Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Halidór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, um samninginn við Kögun Rangft að kveðið sé á um dreifða eignaraðild HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, segist ektó hafa heyrt neitt annað en að ákvæði samnings utanrítósráðuneytisins og Kögunar hf. hafi verið uppfyllt. Það hafl verið sendur listi yfir eigendur í þessu fyrirtæki til ráðuneytisins eftir því sem hann best vissi og það væri rangt að í samningnum væru ákvæði um dreifða eignaraðild. í Morgunblaðinu á sunnudag er fjallað um máleftii Kögunar og samning þess við utanríkisráðuneyt- ið árið 1989 um einkarétt á að annast rekstur og viðhald nýs ratsjárkerfis ratsjárstöðva vamarliðsins. Sagði að einkarétturinn hefði verið skilyrtur dreifðu eignarhaldi, en einnig kom fram að Gunnlaugur M. Sigmunds- son, alþingismaður, og eiginkona hans ættu 27% hlut í fyrirtækinu. Halldór sagðist ektó hafa séð þennan samning fyrr en hann var birtur. „Það er hins vegar rangt að það séu ákvæði í honum sem kveða á um dreifða eignaraðild. Það eru ákvæði um að það skuli tilkynnt um breytingar á eignaraðild," sagði hann. Umrædd 5. grein samningsins er svohljóðandi: „Kögun hf. skuldbind- ur sig til að afhenda varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins árlega skrá yfir eigendur hlutafjár í félaginu og hlutafjáreign þeirra. Jafnframt mun félagið tilkynna vamarmálaskrifstofunni tafarlaust ef einhver einn hluthafa hefur eign- ast meira en 5% heildarhlutafjár.“ Halldór sagði aðspurður að það væri ekkert brot á samningnum að aðilar ættu meira en 5% eignarhlut, því það stæði ekkert í samningnum um það „og ég stól nú satt best að segja ektó hvemig aðilar geta fund- ið það út sem lesa þennan samn- ing,“ sagði Halldór. Hann sagði aðspurður að í samn- ingnum væri hvergi að ftnna neina skuldbindingu um dreifða eignarað- ild. Aðspurður hvort ákvæði samn- ingsins um árlega skrá yfir eigend- ur hefðu verið uppfyllt sagði hann að eftir því sem hann best vissi frá starfsmönnum í utanrítósráðuneyt- inu þá hefðu aldrei neinar athuga- semdir verið gerðar í þeim efnum þau níu ár sem samningurinn hefði gilt. Aðspurður hvort til greina kæmi að segja samningnum upp, en um ár er eftir af gildistíma hans, sagði Halldór að íslensk stjómvöld bæm ábyrgð á að það yrði ektó rof á þeirri þjónustu sem samningurinn tætó til. Það væri alveg Ijóst að þegar þessi samningur hefði verið gerður á sín- um tíma hefði verið um viðamitóð þróunarverkefni á sviði hugbúnaðar að ræða. Þáverandi stjómvöld hefðu viljað að íslenskir aðilar ynnu þetta verkefni. „Hins vegar er það sér- stakt við þetta verkefni að það varð- ar öryggis- og vamarmál og það er ektó ávallt staðið að málum í slíkum viðstóptum með sama hætti og gengur og gerist í frjálsum viðstópt- um,“ sagði Halldór. Hann sagði að um framhaldið væri það að segja að hann teldi eðli- legt að Ratsjárstoftiun sæi um þetta mál, en ektó utanrítósráðuneytið sem slíkt. Það væri samkomulagsat- riði milli verkkaupa, það er banda- rískra stjómvalda og utanrítósráðu- neytisins „hvemig að málinu verður staðið og við munum ektó taka nein- ar ákvarðanir þar um fyrr en þetta mál hefur verið rætt við Banda- ríkjamenn sem greiða kostnaðinn af þessari þjónustu. Það gefur auga- leið að sá sem er greiðandi að þjón- ustunni hlýtur að hafa mitóð um það að segja,“ sagði Halldór. Aðspurður hvort hann teldi óheppilegt að eignarhlutar í fyrir- tætónu hefðu færst á færri hendur, sagði hann að það sem verkkaupi legði upp úr væri sú þjónusta sem fyrirtækið veitti og hvort hún væri látin í té með þeim hætti og á því verði sem um væri samið. „Það er allt annað mál hver á viðkomandi fyrirtætó, þannig að ég sé ektó að það stópti máli. Ég hef aldrei kynnst því í neinum samningi milli aðila um kaup á þjónustu að það sé sérstaklega tetóð fram hvemig eignarhaldi sé háttað. Það er ektó gert í þessum samningi frekar en flestum öðram