Mich-
ael Gross. Leikstjóri: Ron Underwood.
1990. Stranglega bönnuð börnum.
Maitin gefur ★★★. Myndbanda-
handbókin gefur ★★★.
4.20 ►Dagskrárlok
Eldur brýst ut við
vígslu skýjakljúfs
Vígslugestir
innilokaðir á
efri hæðum
hússins
SJÓNVARPIÐ KL. 23.10 Föstu-
dagsmynd Sjónvarpsins nefnist
Logandi víti (Towering Inferno)
og var gerð árið 1974. Myndin
gerist í San Francisco þar sem
verið er að vígja stærsta skýjakljúf
í heimi. Fjöldi stjórnmálamanna
og annarra fyrirmanna er saman
kominn í háhýsinu til þess að fagna
áfanganum þegar eldur brýst út
og breiðist hratt út frá hæð til
hæðar. Undankomuleiðir eru fáar
og lokast fljótt, og vígslugestir eru
innilokaðir á efri hæðum hússins.
Það er því úr vöndu að ráða fyrir
arkitekt hússins og slökkviliðs-
stjórann, sem stjórna björgunarað-
gerðum, og nú reynir mjög á þol-
gæði fólksins þar sem það berst
fyrir lífi sínu við hörmulegar að-
stæður. Leikstjóri myndarinnar er
John Guillermin og í helstu hlut-
verkum eru Steve McQueen, Paul
Newman, Faye Dunaway, Fred
Astaire, Susan Blakely og Richard
Chamberlain. Kristmann Eiðsson
þýðir myndina.
Rannsakar förtíð
vafasams manns
Grefur upp
óþægileg
sannindi um
sjálfan sig
Drekaeldur - John
Tagget rannsakar eigin
fortíð og kemst að
ýmsu misjöfnu.
STÖÐ 2 KL. 23.50 Daniel J. Tra-
vanti, sem margir kannast við í
hlutverki lögreglustjórans í „Hill
Street Blues“, leikur John Tagget
í þessari spennumyndinni Dreka-
eldi (Dragon Fire). John slasaðist
alvarlega í Vietnam-stríðinu og
man ekkert sem gerðist meðan á
átökunum stóð. Þrátt fyrir áföllin
hefur honum tekist að koma undir
sig fótunum og rekur eigið stór-
fyrirtæki. John lifir í þeirri trú að
ferill hans hjá hemum hafi verið
flekklaus en tímaritsgrein eftir
breskan leyniþjónustumann vekur
upp hjá honum óljósar minningar
um morð og misþyrmingar. John
ákveður að rannsaka skipulega
sína eigin fortíð en þau leyndarmál
sem forstjórinn grefur upp setja
hann í mikla lífshættu og draga
fram í dagsljósið óþægileg sann-
indi um hann sjálfan. Auk Daniels
J. Travanti leika Roxanne Hart og
Peter Michael Goetz stór hlutverk
í myndinni. Leikstjóri er Richard
T. Hefron.
Starfs-
manna-
fundur?
Hrafn Gunnlaugsson, sem nú
er kominn til starfa sem yfir-
maður innlendrar dagskrár-
deildar ríkissjónvarpsins, sat
fyrir svörum sl. þriðjudag í sjón-
varpssal. En Hrafn er nú snúinn
aftur til starfans eftir fjögurra
ára hlé, þar sem hann sinnti
öðrum hugðarefnum. Þessi dag-
skrárþáttur vakti athygli ljós-
vakarýnis sem punktaði einhver
ósköp í kompuna góðu og munu
þær upplýsingar sennilega rata
í dálkinn þegar þær hafa verið
meltar og athugaðar nánar. En
á svona þáttur erindi við hinn
almenna sjónvarpsáhorfanda?
