Morgunblaðið - 26.03.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
33
Kveðja
Egill Bjarnason
Fæddur 20. febrúar 1915
Dáinn 7. mars 1993
Hún lést 17. mars.
Guðný var fædd á Auðkúlu í
Arnarfirði og ólst þar upp. Hún var
dóttir Jóhanns Jónssonar, bónda
og skipstjóra þar, og konu hans,
Bjarneyjar Friðriksdóttur. Þau Jó-
hann og Bjamey áttu níu böm og
var Guðný þriðja yngst. Þegar
i Guðný var fímm ára lést faðir henn-
ar tæplega 44 ára gamall af völdum
lungnabólgu. Þá var elsta barnið
14 ára og yngsta eins árs. Þetta
voru erfiðir tímar, en ekkjan og
bömin hennar voru dugleg og
i hjálpuðust að við að vinna heimilinu
sem mest þau máttu. Yngsta dóttir-
in, Jónína, var tekin í fóstur til
Gísla í Álftamýri og Guðnýjar konu
hans. Þar fékk hún gott uppeldi.
Guðmunda var um nokkurt skeið á
Rafnseyri hjá séra Böðvari og konu
hans. Áð öðru leyti vom börnin öll
hjá móður sinni.
Bjarney hafði verið í Reykjavík,
áður en hún gifti sig að læra karl-
mannafatasaum meðan unnusti
hennar var á Sjómannaskóla þar.
Nú kom sú kunnátta henni að góðu
gagni. Hún saumaði allan fatnað á
sig og börnin og tók einnig að sér
saumaskap fyrir annað fólk í sveit-
< inni. Börn hennar hafa sagt mér
að oft hafi hún vakað fram á næt-
ur við sauma. Stundum var hún
\ svo þreytt í handleggjunum að hún
fékk börnin til að klippa efnið þeg-
ar hún var búin að kríta á það.
( Svona var lífsbaráttan hörð. Öll
komust börnin upp og urðu hið
mesta myndarfólk. Bjarney bjó á
Auðkúlu til 1935 að hún fluttist til
ísafjarðar. Börn hennar voru: Jón
Ásbjörnsson, f. 1906, d. 1992.
Hann var lengi yfirlögregluþjónn á
ísafirði og síðar skattstjóri. Kona
hans var Oktavía Gísladóttir hjúkr-
unarkona. Jensína Sigurveig, f.
1907. Hún var gift Guðjóni E. Jóns-
syni sem var bankastjóri á ísafirði.
Bjarney Margét, f. 1909. Hún var
gift Andrési Kristjánssyni. Þau
bjuggu í Meðaldal í Dýrafírði.
Seinni maður hennar var Brynjólf-
ur Hannibalsson. Bjarni Jóhann, f.
; 1910,, d. 1970. Hann var lögreglu-
maður, kaupmaður og síðar útsölu-
stjóri ÁTVR á Siglufirði. Hann var
( kvæntur Guðlaugu Þorgilsdóttur.
Guðmunda, f. 1912, d. 1931. Dó
úr berklum á Vífilsstöðum. Friðrik
( Jón Ásgeirsson, f. 1913. Hann var
fangavörður og lögregluþjónn á
Eyrarakka og síðar starfsmaður
Áburðarverksmiðjunnar. Hann var
kvæntur Sólveigu Þorgilsdóttur.
Guðný var næst í röðinni. Jónína
Guðmunda, f. 1917. Hún er gift
Páli Briem, fyrrverandi banka-
stjóra. Sigurleifur Friðrik Guð-
mundur, f. 1920, d. 1986. Járn-
smíðameistari á ísafirði. Hann var
kvæntur Ingu Straumland.
Guðný var um tíma á ísafirði,
en fór svo til Reykjavíkur og vann
þar í Oddfellowhúsinu hjá Agli og
Margréti sem ráku þar skemmti-
stað. Hún giftist Kristjáni Sigur-
( mundssyni, forstjóra Sælgætis-
gerðarinnar Crystal. Þau hafa lengi
búið á Kvisthaga 27. Heimili þeirra
( hefur verið til fyrirmyndar, gest-
risni mikil og snyrtimennska. Tvo
syni eignuðust þau: Snæbjörn sem
( er verslunarmaður og er kvæntur
Huldu Kristjánsdóttur, þau eiga tvö
börn, Guðnýju Kristínu og Kristján
Guðmund; yngri sonurinn heitir
Smári, hann hefur unnið við versl-
unarstörf og sjómennsku, var
kvæntur Bergljótu Davíðsdóttur,
þau skildu. Þau eiga þijár dætur:
Ernu Sif, Ragnheiði Sif og Lilju
Sif. Smári átti tvær dætur áður,
Huldu og Maríu.
