Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 22
22 DV. LAUGARDAGUR16. JUNI1984. Menning Menning Menning Menning Ásynja óperu sviðsins Listahátíð í Reykjavík. Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Há- skólabíói 14. júní. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einsöngvari: Lucia Valentini-Terrani. Efnisskrá: Gioacchino Rossini: Forleikur að Semiramide og Ahl quel giorno úr sömu óp- eru, Cruda sorte úr L'ltaliana in Algieri, Una voce poco fa úr Rakaranum í Sevilla; Gaetano Donizetti: Forleikur að Don Pasquale; Camilie Saint-Saöns: Danse macabre; Ambroise Thom- as: Caonnais tu le pays? úr Mignon; Pietro Mascagni: Intermezzo úr Cavalleria rusticana; Giuseppe Verdi: Stride la vampa, úr II trova- tore; George Bizet: Forleikur að Carmen og Int- ermezzo; og Chanson bohéme. Vitaö var fyrirfram aö þrír yröu músíkalskir hátindar á listahátíð; tónleikar Christu Ludwig og Eriks Werba, Philharmoníu og Ashkenazy- feöga og söngur Luciu Valentini- Terrani meö hljómsveitinni okkar. Ekki þarf aö orölengja, aö einum þessara tinda misstum viö af, fyrir veikinda sakir. Þaö var mikill miss- ir. En ekki tjóar aö sýta, heldur gleðjast yfir því sem viö fengum aö njóta. Heldur var annar svipur á hljóm- sveitinni okkar en á þeim tónleikum sem næstir voru á undan í röðinni. Hún lék úr sér glímuskjálftann í for- leiknum aö Semiramide og var eftir þaö mestmegnis eins og eitt fyrir- taks hljóðfæri, ef frá eru taldir agnú- ar, eins og þegar ásláttarmenn tóku oröiö „solo” einum of bókstaflega í Danse macabre og slökuðu um of á í „syncopunum” í Chanson bo- héme og þegar fiölungar reyndust ekki nógu sparir á bogann í lokin á Intermezzoinu úr Cavalleria rusti- cana. En þar fyrir utan var stuöiö annars til staðar hjá henni blessaöri. Þannig ætti þaö alltaf aö vera. Gestur kvöldsins var ein af ás- ynjum hins alþjóölega óperusviös, sú Tónleikar Eyjólfur Melsted fágæta mezzo-coloratura, Lucia Valentini-Terrani. — Nú brosir ef- laust margur í laumi og hugsar — hvernig ætlar tónlistarskribentinn að finna viðeigandi lýsingarorö? — Tja, um söngkonu sem fær Islendinga til aö hrópa bravó svo aö undir tekur í sjálfu Háskólabíói, æpa, stappa og blístra af gleöi, sitja með gæsahúð og tárvot augu af hrifningu — klappa í nærri stundarfjórðung til aö krefja hana um eitt aukalag og setja allt á annan endann af fögnuöi, þarf yfir höfuö ekki aðhafa nein lýsingarorö. EM Lucia Valentíni Terrani og Jean-Pierre Jacquillat eftír óperutónleikana á fimmtudagskvöld. Nóra glftir slg Norðurlandahúsið í Fsareyjum — Listahátíð: BRUÐUHEIMILID eftir Henrik Ibsen Þýðing: Sveinn Einarsson/Jens Pauli Heinesen Leikstjóri: Sveinn Einarsson Leikmynd: Tróndur Patursson. Lýsing: Árni Jón Baldvinsson Lengi og innilega fögnuðu áhorf- endur í gærkveldi færeysku listamönn- unum og íslenskum gestum þeirra eftir fyrstu sýninguna af tveimur sem veröa á „Dukkuheim” Ibsens í Félags- stofnun stúdenta á þessari Listahátíö. Það er Leikfélag Reykjavíkur sem annaðist milligöngu um þessa gesta- sýningu en sjálfir gestirnir munu hafa lagt á sig mikiö erfiði til aö komast hingaö og leyfa okkur aö njóta listar sinnar. Og mikiö var gaman aö fá þau í heimsókn, ekki aöeins til aö reyna skilning sinn á málinu heldur líka til aö sjá jafngóða sýningu frá áhugamanna- hópi sem streitist viö aö halda uppi atvinnumannastarfi í litlu samfélagi, og sjá í framrás sýningarinnar háa tinda sjaldgæfrar listgáfu hefja sýninguna alla á æöra stig ógleyman- legrar reynslu. Gamall kunningi Hér á landi er Nóra gamall kunningi, hún er oröin nokkuð þekkt meöal al- mennings eftir skelli sína í sjónvarpi, á kvikmyndum og í leikhúsi. Nokkrar leikkonur hefur maöur séð í þessu vandasama hlutverki, eldra fólk kann aö minnast sýninga lengra aftur þó svo langt sé um liöið síðan Nóra Helmer var fyrst leikin hér á sviöi, 1905 af Stefaníu Guðmundsdóttur, aö það er öllumgleymt. Sagan um Nóru, skjalafals hennar til bjargar eiginmanni sínum, líf hennar í neti blekkingar og sjálfsfpmar, kann aö þykja úrelt í dag. Víst er leikur Ibsen rígbundinn í tíma, eitt af fáum verkum