Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 14
dfMAMÁbWéfjmigiö: Alls tóku 10 manns þátt í hæfileika- keppni Sóló í Safari í síöustu viku og kenndi margra grasa i þeirri tónlist sem þar var flutt. Kvenmennirnir komu, sáu og sigruðu í þessari fyrstu keppni. Ósk Oskarsdóttir hlaut fyrsta sætiö og Harpa Helgadóttir annaö sæt- ið og fara þær báðar áfram í úrslita- keppnina. Fæstir af þeim sem fram komu hafa komiö áður viö sögu í tónlistarlifinu, einna helst ber aö geta Sverris Storm- sker, sem flutti fremur klámfenginn brag, og Magnúsar Kristjánssonar, sem flutti gamanvísur í kvenklæöum, en sá er víst þekktur á sínu sviöi og raunar lagöi undirritaöur þaö til í dóm- nefndinni aö hann fengi sérstök auka- verðlaun. Á þaö var ekki hlustað. Sigurlagiö Quo Vadis eftir Osk Öskarsdóttur var nokkuö skondin blanda af ýmsu, faglega flutt og ætti hún aö reyna aö smala saman hljóm- sveit á bak við sig. Harpa aftur á móti var meö ágætis dægurlag sem gengi sennilega vel inn um hlustir „Hollywood-slektsins” en hún haföi úa-dúett með sér og mátti þar kenna Jón Olafsson Toppmann, íþrótta- skríbent og plötusnúð á rás 2. Af þeim sem ekki náðu í úrslitin má sérstaklega geta Guölaugs Falk sem flutti ágætt instrumental rokk-Iag á viðamikla „McLaughlin-græju”, þ.e.. gítar með tveimur hálsum. Eftir hæfileikakeppnina kom sænska hljómsveitin Imperiet fram á sviöiö og keyröi nokkra hressa rokkslagara í lið- ið og á heildina litið má segja að hæfi- leikakeppni þessi hafi farið bærilega af stað. -FRI. Þátttakendurnir í hæfileikakeppninni. Ósk Öskarsdóttir, sem sigraði, er sú með sólgleraugun og töluna 31 á bol sínum. 1 öðru sæti var Harpa Helgadóttir, efst til hægri. Steinar: Hundrað- plötu hátíð íBroadway Mikið er um að vera hjá Steina- útgáfunni nú því þar er í undirbún- ingi svokölluö „Hundraö-plötu há- tíö” sem haldin er í tiiefni þess að Steinar hafa nú gefið út 100 íslensk- ar hljómplötur. Verður hátíöin haldin í Broadway þann 22. júní n.k. Hundraðasta plata Steina er plat- an með Sumargleðinni sem nú er aö koma út en meðal þeirra sem koma fram á hátíöinni má nefna Stuðmenn, Pax Vobis, Baraflokk- inn, Sumargleöina, HLH flokkinn, Björgvin Halldórsson, Jón Helga- son og Jakob Magnússon. -FRI SYNGUR Bubbi Morthens er nú á feröa- lagi um landiö þar sem hann kemur fram einn með gítarinn. Hann hefur komið fram á Homa- firði, í Valaskjálf og á Reyðar- firði en á morgun, þjóðhátíöar- daginn, veröur hann á Seyðis- firöi, 18. júní á Vopnafirði, 19. júní á Þórshöfn og þann 20. á Raufarhöfn. Hæfileika- keppnin Hæfileikakeppni umboðsskrif- stofunnar Sóló verður fram hald- ið nú á fimmtudaginn og enn er möguleiki á að skrá sig í hana en miðað er viö aö 10 keppi eins og í síðustu viku. Þeim sem áhuga hafa er bent á að hringja í síma 19620 en Sóló sér um að útvega session-menn til undirleiks fyrir þátttakendur. ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN Hæfileikakeppnin í Safari: KVENMENNIRNIR VORU SIGURVEGARAR KUKL íförtil Evrópu Hljómsveitin KUKL mun halda í tón- leikaför til Evrópu í sumar en þegar hefur verið gengið frá einum 10 tón- leikum i Bretlandi, tvennum í Frakk- landi og verið er að athuga möguleik- ana á tónleikum í Berlín og Evrópu. Þessi för er í beinu framhaldi af út- komu nýjustu plötu KUKL, The Eye eða Augað, sem gefin verður út í Bret- landi á vegum Crass-útgáfunnar. Tónleikarnir í Bretlandi verða flestir með hljómsveitinni Flux of pink indians en Einar örn hefur komið fram meö þeirri sveit og leikiö á trompet með þeim. NME-tímaritið skrifaði ný- lega um eina slíka tónleika og þar fékk Einar góða dóma fyrir trompetleikinn. Flux... vildi fá Einar með sér á fleiri tónieika í vor en hann varð að gefa þaö upp á bátinn þar sem hann er í prófum núna. -FRI <----------------- Hljómsveitin KUKL.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.