Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 1

Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913 18. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Óbreytt vígstaða í Grosní Pútín varar við sprengju- tilræðum Grosní, Moskvu. AFP, AP. STARFANDI forseti Rússlands, Vladímír Pútín, sagði í gær að hætta væri á að skæruliðar Tsjetsjena gripu til hermdarverka í Rússlandi. Síðastliðið haust fórust hundruð óbreyttra borgara í tilræðum í rúss- neskum stórborgum og kenndu stjórnvöld Tsjetsjenum um þau. Forsetinn minntist ekki á afdrif rússneska hershöfðingjans Míkhaíls Malofeyevs sem var yfirmaður herja Rússa í norðurhluta Tsjetsjníu. Skæruliðar, sem enn verjast í Gros- ní, handsömuðu hann og hafa nú í haldi á leynilegum stað, líklega utan við borgina. ígor Sergejev, varnar- málaráðherra Rússlands, sagði í sjónvarpsviðtali að hershöfðinginn hefði verið að kanna aðstæður á víg- línunni í Grosní. „Hann tók að sér óvenjulegt hlut- verk sem hafði að markmiði að efla baráttu herliðsins," sagði ráðherr- ann en viðurkenndi að hann vissi ekki hvort Malofeyev væri á lífi. Einn af leiðtogum skæruliða, Khattab, ofstækisfullur múslimi sem talið er að sé ættaður frá Sádí-Ara- bíu, sagði í gær í viðtali við sjón- varpsstöð í Persaflóaríkinu Qatar að ekki kæmi til mála að hefja nú samn- inga um frið við Rússa. Tsjetsjenar gætu barist til elífðarnóns, en ekki væri víst að sama máli gegndi um Rússa. Hann var spurður hvort Tsjet- sjenar myndu gera árásir í rússnesk- um borgum en svaraði aðeins að orr- ustan færi nú fram „í Tsjetsjníu en ekki utan héraðsins“. Lögðu undir sig þinghúsið Um 1500 andstæðingar ríkisstjórnarinnar í Ekvador lögu í gær undir sig þinghúsið í höfuðborginni, Qui- to, og lýstu yfir myndun nýrrar ríkisstjórnar. Fólk- ið var flest úr röðum indíána, frumbyggja landsins, og ruddist í gegnum gaddavírsgirðingar og röð varðmanna. Um 10.000 manns umkringdu síðan húsið; þingið var ekki að störfum. Nokkrir hermenn tóku þátt í aðgerðunum en yfirmenn hersins sögðu að hann yrði trúr forsetanum, Jamil Mahuad, sem hefur verið hart gagnrýndur siðustu daga, m.a. fyr- ir að ætla að tengja gjaldmiðil Ekvadors við Banda- ríkjadollar. Efnahagur landsins er slæmur, þjóðar- framleiðsla hefur minnkað um sjö prósent og verðbólga er um 60 prósent. AP Mariela Quintana, fjórða f.v., og Raquel Rodriguiez, þriðja f.v., ömmur Elians Gonzalez.við komuna til Kennedyflugvallar í gær. Með þeim eru fulltrúar bandarískra kirkjusamtaka. Kúbverski drengurinn • • Ommurnar reyna að hafa áhrif Havana, Washington. AP. ÖMMUR kúbverska flóttadrengsins Elians Gonzalez flugu til Bandaríkj- anna í gær til að reyna að hafa áhrif á þróun forræðisdeilunnar sem mynd- aðist í kjölfar þess að Elian fannst á reki á gúmmíslöngu fyrir utan strönd Flórída í lok síðasta árs. Þær Raquel Rodriguez og Mariela Quin- tana lentu í New York þar sem þær munu hitta Charles Rangel, þing- mann demókrata, sem lagst hefur gegn því að Elian verði sendur til föður síns á Kúbu. Delfin Gonzalez, einn ættingja Elians, sagði að drengurinn yrði ekki sendur til New York að hitta ömmur sínar. Þeim væri velkomið að heim- sækja Elian til Miami, en yrði ekki leyft að taka hann með sér heim. At sönnun- argagnið Njósnadeilur Rússa og Pólverja Níu reknir heim London. The Daily Telegraph. LÖGFRÆÐINGURINN Stephen Rich í Bretlandi varð að fara fram á frest hjá dómara eftir að hundur át mikilvægt sönnunargagn í dóms- máli sem hann vann að. En afsökun Richs hljómar á við þær sem skóla- krakkar kynnu að veita fyrir að hafa ekki unnið heimavinnuna sína. Rich var að gæta hundar vinar síns á sama tíma og hann undirbjó málsvörn fyrir skjólstæðing. Rich skildi hundinn eftir einan í vinnu- herberginu eitt augnablik, en þeg- ar hann sneri aftur var tíkin Nalla vafin inn í myndbandspólu úr eftir- litsmyndavél og var í óða önn