Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 43
I a i :í ; I 3 I I I ■ J I J 1 ■ 1 I 5 :1 MORGtíNHÍ.ÁÐH) ÞRIÐJUDÁGUR 12. MAÍ 1998 48 AÐSENDAR GREINAR Vinnan, fjölskyld- an, framtíðin HVERNIG getur maður náð tökum á því krefjandi verkeíhi að tvinna saman atvinnulíf og fjölskyldulíf? Alls staðar í heiminum leita menn svara við þessari spurningu. Leitað er leiða til að skapa fjöl- skylduvænni vinnumark- að og jafna rétt karla og kvenna í vinnu sem og í fjölskyldumálum. Vinnumarkaðurinn er í stöðugri þróun. Til þess að hann geti þróast áfram og staðist kröfur framtíðarinnar þarf að breyta umhverfi bama- fjölskyldna. Sú staðreynd að í lang- flestum tilfellum vinna báðir for- eldrar utan heimilisins veldur því að atvinnulífíð verður að taka tiílit til fjölskyldnanna. Jafnframt þarf samfélagið að tryggja að foreldrar geti varið tíma með börnum sínum. Það gefur því augaleið að til þess að hægt sé að samræma þátttöku á vinnumarkaði og heimilislíf þurfa lykilaðilar að móta sér fjölskyldu- stefnu. Það á jafnt við um verka- lýðshreyfinguna, atvinnurekendur sem og stjórnvöld. Fjölskyldustefna snýst í raun um tækifæri fólks til að takast á við nútímasamfélag. Bæta þarf réttindi foreldra Þegar kemur að möguleikum ís- lensks launafólks til að samræma atvinnu- og fjölskyldulíf er Ijóst að veruleg þörf er á rót- tækum réttarbótum fyrir foreldra. Eins og svo oft hefur verið bent á er réttur for- eldra til fæðingarorlofs og foreldraorlofs mun lakari hérlendis en annars staðar í Norð- ur-Evrópu, bæði hvað varðar lengd orlofs og greiðslur. Þetta á sér- staklega við um al- menna vinnumarkað- inn. Kerfið er auk þess á margan hátt orðið ósamkvæmt sjálfu sér og ómarkvisst. Þrátt fyrir að karlar hafi fengið rétt til tveggja vikna orlofs um síðastliðin áramót eru breyt- ingarnar engan veginn fullnægj- andi. Með breytingunum er haldið áfram að mismuna launafólki eftir því hjá hverjum það starfar. Þannig eru fæðingarorlofsgreiðsl- ur til feðra í stéttarfélögum opin- berra starfsmanna verulega hærri en greiðslur til feðra sem starfa á almenna vinnumarkaðinum. Taka þarf upp reglurnar um fæðingarorlof og endurskoða kerfið í heild sinni. Bæta þarf réttindi for- eldra til samvista við börn sín með því að lengja fæðingarorlofið, bæta rétt feðra og staðfesta rétt foreldra skv. Evróputilskipun um foreldra- orlof. Síðast en ekki síst þarf að jafna rétt fólks til greiðslna í fæð- Grétar Þorsteinsson Lögbrot Löggildingarstofu! NOKKUR undanfar- in ár hafa skoðunar- stofur raforkuvirkja unnið við útaksskoðan- ir, m.a. á íbúðarhús- næði, og unnið eftir reglum sem rafmagns- öryggisdeild Löggild- ingarstofu hefur sett. Ein þessara reglna, að minnsta kosti, er röng og hefur valdið mörg- um frjárhagslegu tjóni. Þessi regla er lögbrot eins og hún er sett fram, hana er að finna í verklagsreglum og er nefnd þar „Rur ? 272 og verld. RER“. Þetta þýðir að húseigéndur er lenda í úrtaksskoðun rafmagnsör- yggisdeildar Löggildingarstofu eða Rafmagnaveitu Reykjavíkur og hafa byggt hús sín fyrir eða um 1960 hafa að öllum líkindum þenn- an rafbúnað í rafmagnstöflum sín- um. Þá er sennilega á athuga- semdaskýrslu þeirra ein lína svo hljóðandi: „NDZ varbúnaður, Rur ? 272 og verkl. RER“. Þessi orð þýða að viðkomandi eigandi þarf að endumýja allan varbúnað á greini- töflu sinni sem getur kostað tölu- verða fjárupphæð. Hafi þessi raf- búnaður sem fundið er að verið í góðu lagi er krafa um endurbætur ólögleg og mestu rangindi að krefj- ast endumýjunar á honum. Hús- eigendur sem hafa lent í úrtaks- skoðun með raflögn sína og fengið athugasemd orðaða svo: „NDZ varbúnaður, Rur ? 