Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984. 21 Hér sést yfir gamla hiutann afhöruðborg Tíbet, Lhasa þar sem Dalai Lamarnir höfðu aðsetur. Ísland er elns og Shangri La — seglr tíbeskur flóttamadur sem vlll flytjast til landsins Fjöldi tíbeskra flóttamanna hefur áhuga á aö sækja um aö fá að búa á Islandi. Eftir aö grein um Island birtist í „Tibetan Review,” blaöi tíbeskra flóttamanna á Indlandi, hafa fjölmargir flóttamenn skrifaö tii íslensk-tíbeska vinafélagsins, sem sendi greinina til tímaritsins, og beöiö um frekari upplýsingar. I fjölrituöu bréfi til flóttamann- anna viröist vinafélagiö draga nokkuð í land hvaö varöar möguleika flóttamannanna á aö setjast aö á Islandi og segir aö í greininni hafi það haft búsetu Tíbeta á Islandi í huga sem langtímamarkmið. .Ji'yrsta skrefiö verður aö kynna Tíbeta og núverandi vandamál þeirra f jölmiölum hér. Síðan veröum Jigmay Doriee vinnur á lúxushóteli á Norður-lndlandi sem sérfræðingur i kínverskum réttum. D V-mynd ÞÓG. við, eða stjóm hans heilagleika, Dalai Lama, aö sækja formlega um leyfi til aö flytjast til landsins,” segir í bréfinu. En í handskrifuðum eftirmála í bréfi til eins flóttamannsins segir að hugsanlegt sé að komast til Islands til aö vinna í fiskverksmiðju. „Ég skrifaði til baka og sagðist ekki hafa lært til verksmiðjustarfa,” sagöi Jigmay Doriee, ungur tíbeskur matreiöslumaöur, sem vinnur á hóteli í Punnab á Noröur-Indlandi. Jigmay Sagöist leggja mikiö upp úr hinum handskrifaöa eftirmála því vinir hans, sem einnig hefðu skrifað til vinafélagsins, heföu einungis fengið formbréfið. Þegar ég sagöi honum að fiskverksmiöjustörfin kreföust lítillar sérþekkingar sagðist hann reiöubúinn aö fara til Islands f engi hann starf í slíkri verksmiöju. Jigmay er háskólamenntaöur og starf hans á hótelinu feist í umsjón meö kínverskum réttum hótelsins. „Tíbeskir og kínverskir réttir eru margir eins þó þeir hafi mismun- andi nöfn,” sagðihann. Meö bréfi vinafélagsins fékk Jigmay sendan bæklinginn ,,Á hring- vegi,” sem er ferðamannabæklingur um Island. Þennan bækling hefur Jigmay lesiö allan og komist aö staö- fastri niöurstööu: „Island er eins og Shangri La, bústaður guöanna,” sagöi hann. ,,Eg hef einnig veriö aö hugsa um aö fara til Ástralíu. Eg þekki stúlku sem er þaðan. En ég vildi frekar fara til Islands. Islensk-tíbeska vinafélagiö sagðist hafa áhuga á aö varðveita tungumál og menningu Tíbeta. Þaö var skrifað aö ef maður færi til Islands þá gæti maður unniö sér fyrir nægilega miklum peningum til aö borga far- gjald fyrir fjölskylduna til Islands líka. Þeir sögöust vilja hjálpa Tíbetum. Eg hef búiö á Indlandi allt mitt líf og indverska stjómin hefur hjálpað Tíbetum og tíbesku útlaga- stjórninni. Ef þetta vinafélag vill gera hiö sama þá er það freistandi tilboð.” Saga tíbeskra flóttamanna er saga hrakninga og ævarandi heimþrár. Flestir jjeúra komu til Indlands í kjölfar Dalai Lama áriö 1959, mannsins sem haföi verið bæöi trúarlegt og veraldlegt yfú-vald Tíbetbúa. Dalai Lama flúöi til Ind- lands eftir misheppnaða uppreisn gegn Kínverjum sem höfðu lagt undir sig Tíbet. Dalai Lama hefur nú aösetur í Dharamsala, litlum bæ á Norður- Indlandi, ekki langt frá tíbesku landamæmnum. Tíbetar eru alis um sex milljónir en 150.000 þeirra búa sem flóttamenn utan Tíbets. Dalai Lama er væntanlegur í heún- sókn til Kína á næsta ári. Þórir Guðmundsson, Nýju Delhi. Dewadasa og fjársjódurinn Fyrir langa löngu lifði einu sinni í borginni Pataliputra sonur velmeg- andi kaupmanns. Hann hét Dewadasa, geöþekkur, fríður, ungur maöur. Hann var ástfanginn af dóttur auðugs kaupsýslumanns frá Paundrawardhana og þar sem stúlkan endurgalt ást hans, héldu þau hátíðlegt brúökaup sitt. Skömmu síðar dó faöú- unga mannsins. Dewadasa erföi verslunma og önnur efni hans. Þaö varð honum ekki til góös. I staö þess aö vinna, drakk hann með vinum sínum. I stað þess aö auka efnin, eyddi hann þeim, kassinn