Morgunblaðið - 26.03.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
wmmim
Cf<> && t
órst þú á ballið með Pelican, Paradís og Póker, varstu ein af
stjörnunum í Hollywood eða sveifstu um í bláum skugga?
Um helgina verðum við með fjölbreytta dagskrá sem byggir á tónlist, fréttum,
og hugsjónum áranna 1959 til 1979 - tímabilsins frá
Frank Sinatra til Bítlana og frá Donnu Summer til David Bowie.
Allt dagskrárgerðarfólk okkar verður í loftinu og stjörnur bestu áranna
koma í heimsókn. Pottþétt dagskrá fyrir blómabörnin, rokkgengið og
diskóliðið á laugardag og sunnudag.
989
aaffwsitv
GOTT ÚTVARP
• Eiríkur Jónsson flettir upp í
minningarbókunum frá bestu árunum í Ijúfum
morgunþætti, klukkan níu á
laugardagsmorgun.
• Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson, Ágúst
Héðinsson og Þorsteinn Ásgeirsson rifja upp
skemmtilega atburði, tína nokkur blómabörn og
hrista sögur upp úr gömlum rokkurum.
Laugardagsmagasín sem byrjar á hádegi.
• Bestu fréttaárin með Hallgrími
Thorsteinson og fólki sem lifði og hrærðist
í atburðum áranna '59 til '79. Klukkan
ellefu á sunnudagsmorgun.
• Ómar Valdimarson og Sveinn Guðjónsson
fá góða gesti og rifja upp litlar og stórar
byltingar '68 kynslóðarinnar á hádegi á
sunnudag.
• íslenski listinn
Coca Cola gefur tóninn að geggjuðustu
lögum tímabilsins '59 til '79 í sérútgáfu af
TOPP 20 . Öll lögin sem þú vilt heyra en þorir
ekki að biðja um. Klukkan þrjú á
sunnudag.Kynnir Jón Axel Ólafsson.