Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984. 3 Krafa olíufélaganna: Stjórn UÚígærdag: Hærra f iskverð, lægra olíuverð — einnig lýst yf ir stuðningi við aðgerðir útgerðarmanna á Austf jörðum „Stjórn LlU leggur mesta áherslu á aö fiskverð verði hækkað og olía, sem er langstærsti þátturinn í út- gerðarrekstrinum, verði með opin- berum aðgerðum lækkuö verulega í verði.” Þannig segir í samþykkt sem stjórn LIU gerði á fundi sínum í gær sem haldinn var vegna þeirrar stööu sem upp er komin h já útgerðinni. Ennfremur segir: „Stjórn LlU lýsir stuöningi við aðgerðir útgerðar- aðila á Austfjörðum.” I samþykktinni er greint frá því hvers vegna fjárhagsstaða útgerðar- innar sé svo slæm sem raun ber vitni. Þarsegir: „Verulegur samdráttur hefur orðið í tekjum vegna minnk- andi afla. Á sama tíma hefur út- gerðarkostnaðurinn vaxið, m.a. vegna hækkunar á brýnustu Nýtt f iskverð ekki ákveðið um heigina — „lítið miðað íátt til samkomulags” „Það hefur lítið miöað í átt til samkomulags,” sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar og oddamaöur í yfimefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins, mn nýtt fiskverð í gær. Hann sagði ennfremur að næsti fundur í yfirnefndinni yrði haldinn á mánudag. Eins og fram hefur komiö í frétt- um er mikil ólga í útvegsmönnum vegna stöðu útgerðarinnar og því er beðið eftir nýju fiskverði að þessu sinni með óvenju mikilli eftir- væntingu. -JGH. rekstrarvörum eins og olíu og veiðarfærum. Stjórn LlU lýsir ábyrgð á hendur stjórnvöldum ef þau láta við svo búiö standa, því það muni leiða til ófyrir- sjáanlegra afleiðinga fyrir sjómenn og verkafólk um allt land. ’ ’ Einnig er getið um að skuldbreyt- ing komi að gagni við lausn vandans enekkiþó ein sér.” „Frestað er að boöa til almenns fundar um vandamál útgerðarinnar meðan óvissa ríkir um viðbrögð stjórnvalda.” -JGH Svartolfa til skipa hækki um 20 prósent — og verðið á gasolíunni hækki um rúm 8 prósent Olíufélögin fara nú fram á að' verð á gasolíu og svaroiiu til skipa verði hækkaö til muna. Þau vilja að lítrinn af gasolíu hækki um 8.2 prósent og tonnið af svartolíu um 20 prósent. Það er verðlagsráð sem tekur ákvörðun um verðlagninguna. Krafa olíufélaganna byggist á því að gasolía og svartoiia hafi hækkaö í verði erlendis og einnig að dollar hafi hækkað í veði. Með þessu sé inn- kaupareikningur gas- og svartolíu orðinn óhagstæður. Verði verðlagsráð við kröfum olíu-, félaganna, þá hækkar verð á lítra af gasoliu til skipa úr 8.50 krónum í 9.20. Tonnið af svartolíunni hækkar úr 7.250 krónum í 8.700 krónur. Fróðlegt verður að sjá hvernig verðlagsráð tekur á þessum hækkunarbeiönum en ráðið kemur saman á mánudag klukkan 14.00 til að f jalla um þær. —JGH Stjórn Landssambands íslenskra Útvegsmanna á fundi sinum i gær aðgerðir austfirsku útgerðarmannanna. þar sem samþykkt var að styðja DV-mynd: Arinbjörn. Með besta fiskinn: Fimm efstu úr Reykjavík I yfirliti LIU yfir aflaverðmæti og úthaldsdaga togara fyrstu 4 mánuði þessa árs og sagt frá í DV í gær vek- ur það athygli að þeir fimm togarar sem komu með besta fiskinn að landi á þessu tímabili eru allir úr Reykja- vík. Þessir togarar eru 1) ögri RE 72, 2) Karlsefni RE 24, 3) Arinbjörn RE 54, 4) Engey RE 1 og 5) Vigri RE 71. Sem fyrr er meðalskiptaverðmæti á kíló. Þegar skoðað er meðalskiptaverð- mæti á hvern úthaldsdag er það reykvíski togarinn Ottó N. Þorláks- son sem hefur vinninginn. Númer 2 er Breki VE 61 og númer 3 er Ögri RE 71. Þá eru vestfirsku togararnir Guö- björg IS, Páll Pálsson IS og Sléttanes IS mjög ofarlega yfir togara meö hátt meðalskiptaverðmæti á úthalds- dag. Eins og sagt var frá í gær hefur það vakið athygli hve austfirsku togararnir hafa komið með verðmæt- an fisk að landi, með tilliti til þess að útgerðarmenn þar hafa stefnt skipum sínum í land. ■ -JGH VÖNDUÐ VARA VIÐVÆGU VERÐI omoT' VESTUR-ÞYSKU VERÐLAUNASETTIN! Hin heimsfræga framleiðsla frá KOINOR í Vestur-Þýskalandi fæst nú á íslandi. Verksmiðjan er fræg fyrir vönduð leðursófasett. Lögð er sérstök áhersla á mjög vandað leður sem endist a.m.k. í öld. Vegna sérstakra fjölskyldutengsla við ísland er verð sérstaklega hagstætt OPIÐI DAG TIL KL.16 5mið|uvegi 6, — Kópavogi, — Simi 44544

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.