Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 VIÐSKIPTI FBA skráir markaðsverðbréf Þegar seld bréf fyrir milljarð FJÁRFESTINGARBANKI at- vinnulífsins hf. fékk í gær skráð markaðsvíxla og skuldabréf og hóf þá viðskiptavakt með bréfin. Bank- inn hefur þegar selt bréf fyrir um einn milljarð króna. Innlend fjárþörf FBA í ár er áætluð 7-12 milljarðar kr. Bankinn notar peningana til greiðslu af- borgana af eldri lánum, endur- kaupa eða uppgreiðslu eldri lána og til að byggja upp vaxandi efna- hag. Agnar Hansson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Fjárfest- ingarbankanum, segir að bankinn hafi valið þá leið við útgáfu verð- bréfa að vera með markaðsverð- bréf fremur en skuldabréf í óstöðl- uðu formi. Markaðsvíxlar FBA eru nú gefn- ir út til 3ja og 12 mánaða og verða gjalddagar mánaðarlega í lok hvers mánaðar. Þeir eru seldir í 10 og 50 milljóna kr. einingum, sam- tals allt að 2 milljarða kr. hvor Leiðrétting MISTÚLKUN varð á frétt um hlut- hafaaukningu hjá Handsali hf. í laugardagsútgáfu blaðsins. Greint var írá því að 16 nýir hluthafar hefðu keypt hlutafé fyrir 115 m.kr. í félaginu en hið rétta er að saman- lögð kaup nýrra og eldri hluthafa námu alls 115 m.kr. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. flokkur. Óverðtryggð skuldabréf eru nú gefin út til tveggja og fjög- urra ára og eru gjalddagar 10. febrúar árið 2000 og 1. apríl 2002. Bréfin eru seld í 5 milljóna króna einingum og eru hámarksfjárhæð hvors flokks 500 milljónir kr. Verð- tryggð skuldabréf eru síðan gefin út til 6 ára með gjalddaga 1. des- ember árið 2003. Eru það kúlubréf, vaxtalaus en tengd vísitölu neyslu- verðs. Bréfin eru seld í 5 mOljóna króna einingum og er stærð flokks- ins 2 milljarðar kr. Lægri ávöxtunarkrafa Verðbréf FBA eru seld með heldur lægri ávöxtunarkröfu en verðbréf annarra banka. Agnar Hansson segir að tekið sé mið af ríkistryggðum verðbréfum og öðr- um bankabréfum á markaði. Segir hann að FBA sé fjárhagslega öfl- ugri en hinir bankamir og því ætti minni áhætta að fylgja bréfunum að þessu leyti. Hins vegar ætti bankinn eftir að sanna seljanleika bréfanna. Markaðurinn hefur tekið vel við bréfunum, að sögn Agnars, og sést það á þvi að á þeim stutta tíma sem þau hafa verið á markaði hafa bréf fyrir miiljarð verið seld. Stofnana- fjárfestar era aðalkaupendumir og telur Agnar að FBA njóti þess að vera nýr á markaði og stofnana- fjárfesta vanti bréf frá honum inn í verðbréfaeign sína. DOMINOS pizzur á Grensásvegi fengu nýlega viðurkenningu fyrir mestu sölu einstakra verslana innan pizza keðjunnar á síðasta ári. Fyrirtækið seldi alls 200.620 pizzur á árinu fyrir u.þ.b. 160 milljónir króna. Þetta er annað árið í röð sem verslunin hlýtur þennan heiður. Gunnar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Dominos á íslandi, sagði þessa viðurkenningu ánægjulega, sérstaklega með til- liti til þess að í dag væru 6.000 Dominos verslanir starfræktar víðsvegar í heiminum þar sem verslunin á Grensásvegi væri þeirra söluhæst auk þess sem úti- Dominos á fslandi Söluhæsta útibúið á heimsvísu annað anð í roð búið í Höfðabakka hefði hafnað í sjötta sæti meðal þeirra 1.600 verslana sem staðsettar eru utan Bandaríkjanna. Erfitt að fylgja eftir Gunnar telur þó ólíklegt að fyrirtækið muni hreppa titilinn í þriðja sinn að ári í ljósi þess að félagið opnaði nýverið fimmtu verslun sína í Ánanaustum í Reykjavík, sem tekur um 30% af því markaðssvæði sem verslunin á Grensásvegi hefur hingað til þjónustað. Aðspurður um frekari stækkun segir Gunnar að góðar líkur séu á því að fleiri staðir verði settir á laggirnar hér á landi í framtíðinni: „íslendingar hafa tekið þessari matvöru og þeirri þjónustu sem við veitum fagnandi og því sjálfsagt að kanna frekari stækkun." Básafell hf. birtir sex mánaða uppgjör 30 milljóna tap á fyrri hluta ársins ÞRJÁTÍU milljóna króna tap varð á rekstri sjávarútvegsfyrirtækisins Básafells á Isafírði fyrstu sex mán- uði yfírstandandi rekstrartímabils. Samkvæmt íréttatilkynningu voru rekstrartekjur félagsins 1.322 millj- ónir króna á tímabilinu en rekstrar- gjöld námu 1.134 milljónum. Hagn- aður