Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 16
■ 16 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Eyjafjarðarsveit MIKIÐ var um dýrðir á Mel- gerðismelum í Eyjafjarðarsveit á laugardagskvöld en þá tóku hestamannafélögin Léttir á Akureyri og Funi í Eyjaijarðar- sveit í notkun nýja reiðbrú yfir Eyjafjarðará og endurbætt stóð- hestahús. Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra og Guðmundur Bjarnason umhverfísráðherra riðu fyrstir yfir hina nýju reið- brú en á eftir þeim komu Jakob Björnsson bæjarsfjóri á Akur- eyri og Pétur Þór Jónasson sveitarstjóri í EyjaQarðarsveit ásamt fylgdarliði úr hesta- mannafélögunum. Vegagerðin stóð fyrir smíði brúarinnar, sem er 36 metra löng og kostaði um 6 milljónir króna. Hún tengist nýrri reið- leið frá Akureyri suður að Mel- gerðismelum að austanverðu í firðinum. Eftir að samgönguráðherra hafði klippt á borða við brúna var haldið í hið nýuppgerða stóðhestahús sem umhverfisráð- herra tók formlega í notkun. Karlakór Eyjafjarðar tók nokk- ur lög við mikinn fógnuð við- staddra í stóðhestahúsinu, en að Morgunblaðið/Bery'amín því búnu var boðið upp á veit- ingar í veitingaskála Melgerðis- mela. AKUREYRI Bæjarráð Samning- ar um skauta- svell BÆJARRÁÐ Akureyrar hef- ur falið bæjarlögmanni og íþrótta- og tómstundafulltrúa bæjarins að hefja samninga- viðræður við Iþróttabandalag Akureyrar og Skautafélag Akureyrar um samstarf um byggingu húss yfir skauta- svell Skautafélagsins við Krókeyri. Á félagsfundi Skautafélags Akureyrar var þessari ákvörðun bæjarráðs fagnað. „Við vonumst til að samningar gangi fljótt fyrir sig svo fram- kvæmdir geti hafist sem fyrst,“ segir í ályktun frá fé- lagsfundi Skautafélags Akur- eyrar. Háskólinn á Akureyri og Hálandaháskólinn í Skotlandi Samningur um samstarf undirritaður í maí SAMSTARFSSAMNINGUR milli Háskólans á Akureyri og Hálanda- háskólans (University of Highlands and Islands) í Skotlandi verður und- irritaður síðar í þessum mánuði, en í kynnisferð 10 Islendinga til Skotlands á dögunum var gengið frá drögum að samningnum. I ferð- inni kynntu íslendingarnir sér byggðamál og starfsemi og skipulag Hálandaháskóla sem verið er að stofna í Skotlandi. Markmið ferðarinnar var að kynnast skipulagi byggðamála í skosku hálöndunum og hvemig nýi Hálandaháskólinn ætlar að þjóna hinum dreifðu byggðum landsins og draga af því nokkra lærdóma fyrir dreifbýlið hér á landi. Skotar hafa lagt mikla áherslu á þátt upplýs- ingatækni og fjarvinnslu við upp- byggingu háskólamenntunar og at- vinnulífs við aðstæður sem eru að nokkru leyti hliðstæðar því sem við er að fást í dreifbýli hér á landi. Hálönd og eyjar Skotlands em 39 þúsund ferkílómetra svæði, hálent eins og nafnið gefur til kynna en skorið í dali og firði og víða með stómm vötnum. íbúamir era um 370 þúsund talsins, eitt þeirra strjálbýlustu innan Evrópusam- bandsins. Ný stofnun, Byggðastofn- un hálanda, vinnur að efnahagslegi-i aðstoð við fyrirtæki og sveitarfélög með í-íkri áherslu á endurmenntun og þjálfun starfsfólks fyrirtækja og einstaklinga sem hyggja á atvinnu- rekstur. Stofnunin hefur til umráða 8,9 milljarða króna. Þrettán framhaldsskólar og rann- sóknarstofnanir stofnuðu Hálanda- háskólann, en hann á sér engan einn samastað heldur dreifist víða um svæðið og hver stofnun fyrir sig leggur til það sem hún er aflögufær með. I skólunum eru ríflega 22 þús- und nemendur en þar af era rúm- lega 3 þúsund í fullu háskóla- eða rannsóknarnámi. Auk skólanna verður komið upp 35 til 40 námsver- um víðs vegar í hálöndunum og eyj- unum út af Skotlandi. Óvenjulegt námsframboð Námsframboðið verður nokkuð óvenjulegt á íslenskan mælikvarða, en það nær bæði yfir starfsmenntun af margvíslegu tagi og að hefð- Bylgja umferðaróhappa TVEIR vora fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bfla á gatnamótum Skarðshliðar og Foss- hlíðar síðdegis á sunnudag. Önnur bifreiðin valt við áreksturinn. Síðdegis á laugardag valt bfll á Eyjafjarðarbraut vestri skammt sunnan Akureyrar en tildrög vora þau að