Morgunblaðið - 26.03.1993, Page 11
M0RGUN8LASIÐ FÖgTUDAGUB 26, MAJRZ 1993
ii
UM HELGINA
Gítar og- fiðla
í Áskirkju
Páll Eyjólfsson, gítarleikari og
Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari,
halda tónleika í Áskirkju, laugardag-
inn 27. mars klukkan 17.
Laufey og Páll hafa starfað sanvdU
undanfarin ár og eru þetta þeirra
fyrstu sameiginlegirt ónleikar í
Reykjavík. Á efnisskránni eru verk
eftir A. Corelli, N. Paganini, R.S.
Brindle, G. Tartini.
Laufey og Páll munu einnig frum-
flytja verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son, er hann samdi fyrir þau nú á
dögunum.
EPTA-tónleikar í Nor-
húsinu
Þórarinn Stef-
ánsson, píanóleik-
ari, heldur ein-
leikstónleika á
vegum EPTA
(Evrópusambands
píanókennara) í
Norræna húsinu,
mánudaginn 29.
mars klukkan
20.30.
Þórarinn er fæddur og uppalinn á
Akureyri, þar sem hann hlaut fyrstu
menntun sína í tónlist. Eftir stúd-
entspróf frá Menntaskólanum á
Akureyri stundaði hann framhalds-
nám í píanóleik við Tónlistarskólann
í Reykjavík og lauk þaðan kennara-
og einleikaraprófi vorið 1987.
Þórarinn starfaði á tímabili sem
dagskrárgerðarmaður á tónlistar-
deild RÚV og hélt því starfí áfram
að námi loknu, en hélt síðan til
Hannover í Þýskalandi, þar sem
hann sótti einkatíma hjá próf. Eriku
Haase. Þórarinn starfar nú sem
píanóleikari og kennari í Hannover.
Á efnisskrá Þórarihs er fyrst
Fantasía og Sónata í C-dúr K. 330
eftir Mozart, bá Ballado nr. 1 í g-
moll oftír Chopíll. tCftir hlö frumflyt-
ur hann „Three Sketches" (1993)
eftir Óliver J. Kentish. Að lokum
leikur Þórarinn Waldstein-sónötu
Beethovens.
Tónleikar þessir verða að venju
endurteknir í lok vikunnar í Kirkju-
\wo\\, Gavða.'bæ, \augavðagiM %.
apríl klukkan 17.
Þrennir vortónleikar á
vegum Tónlistarskóla
Kópavogs
Þrennir vortónleikar verða á
næstunni á vegum Tónlistarskóla
Kópavogs; laugardaginn 27. mars
klukkan 11 tónleikar blokkflautu-
deildar, þar sem hópar koma fram.
Þriðjudaginn 30. mars klukkan
20.30, vortónleikar þar sem leikið
verður á ýmis hljóðfæri. Miðvikudag-
innn 31. mars klukkan 18, tónleikar
píanódeildar. Allir tónleikarnir verða
haldnir í tónleikasal skólans, Hamra-
borg 11. Aðgangur öllum heimill.
Leiklist
Geiri lygari
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit-
ið „Geiri lygari" í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi, laugardaginn
27. mars klukkan 15. Leikarar eru
Alda Arnardóttir, Bjarni Ingvarsson,
Pétur Eggertz, sönglög, Ingvi Þór
Kormáksson, en leikstjóri er Bjarni
Ingvarsson.
Heima er best
Leiksmiðjan LAB hefur unnið sér-
staka leikdagskrá byggða á verkum
Medúsuhópsins fyrir Menningarmið-
stöðina Gerðuberg. Leiksmiðjan
LAB leikur leikritið „Heima er best“,
þriðja sýning er 29. mars og lokasýn-
ing 1. apríl.
Félagar í leiksmiðjunni eru Árni
Pétur Guðjónsson, Rúnar Guð-
brandsson, Björn Ingi Hilmarsson,
Harpa Arnardóttir og Steipunn Ól-
afsdóttir. Umsjón með dagskránni
höfðu Árni Pétur Guðjónsson og
Rúnar Guðbrandsson.
Mvn d 1 i star s vn -
íiíg í Gallerí 11
Ingibjörg Friðriksdóttir, opnar í
dag fyrstu einkasýningu sína í Gall-
erí 11. Ingibjörg er fædd árið 1956
í Reykjavík Ingibjörg sýnir þrykktar
YiVJTi&r, \jOsmynciir og skuipVura ur
jámi. Myndefnið er unnið út frá
áhrifum frá gömlu verksmiðjuhverfi
í Saar.
