Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 23. MAI Um 900 hafa kosið utan kjör- staðar RÚMLEGA 900 manns höfðu kosið í utankjörstaðaratkvæða- greiðslu hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær að sögn Önnu Mjallar Karlsdóttur lögfræð- ings. Hægt er að greiða at- kvæði frá klukkan 10-12, 14-18 og 20-22 virka daga í Ármúla- skóla og frá 17-19 á Seltjamar- nesi og í Mosfellsbæ fram að kjördegi. Anna Mjöll sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri enn kominn kippur í at- kvæðagreiðslu hjá embættinu. Bjóst hún við því að fjöldi þeirra sem greiddu atkvæði ut- an kjörstaða hjá Sýslumannin- um í Reykjavík færi stigvax- andi á næstu dögum. Hátt í sjö þúsund manns kusu utan kjörstaðar 1994 I síðustu sveitarstjórnakosn- inum árið 1994 greiddu 6.500- 7.000 manns atkvæði hjá emb- ættinu, þar af 1.300 manns síð- asta daginn. Hvetur Anna Mjöll Karlsdóttir fólk því til þess að vera snemma á ferð að þessu sinni. Hlutfall þeirra sem þegar hafa greitt atkvæði er svipað og 11 dögum fyrir kosningar árið 1994 segir hún að lokum. Kosningabaráttan komin á fullan skrið hjá frambjóðendum í höfuðborginni Morgunblaðið/Ásdís TÓMAS Þór Tómasson, skrifstofustjóri kosningaskrifstofu R-lista. Morgunblaðið/Ásdís ÁGÚST Ragnarsson, framkvæmdastjóri fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Ellefu dagar í kosningar STARFSEMI kosningaskrifstofa framboðslistanna fjögurra sem valið stendur um í borgarstjórnarkosning- unum hinn 23. maí næstkomandi hófst af fullum krafti nú um helgina. Kosningaskrifstofa R-listans var opnuð hinn 1. mars síðastliðinn og segir Tómas Þór Tómasson, fram- kvæmdastjóri skrifstofunnar, að kosningabaráttan hafi „sprungið út um síðustu helgi“ og að starfsmenn listans séu klárir í slaginn. „Það má segja að starfið sé að fara af stað nú, svona út á við, því margir virðast vera að átta sig á því núna hvað kjördagur- inn er skammt undan,“ segir Tómas Þór. Ellefu dagar eru í kosningar og starfrækir R-listinn að hans sögn kosningamiðstöð á Lækjartorgi, kosningakaffihús og tvær hverfa- skrifstofur. Þá verður kosningamið- stöð á hjólum ekið um hverfi borgar- innar eftir þörfum. Fastir staifsmenn kosningamið- stöðvarinnar eru milli 8 og 10 og auk þess tekur fjöldi sjálfboðaliða þátt í baráttunni, hátt á annað hundrað manns telui' Tómas. Vinnustaða- fundir verða reglulegur viðburður frá og með deginum í dag og auk þess verða frambjóðendur með við- talstíma í hverfaskrifstofum og í kosningarútunni segir hann ennfrem- ur. R-listinn hefur látið útbúa lítið kver um höfuðborgina og gefið út geisladisk með 18 Reykjavíkurlögum þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri flytur lagið Ó borg mín borg ásamt fleirum en fjáröflun fyrir kosningabaráttuna nær hámarki um næstu helgi. R-listinn er jafnframt með happdrætti í því skyni þar sem verðmæti vinninga er á fjórðu millj- ón króna að Tómasar sögn. Hann vill ekki gefa upp hversu mikinn kostnað kosningabarátta list- ans hefur í fór með sér. „Það sem kom mér mest á óvart er hversu um- fangsmikil svona starfsemi er í raun og hve ríkur þáttur sjálfboðaliða er. Samt hleypur kostnaðurinn á tugum milljóna," segir Tómas Þór Tómas- son að lokum. Berjast til þrautar Agúst Ragnarsson, framkvæmda- stjóri fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík, segir að formleg kosningabarátta D-listans hafi haf- ist með kynningu á stefnumálum og síðan aftur fjórum vikum fyrir kjör- dag þegar flokkurinn opnaði átta kosningaskrifstofur víðs vegar um borgina. „Við munum halda áfram að hafa samband við okkai- flokks- fólk og undirbúa kjördaginn sjálfan vegna þeirrar þjónustu sem við veit- um þá. Frambjóðendur flokksins hafa verið á vinnustaðafundum síð- astliðnar fjórai' vikur og munu halda því áfram fram að kosningum,“ segir Ágúst. Frambjóðendur D-listans hafa jafnframt heilsað upp á fólk á fórn- um vegi og bankað upp á á heimil- um og kynnt sig segir hann. „Við gengum mikið í hús íyrir síðustu borgarstjórnarkosningar, sem vakti mikla athygli, og við munum fara í öll hverfi núna líkt og þá. Einnig verða frambjóðendur með fasta auglýsta viðtalstíma á kosninga- skrifstofum," segir hann. Fastir starfsmenn á hverfaskrif- stofum eru einn á hverjum stað auk misfjölmennra kosingastjórna og starfsfólks í ValhöII. Einnig bætast hundruð manna við á kjördag segir hann. „Undirbúningsstai-fið er á fullu þessar síðustu tvær vikur og nær hámarki á kjördag. Við vitum að á brattann er að sækja þannig að stemmningin er þannig að við mun- um berjast til þrautar, sama hversu á móti blæs í könnunum," segir Ágúst Ragnarsson loks. Húmanistar í Alþýðuhúsinu H-listinn hefur opnað kosninga- skrifstofu í Alþýðuhúsinu sem opin verður á kvöldin fram að kosning- um, segir Júlíus Valdimarsson kosningastjóri listans. Milli 10 og 15 manns leggja kosningabaráttu H- listans lið segir hann og verða haldnir fundir í fyrirtækjum næstu daga til þess að kynna málefni framboðsins, auk þess sem fram- bjóðendur munu gefa sig á tal við almenning. Gengið verður í hús með bæklinga að sögn Júlíusar en stuðn- ingsmenn listans hittast daglega í kaffihúsi við Hlemm. Bjarki Laxdal kosningastjóri L- listans sagði í samtali við Morgun- blaðið að framboðið starfrækti ekki kosningaskrifstofu. „Bæði fórum við seint af stað og eigum auk þess ekki fé til þess. Markmið okkar er ekki endilega að koma manni að, heldur að breyta forgangsröðun. Við höfum haldið einhverja vinnustaðafundi til þess að kynna sjónarmið okkar og munum gera slíkt hið sama með blaðaskrifum," segir hann að lokum. Ekki umtalsverð umhverf- isáhrif af Vatnsfellsvirkjun Annir hjá Landhelgisgæslu Tveir vélsleðamenn fluttir slasaðir SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hefur fallist á fyrirhugaða byggingu allt að 140 MW Vatnsfellsvirkjunar ofan Sigöldu milli Þórisvatns og Krókslóns, 220 kV háspennulínu milli Vatnsfells- og Sigölduvirkjunar og nýrrar vegtengingar á Veiði- vatnaleið, eins og þessum fram- kvæmdum er lýst í frummatsskýrslu Landsvirkjunar og Hönnunar hf. Skipulagsstjóri telur að fram- kvæmdirnar hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, nátt- úruauðlindir eða samfélag. Samkvæmt frummatsskýrslu er við mat á umhverfísáhrifum Vatns- fellsvirkjunar gert ráð fyrir Norð- lingaölduveitu. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er vatnsmiðlun þar sem meira en þrír ferkílómetrar lands fara undir vatn vegna stíflumannvirkja og/eða breyt- inga á árfarvegi matsskyld fram- kvæmd. Fyrirhuguð Norðlingaöldu- veita fellur undir það ákvæði en mat á umhverfisáhrifum hennar liggur ekki fyrir og því tekur niðurstaða skipulagsstjóra um Vatnsfellsvirkjun ekki mið af hugsanlegri Norðlinga- ölduveitu. Aðeins er þannig fjallað um allt að 140 MW virkjun við Vatnsfell óháð því hvort af Norð- lingaölduveitu verður eða ekki. Fiskur berist ekki niður fyrir lokumannvirki í niðurstöðu skipulagsstjóra segir að stórt landssvæði muni raskast við vinnslu jarðefna og vegna þess að koma þurfi fyrir jarðefnum sem falli til við framkvæmdina. Vegna útlits virkjunarsvæðisins að framkvæmd- um loknum og hættu á auknu jarð- vegs- og sandfoki þurfi að takmarka flatarmál efnistökusvæða eins og kostur er og vanda frágang þeirra. Þá sé mikilvægt að huga vel að því hvemig umframjarðefnum verði fyr- ir komið svo þau falli sem best að því umhverfi sem fyrir er. Gerðar verði athuganir á fuglalífi og gróðri við Köldukvísl og sunnan Ströngukvísl- ar áður en efnistaka hefst þar og þess verði sérstaklega gætt að hugs- anleg efnistaka úr áreyrum við Köldukvísl skaði ekki uppeldisstöðv- ar bleikju