fyrir afskriftir og fjármagns- kostnað var 188 milljónir. Afskriftir námu 158 milljónum og fjármagns- kostnaður 129 m.kr. Tap af reglu- legri starfsemi var því 99 milljónir króna. Óreglulegar tekjur umfram gjöld námu 69 milljónum og því varð tap af rekstri Básafells 30 milljónir króna á umræddu tímabili. Veltufjármunir námu 1.013 millj- ónum í lok febrúar en skammtíma- skuldir á sama tíma voru 1.186 millj- ónir. Eigið fé í febrúar var 1.589 milljónir en heildarskuldir félagsins námu 4.635 milljónum. Eiginfjár- hlutfallið er því 26%. Stefnt að hagnaði við næsta uppgjör Að sögn Arnars Kristinssonar framkvæmdastjóra eru menn að sjálfsögðu ekki sáttir við stöðuna en bendir jafnframt á að afkoman nú sé mun betri en við síðasta uppgjör. Þar að auki bendir flest til þess að síðari hluti rekstrarársins líti vel út. Unnið hefur verið að talsverðum breytingum á skipum félagsins sem miklar vonir eru bundnar við að skili sér í bættri afkomu. Amar segir að Sléttanesið, sem er ekki inni 1 þessu milliuppgjöri, hafi farið tvo túra frá því breytingum á því lauk í lok febr- úar og landað blönduðum afla fyrir 136 milljónir króna. Þá er verið að vinna að endurbótum á Orra þessar vikumar á Spáni og er hann væntan- legur til landsins um miðjan júní. Þar að auki stendur til að bæta við þriðja togspilinu í Skutul á næstu dögum sem gerir honum kleift að draga tvö troll. Arnar segir stöðugt verið að kanna möguleika á sölu eða hag- kvæmari nýtingu á ýmsum fastafjár- munum félagsins og gengið er útfrá því í rekstraráætlunum að hagnaður verði á yfirstandandi rekstrartíma- bili. Aðalfundur Aðalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga verður haldinn Þingholti, Hótel Holti, fimmtudaginn 14. maí 1998, kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Erindi: Framtíð fjarskipta - Samkeppni á símamarkaði Framsögumenn: Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Tals hf. og Þór Jes Þórisson, Amþór framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Landsímans hf. Halldórssi Þór Jes Þórisson n-T'7L Rácafð || hf. DdöCJlCl Archlntai'allrninrmr *■ <si>^ <Cx Hioiiiuicii ciiviiiiiyui 1. september - 28. febrúar 1998 1/9'97- 28/2'98 1/1- 31/8'97 Rekstrarreikninnur 1998 1997 Rekstrartekjur Milljónir króna 1.322 1.297 Rekstrargjöld (1.134) (1.291) Hagnaður án afskrifta og fjárm.kostn. 188 6 Fjármagnsgjöid (129) (168) Tap af reglulegri starfsemi (99) (366) Hagnaður/(tap) tímabilsins (30) 112 Efnahagsreikningur 28/2 '98 31/8 '97 I Eipnir: | 1.013 5.211 933 5.297 Veltufjármunir Milljónir króna Fastafjármunir Eignir samtals 6.224 6.230 I Skuidir on einið 16: \ Skammtímaskuidir Langtímaskuldir 1.185 3.450 826 3.766 Eigið fé 1.589 1.638 Skuldir og eigið fé samtals 6.224 6.230 FBA lánar Reykjanesbæ REYKJANESBÆR mun taka er- lent lán fyrir milligöngu Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins hf. til að fjár- magna byggingu nýs grunnskóla í Keflavík sem áætlað er að kosti 700 milljónir kr. Lánsféð var boðið út og telur bæjarstjórinn að það hafi skil- að afar góðri niðurstöðu og sýni að Reykjanesbær sé metinn traustur skuldari. Reykjanesbær er að byggja nýjan grunnskóla, Heiðarskóla, í Heiðar- byggð í Keflavík. Skólinn ásamt til- heyrandi íþróttahúsi og sundlaug mun kosta um 700 milljónir kr. Er fyrirhugað að hann verði tekinn í notkun haustið 1999 og framkvæmd- inni verði að fullu lokið á fyrrihluta árs 2000. Reykjanesbær bauð út fjármögn- unina. Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir að nokkur góð tilboð hafi borist en það hagstæðasta væri frá Fjár- festingarbanka atvinnulífsins. Það er fjölmyntalán með 35 punkta álagi á millibankavexti á Lundúnamarkaði. Lánið verður borgað út eftir því sem framkvæmdum miðar áfram. Ellert er mjög ánægður með þessi kjör, segir þau með því besta sem gerist á þessum markaði. Jafnframt vekur hann athygli á því að við und- irbúning tilboða hafi fjármálafyrir- tækin gert sínar athuganir á fjármál- um og framtíðarmöguleikum Reykjanesbæjar og tilboðin sýni að bærinn hafi fengið góða einkunn í því mati.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.