Morgunblaðið - 26.03.1993, Blaðsíða 48
rJJ
BL
E)
B.
I
LÉTTÖL
V ^
tripwMfiMð)
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAtaHÁLMENNAR
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1505 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Mikil uppstokkun fyrirhuguð hjá Miklagarði
Framkvæmdastj ór-
inn lætur af störfum
FRAMKVÆMDASTJÓRI Miklagarðs, Björn Ingimarsson, hefur sagt
upp og mun hann láta af störfum um næstu mánaðamót. Björn segir
bráðabirgðayfirlit fyrir árið 1992 benda til lakari afkomu en milliupp-
gjör á árinu, sem hann kynnti fyrir sljórn Miklagarðs, gaf til kynna.
Ekki fæst uppgefið hvert tapið var í fyrra. Mikil uppstokkun er fyrir-
huguð hjá fyrirtækinu og Björn sagði hugsanlegt að gripið yrði til
einhverra uppsagna samhliða þeim aðgerðum. Hann sagði þó að væntan-
lega yrði meira um tilfærslur starfsfólks á milli eininga fyrirtækisins,
en þjá Miklagarði starfa um 500 manns.
Hagvirki-Klettur í
nauðasamningum
120starfs-
mönnum
sagt upp
SAMKVÆMT lögum um nauða-
samninga fá starfsmenn Hag-
virkis-Kletts uppsagnarbréf um
næstu mánaðamót, en uppsagn-
irnar taka ekki gildi nema útséð
verði um að nauðasamningar við
kröfuhafa takist. Alls er um 120
starfsmenn að ræða.
Lög um nauðasamninga skylda
tilsjónarmann Hagvirkis-Kletts til
að senda öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins með fasta starfssamninga
uppsagnarbréf. Hvort uppsagnirnar
taka gildi verður ljóst í byijun maí.
Auglýst var eftir innköllunum á
kröfum í fyrirtækið í Lögbirtingar-
blaðinu í fyrradag. Veittur er fjög-
urra vikna kröfulýsingarfrestur.
Eftir það líða tvær vikur áður en
atkvæðisfundur verður 4. maí.
Stjórn Miklagarðs fundaði í gær
og ræddi breytingar á rekstrinum.
Að sögn Bjöms er stefnt að því að
fyrirtækinu verði skipt upp. Sala
vissra eininga verði höfð í huga en
rekstrarformi annarra breytt.
Aðspurður hvort rætt hefði verið
um að selja húsnæði Miklagarðs í
Holtagörðum sagði Björn að allar
einingar væm skoðaðar. Hann sagði
jafnframt að því hefði verið velt upp
að sérstök eining yrði stofnuð um
11-11-verslanirnar en hvort þær
yrðu seldar væri annað mál.
Bjöm sagðist ekki hafa séð sér
fært annað en að segja upp starfi
sínu til að fyrirtækið héldi trú-
verðugleika og til að stjórninni væri
fært að lagfæra reksturinn eftir
þörfum.
Rangar upplýsingar
„Það kom í Ijós að upplýsinga-
kerfi Miklagarðs vom ekki betri en
það að ég byggði afkomutölurnar á
röngum upplýsingum," sagði Björn.
„Fyrirtækið er ekki gjaldþrota.
Meginvandamál okkar eru greiðslu-
erfiðleikar og fyrirtækið hefur átt í
slíkum erfiðleikum lengi. Þá hefur
breyting orðið á fjármögnun á inn-
flutningi Miklagarðs sem komið hef-
ur þungt niður á okkur fyrri hluta
þessa árs. Að breytingum loknum
munu standa eftir mun sterkari ein-
ingar. Ég hef fulla trú á fyrirtækinu
og þeim efnivið sem þar er. Með
endurvöktu trausti á forystumönn-
um fyrirtækisins mun dæmið klárast
farsællega."
Ekki náðist í stjórnarmenn Mikla-
garðs í gær, en þeir sátu á fundi
fram undir miðnætti.
Verðlaunin afhent
ÁSDÍS Thoroddsen leikstjóri og handritshöfundur kvikmyndarinnar
Ingaló og Sólveig Arnarsdóttir aðalleikkona myndarinnar fengu í
gærkvöldi afhent verðlaunin sem þær hlutu á norrænu kvikmynda-
hátíðinni $ Rúðuborg um síðustu helgi.
Bengt Forslund framkvæmda- myndahátíðinni sem nú stendur
stjóri Norræna sjónvarps- og kvik- yfir. Aðsókn hefur verið miklu betri
myndasjóðsins afhenti þeim stöll- en búist var við og hefur verið
um verðlaunin fyrir sýningu á uppselt á margar sýningar.
Inguló í Háskólabíói í gærkvöldi. Sjá bls. 19: „Kom mér alger-
Myndin er sýnd á Norrænu kvik- lega...“
Morgunblaðið/RAX
Votviðrasamt áfram
ÞAÐ hefur verið ákaflega votviðrasamt á höfuðborgarsvæðinu síðustu
daga og þeir sem vinna útistörf hafa þurft að vera vel gallaðir. Hætt er við
að þeir þurfi að klæðast göllunum áfram því spáð er rigningu næstu daga.
