Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 53
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 53 - \ MORGUNBLAÐIÐ í i 1 ! 4 4 1 I 1 4 4 i 4 4 4 4 \ 1 4 i 4 4 1 4 í 1 4 Úr dagbók lögreglunnar Sagðist bara hafa stolið afgöngum 8.-11. maí Á FÖSTUDAGSKVÖLD var ekki margt íolk í miðborginni en mikið um unglinga og samtals um 30 unglingar fluttir í athvarf- ið. Nokkur ölvun var um nóttina en ekki slæmt ástand. Á laugar- dagskvöld var fremur fátt fólk í miðborginni, nokkur ölvun en ástandið þokkalegt. Víða um borgina var kvartað yfir ung- lingahópum með hávaða um helgina. 16 teknir fyrir ölvun við akstur 16 voru teknh fyrir ölvun við akstur og 53 fyrir hraðakstur. Þá voru allmargir stöðvaðir sem enn voru á nagladekkjum og eiga þeir von á að verða sektaðir. Snemma á laugardagsmorgun reyndi ölvaður maður að stela mótorhjóli. Hann missti hjólið yfir sig og var handtekinn. Um svipað leyti var bifreið stöðvuð í austurborginni og reyndist öku- maður réttindalaus en með tæki til fíkniefnaneyslu meðferðis. Á laugardagskvöld stöðvaði lögreglan biíreið í austurborg- inni vegna gruns um ölvun- arakstur o.fl. Þegar færa átti ökumann til blóðtöku tók hann til fótanna og hljóp heim til sín. Hann var eltur þangað en hljóp þá að heiman aftur. Vitað er hver ökumaðurinn var. Síðdegis á laugardag var ekið á konu og barn á Miklubraut, við gangbrautarljósin við Stakka- hlíð. Barnið slasaðist ekki en konan hlaut minniháttar meiðsl. Aðfaranótt sunnudags var ekið á mann í Austurstræti og stungið af. Ökumaður var handtekinn stuttu síðar. Sá sem var ekið á hlaut áverka á fæti og mjöðm. Innbrot og þjófnaðir Síðdegis á fóstudag var farið inn í ólæstan bíl í Vesturbænum og stolið hátölurum, magnara og afturhlera. Ekki verður nægi- lega brýnt fyiir fólki að læsa bíl- um sínum og þótt þeir séu læstir að skilja ekki eftir í þeim sjáan- leg verðmæti sem gætu freistað innbrotsþjófa. Aðfaranótt laug- ardags var tilkynnt innbrot í verslun við Laugaveg. Stolið var talsverðu af skiptimynt. Á sunnudagsmorgun var til- kynnt innbrot í bíl í vesturborg- inni. Stolið var útvarpi og geisla- spilara. Brotist var inn í bifreið í bílskýli í vesturborginni og stolið útvarpi og geislaspilara. Sömu nótt var farið inn i annan bíl í vesturborginni og stolið útvarps- tæki, geislaspilara og plötum. Um svipað leyti var tilkynnt inn- brot í hús við Laugaveg. Þar var farið í þrjú fyrirtæki og stolið ýmsum tækjum til ljósmyndunar og demantshring. Átök milli starfsmanns og gesta Ágreiningur varð milli starfs- manns og gesta á veitingahúsi í miðborginni á fóstudagskvöld. Einn maður hlaut minniháttar meiðsl. Aðfaranótt laugardags komu á lögreglustöð þrír menn sem höfðu lent í átökum en við það glataðist veski með 50.000 kr. Á laugardagskvöld var til- kynnt um ofurölvi hestamann sem reyndi að ríða fólk niður á gangstígum við Korpúlfsstaði. Reiðmaðurinn reyndi einnig að ríða niður lögreglumenn sem handtóku hann og fluttu í fanga- geymslu. Aðfaranótt sunnudags vora til- kynnt slagsmál innandyra í