Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ - ERLENT Breska ríkisstjórnin í vanda vegna vopnasölu til Afríkuríkisins Sierra Leone Robin Cook utanríkisráð- herra útilokar ekki afsögn Reuters ÍBÚAR Sierra Leone fagna heimkomu Kabbah forseta úr 10 mánaða útlegð í marz sl. Breskar vopnasend- ingar hjáipuðu til við að koma honum aftur til valda eftir að herforingjar höfðu steypt honum. Gro segir reyking- um stríð á hendur GRO HARLEM Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, sem nú stýrir Al- þjóðaheil- brigðisstofn- uninni (WHO) til- kynnti í gær að verndun ungs fólks gegn reyk- ingum yrði hér eftir eitt af stefnumálum stofnunarinn- ar og sagðist hún viija að fram færi ítarleg kynning á skað- semi reykinga. Handtöku- skipun á Bhutto STJÓRNVÖLD í Pakistan gáfu í gær út handtökuskipun á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, eft- ir að hún lét ekki sjá sig fyrir rétti sem fjallar um ásakanir á hendur henni. Bhutto er sökuð um að hafa með ólögmætum hætti ráðið meira en eitt þús- und manns til starfa í ríkisfyr- irtækjum á meðan hún gegndi embætti forsætisráðherra. Átök á Indlandi FLEIRI en tíu þúsund manns hafa flúið heimili sín í Assam- héraði, í norðausturhluta Ind- lands, eftir að tveimur þjóðar- brotum laust saman. Yfir fjörutíu manns hafa látist í átökunum undanfamar tvær vikur og eiga yfirvöld á svæð- inu nú í vandræðum með að hýsa þann íjölda fólks sem flú- ið hefur átakasvæðin. Eidesgaard hyggur á frama JÓANNES Eidesgaard, fær- eyskur þingmaður jafnaðar- manna á danska þinginu, sem valdið hefur usla í ríkisstjóm Pouls Nyraps Rasmussens vegna Færeyjabankamálsins svokallaða, hyggur á viðræður við ríkisstjómina um hvaða hlutverk hann geti tekið að sér ef allt fer vel í bankamálinu. Með stuðningi Eidesgaards héngi þingmeirihluti ríkis- stjómarinnar ekki lengur á bláþræði. Estermann ekki í Stasí? MARKUS Wolf, fyrrverandi yfirmaður austur-þýsku leyni- þjónustunnar Stasí, sagði í gær að sér vitandi hefði Alois Estermann, yfirmaður her- sveita páfa sem myrtur var í síðustu viku, ekki verið njósn- ari fyrir Stasí. Wolf sagði jafn- framt að Stasí hefði haft „enn mikilvægari" innanbúðarmann á sínum snæram í Vatíkaninu en kvaðst ekki geta nafngreint hann. Neitar þó að hafa samþykkt ólög- lega vopnasölu London. Reuters, The Daily Telegraph. ROBIN Cook, utanríkisráðherra Bretlands, viðurkenndi á sunnudag að hann og aðstoðarráðherrar hans gætu þurft að segja af sér ef óháð rannsókn leiddi í ljós að þeir bæru ábyrgð á ólöglegri vopnasölu til Vestur-Afríkuríkisins Sierra Leone fyrr á árinu. Málið snýst um ásakanir þess efn- is að embættismenn breska utanrík- isráðuneytisins hafi brotið bann Sa- meinuðu þjóðanna við sölu vopna til Sierra Leone með því að leyfa breska fyrirtækinu Sandiine Intemationaí að selja stuðnings- mönnum Ahmad Tejan Kabbah, for- seta landsins, vopn. Kabbah var kjörinn forseti Sierra Leone 29. mars 1996 en flúði landið í maí á liðnu ári þegar herforingjar steyptu honum. Forsetinn komst aftur til valda 10. mars sl. eftir að hersveitir Vestur-Afríkuríkja, erlendir málalið- ar og stuðningsmenn forsetans hröktu herforingjastjómina frá Freetown, höfuðborg landsins. Sandline Intemational, sem sér- hæfir sig í hemaðarráðgjöf, aðstoð- aði stuðningsmenn Kabbah í hemað- araðgerðunum, sendi