Er það áhugavert sjónvarps-
efni að hlýða á Hrafn Gunn-
laugsson lýsa því yfir í beinni
útsendingu að fyrrum dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrárdeild-
ar hafi stundað „sjálfhælni" í
skýrslu um starfsemi deildar-
innar, að rykfallnir embættis-
menn fáist við yfírstjórn sjón-
varpsins að leikið efni framleitt
innan stofnunarinnar væri yfír-
leitt hörmulegt og að erfítt væri
að finna nothæfa tökumenn inn-
an sjónvarpsins fyrir sjónvarps-
verk uns Agnes Bragadóttir
spurði eitthvað á þá veru ...
hvort óskaplegur móri skapaðist
ekki innan stofnunarinnar þegar
dagskrárstjórinn lýsti því yfir
að allir þeir sem störfuðu innan
hennar væru annars flokks en
þeir sem störfuðu utan hennar
fyrsta flokks? Þá endurtók dag-
skrárstjórinn að hann myndi
treysta best sínum vinum til
verka því hann væri svo heppinn
að þeir væru einmitt bestu kvik-
myndagerðarmenn landsins.
Með öðrum orðum þá virðist
dagskrárstjórinn vita hvaða
menn eigi skilið að fá verkefnin
sem hann úthlutar. Nú og hafa
áhorfendur áhuga á að hlusta á
dagskrárstjórann lýsa því
hvernig hann ól upp besta sjón-
varpsfólkið? Er ekki nær að
bera svona mál upp á starfs-
mannafundi þar sem starfs-
menn sjónvarpsins geta rökrætt
þau við sína yfirmenn? Það var
fróðlegt að heyra um ýmsar
óskir sem dagskrárstjórinn bar
fram um dagskrána. En verða
þessar annars forvitnilegu hug-
myndir að veruleika eða eru þær
bara lítt mótaðar hugmyndir
sem á líka eftir að ræða á starfs-
mannafundi?
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.55 Bæn.
7.00 Fréttir. Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór
Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. Veður-
fregnir. Heimsbyggð. Verslun og við-
skipti. Bjarni Sigtryggsson. Úr Jónsbók.
“ Jón Örn Marinósson.
8.00 Fréttir. 8.10 Pólitíska hornið. 8.30
Fréttayfirlit. Úr menningarlífinu.
9.00 Fréttir.
9.03 „Ég man þá tíð". Þáttur Hermanns
Ragnars Stefánssonar.
9.45 Segðu mér sögu, Merki samúraj-
ans eftir Kathrine Patterson. Sígurlaug
M. Jónasdóttir les þýðingu Þuríðar
Baxter (7).
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi.
10.10 Árdegistónar.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd.
11.53 Dagbókin.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.57 Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins,
Chaberd ofursti eftir Honoré de Balzac.
Fimmti þátlur af tíu. Þýðing: Hulda
Valtýsdóttir. Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikendur: Rúrik Haraldsson, Helga
Bachmann, Haraldur Björnsson, Þor-
steinn Ö. Stephensen og Erlingur
Gíslason. (Áður á dagskrá I maí 1964.)
13.20 Út í loftið. Rabb, gestir og tónlist.
Umsjón: Önundur Björnsson.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, Réttarhöldin eftir
Franz Kafka. Erlingur Gíslason les þýð-
ingu Ástráðs Eysteinssonar og Ey-
steins Þorvaldssonar (7).
14.30 Út i loftið heldur áfram.
15.00 Fréttir.
16.03 Tónmenntir. Þúsundlagasmiðurinn
Irving Berlin. Fyrri þáttur. Umsjón:
Randver Þorláksson.
16.00 Fréttir.
16.05 Skíma. Fjölfræðiþáttur. Umsjón:
Steinunn Harðardóttir.
16.30 Veðurfregnir.
16.40 Fréttir frá fréttastofu barnanna.
16.50 Létt lög af plötum og diskum.
17.00 Fréttir.
17.03 Að utan.
17.08 Sólstafir. Bibopp-orgía á Sólon is-
landus. Jazzkvartett Reykjavíkur og
breski trompetleikarinn Guy Barker
leika. Umsjón: Vernharður Linnet.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarþel. Völsunga saga, Ingvar
E. Sigurðsson les (5) Anna Margrét
Sigurðardóttir rýnir i textann.
18.30 Kviksjá. Halldóra Friðjónsdóttir.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðurfregnir.
19.35 Chaberd ofursti eftir Honoré de
Balzac. Endurflutt hádegisleikrit.
19.50 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
i gaer, sem Ólafur Oddsson flytur.