veit- ingahúsi í austurborginni. Eng- inn slasaðist en 50 þúsund króna gleraugu glötuðust. Aðfaranótt sunnudags kom nefbrotinn maður á miðborgar- stöð. Hann kvaðst hafa verið sleginn á veitingahúsi í miðbæn- um. Lögreglan flutti manninn á slysadeild. Tilkynnt voru slags- mál í austurborginni um svipað leyti. Einn maður var fluttur á slysadeild með áverka á höfði og er hann talinn hafa dottið. Upp úr kl. hálffjögur á sunnudags- morgni voru tilkynnt slagsmál á Ingólfstorgi. Þaðan var stúlka, sem hafði verið brennd með vindlingi, flutt á slysadeild. Um sama leyti voru slagsmál í Þing- holtunum, einn var handtekinn og annar fór sjálfur á slysadeild. Eldi kastað inn um glugga Síðdegis á föstudag var til- kynnt um reyk í íbúð í Selja- hveifi. Betur fór en á horfðist, þarna hafði gleymst pottur á hellu en skemmdir urðu litlar. Á sunnudagsmorgun var til- kynnt um eld í bíl á Njálsgötu. Slökkviliðið slökkti eldinn. Um hádegi á sunnudag var tilkynnt um eld í bílskúr í Hólahverfi. Þar mun hafa kviknað í út frá loft- pressu. Slökkvilið slökkti eldinn og skemmdir eru taldar fremur litlar. Um sama leyti var eldi kastað inn um glugga í húsi í Vesturbænum. Þar kviknaði í gluggatjaldi en var strax slökkt af íbúum. Síðdegis á sunnudag var kveikt í sólpalli við hús í Hlíðunum. íbúi slökkti eldinn og skemmdir urðu litlar. Fimm sinnum var tilkynnt um sinubruna um helgina. Þeir voru allir minniháttar og strax slökkt- ir. Vert er að minna á að nú eru allir sinubrunar bannaðir, enda fara fuglar að verpa. Sprangaði um með haglabyssu Fjögurra ára stúlka týndist á fostudagskvöld í Fellahverfi. Hún fannst heil á húfi þremur tímumm seinna í hverfmu. Um svipað leyti var bifreið stöðvuð á Hringbraut. Þá fundust 2 g af amfetamíni og 130 steratöflur. Snemma á laugardagsmorgun féll maðm’ í götuna í miðborginni og hlaut skurð á hnakka. Hann vai’ fluttur á slysadeild. Á laug- ardaginn féll kona af hestbaki í Víðidal og hlaut höfðuðhögg. Hún var flutt á slysadeild Á laugardagskvöld var til- kynnt um átta ára pilt sem sprangaði um með haglabyssu. Byssan reyndist óhlaðin og hafði pilturinn náð í hana úr farangri, en fjölskyldan vai’ að flytja. Um svipað leyti varð sprenging í bið- skýli í Skútuvogi. Nokkrar skemmdir urðu á skýlinu og voru fjórir ungir menn handteknir, grunaðir um verknaðinn. Seint á laugardagskvöld var tilkynnt um mann að stela túnþökum við nýju göngubrúna á Kringlumýrar- braut. Maðurinn viðurkenndi verknaðinn en kvaðst eingöngu hafa tekið afganga! Aðfaranótt sunnudags var maður handtekinn sem hafði ít- rekað hringt til lögreglu og Neyðarlínu og tilkynnt um vopn- aðan mann á veitingahúsi og mikinn eld í eldhúsi sama veit- ingahúss. FRÉTTIR Námskeið um heilbrigði trjágróðurs GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Reykjum í Ölfusi í samvinnu við Skógrækt og Landgræðslu ríkisins verða með námskeið í Félagsheimil- inu Borg í Grímsnesi laugardaginn 16. maí frá kl. 10-16 um heilbrigði trjágróðurs. Guðmundur Halldórsson, sér- fræðingur í meindýrum, og Halldór