og urriða. Þá skulu einnig gerðar viðeigandi ráðstafanir í sam- ráði við Veiðimálastofnun til þess að koma í veg fyrir að fiskur berist úr Þórisvatni með veituvatninu niður fyrir lokumannvirki við Vatnsfell. Ekki er gerð athugasemd við fyr- irhueaða laenineu 220 kV hásDennu- línu eða lágmarksslóðagerð meðfram henni en til mótvægis, vegna sjón- rænna áhrifa, er lögð áhersla á að 11 kV háspennulína milli Sigölduvirkj- unar og Vatnsfellslokuvirkis verði lögð í jörðu sem fyrst. Við slóðagerð að stökum möstrum í 220 kV há- spennulínu og meðfram henni verði jarðraski haldið í lágmarki. Hönnun varanlegra vega á svæðinu taki mið af því að þeir fari sem best í landi og falli að öðrum mannvirkjum þar sem það á við. Vinnuvegir til tímabund- inna nota verði takmarkaðir eins og kostur er við það svæði sem fram- kvæmdin óhjákvæmilega raskar. Áður en framkvæmdir hefjast verður kannað hvort fornleifar sé að finna á framkvæmdasvæðum og áhersla er lögð á að haft verði sam- ráð við Náttúruvernd ríkisins og Landgræðslu ríkisins um efnisnám oe fráeane á öllu svæðinu. TVEIR menn slösuðust um helgina á vélsleðum, annar í Hornvík og hinn á Langjökli. Sá í Homvík var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar, Sif, til Isafjarðar, þaðan sem flogið var með hann í flugvél til Reykjavík- ur en hinn var sóttur á Langjökul með þyrlu Varnarliðsins og fluttur í Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi. Þeir hlutu báðir höfuðáverka en eru á batavegi, samkvæmt upplýs- ingum sérfræðings á sjúkrahúsinu. Fór fram af háu barði Vélsleðamaðurinn í Hornvík var þar á ferð með félögum sínum þegar slysið varð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði sleði hans farið fram af háu barði eftir að hafa lent á skara og maðurinn misst stjórn á honum. Maðurinn hlaut áverka á höfði og olnboga. Mennirnir létu Neyðarlínu og Landhelgisgæslu vita um slysið um kl. 16.30 og yegna þess hve löng sigl- ing var frá ísafirði í Hornvík eða um þrjár klukkustundir ákvað lögreglan á ísafirði strax að biðja um aðstoð þyrlu. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, lagði af stað um klukkan 17 en þegar hún átti stutt flug eftii’ í Hornvík var tilkynnt um vélsleða- slysið á Langjökli þar sem maður var sagður meðvitundarlaus. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bað strax um aðstoð þyrlu frá Varn- arliðinu. KI. 18, áður en hún lagði af stað, var Landhelgisgæslunni til- kvnnt um briðia slvsið. umferðarslvs í Kjós, þar sem maður var lífshættu- lega slasaður. Sjúkraflutningamenn í Kjós mátu ástandið svo að ekki væri hægt að bíða eftir þyrlu og var því maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Þar sem ekki var vitað hvenær Varnarliðsþyrla kæmist í loftið var ákveðið að vélsleðamaðurinn úr Hornvík yrði fluttur til ísafjarðar og með sjúkraflugi þaðan. Kl. 19.10 fóru tvær þyrlur Varnarliðsins frá Kefla- vík og sóttu þær slasaða manninn á Langjökul og lentu með hann við Sjúkrahús Reykjavíkur kl. 20.28. Sif lenti eftir sitt verkefni í Reykjavík þremur mínútum síðar. Sleðinn steyptist aftur á bak Samkvæmt upplýsingum lögi'egl- unnar í Borgarnesi um slysið á Lan- gjökli var þar þrennt á ferð á tveim- ur sleðum. Fólkið hafði lagt upp frá Langjökulsbúðum. Við Þursaborgir gerðist það að sleðinn steyptist aftur fyrir sig þegar maðurinn ók honum upp barð. Hann féll af sleðanum og sleðinn fór í hann á leiðinni niður en maðurinn lenti þó ekki undir honum. Hann fékk áverka á höfði og missti meðvitund. Félagi mannsins fór eftir hjálp og stúlkan varð eftir hjá honum en þau komu engum boðum frá sér. Maður- inn var síðan sóttur af Varnarliðinu en félagar í björgunarsveitinni Oki fóru upp á jökulinn og komu sleðun- um oe- stúlkunni til bve-e-ða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.