Mikið yndi hafa Guðný og Krist-
ján haft af bamabörnunum og litlu
bömunum þeirra. Ég sem þetta
rita hef þekkt Guðnýju í rúm 50
ár. Ég var gift bróður hennar og
er systurdóttir Kristjáns, manns
( hennar. Oft hittumst við í gamla
daga á Fossá á Barðaströnd á
æskuheimili mínu. Þá kom hún
| þangað í heimsókn með drengina
sína. Það var oft gaman þar, margt
spjallað og gert sér til gamans. Það
| er sárt að eiga ekki eftir að heyra
fallega hláturinn hennar. Hún var
svo glaðlynd hún Guðný að hún
kom öllum í gott skap og alltaf var
hún reiðubúin að hjálpa öðrum og
ráðleggja fólki allt það sem til betri
vegar leiddi. Kristján frændi minn
hefur misst sinn góða lífsförunaut.
Hann er nú á 88. aldursári. Hann
hefur starfað mikið á sinni ævi.
Hætti ekki atvinnurekstri sínum
fyrr en fyrir einu ári. Hann á góð-
ar minningar um konuna sína sem
alltaf stóð við hlið hans trú og
trygg. Guð blessi minningu hennar.
Inga Straumland.
Með örfáum orðum vil ég minn-
ast frænku minnar, Guðnýjar Jó-
hannsdóttur, sem í dag er til mold-
ar borin.
Guðný fæddist á Auðkúlu við
Arnarfjörð og voru foreldrar hennar
Bjarney Friðriksdóttir og Jóhann
Jónsson skipstjóri.
Hún upplifði tíma örra þjóðfé-
lagslegra breytinga og tók þátt í
þeim sem eiginkona, móðir og
amma. Hlýhugur einkenndi hennar
persónu og velvild til allra.
Ég minnist hennar fyrst þegar
ég var lítill drengur fyrir páska.
Þá kom hún á heimili foreldra
minna ásamt Kristjáni eftirlifandi
manni sínum færandi hendi. Hún
kom með páskaegg handa okkur
systkinum frá sælgætisgerð þeirra
hjóna. Þessi siður hélst í áraraðir
og var orðinn fastur punktur í til-
verunni sem við hlökkuðum ávallt
til.
Guðný átti við mikil veikindi að
stríða til margra ára. Hún bar sig
ávallt vél og var ætíð ánægjulegt
að heimsækja þau hjón. Glaðværð
einkenndi persónuleika hennar.
Við systkinin sendum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur til Krist-
jáns, sona þeirra, tengdabarna og
barnabama.
Jóhann Briem.
Tilfinningar mínar og hugsanir
við fráfall þitt spanna minningar
allt frá bamæsku. Minningar frá
Flúðaskóla í Hmnamannahreppi,
þar sem nokkrar ijölskyldur frá
Reykjavík dvöldu á sumrin á stríðs-
ámnum, koma upp í huga mér og
þar ber hæst lífsgleði þína, skop-
skyn og líkamlegt atgervi, að
ógleymdri söngröddinni. Þú naust
svo sannarlega vinsælda hjá okkur
bömunum, eigi síður en þeim full-
orðnu.
Síðan liðu mörg ár, þar til þið
hjónin tókuð mér opnum örmum á
heimili ykkar í Hófgerðinu sem
tengdadóttur. Sömu kostimir
prýddu þig sem fyrr.
Fljótlega skynjaði ég hinar djúpu
og viðkvæmu tilfinningar þínar,
sem ég hef ætíð fundið síðan og
hafa litað persónuleika þinn alla tíð.
Kærleikur minn og þakklæti til
þín mun aldrei dvína.
Guð geymi þig. Hittumst heil.
Þín elskandi tengdadóttir,
Anna V. Sigurjónsdóttir.
Nýr Favorit
Ekki bara betri, heldur 548 sinnum betri!
Verð á Favorit LXi er aðeins kr. 598.000á götuna.
Nú er hann kominn til landsins, hinn nýi
Favorit. Eftir að Skoda verksmiðjurnár
sameinuðust Volkswagen samsteypunni hafa
þýskir taekni- og hugvitsmenn lagt nótt við
dag. Útkoman er glæsilegur fimm dyra
hlaðbakur, sem státar af 548 endurbótum,
stórum sem smáum.
Favorit er nú framleiddur samkvæmt
kröfum og stöðlum Volkswagen, sem tryggja
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Vélin er með hvarfakút og tölvustýrðri
Bosch Motronic innspýtingu og kveikju, sem
er viðhaldsfrí og dregur úr bensíneyðslu. í
hurðum eru styrktarbitar, og innréttingar
eru nýjar. Það sama gildir um bremsukerfið,
rafkerfið og margt, margt fleira.
Hinir fjölmörgu aðdáendur Favorit hafa
því fengið 548 nýjar ástæður til þess að velja
þennan vinsæla bíl. Og er þá ein ótalin:
Nefnilega verðið!
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi, 5 dyra
og 5 gíra kostar kr. 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Komdu og reynsluaktu nýjum Favorit. Við
höfum opið virka daga frá 9-18 og laugardaga
frá 12-16.
ÁFUIUllFfRDt