varð brátt tómur og úrn á glæsilegt heimilið settist fátæktin aö. Unga frúin fylltist örvæntingu. Faðir hennar harmaöi óhamingju dóttur sinnar, tók hana aftur heún til Paundrawardhana. Dewadasa, sem var nú oröinn einn meö áhyggjur sínar tók aö átta sig. Hann iðraðist þess sem hann haföi gert og vildi nú byrja nýtt líf. Hann vildi rétta við gjaldþrota verslunina. Vitaskuld þurfti hann á peningum aö halda til þess. Hann geröi sér vonir um aö tengdafaðú- hans mundi leggjahonumlið. Hann ákvaö snögglega að fara til Paundrawardhana. Þegar hann kom til borgarinnar að áliðnum degi, minnkaöist hann sín fyrir aö ganga fyrú- tengdafööur sinn svo illa til reika, rykugur og tötralegur. „Stoltur maður,” sagði hann við sjálfan sig, „kýs heldur aö deyja en auglýsa fátækt sma.” Dewadasa gekk á markaðstorgið og settist niður skammt frá búðardyrum og hugðist sofa þar um nóttúia. Skömmu síðar kom ungi kaupmaður- inn sem átti búðina og gekk inn í hana. Brátt birtist líka ung, tíguleg kona og læddist úin um dyrnar. I skúii lampans þekkti Dewadasa konu sína. Hryggur hugsaöi hann: „Ætti mig aö furða á þessu? Maður sem sóar eigum sínum, grefur sér gröf. Hvemig á hann aö viðhalda ást konu súinar? Því aö konur eru hverflyndar og miöa tryggð sína við hamingju eiginmannsins.” Indverskt (ævintýrl): Dewadasa braut heilann um hvemig óheppnin leikur þann, sem gengur léttúöúmi á hönd og hvernig kona svíkur sig sjálfa, sem lifir aöskilm frá manni sínum í húsi föður síns. Þegar hann var nú að velta þessu fyrir sér, heyrði hann konu sma segja við elskhuga sinn. „Hlustaðu á mig. Ég elska þig og vil gefa þér gagnlegt ráö. Forfaöú mannsins mín, Wirawarmann nokkur, gróf í jöröu í húsagarðinum hjá sér fjórar kmkkur meö gull- peningum. Hann sagöi einni af konum sínum frá því og hún trúði tengdadóttur sinni fyrir leyndar- málinu. Tengdadóttirin sagöi aftur sinni tengdadóttur, og frá henni hef ég þetta, því aö hún var tengdamóðir múi.” „Og maðurinn þinn?” spuröi sá ókunni.” Veit hann ekkert um gullpenúigana?” Þá svaraði kona Dewadasa: „Hann er fjárhættuspilari. Aö hvaöa gagni getur þaö komiö honum? Eg hata hann en þig elska ég. Þú getur eignast gulliö.” Kaupmaðurinn íhugaöi máliö. „Og hvemig á ég aö fara aö því aö' komast inn í húsið? ” Otrygga konan brosti. „Ekkert er auöveldara. Faröu til Pataliputra og kauptu húsiö af manninum mínum. Hann á ekkert annað og mun verða fús til þess aö selja það. Ef þú nærö í gullið, getum viö lifaö unaöslegu lífi.” Kaupmaöurinn hreifst aö þessari hugmynd. Dewadasa fékk strng í hjartaö við að heyra aö kona hans fór svo á bak viö hann. En það vakti einnig framtíðarvonir í brjósti hans. Hann sneri aftur til Pataliputra og gróf upp f jársjóðúin. Skömmu seinna birtist gróöasjúki kaupmaöurúin í Pataliputra. Hann hegðaöi sér eins og stórhuga maöur. Undú því yfirskini kom hann til húss Dewadasa. Hann leit í krúigum sig og lofaði þaö sem fyrú augun bar. „Mér líst vel á húsiö,” sagði hann viö Dewadasa. „Viltu ekkiselja þaö?” Þaö vildi Dewadasa ekki. Kaup- maðurinn sótti þetta fast og loks seldi Dewadasa honum húsiö fyrir mikið fé. Dewadasa keypti sér annað hús, rak verslun aö nýju og hagnaðist vel. Nú sótti hann aftur konu súia til Paundrawardhana. Ekki löngu eftir þetta kom prettaði kaupmaöurinn til Dewadasa. „Húsið þitt er of gamalt fyrir mig. Viö skulum draga kaupin til baka.” „Hvaö meinar þú?” svaraöi Dewadasa. „Kaup eru kaup.” Þeir þrættu um kaupin og aö lokum báru þeir málið undú konung. Dewadasa leyndi engu. Hann sagöi frá öllu sem borið hafði viö og kona hans gat ekki annað en játaö glappaskot sitt með tárúi í augunum. Konungur refsaöi kaupmanninum, sem ekki aöeúis vildi ná ókunnu konunni ranglátlega á vald sitt heldur og gullfjársjóðn- um. Að gömlum hætti, sneið Dewadasa nefiö af svikurunum og kvæntist annarri konu. Þau lifðu áhyggju- lausu og hamingjusömu lífi allt til enda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.