meistarans sem erfitt er aö færa til í tímans rúmi, heimili Nóru er smáborgaralegt hús í enda síðustu aldar, heimur h'fstykkja og þjónustu- kvenna, karlveldisveröldin sem fyrsta kynslóð kvenfrelsisins braust undan. Og leikur Ibsens var beitt vopn í þeirri baráttu, hvati sem key rði hinar mennt- uöu borgaradætur til baráttu. Þrátt fyrir sinn ljósa tíma er leikur- inn engan veginn rykfalhö safnstykki. Hann er lifandi skáldskapur, hörku- spennandi athugun á hefðbundnum viöhorfum í okkar heimi, ekki síöur en liðinni tíð. En þungamiöjan er manneskjan sem átök leiksins snúast um —Nóra. Frú Helmer Ekki dreg ég dul á þaö aö enn hef ég ekki séð túlkun á hlutverki Nóru sem hefur haldiö mér föngnum frá upphafi leiksins til enda. Aörar persónur leiksins hafa margoft stigiö fram í túlkun þekktra og ókunnugra leikara, heilar og sannfærandi. Svo var einnig í gærkvöldi. En Nóra sjálf er þraut sem engin getur leyst svo aö öllum Uki. I gærkvöldi fór EUn K. Mouritsen meö hlutverkiö. Er skemmst f rá því aö segja aö leikur hennar var meö miklum ágætum; hún var full kátínu og glensi framan af, sökk í djúpa örvæntingu um miöbik og rankaöi viö sér á sundlandi hengiflugi í lokin. Var leikur þeirra Péturs Einarssonar í seinni hluta þriöja þáttar glæsilega Leiklist Páll B. Baldvinsson unninn. A Elrn mikiö hrós skiUð fyrir frammistööu sína í þessu hlutverki. Vil ég ekki vera meö smámunalegar aöfinnslur við svo góöan gest — megi hún dafna og þroskast á sinni lista- braut. Eg þakka hrífandi stund fyrir hennar náö og talent. Vinir í raun Smærri hlutverk voru í höndum tveggja Færeyinga og tveggja Islend- inga: Rank lækni og frú Linde léku þau Olivur Næss og Laura Joenssen afar snoturlega, áttu misgóða spretti, suma mæta, aðra stórgóöa. Leikur þeirra er atvinnumennska hrein og klár, án verulegrar vogunar en þaulhugsuö vinna. Þeir félagamir Borgar Garðarsson og Pétur Einarsson léku þá Helmer og Krogstad, gamla skólabræður sem nú sitja mishátt í mannsvirðingastig- anum, annar löglegur og virtur banka- stjóri, hinn forsmáður og fyrirlitinn okrari. Misjafnlega tókst þeim til. Borgar fékk betri kostinn, Krogstad er kall sem er hverjum manni kært viðfangsefni: hann hefur marga fleti, sýnir sífellt á sér nýja hlið í stríði sínu fyrir endurheimtri mannvirðingu. Fór Borgar líka á kostum í rullunni. Pétur aftur á móti sat í þeim leiöinlega og ósympatíska kallhlunki, Helmer lög- manni. Hann náöi sér ekki vel á strik fyrr en í síðasta hluta verksins en átti þá afar góöan samleik meö Elinu. Sviðsetning Sveinn Einarsson leikstýröi Brúðu- heimilinu aö þessu sinni. Aöstæöur í hinu nýja húsi Norðurlandanna í Þórs- höfn munu bjóöa upp á opið sviö: þannig skjótast Færeyingar fram fyrir okkur í þróuninni meöan viö sitjum uppi meö öll hús eins, sama gamla kassasviöiö. Þessar aðstæður vildi Sveinn notfæra sér — hversvegna hann kaus þetta verk sérstaklega lýsir einungis fífldirfsku hans, ekkert verk Ibsen get ég ímyndað mér vanda- samara í sviösetningu á þess háttar sviði. I Félagsstofnun sitja áhorfendur beggja megin við leiksvæðið, sem er ekki réttur ferningur, heldur nokkuð aflangt. Sýningin er hefðbundin aö öðru leyti; leiktjöld og búningar draga dám af ritunartímanum en vegna sviðsins er talsvert meira um hreyfingu á leik- flokknum. Sjónlínur brotna en ekki var það til skaöa. Verra þykir mér hvað gamansemi verksins dofnar í sviö- setningu Sveins — eftil vill gætir þar brigðuls skilnings á færeyskunni. Af minni hálfu — því oft er ókunnugum erfitt að skilja málið, einkum þegar hratt er farið með textann sem gerist oft því Nóra er hraömælt kona og ör í lund. Þeir sem handgengnir eru text- anum komast klakklaust í höfn. Að lokum Að sýningunni afstaöinni þakkaöi Stefán Baldursson gestunum fyrir komuna og athyglisveröa tilraun. Sem eitt af tilraunadýrum í tilrauninni þakka ég fyrir mig, hrífandi leik, sannverðugan og snjallan, djarfa ný- breytni í sviösetningu, í þeirri von að leikhópurinn fái haldið áfram í sínu starfi, í þeirri vissu aö slík „tOrauna- starfsemi” á f ullan rétt á sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.