Sýningin verður opnuð laugardag-
inn 27. mars klukkan 14 og verður
opin alla daga þar til 7. apríl, frá
klukkan 14-18.
Námsferill Ingibjargar; 1982-84,
AOF Kaupmannahöfn, 1984-86
Myndlistarskóli Reykjavíkur,
1986-90 Myndlista og handíðaskóli
íslands (Myndmótun), 1990-92 Hoc-
hschule der Bildenden Kunste Saar,
prófessor Wolgang Nesler.
Margrét Magnúsdóttir
sýnir í Gerðubergi
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
opnar sýningu í Effínu, á verkum
Margrétar Magnúsdóttur, mánudag-
inn 29. mars klukkan 20. Þetta er
önnur einkasýning Margrétar, en
hún hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingum bæði í Berlín og Reykjavík.
Á sýningunni í Gerðubergi sýnir hún
þrívíð myndverk úr ýmsum efnum.
Margrét útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1987
og hefur síðan stundað nám í Hoc-
hschule der Kunste í Berlín, þar sem
hún útskrifaðist nýlega sem Meist-
erschulerin. Sýningunni lýkur 27.
apríl.
Sýningar í Gerðubergi eru opnar
mánudaga til fimmtudaga klukkan
10-22, föstudaga klukkan 10-16 og
iaugardaga klukkan 13-16, en á
sunnudögum er lokað.
Mál verkasýning
Þorsteins
Eggertssonar
Núna um
helráva
MyULil' ílíöð-
ver Sigurðs-
son nýjan
skyndibita-
stað í
Austur-
stræti 6.
Staðurinn
nefnist Hjá
Hlölla í til-
efni af opn-
un veitinga-
staðarins mun Þorsteinn Eggerts-
son, sýna nokkur málverk í neðri
salnum. Þetta er fjórða einkasýning
Þorsteins, en fram að þessu hefur
hann aðeins sýnt verk sín einu sinni
í Reykjavík, 1982, en auk þess hefur
hann tekið þátt í samsýningum hér-
lendis og erlendis. Hins vegar hafa
myndir eftir hann birst í bókum,
tímaritum og víðar gegnum árin.
Verkin, sem eru flest ný af nálinni,
verða til sölu. Þetta verður eina
málverkasýningin sem nokkurntíma
verður haldin í húsinu enda einungis
sett upp í tilefni opnunarinnar.
ræna
Norrænn þemadagnr um vandamál
karlmannsins í nútíma samfélagi
Norræna húsið
HALDINN verður norrænn þemadagur í fundarsal Norræna hússins
um vanda karlmannsins í nútímasamfélagi, laugardaginn 27. mars.
Dagskráin hefst klukkan 10 og þá mun félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, flytja ávarp og selja dagskrána.
Tveir gestafyrirlestarar frá Dan-
mörku og Svíþjóð halda fyrirlestra
auk fyrirlesara frá íslandi. Ole Ved-
felt, sálfræðingur frá Danmörku,
fjallar um karlmanninn sem heil-
steypta mannveru í ljósi sálgreining-
ar. Stig Áhs frá Svíþjóð talar um
jafnréttisumræðuna kosti hennar og
galla fyrir karlmanninn.
Ragnheiður Harðardóttir, félags-
fræðingur, talar um hlutverk karl-
mannsins á íslandi, Kirstin Didrik-
sen, sendikennari í dönsku við Há-
skóla íslands, átti frumkvæðið að
þessum þemadegi og kemur inn á
sjónarmið nokkurra karlmanna hvað
snertir vinnu og fjölskyldulíf í fyrir-
lestri sínum sem nefnist „Fædre og
omsorg".
Kristján Jóhann Jóhannsson, bók-
menntafræðingur, fjallar um stöðu
karlmannsins frá sjónarhóli bók-
menntanna. Síðasti liður dagskrár-
innar er sýning á sænsku kvikmynd-
inni: Fáder, Söner, Álskare.