að rífa spóluna í sig. „Þetta var mjög neyðarlegt og dómarinn virtist ekki mjög hrif- inn,“ sagði Rich, en málinu var frestað þar til nýtt afrit hefði verið tekið af myndbandinu. Moskvu. AFP. RÚSSNESK stjórnvöld ráku í gær úr landi níu pólska sendiráðs- starfsmenn og var ljóst að um var að ræða svar við því að Pólverjar ráku á fimmtudag níu Rússa úr landi fyrir njósnir. Ástæðan fyrir brottrekstri Pólverjanna var einn- ig sögð vera njósnir. Pólska stjórnin sagði á fimmtu- dag að leyniþjónusta landsins hefði „flett ofan af og fundið sannanir fyrir umfangsmiklum njósnum er beindust gegn hagsmunum Póll- ands og hópur rússneskra borgara með stöðu stjórnarerindreka stóð fyrir“. Formaður upplýsinganefndar pólska þingsins, Jozef Gruszka, sagði að njósnirnar hefðu einkum beinst að efnahagslegum og stjórnmálalegum þáttum. Málið er alvarlegasta deila sem upp hefur komið í samskiptum landanna tveggja eftir hrun kommúnismans. Fyrr í gær hafði Ivan Ivanov, ut- anríkisráðherra Rússlands, heitið „hörðum og viðeigandi" viðbrögð- um vegna aðgerða pólskra stjórn- valda. Hann sagði brottreksturinn vera ögrun. „Ég veit ekki hver tók ákvörðunina. Var það stjórnin í Varsjá eða var hún tekin að skipun einhvers annars aðila?“ spurði ráð- herrann. Talsmenn rússnesku leyniþjón- ustunnar sögðu að Pólverjar væru aðeins að vinna sig í álit hjá Vest- urveldunum. „Þeir myndu aldrei hafa tekið svona ákvörðun upp á eigin spýtur,“ sagði einn þeirra. Klima reyn- ir stjórnar- myndun Vín. AFP, AP. THOMAS Klestil, forseti Austurrík- is, fól í gær Viktor Klima, kanzlara og leiðtoga austurrískra jafnaðar- manna, að halda áfram umleitunum um myndun nýrrar ríkisstjórnar, eftir að samkomulag um endumýjun stjórnarsamstarfs jafnaðarmanna og íhaldsmanna fór út um þúfur í fyrrinótt. Klestil hafnaði ekki með öllu til- lögu Klimas um að reyna að mynda minnihlutastjórn eftir að ný stjórn Jafnaðarmannaflokksins (SPÖ) og Þjóðarflokksins (ÖVP) reyndist and- vana fædd þegar slitnaði upp úr við- ræðum flokkanna um skiptingu ráðuneyta vegna krafna Þjóðar- flokksmanna um ákveðnar umbætur á sviði ríkisfjármála og félagsmála. Á miðvikudag hafði verið tilkynnt að flokkarnir tveir hefðu náð samkomu- lagi um nýjan stjórnarsáttmála, þremur og hálfum mánuði eftir að þingkosningar fóru fram í landinu. Klima staðfesti í gær að hann væri hættur að reyna að koma á formlegu stjórnarsamstarfi sem hefði örugg- an þingmeirihluta á bak við sig. „Eg ætla að einbeita mér að því núna að setja þessa minnihlutastjórn á lagg- irnar, með öðrum orðum, þessa rík- isstjórn sem jafnaðarmenn veita for- ystu en nýtur ekki þingmeirihluta," sagði kanzlarinn í sjónvarpsviðtali. Stjórnmálaskýrendur eru flestir á einu máli um að slík minnihluta- stjórn geti ekki gert sér vonir um langa lífdaga og Klima viðurkenndi sjálfur að hann teldi ólíklegt að hún héldi velli heilt kjörtímabil. Haider vill meirihlutastjórn Mistakist Klima ætlunarverk sitt mun það gera stjórnmálakreppuna í Austuníki enn alvarlegri og koma hinum hægrisinnaða Frelsisflokki Jörgs Haiders í lykilaðstöðu, en skoðanakannanir sýna að hann hef- ur aukið stuðning sinn meðal kjós- enda í ljósi vandræðagangs flokk- anna tveggja sem hafa verið saman við völd undanfarin 13 ár. Frelsis- flokkurinn fékk næstflest atkvæði í þingkosningunum 3. október sl. Haider sagði á blaðamannafundi í gær að hann og hans menn fylgdust grannt með framvindu mála. „Það verður að reyna til þrautar alla möguleika á að koma saman starf- hæfum meirihluta,“ sagði hann. „Einn möguleikinn á öruggum meirihluta er blá-svart stjómar- samstarf [þ.e. milli Frelsisflokks og Þjóðarflokks], og ég tel að við ættum að skoða hann vandlega núna. Það væri líka í samræmi við vilja kjós- enda,“ sagði Haider. ■ „Kerfisskelfirinn“ Haider/26 MORQUNBLAÐIÐ 22. JANÚAR 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.