Svemsson, sérfræðingur í plöntu- sjúkdómum, verða fyrirlesarar dagsins. Þeir munu m.a. fjalla um helstu meindýr, sjúkdóma og veður- farsskemmdir á trjágróðri og hvernig draga má úr áhrifum helstu skaðvalda. Skráning og nánari upp- lýsingar um námskeiðið fást á skrif- stofu Garðyrkjuskólans. Sinubruni á Tálknafírði Tálknafírði. Morgunblaðið. TÖLUVERÐUR sinubruni varð á Tálknafirði sl. föstudag. Óvíst er um upptök eldsins, en talið að óvitar eigi þar hlut að máli. Svæðið sem brann er utan og of- an við Árbæjartóftir og Hólsengjar, á að giska einn og hálfur hektari að flatarmáli. Fjöldi manns tók þátt í að hefta útbreiðslu eldsins og með aðstoð slökkviliðs Tálknafjarðar tókst að ráða niðurlögum hans á u.þ.b. einni og hálfri klukkustund. Börn og unglingar tóku virkan þátt í slökkvistarfinu og mátti heyra á þeim mörgum að þau voru ánægð með það að geta orðið að liði. Mik- inn reyk lagði yfir hluta af þorpinu. Á síðastliðnu sumri tók fjöldi sjálfboðaiiða þátt í gróðursetningu trjáplantna í svæðið sem brann. Styrkur með opið hús STYRKUR, samtök krabbameins- sjúklinga og aðstandenda þeirra, er með opið hús í dag, þriðjudaginn 12. maí, ld. 20.30 í Skógarhlíð 8. Gestur fundarins er Örn Jónsson sjúkra- nuddari. Erindi hans nefnist: Að anda að sér hinni gullnu lífsorku. Kaffiveitingar verða á boðstólum. Þessi fundur er sá síðasti í vetur og eru allir velkomnir. Aðalfundur FOK FORELDRA- og kennarafélag Breiðholtsskóla heldur aðalfund sinn í kvöld, þriðjudaginn 12. maí kl. 20 í hátíðasal Breiðholtsskóla. Gest- ir verða Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir og Árni Sigfússon. Fundarstjóri verður Einar Þorsteinsson. FJÖLMARGAR myndir prýða bók Kjartans Jónssonar um kristniboðsköllun kirkjunnar. Ný bók um kristniboðsköll- un kirkjunnar KOMIN er út bókin Lifandi kirkja - um kristniboðsköllun kirkjunnar eftir Kjartan Jónsson kristniboða. Fjallar hún um grundvallarforsend- ur kristniboðs og er rituð til að efla skilning á eðli þess og kristni- boðsköllun kirkjunnar. Bókin, sem er um 120 blaðsíður, hefur að geyma guðfræðilega um- fjöllun um kristniboð og stöðu þess í heiminum í dag. Sérstakur kafli er um áhrif þess á menningu þjóða. Einnig er fjallað sérstaklega um starf Sambands íslenskra kristni- boðsfélaga. Hverjum kafla lýkur með spurningum og verkefnum. Höfundur bókarinnar útskrifaðist sem guðfræðingur frá Háskóla Is- lands árið 1980 og kristniboðsfræð- ingur frá Fuller guðfræðistofnun- inni í Bandaríkjunum árið 1991. Hann starfaði með litlum hléum sem kristniboði í Kenýa árin 1981 til 1995. Edda Möller, framkvæmdastjóri Skálholtsútgáfunnar sem er útgef- andi bókarinnar, kynnir hana í dag á ráðstefnu um kirkju og kristniboð, en þar mun herra Karl Sigurbjörns- son, biskup íslands, segja frá ný- legri ferð sinni til Kenýa og Eþíóp- íu. Hefst ráðstefnan klukkan 17 í Háteigskirkju í Reykjavík. Egilsstaðir Rætt um ferða- þjónustu FERÐAÞJÓNUSTUBRAUT Menntaskólans á Egilsstöðum og ferðaþjónustufélagið Forskot halda fund í sal menntaskólans kl. 20 