Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ 687858 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frótt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984. SIS-KAFFII SKATTASK0DUN — skattrannsóknarstjóri, gjaldeyriseftirlit Seðlabanka og Verðlagsstofnun kanna innbyrðis viðskipti Sambandsfyrirtækja Veðrið 17. júní: Stinnings- kaldi og rigning Á morgun, þann 17. júní, mun að öllum líkindum sannast hið fornkveðna aö ekki er alltaf sól á afmælum. Sam- kvæmt upplýsingum veðurstofunnar ætti að hanga þurrt í dag en búist er viö stinningskalda úr suöri á morgun og honum mun líklega fylgja rigning sem að sennilegast mun breiöa úr sér um allt land. Þó er möguleiki að þeir sem búa langt í norðaustri sleppi við vætunaeneigiskaláþaöstóla. -SigA Hækkarbens- íniö eftir helgina? Hækkar verð á bensíni eftir helgi? Svo kann að fara því olíufélögin hafa lagt inn beiðni til verðlagsráös um aö verð á einum lítra af bensíni veröi hækkaður úr 22.30 í 22.40 krónur. Þetta er um 0.5 prósent hækkun. Verðlagsráö kemur saman á mánudag til að fjalla um þessa hækkunarbeiðni. -JGH. Léstaf slysförum íNewYork Islenskur starfsmaöur Flugleiða í New York lést af slysförum. Hann fannst látinn við vinnustað sinn, Rockefeller Center, á fimmtudags- morguninn og hefur sennilega fallið niður af svölum hússins. Maðurinn, sem er fæddur 1946, hét Jón Snorri Halldórsson. -FRI. Smáauglýsingadeild DV í Þverholti 11, sími 27022, verður opin í dag, laugardag, til kl. 14. Deildin veröur lokuð á morgun, 17. júní. Góða helgi. LOKI Nú eru það ekki grænar baunir — heldur kaffi- baunir. Rannsóknardeild ríkisskatt- stjóra hefur að undanförnu beint spjótum sínum að viðskiptum Sambands íslenskra samvinnufélaga viö dótturfyrirtæki sitt, Kaffi- brennslu Akureyrar. Kaffibrennslan er eign Sambandsins og Kaupfélags Eyfirðinga. Skattrannsóknarstjóri, Garðar Valdimarsson, vill ekkert segja um málið. Hann þegir eins og steinn og kveðst bundinn þagnarskyldu. Kaffibrennslan kaupir kaffi- baunir beint frá fyrirtækinu NAF í Kaupmannahöfn sem SIS hefur um- boð fyrir. NAF í fær kaffiö frá Brasi- liu. „Eg hef ekki hugmynd um hvað Sambandiö fær í umboðslaun,” sagöi Gunnar Karlsson, framkvæmda- stjóri Kaffibrennslu Akureyrar. Eftir að Kaffibrennslan er búin að brenna og mala kaffibaunirnar og setja duftið í umbúðir merktar Braga—kaffi er vörunni dreift á markaö. Á höfuðborgarsvæðinu sjá tvö Sambandsfyrirtæki um dreifingu, Birgðastöð SIS og birgða- stöð Sjafnar. Á landsbyggðinni eru það kaupfélögin sem fá Braga— kaffi. Það er einkum heildsöluverð- lagning á kaffinu frá Kaffi- brennslunni sem skatturinn er að skoða. Einnig eru umboðslaunin at- huguð svo og verðlagning á kaffi- baunum til Kaffibrennslunnar. Kannað er hvort um óeðlilegar milli- færslur hafi verið að ræða. Skattrannsóknarstjóri hefur fengið til liðs við sig í þessari umfangsmiklu rannsókn gjaldeyris- eftirlit Seðlabanka og Verðlags- stofnun. „Við vorum beðnir um álit á verð- lagningu á kaffi. Það álit höfum við gefið skattrannsóknarstjóra,” sagði Georg Olafsson verðlagsstjóri. Um frekari upplýsingar vísaði hann á skattrannsóknarstjóra. „Það er ekkert um þetta að segja núna. Þetta er á athugun hjá okkur ennþá,” sagði Sigurður Jóhannes- son, forstöðumaður gjaldeyriseftir- litsins. Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins, kvaðst ekkert geta sagt um málið. DV reyndi án árangurs aö ná tali af Val Arnþórs- syni sem er stjómarformaður bæði Kaffibrennslunnar og SIS. Þeir Valur og Erlendur héldu báðir utan í gær. —KMU Eimskip fagnaði 70 ára afmæli sinu i gær. í tílefni dagsins var slegið upp mikilli veislu í húsnæði félagsins við Sundahöfn. Þar sporðrenndu menn kjöt- og fiskbitum af teinum í metratali. DV-mynd Bjarnleifur. Bæjarstarfsmenn í Eyjum í setuverkfalli Bæjarstarfsmenn í Vestmannaeyj- um fóru í setuverkfall í gærmorgun til aö fá leiöréttingu á launakjörum sínum. Það var strax og vinna átti að hefj- ast um 7.30 í gærmorgun að milli 30 og 40 manns, félagar í Verkalýðsfé- lagi Vestmannaeyja, komu sér fyrir á göngum áhaldahúss bæjarins og kröfðust þess að fá að ræða við bæjarráðsmenn. „Við vorum á samningafundi í fyrrakvöld við Verkalýösfélagið,” sagði Andrés Sigmundsson bæjar- ráðsmaður. „Við gerðum tilboð sem þeir höfnuðu alfarið og því slitnaði upp úr samningaviðræðum. Það var þó ákveðið að hittast á ný á þriðju- dag. Vegna einvers misskilnings um aö algerlega hefði slitnaö upp úr viðræðum og ekkert ákveðið um framhaldið upphófst þetta setuverk- fall. Samninganefndin mætti hins vegar í áhaldahúsið um tíuleytið þar sem fundurinn á þriðjudag var áréttaður. Fólkið fór þá til vinnu sinnar á ný,” sagði Andrés. Hann sagði að sú tvö prósent hækk- un sem hefði orðið á launamarkaðin- um um síðustu mánaðamót hefði ekki verið sett á laun þessa fólks þeg- ar útborgað var í gær þar sem samn- ingar hefðu ekki tekist. „Eg á þó von á því að samningar takist mjög fljótlega þar sem lítið ber á milli,” sagði Andrés Sigmunds- son. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.