Jafnréttisráð á Norðurlöndum
hafa frá því um miðjan 9. áratug,
gert margar rannsóknir á hlutverki
karlmannsins í fjölskyldunni og á
vinnumarkaði. Sálfræðingar hafa
rannsakað þróunarferil karlmannsins
og bókmenntamenn hafa rannsakað
vanda hans í bókmenntum. Þannig
hefur vandi nútímamannsins við að
laga sig að breyttu kynjamunstri
gegnt lykilhlutverki í rannsóknum
og umfjöllun um stöðu kynjanna á
síðasta áratug, og má nefna í því
sambandi að Félagsmálaráðherra
skipaði nefnd vorið 1992 til þess að
rannsaka breytt hlutverk karlmanns-
ins í nútíma samfélagi. Líta skal á
þetta frumkvæði í tengslum við ugg-
vænlegar upplýsingar um mikinn
fjölda karlmanna á aldrinum 15-25
ára sem hafa svipt sig lífi.
Vandi karlmannsins hefur ekki
áður verið beinlínis dreginn inn í
umræðuna um vanda kynjanna. Þess
vegna getur umræða um stöðu karl-
mannsins í nútíma samfélagi út frá
ýmsum sjónarhomum og í ýmsum
löndum orðið til þess að skýra og
miðla þeirri vitneskju til íslendinga,
sem þegar liggur
fyrir á hinum
Norðurlöndunum.
Þemadeginum
lýkur með umræð-
um. Gestafyrirles-
ararnir tveir
munu, sem upp-
hitun fyrir um-
ræðuna, koma
með sín sjónarmið
varðandi erindi íslendinganna. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Dagskrá: Klukkan 10. Félags-
málaráðherra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir setur dagskrána. Klukkan
10.15. Ole Vedfelt: Det mandilige í
manden - og det kvindelige. Manden
som helt menneske. Klukkan 11.
Ragnheiður Harðardóttir: Tanker um
manderollen i Island. Klukkan 12.
Hádegisverðarhlé. Klukkan 13.
Kirstin Didriksen: Fædre og omsorg.
Klukkan 13.45. Stig Áhs: Hvad kan
manden fá ud af ligestillingssnak-
ken? Klukkan 14.30. Kaffí. Klukkan
15. Kristján Jóhann Jónsson: Falske
præmisser - mandeidentiet og sken-
litteratur. Klukkan 15.45. Film: Eád-
er, Söner, Álskare, klukkan 16.45.
Umræða um erindin, spurningar og
svör.
Bílhræ á Galdraloftinu
STÚDENT ALEIKHÚSIÐ frumsýnir í kvöld klukkan 21 á Galdra-
loftinu í Hafnarstræti „absúrd“-verkið Bílakirkjugarðinn eftir
Arrabal. 10 leikendur og þrír tónlistarmenn taka þátt í sýning-
unni sem Jóni St. Kristjánssyni leikstýrir. Hönnun leikmyndar var
í höndum Eyrúnar Sigurðardóttur, um Ijós sá Kári Gíslason og
um búninga Sigríður Kristinsdóttir.
Þrátt fyrir að verkið sé ekki
trúarlegs eðils má segja að megin-
efni þess sé píslarsagan. í bíla-
kirkjugarði einum hefur fólk tekið
sér bólfestu. Emmanú og vinir
hans, sem þarna eru líka búsettir,
spila tónlist fyrir fátæklingana til
þess að létta þeim lífið. Stjórnvöld-
um líkar það ekki alls kostar og
eru því á höttunum eftir tónlistar-
mönnunum.
(Fréttatilkynning)
Stúdentaleikhúsið sýnir Bíla-
kirkjugarðinn.
1
LANDSNEFND ALÞJOÐA
VERZLUNARRÁÐSINS Á ÍSLANDI
HÁDEGISVERDARFUNDUR
mánudaginn 29. mars í Grillinu Hótel Sögu
SAMKEPPNISREGLUR
EES
Ahrif þeirra fyrir íslensk fyrirtæki
DACSKRÁ:
12.00 Hádegisverður.
12.30 Aðalræðumaður fundaríns Teuvo Juurelo,
ráðgjafi félags finnskra útflutningslyrirfækja
í lögum og reglum Evrópubandalagsins
(fyrirlesturinn er á ensku):
• Samningar fyrirtækja um takmörkun á samkeppni.
• Misnotkun markaðsráðandi aðstöðu.
• Einokunarstaða og einkaréttur opinberra fyrirtækja.
• Ganaur máls efgrunur leikur á broti gegn
samkeppnisreglum.
13.00 Sérstakur gestur Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri:
• Helstu áhríf samkeppnisreglna EES fyrir íslenska
löggjöfog opinberan rekstur.
13.15 Almennar umræður og fyrirspurnir.
ALLIR VELKOMNIR
Hádegisverður kr. 2.500,- (2.000,- fyrir landsnefndarfélagaj
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrirfram í síma 6766 66