ökumaður sem ók norður fór fram út tveimur fólksbifreiðum. Þá var hópbifreið ekið á móti og þurfti ökumaður sem fram úr ók að snögg- beygja yfir á hægri vegarhelming til að forðast árekstur við hópbif- reiðina. Við það missti ökumaður stjórn á bifreiðinni sem valt nokkar veltur og hafnaði að lokum utan vegar. I bifreiðinni var kona og rúmlega ársgamalt barn og voru bæði flutt á slysadeild. Konan sem var í bflbelti slapp með minniháttar meiðsl en barnið sem var í bamabfl- stól slapp ómeitt. Morgunblaðið/Kristján Á föstudagkvöld varð harður árekstur á gatnamótum Glerárgötu og Þórannarstrætis, en fjóram mín- útum eftir að tilkynnt var um hann varð aftanákeyrsla á sama stað. Ökumaður hafði þurft að hægja á bifreið sinni vegna fyrri áreksturs- ins en þar varð til þess að sá sem á eftir honum fór ók aftan á hann. All- mikið tjón varð á ökutækjum og þurfti að fjarlæga eitt þeirra með kranabíl. Engir Frissa fríska- leikar vegna hitasóttar Mikið áfall FRISSA fríska-leikamir í hestaíþróttum sem haldnir hafa verið á Akureyri í júní síðustu ár og era fyrir böm og unglinga verða ekki haldnir að þessu sinni vegna aðstæðna sem skap- ast hafa vegna hitasóttar í hrossum. „Það er ekki verjandi að skipuleggja mót af þessu tagi við þessar aðstæður," sagði Reynir Hjartarson, einn þeirra sem staðið hafa að leikunum. „Þetta er mikið áfall og eins er það mikið áfall að veikin skuli hafa borist norður í Skagafjörð, hestar héðan af Norðurlandi munu fara að veikjast upp úr þessu sem mun hafa það í för með sér að norðlenskir hestar verða ekki áberandi á landsmóti í sumar. Það er skelfilegt að veikin skuli koma upp á svæðinu núna, hún verður eflaust í há- marki kringum landsmót og fjarar út síðsumars, en ég var að vona að tækist að halda varnar- línum þannig að veikin bærist ekki norður fyrr en í ágúst. Hún kemur á versta tíma sem hægt er að hugsa sér,“ sagði Reynir. Hann telur að ástandið sé mun verra en látið sé í veðri vaka og finnst að of mikið hafi verið einblínt á sjónarmið út- flutnings og landsmóts, en dýra- verndunarþátturinn hafi orðið útundan í umræðunni. Mikið um dýrðir á Melgerðismelum Nýtt stóð- hestahús og reiðbrú tek- in í notkun bundnu háskólanámi allt til dokt- orsnáms. Námið verður þverfaglegt en það skiptist í sjö svið: List- og hönnunargreinar, viðskipta- og rekstrargreinar, tölvu- og upplýs- ingagreinar, verk- og tæknifræði, menning og þjóðararfur, heilbrigð- is- og menntunarfræði og umhverf- is- og náttúruvísindi. Gert er ráð fyrir að fjárveitingar til stofnbúnaðar til ársins 2001 nemi um 10 milljörðum króna, en alda- mótanefndin, ráðuneyti Skotlands- mála, Evrópusambandið, byggða- stofnanir, sveitarfélög og einkaaðil- ar sjá um fjármögnun. Undirbún- ingur stendur yfir vegna bygginga- framkvæmda á 18 stöðum en Há- landaháskólinn verður innbyrðis tengdur með ljósleiðara. > Morgunblaðið/Kristján JÓN Ellert Lárusson frá Bókaval, til vinstri, Árni Einarsson frá Máli og menningu og Dögg Pálsdóttir frá Umhyggju sem naut góðs af Bókahringrásinni. Afrakstur Bókahringrás- arinnar til Umhyggju BÓKAHRINGRÁSIN hófst á al- þjóðlegum degi bókarinnar, 23. apr- fl síðastlinn, en að henni standa Mál og menning, Bókaval á Akureyri og Rás 2 og er þetta í þriðja sinn sem til hennar er efnt. Tilgangurinn er að gefa gömlum bókum nýtt líf. Gefst fólki tækifæri á að koma með gamlar bækur og leggja inn í bóka- hringrásina. Bækumar era seldar á 500 krónur kílóið og rennur and: virðið óskipt til góðgerðarmála. I fyrsta sinn naut Sjúklingabókasafn Rauða krossins góðs af gjafmildi bókaunnenda, en þá söfnuðust 340 þúsund krónur. í fyrra fékk Kvennaathvarfíð rúmlega hálfa milljón króna en í ár söfnuðust 625 þúsund krónur sem runnu til Um- hyggju - félags til stuðnings lang- veikum börnum. Af upphæðinni sést að selst hefur eitt tonn og tvö hundruð og fimmtíu kfló af bókum á Bókahringrásinni að þessu sinni. AKSJÓN Þriðjudagur 12. maí 21 .OO^Kosningasjónvarp Kappræðufundur með fulltrúum framboðslistanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.