272 og verkl. RER“ ættu að fá álit fagmanna á hvort hætta stafaði af búnaðinum og krefjast síðan skriflegra skýr- inga frá Löggildingarstofu. Ég skrifaði Löggildingarstofu bréf og spurðist fyrir, hverju það sætti að þessi krafa væri gerð. Meginrökin í svarinu vom: „NDZ varbúnaður uppfyllir ekki ofangreindar kröf- ur. Þar sem algengt var að rangir vartapp- ar væru settir í þessi varhús, var ákveðið að setja í skoðunarreglur um neysluveitur í rekstri, kröfu um að þessum varbúnaði yrði skipt út“. Þessi rök eru byggð á tifinningum enn ekki á lögum og em því ólöglegar. Væri þörf á að skipta þessum var- búnaði út eins og segir í svarinu af hverju era þá ekki allir landsmenn settir undir sömu kvöð og þeir sem lenda í úrtaksskoðunum. Er ekki sama hætta hjá þeim? Þá með lög- um frá Alþingi. Agætu íslendingar, getið þið fellt ykkur við að deildar- / x Agætu Islendingar, getið þið fellt ykkur við að deildarstjóri Lög- gildingarstofu, spyr Sigurður Magnússon, taki sér löggjafarvald Alþingis í hendur og setji reglur samkvæmt tilfinningum sínum? stjóri Löggildingarstofu taki sér löggjafarvald Alþingis í hendur og setji reglur samkvæmt tilfinning- um sínum? Hversu margar reglur em af þessum toga spunnar þar á bæ? Höfundur er f.v. yfirrafmagnseftirlitsmnður. Sigurður Magnússon ingarorlofi, hvort sem það er milli kynja eða milli starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum annars vegar og á almennum vinnumarkaði hins vegar. Laga þarf réttindi íslenskra foreldra að nútímakröfum og þeim skuldbindingum gagnvart launa- fólki sem íslensk stjómvöld hafa tekið á sig með alþjóðlegu sam- starfi. Það er til dæmis staðreynd Taka þarf upp reglurn- ar um fæðingarorlof og endurskoða kerfíð í heild sinni, segir Grétar Þorsteinsson. Bæta þarf réttindi foreldra til samvista við börn sín með því að lengja fæðingarorlofíð, bæta rétt feðra og staðfesta rétt foreldra skv. Evróputilskipun um foreldraorlof. að ísland er eina landið á Evrópska efnahagssvæðinu sem ekki er með tekjutengdar greiðslur í fæðingar- orlofi. ASÍ boðar til ráðstefnu í dag Samræming atvinnu- og fjöl- skyldulífs er verkefni sem taka þarf af fullri alvöm. Margir segja að vinna að þessu verkefni sé eitt af lykilatriðunum á leið okkar til framtíðar. Alþýðusamband íslands hefur unnið að þessu verkefni að undanförnu og boðar til ráðstefnu í dag undir yfirskriftinni Vinnan, fjölskyldan og framtíðin. A ráð- stefnunni verður meðal annars fjallað um samræmingu atvinnu- þátttöku og fjölskyldulífs, réttar- stöðu foreldra í Evrópu með sér- stöku tilliti til Norðurlandanna, réttarstöðu foreldra á íslenskum vinnumarkaði og hvernig fjöl- skyldupólitík virkar í framkvæmd í nokkrum íslenskum fyrirtækjum. Loks verður stefna ASÍ í jafnrétt- is- og fjölskyldumálum kynnt en sambandið leggur þar sérstaka áherslu á úrbætur í fæðingar- og foreldraorlofsmálum. Ráðstefnan verður haldin í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, frá kl. 13-17. Að- gangur er ókeypis og vil ég hvetja allt áhugafólk um jafnréttis- og fjölskyldumál til að mæta. Höfundur er forseti AJþýðusam- bands íslands. Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is BOMRG Þjöppur og valtarar Gæði á g jðu v@rði ... W Bensín/dísel þjöppur, hopparar, kefli og valtarar. Allar stærðir og gerðir. dJöSKíMM V Skútuvogi 12a Sími 568 1044 Aðalfundur Aðalfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn mánudaginn 18. maí 1998 kl. 16.00. að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. 1998 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. Kynning á nýju lífeyriskerfi. illögur til breytinga á reglugerð sjóðsins. Önnur mál löglega upp borin. 3 Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundarboð og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 11. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu og málfrelsi. Þeir sióðfélagar sem hygajast nýta sér þennan rétt eru beðnir að tilkynna jóað skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 15. maí n.k. og munu þeir þá fá fundargögn við setningu fundarins. 8 Tillögur til breytinga á reglugerð liggja frammi á skrifstofu sjóðsins frá 22. apríl 1998 og geta þeir sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir fundinn, fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti. Einnig er hægt að nálaast tillögurnar á veraldarvefnum. Slóð sjóðsins er wwwJifeyrir.n.is. Frá og með 27. apríl munu reikningar sjóðsins liggja fnammi á skrifstofu hans fyrir þá sjóðfélaga, sem vilja kynna sér þá. Reykiavík, 22. apríl 1998 naða I ’ Stjórn Sameinada lífeyrissjóðsins. Suðurlandsbraut 30 108 Reykjavík Sími 510 5000 Fax 510 5010 Grænt númer 800 6865 Heimasíða:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.