Flugmenn mótmæla nýjum tillögnm um flugumferð
Reglur um viimutínia
stefni öryggi í hættu
SAMTOK flugmálastjórna Evrópulanda (Joint Aviation Authorities,
JAA) hafa að undanförnu unnið að saniræmingu ýmissa reglna um
flugumferð og eru þær nú til umsagnar hjá aðildarlöndunum. Evrópu-
samtök flugmanna svo og alþjóðasamtök þeirra hafa mótmælt þessum
reglum og telja meðal annars að reglur um vinnutíma séu rýmkaðar
um of og öryggi i flugi stefnt í hættu. Samtök flugmanna í einstökum
löndum efna í dag til upplýsingaherferðar til að vekja athygli á
málinu, bæði í fjölmiðlum og með dreifingu efnis til flugfarþega.
Tekjur af
ferðaþjón-
ustu rýrna
ÍSLAND er eitt fjögurra
OECD-landa sem öfluðu
minni gjaldeyristekna af
ferðaþjónustu 1992 en á ár-
inu á undan.
Gjaldeyristekjur minnkuðu
mest milli ára á Grikklandi, en
næstmest á íslandi, um 7,6%.
Aukning milli áranna 1991 og
92 var mest á Tyrklandi, 43,2%.
Sjá nánar bls. B8: „Þolum
við 1% fjölgun ...“
Tryggvi Baldursson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna,
segir að nýju tillögumar geri ráð
fyrir allt að 14 tíma vakttíma flug-
manna að degi til en 12 tíma að
næturlagi. Þetta geti í reynd þýtt
allt að 12 til 13 tíma flugtíma.
Hámarkið nú níu tímar
Tryggvi segir að í kjarasamning-
um FIA sé hámarksflugtími nú 8
tímar á vélum með tveggja manna
áhöfn en 9 tímar ef þriðji flugmað-
urinn er með. Þá sé í tillögunum
ekki tekið tillit til tímamismunar
eftir langflug þegar hvíldartími sé
ákvarðaður.
Stífari áætlanir og minna
öryggi
Tryggvi segir að mikið hafi verið
fjallað um þessar reglur á síðustu
fundum Evrópu- og Alþjóðasam-
taka flugmanna og einstakra flug-
mannafélaga í Evrópu. Séu þessir
aðilar sammála um að verði þessar
reglur samþykktar muni flugöryggi
stefnt í voða. Telja þeir að með
þeim sé flugrekendum mögulegt að
setja upp mun stífari áætlanir en
tíðkast hafi í flugrekstri í Evrópu
og Bandaríkjunum um árabil.
Flugöryggi ekki ógnað
Grétar Óskarsson hjá Flugmála-
stjórn segir að þessar tillögur séu
byggðar á reglugerðum nokkurra
Evrópuþjóða, t.d. Bretlands, Hol-
lands, Þýskalands og Norðurland-
anna og sé Island aðili að þessum
tillögum.
Grétar segir að hér sé um að
ræða þversnið af reglum þessara
landa og því í raun um litlar breyt-
ingar að ræða, en með þessu eigi
að sameina og samræma flugreglur
í Evrópu. Taldi hann fráleitt að flug-
öryggi væri ógnað með tilkomu
reglnanna. Þær eru nú til umsagnar
hjá aðildarlöndum og taldi Grétar
hugsanlegt að þær yrðu gefnar út
síðar á þessu ári.
. Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tekið við norrænum verðlaunum
SÓLVEIG tekur við verdlaunum sínum úr hendi Bengt Fors-
lunds. Asdís stendur á milli þeirra.
Atvinnuástand gott á Snæfellsnesi
100 útlendingar í vinnu
í þremur kaupstöðum
NÆR eitthundrað útlendingar starfa nú við fiskvinnslu í þremur kaup-
stöðum á Snæfellsnesi, Ólafsvík, Grundarfirði og Hellissandi. Atvinnu-
ástand er gott og vantar fólk á Grundarfirði.
í Ólafsvík eru 20 útlendingar,
mest Norðurlandabúar, starfandi við
fiskvinnslu. Auk þess er á staðnum
búsettur hópur Filippseyinga sem
vinnur í físki. Samkvæmt upplýsing-
um frá Verkalýðsfélaginu Jökli er
aðeins einn á atvinnuleysisskrá.
Vinnuaflsskortur
Á Grundarfirði er enginn á at-
vinnuleysisskrá að sögn Þórunnar
Guðmundsdóttur hjá Verkalýðsfélag-
inu Stjörnunni. „Við höfum ekkert
orðið vör við það atvinnuleysi sem
hefur verið viðvarandi á landinu und-
anfarna mánuði. Það er skortur á
húsnæði hér en samt vantar okkur
fólk hingað til að setjast að því næg
er atvinnan," sagði hún. Sautján
Pólveijar starfa í fiski á staðnum,
flestir konur. Auk þess hafa 10-15
manns af ýmsu þjóðerni sest þar að.
Á Hellissandi eru 20 erlendir far-
andverkamenn í fiskvinnslu en auk
þess 10 útlendingar sem hafa sest að.