20.00 ísiensk tónlist. Jóhann Daníelsson,
Eirikur Stefánsson, Karlakór Akureyrar
og Kirkjukór Akureyrar syngja lög eftir
Birgi Helgason, Kári Gestsson leikur
með á píanó.
20.30 Sjónarhóll. Jórunn Sigurðardóttir.
21.00 Á tangóskónum. Sigr. Stephensen.
22.00 Fréttir.
22.07 Tónlist við sálma séra Hallgrims
Péturssonar. Víst ertu Jesú kóngur klár,
þjóðlag í útsetningu Jóns Hlöðvers
Áskelssonar. Kvöldbænir Hallgríms
Pétuíssonar, eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. Krossferli að fylgja þinum, þjóðlag
■ í. útsetningu dr. Róberts Abrahams
Ottóssonar Mótettukór Hallgrimskirkju
syngur; Hörður Áskelsson stjórnar.
Lestur Passiusálma. Helga Bachmann les
40. sálm.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Gítartónlist eftir Astor Piazzolla.
Gerald García leikur.
23.00 Kvöldgestir Jónasar Jónassonar.
24.00 Fréttir.
0.10 Sólstafir endurteknir.
1.00 Næturútvarp til morguns.
RÁS2
FM 90,1/94,9
7.03 Morgunútvarpið. Kristin Ólafsdóttir
og Kristján Þorvaldsson. Jón Björgvinsson
talar frá Sviss. Veðurspá kl. 7.30. Fjöl-
miðlagagnrýni Óskars Guðmundssonar.
9.03 Eva Asrún Albertsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir. iþróttafréttir kl. 10.30. Veð-
urspá kl. 10.45. Fréttayfirlit og veður kl.
12.00. 12.45 Hvítir máfar. Gestur Einar
Jónasson. 14.03 Snorralaug. Snorri Sturlu-
son. 16.03 Dagskrá. Starfsmenn dægur-
málaútvarpsins og fréttaritarar rekja stór
og smá mál dagsins. Veðurspá kl. 16.30.
Loftur Atli Eiríksson talar frá Los Angeles.
18.03 Þjóðarsálin. Sigurður G. Tómasson
og Leifur Hauksson. 19.30 Ekkifréttir
Hauks Haukssonar. 19.32 Kvöldtónar.
20.30 Vinsældalísti Rásar 2 og nýjasta
nýtt. Andrea Jónsdóttir kynnir. 22.10 Allt
í góðu. Umsjón: Gyða Dröfn Tryggvadótt-
ir og Margrét Blöndal. Veðurspá kl. 22.30.
00.10 Næturvakt Résar 2. Arnar S. Helga-
son. Veðudregnir kl. 1.30. 2.00 Næturút-
varp til morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,10,11,12,
12.20,14, 15, 16, 17, 18,19, 22 og 24.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir. 2.05 Með grátt í vöngum.
Endurtekinn þáttur Gests Einars Jónas-
sonar frá laugardegi. 4.00 Næturtónar.
Veðurfregnir kl. 4.30. 5.00 Fréttir. 5.05
Næturtónar hljóma áfram. 6.00 Fréttlr af
veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01
Næturtónar hljóma áfram. 6.45 Veður-
fregnir. 7.00 Morguntónar. 7.30 Veður-
fregnir. Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARPÁ
RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp Norður-
land. 18.35-19.00 Útvarp Austurland.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Vestfjarða.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Morgunþáttur. Gylfi Þór Þorsteins-
son. 9.00 Katrín Snæhólm Baldursdóttir.
10.00 Skipulagt kaos. Sigmar Guðmunds-
son. 13.05 Yndislegt líf. Páll Óskar Hjálm-
týsson. 16.00 Doris Day and Night. Um-
sjón: Dóra Einars. 18.30 Tönlist. 20.00
Orói. Björn Steinbek leikur hressa tónlist.
22.00 Nætun/aktin. Karf Lúðviksson. 3.00
Voice of America til morguns.
Fréttlr á hella tímanum kl. 9-15.
BYLGJAN FM 98,9
6.30 Þorgeiríkur. Þorgeir Ástvaldsson og
Eiríkur Hjálmarsson. 9.05 íslands eina
von. Erla Friðgeirsdóttir og Sigurður Hlöð-
versson. Harrý og Heimir milli kl. 10 og
11. 12.15 Tónlist í hádeginu. Freymóður.