samningum og í sjálfu sér ekkert meira um það að segja," sagði Halldór. Hann sagði að eftir því sem hon- um væri sagt væri ákvæðið um til- kynningaskylduna komið inn í samninginn vegna þess að menn hefðu viljað fylgjast með því af ör- yggisástæðum hvort nýir stórir að- ilar kæmu inn í fyrirtætóð. Spurt og svarað á Netinu NOTENDUM Kosningavefjar Morgunblaðsins á Netinu gefst kost- ur á að senda umsjónarmanni vefjar- ins í tölvupósti spurningar til fram- boðslista í sveitarfélögum um allt land. Spumingunum er komið áfram og svörin birt á Kosningavefnum jafnskjótt og þau berast. Forsenda þess að hægt sé að veita þessa þjónustu er að viðkomandi framboð hafi búnað til að taka við spurningum og svara í tölvupósti. Forsvarsmenn lista eru hvattir til að senda Kosningavefnum upplýsingar um netfang sitt. Netfang Kosninga- vefjarins er kosning@mbl.is. Netnotendur, sem senda vilja framboðslistum fyrirspum, velja síð- una „Spint og svarað“ á Kosninga- vefnum, smella á hnappinn „Ert þú með spumingu?“ og fylla út fyrir- spurnarform, sem þá birtist á tölvu- skjánum. Kosningavefnum má tengj- ast frá Fréttavef Morgunblaðsins eða með því að slá inn slóðina http://www.mbl.is/kosningar. Könnun um borgarmál á Fréttavef Viðhorfskönnun um málefni sem tengjast komandi borgarstjómar- kosningum verður á Fréttavef Morgunblaðsins næstu daga. Er könnunin gerð í samstarfi við tvo nemendur í Háskóla íslands, sem hafa fengið til þess styrk úr Nýsköp- unarsjóði námsmanna. Stjórnarformaður Þróunarfélagsins um riftun á hlutabréfasölu Ekki vogandi að taka þa áhættu vegna starfsmanna ÞORGEIR EYJÓLFSSON, stjóm- arformaður Þróunarfélags íslands (ÞÍ), segir ástæðu þess að stjóm ÞÍ rifti ektó samningum um sölu á hlut félagsins í Kögun hf. á árinu 1993, hafa verið þá að með því hefði af- komuöryggi starfsmanna Kögunar erlendis verið stefnt í hættu. í úttekt Morgunblaðsins sl. sunnudag kom fram að Gunnlaugur M. Sigmundsson, þáverandi fram- kvæmdastjóri Þróunarfélagsins og framkvæmdastjóri Kögunar og stór hluthafi í Kögun, seldi stjóm Kög- unar 58% eignarhlut ÞÍ í Kögun 1993, á fjórföldu nafnverði. Gengi bréfa í Kögun í dag er 56-falt. Gunnlaugur hafði ektó stjómar- heimild fyrir sölunni en stjómin hafði falið honum að kanna með sölu á bréfunum. Morgunblaðið spurði Þorgeir Eyjólfsson af hverju stjómin hefði ektó rift samingunum um söluna og svaraði hann fyrir hönd þáverandi stjómar ÞÍ: „Ástæða þess að viðstóptunum með hlutabréf Þróunarfélagsins í Kögun var ektó rift, var sú að með því hefði atvinnu og afkomu á þriðja tug fjölskyldna verið stefnt í óvissu en við störf í Los Angeles í Banda- ríkjunum vora yfir 20 langskóla- menntaðir einstaklingar með fjöl- skyldur sínar við störf á vegum Kögunar. Hafa þarf í huga að Gunn- laugur var framkvæmdastjóri Kög- unar og eiginkona hans starfsmaður fyrirtætósins hér heima. Hún hafði meðal annars með höndum marg- víslega hagsmunagæslu hér heima fyrir fjölskyldumar sem vora úti. Þau hjónin höfðu á sinni hendi alla þektónguna um fyrirtætóð og hefði sölunni verið rift, var ljóst að með því hefðu fylgt starfslok Gunn- laugs og eiginkonu hans hjá Kögun. Það er alls óvíst hvort tetóst hefði, í framhaldi af riftun viðstóptanna og starfslokum Gunnlaugs og eigin- konu hjá Kögun, að halda á málefn- um félagsins þannig að afkomu og framtíð starfsmanna félagsins er- lendis hefði ektó verið stefnt í voða. Það var að okkar mati ektó vogandi að taka þá áhættu starfsmannanna vegna,“ segir Þorgeir Eyjólfsson. I stjóm Þróunarfélagsins á þess- um tíma vora, auk Þorgeirs, Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, Páll Kr. Pálsson, fram- kvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs, Brynjólfur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Granda, og Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðar- bankans. Yfírmaður varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytið hefur ekkert aðhafst ÞÓRÐUR Ægir Óskarsson, for- stöðumaður