Skírnir - 01.01.1894, Qupperneq 73
Tyrkland.
73
í lækjum út úr kirkjunni. 32 þorp voru brennd og hjer um bil jafnmörg
rænd. Ovíst er, hve margt manna var drepið, lægst er gizkað á 6000,
en sumir segja, .að tala hinna myrtu manna muni nema 16,000. — Enn
er ðvíst, þegar þetta er ritað, hvað gert muni verða til að girða fyrir
það, að Tyrkir hafi framvegis slíka ðhæfu í frammi, en líklegt talið, að
Bretar, Frakkar og Rússar mnni fylgjast að einu máli um, að rjetta hlut
Armeníumanna og leggja einhver bönd á meðferð Tyrkja á kristnum
mönnum.
Kólera gerði allvíða vart við sig í Norðurálfunni þetta ár, einkum
þó í austlægu löndunum, sjerstaklega á Bússlandi og Póllandi. í Pjot-
ursborg dðu úr henni 294 dagana frá 8. til 14. júlí. Og í þeirri borg
lágu sjúkir af henni á spítölum rúmlega 1000 manna þ. 25. júlí. Tii
Þýzkalands, Hollands, Belgíu og Prakklands barst hún og, en ekki kvað
eins mikið að henni þar eins og austur frá.
Veðrátta í Norðurálfunni. Víða á suðurlöndum voru óvenjulega
hörð frost eptir nýárið og snjókoma með mesta móti, einkum i hinum
eystri fylkjum Bússlands. Þ. 11. og 12. febrúarmán. reið ofsastormur
yfir norðurhluta álfunnar, svo mikill, að fáir muna meira ofveður. Á
Norður-Þýzkalandi hrundn sumstaðar kirkjuturnar í grunn fyrir honum,
en mannskaða ekki getið. — Þ. 7. júní kom haglhríð afarmikil í Vínarborg
og þar umhverfis, svo að enginn veit dæmi til slíks þar um slóðir. Er
sagt, að í borginni hafi brotnað á aðra miljón af gluggarúðum. Hargir
meiddust af haglinu, sagt að um 200 manns hafi særzt. — í lok ágústm.
kom hellirigning með hagli og ofsastormi á norðanverðu Prakklandi, í
Belgíu og í útsuðurhluta Þýzkalands. Hlauzt af því óveðri afarmikið tjón
á húsum, ökrum, skógum og fjenaði. — í lok nóvembermánaðar kom ó-
veður mikið, froststormur og hellirigningar, á Englandi; fylgdu því veðri
óvenjuleg árhlaup, og hlutust af skemmdir miklar og mannskaðar. Er
ckki í maunaminnum dæmi slíks vaxtar í Temsá og um mörg stræti Lund-
únaborgar varð að fara á bátum. Svo komu aptur stormar miklir rjett fyr-
ir jólin á Englandi og víða i norðurhöfum og varð þá tjón allmikið á skipum og
ógurlegarhrakningar. — Annars tið fremur góð og uppskera víðastíbetra lagi.
Ofriður Japansmanna og Kínverja. Prá honum skai hjer skýrt
með nokkrum orðum, þótt fijótt verði yfir sögur að fara.