Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 29
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984. am—1 :ram—1 :ram—1 :ram — 1 :ram—1 :ram—1 :ram — 1 :ram — 1 :ram — 1 :ram Lið Fram keppnistímabilið 1984. ■■Fram-liðið er miklu betra en bað var í fvrrasumar,, — segir Sverrir Einarsson, fyrirliði liðsins „Auðvitað get ég ekki neitað því að ég er frekar óhress með stöðu okkar Framara í dag. Við höfum verið óheppnir í mörgum leikjum cins og til dsmis gegn toppliðunum, Keflavík og Akrancsi,” sagði Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, í samtali við DV. „Það hefur vantað einbeitingu í vömina hjá okkur og við höfum veriö að fá á okkur mörk sem eru af ódýrari gerðinni. Þetta er hlutur sem við verð- um aö laga. Því er ekki að neita að viö höfum leikið vel í mörgum leikjum og sem dæmi um óheppni okkar get ég nefnt að í nokkrum leikjum við leikið mun betur þegar við höfum tapað en þegar við höfum unnið. Leikur okkar er of gloppóttur en ég veit að þetta á allt eftir að koma í næstu leikjum. Við höfum á að skipa einum besta mann- skapnum í deildinni og í mínum huga er þetta einungis spuming um það hvenær þetta springur út hjá okkur.” — Margir hafa viljað meina að miðj- an hafi verið veikasti hluti liðsins. Hverjusvararþú því? „Ég er ekki alveg sammála því. Miðjumenn okkar hafa auðvitaö átt slæma leiki en til dæmis í síöasta leik var miðjan sterk hjá okkur og miðju- menn IBK sáust ekki í leiknum. Þetta eru mikið til ungir strákar sem eiga eftir að gera það gott.” „Fram-liðið miklu betra en í fyrra" — Er Fram-liðið betra en það var í fyrra? „Þaö er ekki nokkur vafi á því. Liðið er meira aö segja mun betra. Miklu betri leikmenn í liðinu nú. Við höfum fengið sterka leikmenn sem ekki voru með í fyrra, eins og til dæmis Omar Jó- hannsson. Hann á eftir að reynast okk- ur betri en enginn þegar fram líða stundir.” „Boltinn nokkuð góður" — Hvemig finnst þér knattspyman vera samanborið við síðasta sumar? „Boltinn í sumar hefur verið nokkuö góður. Margir leikir hafa verið skemmtilegir og spennandi. Deildin hefur verið mjög jöfn og það hlýtur að bitna á þeirri knattspymu sem leikin er. Mér finnst liðin alveg ótrúlega jöfn að getu. Það geta aliir unnið alia og úr- slit liggja aldrei ljós fyrir áður en flautaðertilleiks.” „Skaginn og Keflavík fengu fljúgandi start" „Ég held að óhætt sé að reikna með því að Skagamenn og Keflvíkingar verði í toppbaráttunni. Bæði þessi lið hafa fengiö fljúgandi start og ég tel aö þessitvö liðverðiefstþegaruppverö- ur staöiö. Þróttur, Fram, Breiðablik og Vík- ingur verða ekki langt undan og ég held að við ættum að geta tekið þátt í toppbaráttunni ef þetta smellur saman hjá okkur. Um botnbaráttuna get ég lítið sagt. Ég get ekki ímyndað mér hverjir ættu að falla. Það er ekki nokk- ur leið að spá um það.” Sverrir er gamall Þróttari, gekk yfir í Fram 1981, og í lokin spurðum við hann hvort hann væri á leiðinni yfir í Þróttánýjanleik. „Þrátt fyrir að ég hafi átt góða tíma í Þrótti varð ég fljótt mikill Framari og ég hef í dag mjög sterkar taugar til Fram. Ég á aldrei eftir að sjá eftir því að hafa farið í Fram, aldrei,” sagði Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram-liös- ins. Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram og einn besti miðvörður í íslensku knatt- spyraunni i dag. SEX NYIR LEIKMENN f jórir hverfa til annarra liða Sex nýir ieikmenn með Fram í sumar. Ómar Jóbannsson lék áður með ÍBV, Guðmundur Steinsson lék áður með öster, Rafn Rafnsson lék einnig áður í Svíþjóð, Hafþór Svein- jónsson lék áöur í Þýskalandl og sömuleiðis Pétur Ormslev og Ora Valdimars'on lék áður með Fylki. Trausti er svo nýr en gamall i bláa búningnum, en lék ekkert með i fyrra vegna meiðsla. Þeir sem farið hafa eru Marteinn Geirsson sem nú þjálfar Víði i 2. deild, Jón Pétursson sem þjálfar Hauka í 3. deildinni, Friðrik Frið- rtksson sem ver mark Breiðabliks af snilld þessa dagana og Halldór Ara- son. -sk I I J am—Fratn—Fram — Fram — Fram — Fram—Fram—Fram—Fram — Fram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.