þeim m.a. vopn, sem keypt vora í Búlgaríu, og þjálfaði um 40.000 hermenn. Fyrir- tækið fullyrðir að þetta hafi verið gert með fullu samþykki bresku stjómarinnar en Cook neitar því og segir að embættismennimir hafi lát- ið hjá líða að skýra honum frá vopna- sölunni. Alvarlegasta hneykslismál stjóraarinnar Reynist ásakanimar réttar stend- ur stjóm Verkamannaflokksins frammi fyrir alvarlegasta hneykslis- málinu frá því hún komst til valda fyrir rúmu ári. Cook aflýsti fyrirhuguðum fund- um sínum á sunnudag til að geta ein- beitt sér að því að verja sig og þykir það tii marks um hversu alvarlegt málið er orðið. Utanríkisráðherrann kvaðst ekki hafa samþykkt að vopnasölubannið yrði brotið en viðurkenndi að hann eða aðrir ráðherrar kynnu að þurfa að segja af sér ef óháð rannsókn, sem hann hefur lofað, leiddi í Ijós að þeim hefðu „orðið á mistök, að þeir hefðu villt um fyrir þinginu af ásettu ráði eða tekið upp ranga stefnu“. „Ég viðurkenni þetta, en ég veit að ég hef ekkert að fela,“ bætti hann við. Afanila. Reuter. UTGÖNGUSPÁR bentu til þess í gær, að Joseph Estrada, fyirver- andi kvikmyndastjama, hefði sigr- að í forsetakosningunum á Filipps- eyjum í gær. Einkenndust kosn- ingamar af miklu ofbeldi eins og jafnan áður en að minnsta kosti sjö manns týndu lífi á kjördag og alls 41 frá því kosningabaráttan hófst. 34 milljónir manna vora á kjör- skrá en búist var við, að kosninga- þátttakan yrði um 60%, sem þykir ekki slæmt og síst með það í huga, að hitinn var víða um 38 stig. Var tekist á um 17.000 sæti, forseta- Cook varði aðstoðarráðherra sinn, Tony Lloyd, og sagði að ekkert væri hæft í fréttum um að Lloyd hefði boðist til að segja af sér eftir að hafa veitt utanríkismálanefnd þingsins villandi upplýsingar um málið í vik- unni sem leið. Lloyd hefur tvisvar sinnum veitt þingnefndinni óná- kvæmar eða villandi upplýsingar um málið. Sunday Times birti á sunnudag myndir af þyrlu í eigu Sandline Intemational um borð í breska her- skipinu Comwall undan strönd Si- erra Leone. Blaðið sagði að mynd- irnar sönnuðu að breska stjómin hefði verið viðriðin hernaðaraðgerð- irnar. Cook sagði hins vegar að mynd- imar hefðu verið teknar eftir að Kabbah komst til valda að nýju og þyrlan hefði verið þama vegna þess að stjómarhermenn Sierra Leone hefðu aðstoðað við að flytja lyf og hjálpargögn til afskekktra svæða í landinu. Fullyrðingar Cooks dregnar í efa Einn af þingmönnum Verka- mannaflokksins viðurkenndi að mál- ið væri ,Jdúður“ fyrir stjórnina og vinir Cooks sögðust óttast að jafnvel þótt hann þyrfti ekki að segja af sér vegna málsins myndi staða hans embættá, ríkisstjóra- og borgar- stjóraembætti og sæti á þingi og í sveitarstj ómum. Úrslit eftir hálfan mánuð Flestar skoðanakannanir hafa bent til, að Estrada myndi sigra og útgönguspá, sem birt var eftir að kjörstöðum var lokað klukkan 19 að staðartíma, sýndi, að hann hefði fengið miklu meira fylgi en keppi- nautamir níu. Samkvæmt henni fær hann 34,6% atkvæða eða helm- ingi meira en Jose de Venecia, for- verða svo veik að hann gæti ekki gegnt embættinu sem skyldi. Donald Anderson, formaður utan- ríkismálanefndarinnar, viðurkenndi að málið hefði skaðað stjómina en bætti við að engar sannanir væra fyrir því að Cook eða einhver annar ráðherra hefði vitað af vopnasölunni og samþykkt