mið- vikudagskvöldið 13. maí. Þar verður kynning á ferðaþjón- ustubraut Menntaskólans. Einnig verður skýrt frá verkefninu Hand- verk og ferðaþjónusta og rætt verð- ur um ferðamál. Bilvelta í Staf- holtstungum ÖKUMAÐUR fólksbíls á norð- urleið var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi í fyirinótt eftir að hann hafði velt bíl sínum á Vesturlandsvegi rétt við af- leggjarann að bænum Munað- amesi í Stafholtstungum í Borgarfirði í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu fór bíllinn a.m.k. eina til tvær veltur og hafnaði á hvolfi. Ökumaðurinn rotaðist og var í bílnum þegar að var komið. Hann var fyrst fluttur til skoðunar á Heilsugæslu- stöðina í Borgarnesi og síðan áfram á Sjúkrahúsið á Akra- nesi. Hann var með skurði á höfði og kvartaði undan eymsl- um í hálsi. Fundur um stefnumótun í gæðamálum innan heilbrigð- iskerfísins HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið efnir til fundar með dr. Kirsten Staehr Johansen frá gæðastjórnunarsviði Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar á morg- un, miðvikudaginn 13. maí kl. 9-12. Fundurinn verður haldinn í Borgar- túni 6 og eru allir velkomnir. Dr. Kirsten Staehr Johansen fjallar um hugmyndafræði og grundvallarþætti í þróun gæða- stjómunar og gæðameðferðar. Kynntar verða niðurstöður gæða- verkefna á sviði fæðingarhjálpar og bakverkja og tengsl þeirra við þunglyndi og sagt verður frá at- hyglisverðum niðurstöðum gæða- könnunar á blóðnotkun við skurðað- gerðir. Erindin verða flutt á ensku. LEIÐRÉTT Fæðingarár í FORMÁLA minningargreina um Ögmund Guðmundsson á blaðsíðu 40 í Morgunblaðinu sunnudaginn 10. maí misritaðist fæðingarár eins af bömum Ögmundar, Ágústs, sem fæddur er 1946. Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar á mistökun- um. Maí en ekki apríl í sunnudagsblaðinu var. fréttatil- kynning frá Kvennakór Reykjavík- ur um vortónleika kórsins í Lang- holtskirkju. Þar var sagt að allir tónleikarnir væru í apríl. Það er að sjálfsögðu ekki rétt, þeir em í maí. I lotcl f.ídllcióji J4. inaí IÖVS I2.Á0 Innskráning Setningmálþings: Valgeröur Hildibrandsdóttir. Eldliúsi Landspítala II 13171 171111 7 111II Trygging gæða frá hafi og haga til maga 16:05 Reynslaafflutningumhráefhisog matvæla á landsbyggðinni: Kjartan I lreinsxon, KASK 16:20 Almennarumræður Gæðakeðjan frá búi að borði: Jón Gunnar Jónsson, Sláturfélagi Suðurlands Fiskur - trygging gæða frá hafi til maga: Kristján JóaKimsson.Hraðfrystihúsinu I Inífsdal 14:25 Getur gæðastjómun lækkað kostnað við eftirlit? Baldur Hjaltason, Lýsi hf. 15:30 Flutningar matvæla á landi og sjó: Kristinn Þór Geirsson, Samskipum hf. 16:50 Málþingsslit: Fundarstjóri: Ragnheiður Héðinsdóttir, SI Verð Félagsmenn GSFÍ, SI og starfsfólk RF og Búnaðarsamtakanna Aðrir: Nemendur: Upplýsingar og skráning ísíma 511-5666 eða með tölvupósti: gsfi@vsi.is. kr. 4.900,- kr. 6.900,- kr. 1.900,- íAMTÖK I0NABAWWS —.... GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG (SIANÐS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.