Morgunblaðið - 26.03.1993, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
ÞRIÐJA tilraunakvöld Músíktilrauna, árlegr-
ar hljómsveitakeppni Tónabæjar, verður í
kvöld, en kvöldið í kvöld er einkonar auka-
kvöld vegna mikillar þátttöku. Fyrsta til-
raunakvöldið var sl. fimmtudag. það annað í
gær, en tvær sveitir fara áfram af þeim níu
Hróðmundur hippi
Því sérkennilega nafni Hróðmundur hippi heitir hljómsveit
úr Garðabæ. Sveitina skipa Hrafnkell Pálmason gítarleik-
ari, Guðni Tómasson söngvari, Sigurgeir Agnarsson bassa-
leikari, Haraldur A. Leifsson trommuleikari og Þórhallur
Bergmann hljómborðsleikari. Hróðmundar segjast leika
venjulegt, en þó fjölbreytt rokk, en meðalaldur sveitar-
manna er rétt innan við sautján ár.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Disagreement
Hafnfírsku rokksveitina Disagreement skipa Ingi Valur
Grétarsson gítarleikari og söngvari, Ásbjörg Magnúsdóttir
söngkona, Atli Björgvin Odsson gítarleikari, Bjarni Jakob
Gíslason bassaleikari og Kristinn Snær Agnarsson trommu-
leikari. Tónlist sveitarinnar er íjölbreytt og því erfítt að
skilgreina hana, en meðalaldur er um sextán ár.
:
Pain
Pain heitir hljómsveit sem er að mestu af Norðurlaridi.
Sveitina skipa ÖrJygur Benediktsson söngvari, Þráinn Ámi
Baldursson gítarleikari, Haraldur Rúnar Sverrisson bassa-
leikari, Hjörtur Hólm Hermannsson trommuleikari og Heið-
ar Jónsson söngvari. Sveitarmenn, sem eru allir á sautj-
ánda árinu, leika nýbylgjudauðarokk.
sem keppa á hverju kvöldi. Úrslit verða svo
í næstu viku. Líkt og jafnan er keppt um hljóð-
verstíma í Músíktilraununum, en fyrstu verð-
laun verða 25 tímar í Sýrlandi, fullkomnasta
hljóðveri landsins. önnur verðlaun 26 tímar í
Grjótnámunni, þriðju verðlaun eru 20 tímar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tjalz Gissur
Tjalz Gissur er hljómsveit úr Kópavogi sem tók einnig þátt
í síðustu músíktilraunum. Að þessu sinni skipa sveitina
Kristinn og Guðlaugur Júníussynir, Kristinn syngur og slær
gítar og Guðlaugur ber bumbur, Einar sem leikur á sólógít-
ar, Amar Snær Davíðsson bassaleikari og söngkonan
Emilíana Toriano. Meðalaldur er á bilinu sextán og sautján
ára. Tjalz Gissur leikur nýrokk eða nýbylgju.
Entearment
Entearment heitir hljómsveit úr Kópavogi sem skipuð er
Kjartani Júlíusi Einarssyni rymjara, Gunnari Emi Svavars-
syni og Elmari Davíð ísidórssyni gítarleikurum, Hlyn Inga
Grétarssyni bassaleikara og Herði trommuleikara. Meðal-
aidur sveitarmanna er rúm átján ár, en Entearment leikur
dauðarokk.
Rack
Rack er laugvetnsk sveit sem skipuð er þeim Jakob Veig-
ari Sigurðssyni og Gottskálk Kristjánssyni gítarleikurum,
Stefáni Magnússyni trommuleikara, Pálma Steingrímssyni
söngvara og Stefáni Jónssyni bassaleikari. Rack leikur ein-
faldlega rokk, en meðalaldur meðlima er um átján ár.
í Hljóðrita og fjórðu verðlaun 20 tímar í Hljóð-
hamri. Að auki fá sigurvegaranir ýmis önnur
verlaun sem Japís, Samspil og Paul Bernburg
gefa, en Hljóðfæraverslun Steina gefur besta
gítarleikara tilraunanna gítar.
Árni Matthíasson tók saman
Suicidal Diarrhea
Því ókræsilega nafni Suicidal Diarrhea heitir hljómsveit
úr Reykjavík sem leikur sambland af dauðarokki, rokki -
og pönki, einskonar nýbylgjupönk. Hana skipa Jóhannes
Pétursson bassaleikari, Viðar Jónsson trommuleikari, Edw-
ard Morthens söngvari og Eyjólfur Róbert Eyjólfsson og
Sigurður Árnason Waage gítarleikarar. Meðalaldur þeirra
félaga er rúm átján ár.
Svívirðing
Svívirðing er Reykjavíkursveit sem skipuð er Róbert Ólafs-
syni gítarleikara og söngvara, Guðbjarti Árnasyni trommu-
leikara, Jóni Tryggva Jónssyni bassaleikara og Arnari Þór
Guttormssyni gítarleikara. Svívirðingarmenn eru ríflega
tvítugir, en sveitin leikur rokk með gömlum og nýjum
áhrifum, frekar hrátt.
Joseph and Henry Wilson
í höfuðið á Wilson-bræðrum heitir hljómsveit sem runnin
er frá Laugaskóla. Hana skipa Heiðar Jónsson trommuleik-
ari, Richard Haukur Svavarsson sólógítarleikari, Magni
Sigmarsson bassaleikari og Öm Guðmundsson rytmagítar-
leikari og söngvari. Þeir félagar, sem eru tæplega sautján
ára, leika rokk og ról.
uiTækniual
Skeifan 17, sími 6816 65