hana. William Hague, leiðtogi íhalds- flokksins, gaf til kynna að hann hygðist leita svara við þvi hvort Tony Blair forsætisráðherra væri viðriðinn hneykslismálið. Frjálslynd- ir demókratar hvöttu Cook tíl að láta rannsaka hvort rétt væri að vamar- málaráðuneytið hefði einnig sam- þykkt vopnasöluna. Hague kvaðst ekki trúa því að embættismenn utanríkisráðuneytis- ins hefðu heimilað hernaðaríhlutun í erlendu ríki án vitneskju og sam- þykkis ráðherra. .Aonaðhvort segja ráðherrarnir ekki sannleikann eða hafa verið furðulega aðgerðalausir og duglausir í tílraunum sínum tíl að hafa stjóm á ráðuneytum sín- um.“ David Owen lávarður, sem var ráðherra í síðustu stjóm Verka- mannaflokksins á áttunda áratugn- um, kvaðst telja að breska leyniþjón- ustan MI6 væri viðriðin vopnasöl- una. „Ég hygg að það sé ómögulegt að trúa því að embættísmenn utan- seti þingsins og frambjóðandi stjómarinnar. Fékk hann stuðning 16,8%. Endanleg úrslit verða ekki ljós fyrr en eftir hálfan mánuð. Mikið ofbeldi hefur einkennt kosningabaráttuna en samt minna en oft áður. 1996 kostaði hún 65 manns lífið og 60 1992. Er það mest á tiltölulega litlum svæðum í suðurhluta eyjanna þar sem lengi hefur verið ófriður milli fólks af ólíkum ætt- og trúflokkum. í bæj- um á þessum slóðum býður enginn sig fram nema hafa með sér vel vopnaða sveit. rfldsráðuneytisins hafi ekki fengið einhvers konar fyrirmæli og að MI6 hefur að öllum lfldndum átt hlut að máli,“ sagði hann. Demantafyrirtæki óskuðu eftir aðstoðinni The Sunday Times segir að vopn- in, sem Sandline seldi, séu enn notuð í bardögum gegn fyrrverandi stjóm- arhermönnum og uppreisnarmönn- um, sem hafa verið sakaðir um ýmis grimmdarverk, m.a. mannát, nauðg- anir, pyntíngar og limlestingar. St- arfsmenn hjálparstofnana í Sierra Leone sögðu um helgina að upp- reisnarmennirnir hefðu aflimað 200 manns í norðurhluta landsins síðasta hálfa mánuðinn. Sandline Intemational er systur- fyrirtæki DiamondWorks, sem hefur leigt demantanámu i Sierra Leone. Hundruð erlendra starfsmanna Di- amondWorks og annarra demanta- fyrirtækja urðu að flýja landið eftir valdarán herforingjanna og fyrir- tækin áttu á hættu að tapa miklum fjárhæðum ef Kabbah yrði ekki kom- ið til valda að nýju. Breski kaup- sýslumaðurinn Tony Buckingham, helstí hluthafinn í DiamondWorks, og fleiri fjármálamenn eru því sagðir hafa gripið til þess ráðs að biðja Sandline um að aðstoða við að steypa herforingjastjóminni. Sviss fari ÍSÞ FORSETA Sviss þykir tíma- bært að landið sæki um aðild að Sameinuðu þjóðunum (SÞ). Lét Flavio Cotti þessi orð falla við setningu ársþings Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf í gær. Sökum hlutleysisstefnu sinnar hefur Sviss kosið að standa utan ým- issa alþjóðasamtaka, þar á meðal SÞ. Cottí sagði Svisslendinga hafa komist að mikilvægi al- þjóðlegrar samvinnu með aðild þeirra að WHO, sem raunar er ein stofnana SÞ. Cotti talar þó ekki fyrir munn allra samlanda sinna, sem höfn- uðu þátttöku í friðargæslu SÞ 1995. Neftid hefur verið sett á fót til að vinna að þjóðarat- kvæðagreiðslu um málið. Gro Harlem Brundtland Ofbeldisfullar forsetakosningar á Filippseyjum Flest bendir til sannfær- andi sigurs Joseps Estrada > E > I I > > > > > > > > > > f > > > > > > » > >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.