vamarmálaskrifstofu utanrítósráðuneytisins, segist ektó finna nein gögn um það að dreifð eignaraðild að Kögun hf. sé skilyrt af hálfu utanrítósráðuneytisins, þó túlka megi ákvæði samnings ráðu- neytisins og Kögunar frá 1989 á þann veg. I fréttaúttekt Morgun- blaðsins sl. sunnudag kom fram að skv. samningi ráðuneytisins og Kögunar ber félaginu að tilkynna vamarmálaskrifstofunni tafarlaust ef einhver einn hluthafa hefur eign; ast meira en 5% heildarhlutafjár. í greininni var jafnfram leitt í Ijós að Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Þróunarfélags- ins og framkvæmdastjóri Kögunar og eiginkona hans eiga í dag 27% hlut í Kögun. Eftirlaunasjóður starfsmanna á yfir 30% í félaginu. Skylda að gera að almennings hlutafélagi Fram kom í nokkrum fréttum sem birtust í Morgunblaðinu á ár- unum 1990-1992, m.a. í viðtölum við Gunnlaug M. Sigmundsson, að Þró- unarfélaginu bæri skylda til, sam- kvæmt samningi við stjómvöld, að sjá um að fyrirtækið verði gert að almenningshlutafélagi 1995 og tryggja að hlutaféð dreifist. Þannig sagði Gunnlaugur í samtali við Morgunblaðið 26. apríl 1990: „Síðan er samningur í gildi milli Þróunarfélagsins og utanríkisráðu- neytisins um hvernig beri að gera Kögun að almenningshlutafélagi í áfóngum, þó þannig að fyrirtætóð ábyrgist að það verði hæft til að taka við þróun og viðhaldi íslenska loftvamakerfisins á áranum 1994- 1995. Þegar því er náð er sú kvöð í samningnum að við seljum öll hluta- bréf fyrirtækisins á almennum hlutabréfamarkaði. Jafnframt er okkur skylt að reyna að tryggja að mikil dreifing verði á sölu hlutabréf- anna,“ sagði Gunnlaugur. Fram kom í viðtali við Gunnlaug sl. sunnudag að Kögun hf. væri ektó enn orðið almenningshlutafélag en það væri á döfinni. Aðspurður mn viðbrögð utanrík- isráðuneytisins við breytingum sem orðið hafa á eignaraðild Kögunar sagði Þórður Ægir að ráðuneytið hefði í sjálfu sér ekkert gert í þeim málum, „enda er 5. greinin í samn- ingnum ektó tæmandi, vegna þess að hún segir ekkert um dreifða eignaraðild. Hún segir bara að það skuli tilkynna okkur ef þetta gerist. Ég hef ektó fundið nein gögn um að þetta sé stólyrði", segir Þórður Æg- ir. Þórður Ægir segir að Kögun virðist hafa uppfyllt það ákvæði samningsins flest eða öll árin frá því að samningurinn var gerður að senda ráðuneytinu árlegt yfirlit yfir hluthafa og hlutafjáreign þeirra. Samningstími rennur út í maí 1999 - Er þá ekkert athugavert við það að ykkar mati þó einstakir aðilar eigi fjórðungshlut eða meira í Kög- un hf.? „Þetta samkomulag var gert milli ráðherra og Kögunar og það getur verið að það hafi myndast ein- hver stólningur á þeim grunni en þegar ég kem að þessu málum sé ég ektó hvar ég eða vamarmálaskrif- stofan á að koma inn í það sem eftir- litsaðili. 5. greinin gerir ekki gi'ein fyrir þessu skilyrði, þó það megi kannstó með túlkun lesa það út úr henni og ég hef ektó fundið þessum stólningi stað í skjölum hér á skrif- stofunni," segir Þórður Ægir. Þórður var spurður hvort ráðu- neytið myndi grípa til aðgerða vegna þessa máls, og rifta samn- ingnum eða fara fram á endurskoð- un hans. Svaraði hann því neitandi og benti á að samningurinn rynni úr gildi 22. maí á næsta ári. „Við erum famir að huga að því hvernig fram- haldinu verði háttað. Það verður að minnast þess að þetta er öryggis- mál þjóðarinnar og maður verður að skilja á milli persónunnar í þessu dæmi og samningsins. Kögun er fyrirtætó sem hefur komið sér upp gífurlegri sérfræðiþektóngu á rekstri ratsjárstöðvarinnar. Það verður því að fara mjög vandlega í þetta, auk þess sem þetta lýtur líka að milliríkjasamningi. Tíminn verð- ur nýttur vel.“ Aðspurður hvort eigendum Kög- unar, sem eiga meira en 5% í félag- inu, verði gert að selja hluti sína í fyrirtækinu sem eru umfram þessi mörk svaraði hann: „Ég get ektó svarað þessu. Við eram rétt að átta okkur á þessu dæmi og menn eru að skoða það.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.