13.10 Ágúst Héðinsson. 15.55 Þessi
þjóð. Sigursteinn Másson og Bjarni Dagur
Jónsson. 18.30 Gullmolar. 19.30 19:19.
Fréttir og veður. 20.00 Hafþór Freyr Sig-
mundsson. 23.00 Pétur Valgeirsson. 3.00
Næturvakt.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 10, 11, 12, 14, 15,
16, 17. íþróttafréttir kl. 13.
BYLGJAN Á ÍSAFIRÐI
FM 97,9
6.30 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM 98,9.
17.00 Gunnar Atli Jónsson. 19.19 Fréttir.
20.30 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM 98,9.
BROSIÐ FM 96,7
7.00 Fyrstur á fætur. Ellert Grétarsson.
9.00 Kristján Jóhannsson. 11.00 Grétar
Miller. 13.00 Fréttir. 13.10 Brúnir i beinni.
14.00 Rúnar Róbertsson. 16.00 Síðdegi
á Suðurnesjum. Fréttatengdur þáttur.
Fréttayfirlit og íþróttafréttir kl. 16.30 19.00
Ókynnt tónlist. 20.00 Ágúst Magnússon.
23.00 Næturvaktin. 3.00 Næturtónlist.
FM 957 FM 96,7
7.00 ( bítið. Steinar Viktorsson. Umferðar-
fréttir kl. 8. 9.05 Jóhann Jóhannsson.
11.05 Valdís Gunnarsdóttir. 15.00 ívar
Guðmundsson. 16.05 í takt við tímann.
Árni Magnússon ásamt Steinari Viktors-
syni. Umferðarútvarp kl. 17.10. 18.05
Gullsafnið. Ragnar Bjarnason. 19.00
Diskóboltar. Hallgrimur Kristinsson leikur
lög frá árunum 1977-1985. 21.00 Harald-
ur Gíslason. 3.00 Föstudagsnæturvakt.
Fréttir kl. 9,10,12,14,16 og 18. Iþrótt-
afréttir kl. 11 og 17.
HUÓÐBYLGJAN
AKUREYRI FM 101,8
17.00-19.00 Þráinn Brjánsson. Fréttir frá
Bylgjunni/Stöð 2 kl. 17 og 18.
SÓLIN FM 100,6
7.00 Sólarupprásin. Guðjón Bergmann.
11.00 Birgir Örn Tryggvason. Gettu 2svar
kl. 13. Föstudagsklukkutiminn kl. 14.
16.00 XXX-rated. Richard Scobie. Taktu
upp tólið kl. 19.20.00 Föstudagsfiðringur-
inn. Maggi Magg. 22.00 Þór Bæring. Partí-
þáttur með óskalagaívafi. 3.00 Sólarlög.
STJARNAN FM 102,2
7.00 Morgunútvarp Stjörnunnar. Þægileg
tónlist, upplýsingar um veður og færð.
9.05 Sæunn Þórisdóttir með létta tónlist.
10.00 Barnasagan. 11.00 Þankabrot.
Guðlaugur Gunnarsson kristniboði. 11.05
Ólafur Jón Ásgeirsson. 13.00 Síðdegis-
þáttur Stjörnunnar. Þankabrot endurtekið
kl. 15.00. 16.00 Lífið og tilveran. Ragnar
Schram. Barnasagan endurtekin kl. 16.10.
19.00 (slenskir tónar. 20.00 Kristín Jóns-
dóttir. 21.00 Baldvin J. Baldvinsson. 24.00
Dagskrárlok.
Fréttir kl. 8, 9,12,17 og 19.30. Bæna-
stundir kl. 7.16, 9.30, 13.30 og 23.50.
ÚTRÁS FM 97,7
14.00 Iðnskólinn. 16.00 M.H. 18.00 F.B.
Smásjá vikunnar. Ásgeir Kolbeinsson og
Sigurður Rúnarsson. 20.00 F.G. Kaos. Jón
Gunnar Geirdal. 22.00 M.S. 24.00-3.00
Næturvakt.